Iceland Seafood International hf

Iceland Seafood International hf

IICE:ICESEA
4.24
ISK
-0.02
(-0.47%)
0.40EPS
10.76P/E
12.82BMarket Cap

Q2 FY2026 · Earnings Call TranscriptAugust 26, 2026

Ágætu hluthafar og aðrir fundargestir. Ég býð ykkur velkomin hérna á þennan uppgjörsfund Iceland Seafood þar sem ég ætla að fara yfir uppgjör okkar fyrir fyrstu 6 mánuði ársins 2026 og svona það helsta sem við höfum verið að horfa til í því.

Nú, ég ætla nú að byrja aftur hérna á bara umhverfinu á hverju félagið byggir. Við erum í Argentínu, þar erum við með rækjuvinnslu og útgerð.

Við erum niðri í Suður-Evrópu á Spáni, annars vegar í Madrid með reykhús og hins vegar í Barcelona þar sem við erum með hvítfiskvinnslu og pökkun og sölu. Nú, við erum með verksmiðju á Írlandi í Dublin þar sem við erum að vinna úr laxi og fleiri tegundum, Oceanpath.

Og síðan erum við með söluskrifstofur hér á Íslandi, í Þýskalandi og Frakklandi. Það að segja uppsetning félagsins eða það sem samstæðan inniheldur, það óbreytt frá síðasta fundi.

Þannig að síðan það umhverfið sem við erum að vinna í. Það sem við höfum verið að glíma við síðustu mánuði, við getum sagt síðustu 12 mánuði, og þið sjáið vel hérna á myndinni neðst til hægri, það hefur verið mjög hækkandi verð á þorski.

Og reyndar hefur það verið hækkandi verð, má segja, á öllum sjávarafurðum frá Íslandi. Ég kem aðeins að því nánar á næstu glæru, en skýringina á þessu sjáið þið hérna á grafinu til vinstri þar sem sýnir framboðið af þorski úr Norður-Atlantshafinu í heiminum, og það hefur einfaldlega hrunið.

Það sem skiptir okkur miklu máli líka laxaverðið. Bæði höfum við verið í auknum mæli að selja lax þar sem við erum að þjónusta okkar viðskiptavini með hann, auk þess sem við erum með þessar tvær verksmiðjur í Madrid og í Dublin þar sem uppistaðan í vinnslunni lax.

Þar sjáið þið laxaverðið '26. Það hérna línan, brúna línan sem þið sjáið hérna.

Og það má segja að hún sé svona í línu við það sem síðasta ár var. Að vísu hefur ágúst byrjað aðeins á hærri verðum en ágúst var í fyrra, en við getum sagt að laxaverðið hafi verið nokkuð stöðugt það sem af ári og í línu við síðasta ár.

En aftur á móti spárnar eins og þær voru í upphafi árs voru mun hærra verð á laxi, þannig að þær hafa ekki alveg gengið eftir. Hérna sjáið þið framboðið af þorski eins og það í dag og það kannski á árinu '26.

Og það kannski taflan lengst til hægri þarna sem stendur Total supply '26, 640.000 tonn. Hún ansi merkileg fyrir þær sakir að þarna Ísland með 204.000 tonn af þorski og stærsta einstaka landið með stærsta einstaka kvótann héðan úr Atlantshafinu.

Og það held ég að ég geti sagt að það gerðist 2025, en áður held ég að það hafi bara ekki gerst því að Noregur og Rússland hafa alltaf verið mun stærri en við hérna. Þetta hefur því verið einstakt tækifæri líka með þessari stöðu sem kemur þarna upp í framboðinu, minna framboði og minni kvóta úr Barentshafinu, þá höfum við orðið mun sterkari úti á markaðnum, íslenskir framleiðendur og bara íslenskur sjávarútvegur.

Og auðvitað að minnsta kosti til skemmri tíma eru þessar verðhækkanir mjög jákvæðar fyrir íslenskan sjávarútveg, en þær eru ansi hraðar og það eru líkur til þess að markaðurinn muni minnka og það gæti gert okkur erfiðara fyrir þegar kvótinn fer að aukast aftur, því að þessi háu verð munu óneitanlega hafa áhrif á neysluna á okkar helstu þorskmörkuðum og við erum farnir að sjá það nú þegar að það farið að gerast. Hérna ég með mynd annars vegar yfir food inflation eins og það á okkar helstu mörkuðum, og það annars vegar hérna í Evrópu og þetta á að vera US ekki ES, þetta food inflationið í Bandaríkjunum, og síðan það í Bretlandi.

Og þar einfaldlega hefur verðbólgan verið að fara niður, hún hefur verið að hjaðna, sem auðvitað ágætt því að það eykur kaupmátt fólks og í okkar helstu viðskiptalöndum. Nú, á sama hátt hafa vextir á okkar helstu mörkuðum verið nokkuð stöðugir.

Það hækkaði aðeins í vor í evrulöndunum, fór í 2,4% og það í dag, en það má segja að þeir hafi verið nokkuð stöðugir á þessu ári í öðrum löndum. Að vísu þegar við fórum inn í árið 2026 þá voru allar spár lækkanir á vöxtum sem hafa þá aftur á móti ekki gengið eftir.

Nú, síðan ætla ég að venda mér í fjárhagskaflann. Og þar það fyrst starfsemin okkar í Suður-Evrópu sem samanstendur af Argentínu og fyrirtækjunum okkar á Spáni og sölustarfsemi á Ítalíu og fleiri.

Og fyrst það Iberica group sem mjög stórt í þorski, saltfiski í Suður-Evrópu og bara stór player á þeim markaði. Salan þar jókst 8% í verðmætum meðan magnið minnkaði 10%.

Og þarna skýringin fyrst og fremst á minna magni, það minni þorsksala. Og þar eru verðin, eins og ég nefndi áður, að hafa áhrif.

Nú síðan erum við með starfsemina okkar í Argentínu, það að segja í argentínsku rækjunni. Þar framleiddum við 21% meira magn, en aftur á móti var salan niður.

Og það skýrist af því, og sem var aðeins að valda okkur vandræðum á árinu í Argentínu, var það að rækjan hún flokkaðist illa og að hluta til, eins og stundum gerist þegar við erum að glíma við náttúruna, þá eru gæðin frá náttúrunnar hendi á rækjunni ekki þannig að það fari í dýrustu pakkningarnar og inn á dýrustu markaðina. Það hluti af skýringunni á þessu.

Og við höfum verið að glíma við þetta svolítið á þessu ári. Nú svo aftur á móti fyrirtækið okkar í Madrid, Ahumados Dominguez, þar jókst salan 5% í verðmætum og 10% í magni á ársfjórðungnum.

Og það mjög jákvætt, ég verð að segja það. Við seljum þarna nánast eingöngu í okkar vörumerki.

Við erum að selja inn á food service markaðinn, það að segja veitingahúsamarkaðinn aðeins, en þó mest inn í súpermarkaðina. Nú afkoman í Suður-Evrópu, hún var nánast á pari við það í fyrra og totalsalan fyrir þessi félög var nánast sú sama, eða €53 milljónir á fjórðungnum, en aðeins hærri á fyrstu 6 mánuðunum.

Og á þessum fyrstu 6 mánuðum skilar Iberica, félagið okkar í Barcelona, €3,9 milljónum í samanburði við €2,6 milljónir á sama tíma í fyrra. Achernar, félagið okkar í Argentínu, var með tap upp á €620.000 sem bara svipað og það var með í fyrra á sama tíma.

Og þetta aðeins vonbrigði. Við ætluðum að ná meiru þarna, en vonandi náum við að bæta upp hluta af því í haust.

En við lentum í því í desember í fyrra sem ég held að ég hafi komið inn á að það kveiknaði í verksmiðjunni hjá okkur, þannig að framleiðslan í janúar og febrúar var ekki eins og við höfðum áætlað auk þess sem þessi samsetning á gæði rækjunnar var eins og ég nefndi áður, ekki alveg eins og við höfðum reiknað með. Nú Ahumados, reykhúsið okkar í Madrid, það var með tap upp á €143.000 fyrstu 6 mánuðina á móti hagnað upp á €156.000 á sama tíma í fyrra.

Hluti af þessu tapi leiðrétting frá fyrri árum sem var afskrifuð út af þeim. En við getum sagt sko ef við horfum á þetta félag þá þetta lélegasta tímabilið hjá félaginu.

Þarna laxasalan í lágmarki og við erum mjög sátt við þessa afkomu þar og mjög jákvætt að þeir voru að auka söluna í magni. Nú síðan fjárfestum við í tveim skipum þarna á síðasta ári og útgerð þeirra hófst núna í júní í sumar.

Og það var tap á þessu tímabili sex mánuðunum, var tap upp á €230.000. En útgerð þessara skipa kemur nú meira inn í reksturinn síðan í júlí og ágúst og vonandi eitthvað í september.

En veiðin hjá okkur var mjög lítil í júní. Við fórum af stað í júní, veiðin var mjög lítil þá.

Hún hefur verið að veiða á fullu í júlí og núna fram í ágúst, en það svona að hægja á veiðinni núna. Þannig að það útlit fyrir að tímabilið verði styttra en við vorum að reikna með.

Síðan það Norður-Evrópa sem starfsemin okkar í Írlandi. Þar erum við að auka söluna bæði í verðmætum og í magni.

Þrátt fyrir það að það að minnka hjá okkur hvítfiskssalan, það að segja á þorski, ýsu og þess háttar tegundum, hún að minnka út af þessum háu verðum. En eins og sjá má á línuritinu þarna til vinstri neðst þá laxinn, við erum bara að auka mikið við magnið sem við erum að selja laxinn þarna og öll aukningin liggur í laxinum.

Nú afkoman, þrátt fyrir þessa aukningu í sölu, þá erum við bara að halda sjó í margininu, nettómargeninu og hagnaði, og erum í raun og veru alveg á sama stað og í fyrra. Þarna hefur þessi hækkun á verðunum í hvítfiski verið erfið fyrir okkur.

Við þurfum að koma þeim inn í verðið til súpermarkaðanna og það tekur alltaf tíma. Síðan erum við með söludeildirnar bæði hérna á Íslandi og Frakklandi og Þýskalandi.

Þar var salan upp 31% og í verðmætum og 33% í magni. Þetta skýrist nær eingöngu af sölu á loðnuafurðum í vetur og sölu á síld, meiri sölu á síld en árið í fyrra.

Þarna þannig að þetta, ég þokkalega ánægður með starfsemina þarna. Við verðum samt fyrir óhappi sem ég vil benda á og kemur fram í textanum þarna hægra megin, það að segja við töpum kröfu, færum niður kröfu í Frakklandi upp á hálfa milljón evra.

Þannig að það í sjálfu sér einskiptiskostnaður og við metum hana þannig að hún sé töpuð og reiknum ekki með henni, þannig að við afskrifum hana í fullu. Og þetta bara krafa á viðskiptavin sem við metum ekki greiðsluhæfan.

Þannig að, og alltaf hægt að segja ef og hefð, en ef að þetta hefði ekki komið til þá hefði EBITDA-an og hagnaðurinn verið á línu við það sem var í fyrra. Þannig að þetta það sem þetta neikvæða við reksturinn þarna.

Annars held ég að ég geti bara sagt að hann hafi gengið mjög vel. Síðan það heildin.

Þar erum við með, má segja salan upp helming fyrstu 6 mánuði þessa árs upp 16,8% og magnið 12,6%. Þetta magn skýrist eins og ég nefndi áður, aukningu í loðnu og síld, og síðan það mun meiri framleiðslu í Argentínu.

Þannig að við erum að auka það magn líka. Nú þið sjáið hérna á línuritinu til vinstri niðri, þar salan eins og hún fyrstu 6 mánuðina og við erum nánast fyrir ofan mánuðina í fyrra alla mánuðina nema í apríl.

Og þar kannski skýring sem margtítt nefnd að páskarnir voru fyrr í '26 en '25. Og það fyrst og fremst skýringin á því að apríl minni núna í sölu heldur en í fyrra.

Páskarnir skipta okkur miklu máli þegar fastan byrjar fyrir páska, þá yfirleitt mikil sala. Nú EBITDA-an hjá okkur €8,3 milljónir sem lækkun frá því í fyrra upp á €0,9.

En á móti kemur að 12 mánaða trailing EBITDA 12 fyrir 12 mánuðina, hún 21,9 á móti 20,3 í fyrra, þannig að það aðeins hærra. En enn og aftur sko þessar afskrifitir sem við verðum fyrir þarna eins og í Ahumados, sem nemur nú ekki nema €100.000, en í Frakklandi, það hefði nánast keypt EBITDA-una upp á sama stað og í fyrra.

Nú laxaverðið eins og það hefur þróast á árinu að hjálpa okkur með afkomuna eins og í Madrid og í Írlandi líka, en þó að þetta sé aðeins hærra laxaverð en í fyrra. Þannig að hér erum við með fyrsta helminginn fyrir árið í heild sinni.

Kannski að nefna eitt annað, fjármagnskostnaðurinn, hann niður hjá okkur á árinu miðað við fyrstu 6 mánuðina í fyrra. Og það skýrist að hluta til af endurfjármögnuninni sem við fórum í í júní í fyrra.

Nú síðan það efnahagsreikningurinn. Að mínu viti bara félagið ágætlega fjármagnað, við erum með þarna langtímalán.

Við höfum verið að fjárfesta í Argentínu eins og hefur komið fram og við höfum fjárfest svo reglulega fjárfestingar í vinnslunni. En eins og staðan í dag eftir 6 mánuðina þá nettóskuldir á móti EBITDA, það 4,8 en var 4,6 í fyrra.

Og það verður áfram, auðvitað þurfum við að fjárfesta eitthvað og alltaf, en markmiðið verður bara að halda áfram að lækka þetta hlutfall. En samhliða þessum hækkunum á fiskverðum þá auðvitað aukast þeir peningar sem við erum að binda í birgðum.

Og þið sjáið þarna inventory, það í lok júní núna '26, €89 milljónir, það var €79 milljónir árið áður. Og svo eru viðskiptakröfurnar þarna 67,7, en það svipað og það var árið áður.

Þannig að aukningin, þó að við séum með minna í tonnum í birgðum, þá eru verðmæti meiri út af þessum miklu verðhækkunum, sérstaklega í þorski. Síðan það útlitið.

Og í stuttu máli þá höldum við útlitinu sem við höfum gefið út, það að segja með €11,5 til €13,5 milljón evra. Og eins og gerist nú oft í sjávarútvegi þá hefur sumt atriði í rekstrinum innan grúppunnar farið á verri veginn og önnur á betri veginn, og þannig að sko eins og ég nefndi í þessum fyrirlestri, laxaverð hefur verið hagstætt og skiptir okkur máli hvernig það þróast.

Þorskverðið, það auðvitað skiptir okkur gríðarlega miklu máli hvernig það þróast seinni 6 mánuðina. Og síðan sem ég nefndi neikvætt yfir, ég viljað sjá meiri afkomu út úr rækjunni frá Argentínu.

Þannig að það verður alltaf þannig, en við sem sé höldum sama útliti og við gáfum út í vetur í upphafi árs, þannig að við höldum því. Annað var það ekki.

Þá spurning hvort það séu einhverjar spurningar? Ein komin?

Já, varðandi rækjubátana í Argentínu, þar sem þið segið að áhrif fjárfestinga komi fram á 3. ársfjórðungi, hvaða væntingar hafið þið, hver þau áhrif verða á afkomu fyrirtækisins?

Þegar við gáfum út útlitið þá vorum við með útgerðina á þessum tveim bátum inni þeim forsendum sem við vorum með þar. Og við getum bara sagt það sko, við vorum að reikna með þar veiði upp á einhver 1.400 tonn á þessa tvo báta.

En ég held ég geti alveg sagt að þeir munu ekki ná því. Við vorum að glíma við bilanir og við vorum að glíma við byrjunarörðugleika auk þess sem vertíðin fór seint af stað, þannig að við verðum töluvert undir því.

Það kemur að vísu ekki í ljós fyrr en í september eða lok september. En eins og útlitið núna þá verðum við undir því, en sko ég vænti þess að það verði aðrir jákvæðir þættir sem hafa áhrif á afkomuna sem koma á móti því.

En stutta svarið það, það var inni í útlitinu þegar við gáfum það út, rekstur þeirra. Fleiri spurningar?

Já, það hérna ein önnur. Og hún hljómar svona: Gefur lágt hlutabréfaverð ekki tækifæri til að hefja hóflega endurkaupaáætlun?

Ja, hvernig hlutabréfaverðið lágt eða hátt, mér finnst ég ekki eiga skoðun á því. En það hefur engin verið tekin ákvörðun það að fara í endurkaup eða þess háttar, en ég get bara sagt að við höfum fengið nokkrar ábendingar það.

Og ég sé fyrir mér að stjórn þurfi að taka afstöðu til þess bara. Ég vona að þetta hafi svarað spurningunni, en það hefur ekki verið tekin ákvörðun að fara í það.

Meira? Fleiri spurningar?

Ef ekki, þá þakka ég ykkur bara fyrir fundinn og bara svo ítreka ég það sem ég hef nefnt áður að bara ef það eitthvað eða einhverjar spurningar þá bara hiklaust senda það á okkur hvenær sem og þið eruð líka öll velkomin í heimsókn og ræða málefni félagsins. Takk fyrir öll.