Sildarvinnslan hf.

Sildarvinnslan hf.

IICE:SVN
115.25
ISK
+0.25
(+0.22%)
6.47EPS
15.25P/E
181.35BMarket Cap

Q3 FY2025 · Earnings Call TranscriptNovember 27, 2025

Jæja krakkar, ágætu gestir, sérstaklega þið sem heima sitið. Ég ætla nú að lýsa sérstöku, bjóða ykkur velkomin hérna borð í brúna á Berki NK, en hann að landa hérna Síldarey Hafsins í Neskaupstað.

Búinn að gera dálítið af því í haust. Og það gaman að því að geta verið hérna með fjárfestakynningu og kynningu á niðurstöðu 3.

ársfjórðungs í rekstri Síldarvinnslunnar 2025 í einu mesta aflaskipi Íslands. En í mínu reiknast svo til að Börkur sé aflahæstur uppsjávarskipa á Íslandi.

Nú, ef við förum aðeins í það helsta á starfseminni á fjórðungnum, að þá held ég að við getum alveg sagt það með hreysti að veiðar og vinnsla á makríl gengu vel. Sölur hafa gengið vel og verð verið góð.

Við höfum verið að sjá miklar hækkanir á milli ára þegar kemur að makrílafurðum. Nú, kolmunnaveiðar hafa líka gengið vel framan af ári og það kannski skemmtileg viðbót við það að þegar við fórum til veiða í lok ágúst í íslenskum sjó að þá gekk vel að veiða.

Þannig að íslensku skipin náðu ágætis afla í lok ágúst og byrjun september í íslenskum sjó, sem mikilvægt auðvitað upp á samningsstöðu okkar í þegar kemur að makrílheimil-, nei kolmunnaheimildum. Nú, veiðar á norsk-íslensku síldinni hófust síðan í september og fram út október og hafa gengið, gengu mjög vel.

Á tímabilinu þá fiskuðu togar-, ísfisktogararnir okkar vel og vissulega var sumarstopp sem var notað í viðhald og slippverk eins og gengur, sem kemur aðeins inn í fjórðunginn. Nú, landvinnsla í eða bolfiskvinnslan í Grindavík fór bara vel af stað eftir sumarstopp í ágúst.

Og ég held að þegar við tölum bolfiskmarkaðina eins og uppsjávarmarkaðina, ég held að það séu góð verð á okkar helstu mörkuðum og það náttúrulega skýrist af því að við erum auðvitað að sjá gríðarlega niðursveiflu í aflaheimildum í þorski. Ef við skoðum bara aflaheimildir síðustu ára þá þá hafa þær fallið gríðarlega og við erum að sjá Norðmenn og Rússa til dæmis veiða 60% minni þorsk núna en þeir veiddu 2019 og við erum orðin stærsta þorskveiðiþjóð Norður-Atlantshafs, þannig að með það þurfum við að fara vel.

Nú, síðan voru hlutdeildarfélögin okkar að gera góða hluti. Polar Pelagic, grænlenska félagið sem að gerir út uppsjávarskipin Polar Amaroq og Ammassalik, stóð sig vel í makrílnum og átti mjög gott tímabil.

Eins ekki af sömu sögu að segja, það hafa verið miklar áskoranir í rekstri Arctic Fish, hlutdeildarfélags okkar í fiskeldinu fyrir vestan, bara eins og hjá hinum fiskeldisfyrirtækjunum á Íslandi. Við höfum verið og víðar hafa verð á laxi einfaldlega verið lág.

En við hérna á Íslandi erum kannski til viðbótar við það að glíma aðeins við við hérna við hærri kostnaðarliði og eins líka hærri skatthemtu. Nú, ef við förum eins og áður aðeins í lykiltölur fjórðungsins, þá voru tekjurnar $127.5 million.

EBITDA tímabilsins 48,– nei $44.8 million. Og EBITDA-hlutfallið á tímabilinu 35.1%, en var 33.9% á sama tímabili fyrir ári síðan.

Nú, hagnaður 32.1 á móti $19.1 million ári fyrir ári. En við erum með 55,000 tonn af afla á móti 36,000 tonn ári áður, sem mun meiri afli, helgast meðal annars af mun meiri makríl-, nei kolmunnaafla á tímabilinu.

Nú, afurðir í 1,000 tonna eru 38,000 tonn. Ef við skoðum það helsta í eignum, heildareignir samstæðunnar eru $1,100 million.

Og eigið fé hlutfall samstæðunnar sterkt, 64.3%, en var 60.7% í upphafi árs. Handbært fé $68.6 million, var $101.8 million í lok árs, nei í upphafi árs.

Og nettó vaxtaberandi skuldir deilt með EBITDA 1.52, hefur lækkað úr 2.06. Meðalgengi tímabilsins 122.2 á dollar, en var 137.6 á sama tímabili í fyrra.

Nú, ef við skoðum 9 mánuðina þá erum við með $286.3 million í tekjur á móti 236.8, þetta eru $50 million aukning. Nú, EBITDA tímabilsins $82.8 million á móti $58 million ári áður, á sama tímabili í fyrra.

EBITDA tímabilsins 28.9% á móti 24.5% á sama tímabili í fyrra. Nú, hagnaður tímabilsins $44.5 million.

Við veiddum alls 134,000 eða 135,000 tonn tæp og framleiddum 77,000 tonn af afurðum. Nú, ef við förum aðeins í veiði uppsjávarafla okkar að þá eru þetta á tímabilinu 48,000 tonn sem við veiddum.

Og skiptist þannig að að Barði með 17,000 tonn og Börkur með 17,700 tonn og Beitir með 13,200 tonn. Auðvitað hluta til hluta tímabilsins eins og í makrílnum þá erum við í veiðisamstarfi allra skipa og afla skipt jafnt á milli skipa.

Nú, veiði eftir tegundum á tímabilinu þá erum við að veiða 5,400 tonn af makríl, nei og og hérna 18,900 tonn af kolmunna sem að aukning frá árinu áður, eins og þið sjáið þarna á samanburðarmynd. 8,600 tonn af norsk-íslenskri síld og 5,000 tonn af íslenskri síld.

En það mesta sveiflan auðvitað góð kolmunnaveiði, aðeins minni makrílveiði. Nú, ef við skoðum aðeins stöðu aflaheimilda í lok tímabils, sem alltaf gott að horfa til þegar við erum að glöggva okkur á kannski síðustu 3 mánuðum ársins, að þá áttum við eftir 5,300 tonn af norsk-íslenskri síld, makríllinn var auðvitað búinn, og og hérna kolmunninn eigum við eftir 17,400 tonn í lok tímabils og í síldin áttum við eftir 11,300 af íslenskri síld.

Nei, fyrirgefið, ég aðeins að ruglast núna. Norsk-íslenska síldin var 5,800 tonn, makríllinn var búinn nánast og kolmunninn 12,500 og og hérna íslenska síldin 5,600 tonn.

Nú, uppsjávarafli á 9 mánuðunum 107,000 tonn og við vorum með 100,000 tonn á sama tímabili í fyrra. Og og hérna þarna sjáið þið afla eftir skipum.

Barðinn með 33,500, Börkur með 46,000 og Beitir með 27,000. En Beitir missti eiginlega af kolmunnavei-, besta tímanum í kolmunnanum á vormánuðum vegna slipptöku, hann var í viðhaldi.

Nú, enn og aftur kolmunninn náttúrulega langstærsta tegundin, 74,000 tonn, og við erum með 17,000 tonn af makríl. Nú, vinnsla hjá okkur uppsjávar, fiskimjölsverksmiðjurnar í eru með 30,000 tonn og það auðvitað uppistaðan þar kolmunni á tímabilinu.

Og hérna síðan afskurður frá makríl og og síldarvinnslu. En það fór enginn makríll eða síld beint í bræðslu, þetta fer allt í gegnum frystihúsið og nánast bara afskurður af framleiðsluvinnslu.

Þannig að á tímabili erum við með 31,000 tonn í staðinn fyrir 18,000 tonn árið í fyrra. Uppsjávarfrystingin tók 31,400 tonn og við framleiddum 36,000 tonn tæp af afurðum, þar af vegna uppsjávarafurðir 22,500 tonn og mjöl og lýsi 9,000 tonn.

Nú, ef við skoðum 9 mánuðina hjá okkur þá hefur fiskimjölsverksmiðjan tekið á móti 118,000 tonnum, þar af 104,000 tonn af kolmunna. Frystingin hjá okkur, uppsjávarfrystingin tók á móti 36,600 tonnum og það kannski munurinn á milli ára þar að við tókum á móti einhverjum 10,000 tonnum af loðnu sem að kom ekki í ár.

Nú, við framleiddum 67,000 tonn af afurðum. Bolfiskaflinn hjá okkur á tímabilinu 7,200 tonn á fjórðungnum á móti 8,500 tonnum árið áður.

Og það munar auðvitað kannski mest það að frystitogarinn hjá okkur var í slipp í september og var úti í 1 mánuð, vantaði 1 túr inn í hann. En línuskipin eru með 1,300 tonn og ísfisktogarar með 4,400 og og og frystitogarinn, nei fyrirgefið mér, frystitogarinn 1,300, ísfisktogarinn með 4,400 og línuskipin 1,500.

Nú, veiði eftir tegundum sem fyrr þá þorskurinn auðvitað stærsta tegundin hjá okkur. Ýsuveiðin hefur gengið ágætlega á fjórðungnum, erum með 1,700 tonn af ýsu.

Og til þess að glöggva okkur á heimildum sem eru eftir, óveitt, þá eigum við eftir 14,000 tonn af þorski, 8,500 tonn af ýsu, 4,800 tonn af ufsa og 2,800 tonn af karfa. En auðvitað bolfiskheimildirnar þurfa að endast okkur fram að 31.

ágúst á eða í útkvótaárinu. Bolfiskskipin eru þannig með á fyrstu 9 mánuðunum 27,000 tonn og þar af eru ísfiskdragnir með 14,300, línuskipin 7,200 og Blængur með 5,500 frystitogari.

Og tæp 11,000 tonn af þorski og 6,500 af ýsu. Og þið sjáið aðeins ef þið berið þetta saman við árið í fyrra, það hálft 1,000 tonn niður þorskveiðin og ýsuveiðin aðeins niður en ekkert sem telur.

Það kannski mesti mesti hérna skellurinn í ufsaveiðinni sem að minnkar mikið, dálítið á milli ára. Gengið illa að ná ufsanum.

Nú, bolfiskvinnslan hjá okkur á fjórðungnum tók vinnslan í frystihúsi í Grindavík á móti 1,500 tonnum á móti 1,290 tonnum árið áður. En eins og flestir vita þá nú kannski erfitt að bera sig saman við árið áður en búin að vera vinna okkur upp úr þessum gosum og öllu þessu sem kom á Reykjanesi og það má segja í rauninni að það hafi ekki haft mikil áhrif á starfsemi Vísis á þessu ári, verið nokkuð dregin og slit-, og og hérna óraskað.

Saltfiskvinnslan tók á móti tæpum 1,500 tonnum. Framleiðsla afurða, þarna erum við með hérna sjófrystarafurðir á Blæng, 930 tonn, ferskar og frystar afurðir, 730 og saltað 700 eða tæp 800, 2,500 tonn tæp af afurðum á tímabilinu.

Nú, 5,800 tonn eru komin í gegnum frystihúsið í Grindavík, 6,100 í gegnum saltfiskinn. Við erum búin að framleiða 9,800 tonn, þar af erum við með sjófrysta upp á 3,200, ferskar og frystar upp á 2,700 tæp og saltfisk upp á 3,800.

Nú, ef við förum aðeins í rekstrartölurnar og þá eru rekstrartekjur tímabilsins $127.5 million, rekstrargjöld $82.7 million eða EBITDA tímabilsins $44.7 million. Afskriftir $5.5 million og þannig rekstrarhagnaður $39.1 million á móti $11.3 million, nei á móti $32.3 million árið áður.

Nú, fjármunatekjur og fjármagnsgjöld eru neikvæð $2.9 million, voru neikvæð $3.7 million árið áður, sem sagt á sama tímabili. Rekstrarhagnaður $39.1 million á móti $27.7 million.

Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld, nei áhrif reksturs hlutdeildarfélaga, fyrirgefið, eru jákvæðir $3 million á dollara á tímabilinu. En þar munar auðvitað mest jákvæða afkomu Polar Pelagic á makrílvertíðinni.

Reiknaðir tekjuskattar tímabilsins $7.2 million, þannig hagnaður tímabilsins $32 million. Nú, ef við förum í 9 mánuðina þá eru tekjurnar $286.3 million, voru 236 árið áður.

Kostnaður 203, EBITDA $82.8 million tæpar, afskriftir $14.7 million og rekstrarhagnaður tímabilsins $68 million. Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld eru neikvæð $5.8 million og áhrif reksturs hlutdeildarfélaga eru neikvæð $5.5 million.

Þarna vegur náttúrulega þyngst $10 million sem neikvætt inn í okkar bókum vegna niðurstöðu rekstrar Arctic Fish, hlutdeildarfélags okkar. Þannig hagnaður fyrir skatta $56.7 million, reiknaðir tekjuskattar $12.2 million og hagnaður tímabilsins $44.5 million, sem hækkun $16 million frá árinu áður.

Nú, ef við aðeins horfum á hagnaðarbrúna eins og við höfum farið yfir hérna, þá hagnaður 3. ársfjórðungs '24 var $19 million, aukning í EBITDA upp á $12.5 million, afskriftir aukast $1.1 million, fjármagnsliðir eru upp $850,000 og hlutdeildarfélög upp tæp $8 million tæpar, tekjuskattur eykst $2.2 million og þannig hagnaður tímabilsins $32 million.

Ef við skoðum þessa sömu brú fyrir 9 mánuðina, þá vorum við með $28.4 million árið 9 mánuðum '24, EBITDA vex $24.7 million, afskriftir eru nánast á núlli, fjármunatekjur og fjármagnsgjöld auk-, eru betri $2.5 million, gengismunur $985,000, verðbréf og afleiður taka til sín $2.1 million, hlutdeildarfélög eru niður $5.1 million og tekjuskattur eykst $4.9 million, þannig hagnaður tímabilsins $44.5 million. Nú, starfsþáttayfirlit, ef við skoðum aðeins hvernig þetta skiptist inn á milli starfsþátta hjá okkur, þá útgerðin með $142.2 million í tekjur.

Kostnaður seldra vara þar eru $48.6 million, laun eru $49.8 million og og hérna annar rekstrarkostnaður $1.4 million. Þannig að rekstrarhagnaður fyrir afskriftir af útgerðinni $42.4 million.

Landvinnslan með sölutekjur upp á $200 million, kostnaður seldra vara $131.7 million og laun $21.6 million, annar rekstrarkostnaður $1.5 million. Þannig að rekstrarhagnaður fyrir afskriftir í landvinnslu $45.6 $44 million.

Annað með $31.3 million í tekjur og $27.3 million í kostnað seldra vara, laun $6.1 million og annar rekstrarkostnaður $3.1 million. Þannig að tekur annað til sín $5.1 million.

Þannig erum við með rekstrarhagnað fyrir afskriftir í $82.7 million. Afskriftir $14.7 million, fjármunatekjur og fjármagnsgjöld $5.8 million, áhrif reksturs hlutdeildarfélaga $5.5 million og tekjuskattur $12.2 million.

Þannig hagnaður tímabilsins $44.5 million. Nú, EBITDA-brúin á 9 mánuðum í 2025, nei '24 vorum við með $58.1 million.

Útgerðin með aukningu upp á $19.9 million, landvinnslan með aukningu upp á $3.6 million, annað með aukningu upp á $1.2 million. Þannig EBITDA tímabilsins $82.7 million.

Nú, efnahagur félagsins, þarna erum við með óefnislegar eignir í fiskveiðiheimildum á $526 million, sem auðvitað aukning $42.9 million. Þessa aukningu má fyrst og fremst rekja til breytinga á hérna gengismun.

Það að segja dótturfélög okkar Vísir og og hérna í samstæðunni Vísir og Bergur-Hugginn, Vísir í evrum og Bergur-Hugginn í íslenskum og þetta bara gengismunurinn á milli dollars og þessara mynta sem að myndar þessa aukningu á aflaheimild-, eða sem sagt verðmætum í aflaheimildum. Varanlegir rekstrarfjármunir $225.9 million, leiguréttindi $2.1 million.

Þannig erum við með nei fjárfestingareignir hlutir í hlutdeildarfélögum $159.1 million, eignarhlutir í öðrum félögum $2.5 million, skuldabréf $119 million, þannig erum við með fjárfestingareignir upp á $161.8 million. Fastafjármunir eru þannig samtals $915.9 million og aukast $62.3 million og þessi aukning eins og ég sagði áður fyrst og fremst tilkomin vegna gengismuna.

Nú, veltufjármunir, við erum með birgðir upp á $66.3 million, þær hækka $9.7 million, voru $56.6 million árið áður. Viðskiptakröfur $56.8 million, hækka þar $16 million.

Aðrar aðrar skammtímakröfur $10 million, handbært fé þannig $68.6 million. Og veltufjármunir samtals $201 million og eignir samtals eru þannig $1,117 million og hækka $58.2 million á milli tímabila.

Nú, eigið fé samstæðunnar $718.9 million, langtímaskuldir og skuldbindingar $166.4 million og skammtímaskuldir $232.5 million. Skuldir samtals $398.9 million.

Þarna ekki alveg allt sem sýnist. Við erum ekki að fela reikninga, ég átti nú ekki við það reyndar, en hérna en næsta árs afborganir af langtímalánum eru mjög há tala en það einfaldlega út af því að við erum með langtímalán í endurfjármögnun og við erum bara að ganga frá búin að ganga frá endurfjármögnun þannig að þetta verður komið upp í langtímaskuldbindingar og langtímalán eftir í næsta uppgjöri.

Þannig að við erum búin að erum að ganga frá endurfjármögnun á öllum langtíma- eða langtímalánum okkar við norræna banka í Noregi. Þannig að það bara í vinnslu og þá færist vissulega þessar næsta árs afborganir $165.8 million upp að stærstum hluta.

Þannig eru skuldir samtals $398.9 million, eigið fé og skuldir $1,117 million. Nú, ef við skoðum aðeins sjóðstreymi 9 mánaðanna þá vorum við með handbært fé í upphafi árs $101.7 million.

Veltufé frá rekstri $82.6 million, hækka $82.6 million. Greiddir vextir og skattar taka til sín $15.8 million eða $15.8 million tæpar.

Rekstrartengdar eignir og skuldir taka til sín $11.2 million. Fjárfestingarhreyfingar upp á $16.6 million.

Þarna nær eingöngu að ræða hlutafjáraukningu okkar í í Arctic Fish fiskeldi hérna á Vestfjörðum, en það var aukið hlutafé þar á á haustmánuðum. Nú, fjármögnunarhreyfingar taka til sín $72 million og þar vegur þyngst að við erum búin að borga niður langtímalán $45 million, við erum búin að borga arð upp á $17 million og minnka skammtímaskuldir $7 million.

Sem sagt borgað niður langtímalánum 45 og minnka skammtímaskuldir 7 og og hérna borgað arð á vormánuðum. Þannig handbært fé í lok tímabils $68.6 million.

Nú, ég hef alltaf gert það að reglu á þessum fundum að fara aðeins yfir hérna framtíðina og aðeins að gera grein fyrir markaðsmörkuðunum eins og við sjáum þá á þeim degi sem að uppgjörskynning og á þessu tímabili núna. Að þá eins og kom áðan, makrílvertíðin gekk vel og afurðir þar eru að vissulega að mestu seldar og í afhendingarferli, það lítill hluti óseldur.

Búin að vera mikil eftirspurn góð eftirspurn á öllum mörkuðum og hún minnkaði ekki þegar kvótaniðurskurðurinn og ráðgjöf var ljós á vormánuðum já haustmánuðum. Nú, síldarmarkaðir, ég held að megi segja að þar sé bara ágætis staða.

Helstu markaðir eru í jafnvægi og það eru góðar sölur horfur á norsk-íslensku síldinni og íslensku og við erum að sjá auðvitað mun stærri hlutfall hlutfall af aflanum fara í manneldisvinnslu sem auðvitað árangur af fjárfestingu í öllu betri skipum, aukinni tækni og vinnslustigi í manneldisvinnslunni, þannig að við erum að sjá mun stærri hluta af síldarafla fara í manneldi en áður. Loðna, við erum í rauninni ekki með neinar óseldar loðnubirgðir en það þar finnum við alveg fyrir mikilli eftirvæntingu og eftirspurn á okkar helstu mörkuðum.

Bindum vonir við að það verði nú eitthvað bætt við þann byrjunarkvóta sem að kom á haustmánuðum. Mjöl og lýsi, þar erum við að sjá aðeins minni kvóta eins og í Perú en menn reiknuðu með í upphafi hausts.

Það eykur alltaf aðeins eftirspurnina enda eru Perú þessir kvótar yfirburðir í heimsmarkaðnum. En við erum samt að sjá mun meira mjöl og lýsi koma inn á Evrópumarkað frá Suður-Ameríku en en oft áður.

Þannig að það verið að flytja gríðarlega mikið inn þaðan, meira en áður. En verð eru sterk og lýsin hafa haldist stöðugt allt árið segjum við hér, en en auðvitað erum við að tala lýsisverð í einhverjum $2,600-$2,800 sem fór hæst í $5,000.

Þannig að það má segja að það haldist þá stöðugt lágt en ekki hátt ef maður ber það saman við það. Nú, bolfiskmarkaðir, það bara mikil eftirspurn þar.

Sjófrystar afurðir hafa verið í hæstu hæðum og til dæmis þorskur þorsk- og ýsuafurðir á Bretland bara mjög sterk saman með karfann. Sala á ferskum og frystum þorsk- og ýsuafurðum hefur líka verið góð í frystihúsinu og saltfiskmarkaður sterkir.

Það eins og ég sagði í upphafi að það auðvitað gríðarlegur niðurskurður hérna niðursveifla í þorskaflaheimildum hérna við Norður-Atlantshaf, þannig að það gríðarleg eftirspurn eftir þorski og og bara tog í markaðnum. Og við stöndum að mörgu leyti frammi fyrir því að velja dálítið núna hvað við ætlum að vinna úr fisknum og hvaða mörkuðum ætlum við að þjóna.

Það alveg ljóst að í þessum niðurskurði það ekki víst að fái allir sem vilja. Nú, heimsmálin, mér hefur nú alltaf þótt byggingur í heimsmálunum og koma aðeins inn á það.

En auðvitað vita allir af því að að það eru Trump-tollar í Bandaríkjunum og hafa sagt til sín í einhverjum sjávarafurðum þangað inn. Menn hafa séð svona aðeins tregðu og minnkun áhugi kaupenda en kannski hvað Síldarvinnsluna snertir þá erum við ekki stórir inn á inn á þennan markað, þannig að kannski hefur minni áhrif á okkur með beinum hætti.

Kannski frekar að það verði svona runingsáhrif ef að þessar tegundir eins og eldishvítfiskur sem að fá hærri tolla inn á Ameríku leiti meira inn á Evrópumarkað inn á okkar markaði þar. Það kannski frekar eitthvað sem að runingsáhrif sem við gætum átt eftir að sjá en kannski óvíst að það verði verði verra.

Sala gengið vel inn á Úkraínu. Ég meina það eins og ég segi, uppsjávar sölur ganga vel á uppsjávarfiski en við erum auðvitað að selja inn á Austur-Evrópu og Úkraína stór markaður.

Og auðvitað eru þetta gríðarlegar áskoranir. Við erum auðvitað ekki með mikið af kröfum, það lítill greiðslufrestur gefinn og og en það eru einhverjir peningar útistandandi í veltunni þar og og hérna það stríð og óvissa.

Það eru áskoranir í lógistíkinni, við erum að sjá alveg að það ekkert einfalt að með flutninga yfir sum landamærin. Þannig að það hellings hellings áskoranir í þessu en en samt sem áður hefur verið það að það hefur gengið heilt yfir vel að selja þangað inn.

En það ekkert alveg áhættulaust. Nú, við fengum ráðgjöf í uppsjávarstofnum fyrir næsta ár og það auðvitað bara eins og held ég að flestir viti sem fylgjast með félaginu eins og okkar og í með sjávarútvegi, það gríðarlegur samdráttur í makrílráðgjöf upp á 70% fyrir næsta ár.

Og okkur gekk ótrúlega vel Íslendingum að veiða í sumar. Við veiddum einhver held ég 135,000 tonn, við veiddum allan útgefinn kvóta plús þá geymslu sem við erum búin að velta á milli ára.

Þannig að þessi niður- niðursveifla miklu meira en 70% fyrir okkur, við erum að fara úr 135,000 tonna veiði niður í einhverja ja útlit fyrir einhverja 30,000 tonna veiði, þannig að þetta eru 100,000 tonn niður. Það meira en 70%.

Og hérna það verður mikið högg og og auðvitað verkefni fyrirtækjanna að að aðlaga sig og og hvernig menn ætla að mæta þessu. Það verður ekkert allt það þarf að bregðast við því með einhverjum hætti.

En líka sjá ráðgjöf í kolmunna, þar erum við að sjá 41% niðurskurð. Við erum að sjá norsk-íslenska síld reyndar styrkjast og síldarstofnana bara þokkalega sterka og vonandi að þeir komu upp.

Hvort sem það eitthvað samspil á milli þessara aðrar tegundir eigi að fara niður að að eitthvað samspil í hafinu, við það vitum við ekki einfaldlega af því að við rannsók- erum ekki að rannsaka þetta nógu vel og vantar að bæta í þar. Nú, haustleiðangur á loðnu hann skilaði náttúrulega litlum upphafskvóta eins og við vitum en það var gríðarlega sterk ungloðnumæling.

Ég held man ekki hvort þetta var önnur besta ungloðnumæling frá upphafi mælinga þannig að það eru auðvitað miklar væntingar fyrir vertíðina 2027. Og við í rauninni þótt þetta sé lítill upphafsloðnukvóti núna þá skulum við líka vera bara heiðarleg að þetta jákvætt.

Við höfum verið að fara síðustu haust án þess að finna nokkra loðnu þannig að við bindum miklar vonir við það að í janúarleiðangri verði einfaldlega bara aukning á þessum kvótum og það finnist meiri loðna og við verum full bjartsýni með það. Og það væri mjög kærkomið inn í þessa niðursveiflu sem við erum að horfa á í öðrum tegundum að fá loðnuna upp.

Og það væri líka kærkomið fyrir markaðina í Asíu og Austur-Evrópu sem að bíða eftir loðnu og hafa ekki fengið mikið síðustu ár. En það mikil eftirspurn á þeim vígstöðvum og eftirvænting.

Nú, það kannski athyglisvert að horfa á þessa mynd sem ég nú reyndar nýbúinn að sýna á á sjávarútvegsdeild, en ég tók saman loðnuveiði frá 1996 og móttöku fiskimjölsverksmiðjanna líka. Þið sjáið það að ef við skoðum fyrstu 10 árin, 1996 til 2006, að þá meðalloðnuveiði 970,000 tonn og móttakan 1,285,000 tonn og hérna ja að meðaltali.

Næst orðinn og loðnan náttúrulega bara burðarásinn í þeirri þeirri fiskimjöls móttöku. Næstu 10 árin, 2006 til 2016 sirka, þá eru það 565,000 tonn sem verksmiðjurnar taka á móti og þar loðnan ekki nema 325,000 tonn.

Þarna komu inn sterkari tegundir ef við vorum náttúrulega að veiða makríl töluvert í bræðslu fyrst á meðan við vorum að afla okkur veiðireynslu og við höfðum einfaldlega ekki, það gleymist stundum í umræðunni þetta, að við höfðum ekki einu sinni fjárfestingu eða manneldisvinnslu til þess að búa til mat hérna manneldisvöru úr makríl á þeim tíma. Við þurftum að fjárfesta gríðarlega til þess að ná þeim árangri sem við erum til þess að sjá í í vertíð í sumar hjá held ég flestum fyrirtækjum sem eru að vinna makríl.

En það líka liggja að baki margir tugir milljarða í fjárfestingu til þess að þetta hafi orðið að veruleika að búa þessi verðmæti til sem voru búin til í sumar. Nú, síðasta tímabilið þá erum við að sjá loðnuna bara í 165,000 tonnum og í raun ef maður rýnir það betur þá þetta eiginlega það eru 3 loðnulaus ár á þessu tímabili.

Það eiginlega í rauninni bara 1 stórt á 2022 sem heldur uppi þessu 165,000 tonna meðaltali, þannig að þetta í rauninni mun meiri skellur en en það. Þetta auðvitað umhugsunarefni og og hérna þarna einhvern veginn þurfum við að bæta í rannsóknir og vita hvað við erum að gera.

Nú, við hérna kannski varða upplýs- eða sem við, það var ákveðið af stjórn Síldarvinnslunnar á haustmánuðum að fara í það að skoða starfrækslugjaldmiðil félagsins. Og einfaldlega út af því að að með kaupum okkar á á Vísi og auðvitað eflingu bolfiskeiningar félagsins, það að segja getum farið aðeins lengra aftur, þegar við keyptum auðvitað Berg-Hugin og keyptum kvóta af stálskipum og keyptum á Seyðisfirði, þá jukum við mjög hlutdeild bolfisks í í hérna tekjukörfunni og og gjaldakörfunni líka og eignahliðinni líka.

Og og þá það sama skapi þá jókst nú vægi evru í í hérna okkar reikningshaldi, þannig að það þótti eðlilegt að skipta gjaldmiðil og og fara yfir í evru í stað dollars með samstæðuuppgjör félagsins. Og það munum við taka upp 1.

janúar næstkomandi. Og þessi mynd sýnir í rauninni bara vægi gjaldmiðla eins og þetta var í lok eða 2024.

Þannig að við erum þarna með tekjur í evru upp undir 50%, svo kemur dollarinn og við erum með evru gjöldin þau eru hjá 33%, þar á reyndar erum við hærri í dollar af því að þar erum við með til dæmis olíukostnaðinn í dollar. Nú, nei fyrirgefið, þar erum við lægri í dollar, þar náttúrulega bara eiginlega olíukostnaðurinn eftir í dollar sem stærsti hlutinn.

En aftur á móti gjöldin í íslenskum krónum auðvitað ekki þannig að það laun og og innlendur kostnaður. Nú, ef við skoðum síðan eignahliðina, efnahag, að þá þetta miðað við stöðuna eins og hún var fyrst í lok árs 2024, að þá sjáum við að eignahliðin í yfir 50% í evrum og rétt yfir 20 í í dollar.

En síðan í skuldahliðinni þá erum við í lok síðasta árs yfirvinnandi í dollar á móti evru. Það náttúrulega helgast af því að við vorum með uppgjörsmynt í evru og síðan auðvitað erum við að aðlaga skuldakörfuna að því að við séum erum að skipta gjaldmiðil og að tekjukörfunni.

En þarna kannski bara vekja athygli á því að einhverja velta þessari körfu fyrir sér að að við erum ekki með svona mikið af skuld, við erum ekki með nein lán í íslenskum krónum þó að það komi þarna fram yfir 30% skuldir í íslenskum krónum. Þetta auðvitað bara svona veltu-, þetta bara það sem í gegnum veltufjármunina, þetta bara skammtímaskuldir, launaskuldir, tekjuskatts- eða skatturinn og og virðisaukaskattur og svona innlendar kröfur sem vorum velta yfir áramót.

Nú, aðeins bara þarf nú ekki að fara mikið í þessa mynd en hún sýnir náttúrulega bara í raun ekkert annað en bara þá skattagleði sem íslenskur sjávarútvegur býr við á öllum vígstöðvum. Það ekki bara veiðigjöldin.

Það búið að margfalda kolefnisgjöldin á eins og sést á þessari mynd og enn á að bæta við ef að menn taka inn breytingar sem verið að stefna að 1. 1.

hérna janúar 2026. Og þá verður þetta komið yfir $5,000 million á sjávarútveginn.

Og auðvitað höfum við brugðist við á skip eins og þessu sem við stöndum borði í núna, uppsjávarflotanum, hann hefur auðvitað bara leitað eftir olíu þá og keypt olíu í Færeyjum án kolefnisgjalda. Að sjálfsögðu bara sama og auðvitað lærðum þetta bara landsflutningabílunum sem að sáu ekki hag í því að borga þessa skatta og fóru til Færeyja og keyptu olíu.

Þannig að við höfum góða eftirmynd í því, fyrirmynd. En þetta auðvitað nær ekki nokkurri átt að vera búa til skattatengt auðvitað eins og ég segi, ef þetta á að vera til þess að skipta orkugjafa að þá held ég að það væri nú ágætt að finna fyrst orkugjafann sem að fiskiskipafloti Íslendinga getur notað áður en menn fara í að ofurskattleggja það sem við erum að gera.

Og svo með fiskimjölin aðeins sem í bláa blái hlutinn á þessum súlum. Að sjálfsögðu sem tekur því að það ansi harkalegt að fá þau skilaboð að vera búin að eyða milljörðum í rafvæðingu á verksmiðjum, verksmiðjum þannig að fá svo ekki aðgang að rafmagni en vera svo labba fyrir hornið og og hérna og reka sig á skattaský í kolefnisgjöldum.

Nú, ef við horfum aðeins bara á stöðuna núna, síldarvertíðin á lokametrunum hjá okkur og við bara hún búin að ganga mjög vel og stór hluti farið til manneldis eins og ég sagði. Hvað snertir aforkumálin af því að ég minntist nú á það hérna áðan, að þá lítur betur út með það núna þó svo að við séum búin að horfa upp á Kárahnjúkavirkjun leka til sjávar óbeislaða magnið af ágústmánuði og langt fram í september.

Á sama tíma höfum við ekki haft aðgengi að rafmagni eins og við getum í verksmiðjunum. Það var ekki fyrr en núna Norðurál, nei hérna það stoppaði fyrir vestan, Grundartanga, að hérna við fórum að fá óheft óskert rafmagn og á eðlilegum verðum.

Því að verðlagningin líka á dreifingunni orðin það há og og orkunni að hérna hún keppir illa við olíu þó svo að menn séu búnir að smyrja olíuna með kolefnissköttum. Og það umhugsunarefni ef að olían svona dýr á sama tíma og hún lekur óbeisluð til sjávar.

Nú, við vorum að tilkynna í síðustu viku lokun fiskimjölsverksmiðjunnar á Seyðisfirði. Auðvitað gerum við ekkert lítið úr því að auðvitað þetta mikið högg fyrir samfélagið og og hérna alla sem að þetta snertir á á svæðinu.

En þetta líka alveg högg fyrir Síldarvinnsluna, það má ekki gleyma því að þetta eru miklar fjárfestingar bundnar í verksmiðjunni. Það alveg högg að sjá þessa mynd sem ég sýndi hérna áðan, þennan niðurskurð í aflaheimildum að við erum ekki að því að maður stefnir á því að á næsta ári 40% niðurskurður í kolmunna ofan á allt annað.

Þannig að við erum að sjá kannski afla til fiskimjölsverksmiðja fara niður fyrir 400,000 tonn, í 400,000 tonn. Og bara til upprifjunar 2002 þá tók Síldarvinnslan ein og sér, ein sem fyrirtæki 425,000 tonn allt árið í sína verksmiðju.

Þannig að ef allar verksmiðjur á Íslandi eru að fara niður undir 400,000 tonn núna þá sjá menn alveg hvaða sveifla í þessu. Menn hljóta líka að átta sig á því að þetta hlýtur að vekja einhverjar menn þurfa eitthvað að bregðast við.

En auðvitað þetta sjálfsögðu ekki einfalt og við munum auðvitað horfa til sem sagt erum að leggja til ráðgjafar núna vinna með heimamönnum og vonandi bara ber það einhvern árangur að menn finni mótvægisaðgerðir sem gæti mildað höggið að einhverju leyti fyrir íbúa þar. Sama skapi vorum við að með uppsögn á áhöfnum á Gullver og Hálfdán Einarsson á haustmánuðum.

Þetta eru auðvitað bara hagræðingaraðgerðir sem að við sjáum fram á að þurfa að fara í. Og og hérna umhverfið auðvitað að breytast, við stöndum frammi fyrir ýmsum áskorunum, hækkandi gjöldum og og svo það auðvitað líka þannig að þorskafli Íslendinga hefur fækkað minnkað 70,000 tonn frá 2019.

Og hjá okkur eru þetta þá einhver kannski 5,000 tonn í samstæðu Síldarvinnslunnar og það gefur eiginlega að einhvers staðar kemur það niður. En við keyptum Birting fyrir nokkrum misserum og stefnum á því að gera hann út í kjölfarið og ráða tvöfalda áhöfn þar, þannig að vonandi náum við nú að vinna úr mörgum úr áhafnarmeðlimum eða sem sagt að að bjóða mörgum af þessum áhafnarmeðlimum vinnu aftur.

Nú, eins og ég sagði, það verið að boða hækkanir á kolefnisgjöldum, við vitum að það að koma ný veiðigjöld, við vitum bara ekki hvernig þau líta út, óvissan svo mikil. Og ég held að það sé bara vandræðagangur að reikna út veiðigjöldin.

Vinnubrögðin við setningu þessara veiðigjalda var mjög ónákvæmur og vond. Og það endurspeglast kannski bara í því að að við stóðum frammi fyrir því á vormánuðum og stöndum í rauninni frammi fyrir því ennþá mánuði áður en gjöldin koma á ykkur að hérna velta fyrir ykkur eru gjöldin að hækka í 1,800 milljónir, eru gjöldin að hækka í 2,000 milljónir eða 2,500 milljónir eða 15?

Það við áttum okkur ekki alveg á þessu. En þær tölur sem við höfum frá vormánuðum og eru byggðar í rauninni á gögnum frá Ríkisskattstjóra að þær voru frá 1,800 upp í 2,300 milljónir, þannig að það alveg 400-500 milljóna króna sveifla bara í óvissum gögnum sem við höfum í höndunum í dag.

Það sjá það náttúrulega allir að þetta ekki gott. En auðvitað munum við bara bíða eftir og vonast til að þetta birtist á næstu dögum.

Og við skulum bara bíða róleg þangað til þau koma og þá munum við bara fara yfir það og sjá hvort við hvernig við bregðumst við og með hvaða hætti. Nú, að þessu sögðu þá held ég að ég ljúki nú bara þessari yfirferð á þessu uppgjöri og varpa því fram hvort að það séu einhverjar spurningar komnar.

Engar.

Og það eiginlega eina sem að mér finnst oft jákvætt við þessa fundi með ykkur sem eruð að hlusta, ég fæ ekkert mikið af spurningum. Þannig að auðvitað væri gaman að hafa ykkur sem eruð á myndavélinni einhvers staðar í sófunum í Reykjavík eða annars staðar hérna borð í Berki austur í Neskaupstað, en þið komið bara seinna.

Takk fyrir í dag.