Hampiajan hf

Hampiajan hf

IICE:HAMP
82.00
ISK
-0.50
(-0.61%)
2.66EPS
36.27P/E
53.26BMarket Cap

Q4 FY2025 · Earnings Call TranscriptMarch 5, 2026

Hjörtur Erlendsson

Já, góðan daginn og verið velkomin á þessa kynningu á uppgjöri Hampiðjunnar fyrir árið 2025. Og við förum bæði yfir síðasta ársfjórðung síðasta árs og líka árið í heild sinni.

En áður en að við förum í reikninginn sjálfan, þá ætla ég að fara svona yfir það sem var helst að gerast á síðasta ársfjórðungi og sýna ykkur eitt myndband stofnun Eldis, fyrirtækis sem að við stofnuðum núna áramótin. En fyrst varðandi helstu atriði starfseminnar á fjórða ársfjórðungi, að þá var sala samstæðunnar á ársfjórðungnum var lægri heldur en búist var við, en hærri en á sama ársfjórðungi 2024 vegna félaga sem bættust í samstæðuna á árinu, Kohinoor og International Rope Braid í Ástralíu.

Og sérstaklega dróst sala á veiðarfærum við Norður-Atlantshaf saman og það tilkomið vegna kvótaskerðinga í makríl, kolmunna og þorski í Barentshafi, sem að taka gildi á þessu ári. Bann Evrópusambandsins við sölu til tveggja stærstu rússnesku útgerðanna, sem veiða á sameiginlegum fiskistofnum Noregs og Rússlands í Barentshafinu, Murman Seafood og Norebo, ásamt nýju viðskiptabanni ESB á sölur á öllum vörum úr stáli, dró töluvert úr sölunni í Norður-Noregi.

Nú, aukin samkeppni í veiðarfæragerð í Færeyjum hefur einnig haft áhrif með auknum þrýstingi á verð og það gildir bæði Færeyjar og Grænland. Nú, veiðarfærasala í Danmörku, Skotlandi og Bandaríkjunum var hins vegar meiri en á sama ársfjórðungi 2024.

Og sala til fiskeldis á Norður-Atlantshafi, hún var svipuð og fyrir ári síðan. Og sala nýja fyrirtækisins okkar, Kohinoor á Indlandi, varð á síðasta ársfjórðungi framar væntingum.

Í byrjun desember, þá var kynnt sameining allrar starfsemi samstæðu Hampiðjunnar sem tengist fiskeldi í eitt alþjóðlegt félag sem fékk nafnið Eldi. Og starfsemi nýja félagsins hófst núna í byrjun janúar og hefur farið afar vel af stað.

Starfsmenn eru rúmlega 500 og velta þessa starfsþáttar í samstæðunni 2025 var 112 milljónir evra eða sem svarar 16 milljörðum íslenskra króna. Nú, ég ætla að sýna ykkur hér myndband sem kynning á stofnun Eldis og hvernig sem sagt við erum að sameina félög í þetta nýja fyrirtæki sem að taka við öllu í fiskeldinu.

Video Narration

A Faroese industry leader in aquaculture. A Norwegian powerhouse with the world's largest service network.

A world-renowned expert in producing and delivering salmon lice skirts. What do they have in common?

A relentless drive for innovation, a commitment to quality, a deep connection to the Nordic seas. Now, they're all part of Hampiðjan.

It's a new era for us. We need to create a brand that can unite us, but also carry the strong heritage of the three companies forward.

A brand that combines the strength of Vónin Aquaculture, Mørenot Aquaculture, and Fiska Protection. Three strengths, one vision: the new wave in aquaculture.

A new era demands a new name. A name rooted in our heritage, but built for the future.

Meet Eldi. A distinct Icelandic word that embodies the industry we operate in.

A name that honors our history and our dedication. Eldi is inspired by the Icelandic word for cultivation, because we create opportunities for aquaculture companies to grow and prosper.

The word eldi first appeared in the year 1117, describing the obligation of taking care of and bringing up animals. Today, it anchors the language of modern aquaculture.

It's a word found nowhere else. A name as unique as the company it represents.

It's a stamp of quality. When you see the name Eldi, you can always expect more.

We are constantly seeking new ways to push the industry forward, always staying ahead of the curve. Whether it's in Eldi Innovations, Eldi Solutions, Eldi Nets, Eldi Protections, or Eldi Services.

We expect more from ourselves, you can expect more from us. Expect more quality, more expertise, more service.

Expect international experience and relentless product development. With us, you can expect end-to-end aquaculture innovation.

We are Eldi. Expect more.

Hjörtur Erlendsson

Og þá vitið þið allt hvernig Eldi varð til og hvaða félög standa að því. En eins og ég nefndi áður, þá hefur þetta farið virkilega vel af stað og sérstaklega það ánægjulegt að sjá hvað viðskiptavinirnir eru ánægðir með stofnun fyrirtækisins, því að þeir sjá fram á að fá þarna öflugri þjónustu og meiri vöruþróun og betri stuðning heldur en áður.

En við ætlum að vinda okkur í að skoða rekstrarreikninginn fyrir fjórða ársfjórðung 2025. Og eins og komið hefur fram áður, þá var þetta nú ekki þarna sá besti ársfjórðungur sem að við höfum haft hér í Hampiðjunni, því það var margt sem spilaði inn í í lok síðasta árs.

En salan, hún varð meiri heldur en ári áður, fór í 82,1 milljón evra á móti 77,8 árið 2024, hækkaði þarna 4,3. Og þið sjáið að árið 2024 stjörnumerkt og þetta kemur til af því að við lögðum af starfsemi á síðasta ári og samkvæmt IFRS þá þurfum við að breyta tölum í uppgjörum þannig að samanburðartölurnar séu sambærilegar.

Og þarna sjáum við þróun veltunnar eftir ársfjórðungum og þessar dökklituðu sýna samsvarandi ársfjórðunga í lok hvers árs undanfarin þrjú ár: 82,1 í lok '25, 77,8 í lok '24 og 75 í lok '23. Þarna má líka sjá að annar ársfjórðungur yfirleitt okkar besti ársfjórðungur.

Það þegar fer svona koma fram á sumarið og vera að afhenda veiðarfæri og annað slíkt fyrir vertíðirnar. Nú, rekstrargjöldin án afskrifta, sem voru 68,9 milljónir evra, fóru í 75,5 milljónir eða upp 6,6 milljónir evra.

Og EBITDA-n, sem var 8,9 milljónir evra eða 11,5%, hún fór í 6,6 milljónir evra eða 8%. Og EBITDA að lækka þarna á milli ársfjórðunga, þessara ársfjórðunga, 2,3 milljónir evra.

Og þarna sjáum við EBITDA-na eftir ársfjórðungum: '25 6,6, '24 8,9 og '23 þá var hún 7 milljónir evra. Og þarna endurtekur munstrið sig að mesti hlutinn af EBITDA-n eða hæsta EBITDA-n að koma þarna á öðrum ársfjórðungi.

Nú, afskriftir voru 3,3 milljónir, voru áður 3,2 milljónir, eru að hækka þarna á milli ára. Þarna náttúrulega Kohinoor með mikinn vélakost að koma inn í afskriftirnar.

Þannig að rekstrarhagnaðurinn, sem var 5,6 milljónir evra '24, hann varð 3,3 milljónir, var að breytast þarna, lækka 2,3 milljónir evra. Fjármunatekjur, og þetta dálítið sérstakur liður hjá okkur því að þegar að við buðum út nýtt hlutafé 2023 að þá var hluti af hlutafjáraukningunni, hún var ætluð í tvennt: að borga niður eða greiða niður laun eða sem sagt skuldir Mørenot og að byggja upp í Litháen.

En síðan þegar að leið aðeins frá, þá opnaðist möguleiki á að eignast fyrirtækið Kohinoor á Indlandi og það varð til þess að seinka uppbyggingunni eða við hættum alveg við uppbygginguna í Litháen og ákváðum að byggja upp á Indlandi í staðinn. Og það varð til þess að við geymdum helming af hlutafjáraukningunni inn á reikningi í íslenskum krónum og fengum af því þarna góðar vaxtatekjur.

Og þessar vaxtatekjur á síðasta ársfjórðungi '24 voru 2,2 milljónir evra. En síðan keyptum við Kohinoor og greiddum fyrir með stærstum hluta af því sem vorum með inn á reikningi.

Þannig að vaxtatekjurnar, fjármunatekjurnar fara þarna úr 2,2 milljónum evra í 0,7 milljónir evra, sem sagt lækka þarna 1,5 milljón evra. Nú, fjármagnsgjöldin, þau hafa lækkað á milli ára, fóru úr 3,6 í 3 milljónir.

Og þetta árangur af því að við erum stöðugt að ræða við lánin okkar og þrýsta kjörunum niður og það hefur tekist, þannig að fjármagnsgjöldin eru lægri heldur en áður, munar þarna 600.000 evrum. Síðan kemur þarna annar mjög sérstakur liður, en það gengismunur.

En í lok ársins '24 að þá kemur inn mikill jákvæður gengismunur upp á 1,5 milljón evra, sem var stærsti hlutinn af gengismun þess árs sem var rétt 2 milljónir. En síðan í lok síðasta árs að þá þessi gengismunur á sama ársfjórðungi 200.000 evrur.

Og þarna sveifla 1,3 milljónir evra. Og síðan þarna með hlutdeildarfélög, þetta nú mest Seltind í Færeyjum sem að kemur þarna inn með 100.000, var neikvætt 100.000 fyrir ári síðan.

Þannig að fjármagnsgjöldin, í staðinn fyrir að vera jákvæð 100.000 '24, að þá eru þau neikvæð 2 milljónir á fjórða ársfjórðungi '25, munar þarna tveim milljónum evra. Nú, hagnaður fyrir skatta, sem var 5,7, varð 1,3, breyting þarna 4,3 milljónir niður.

Og síðan þarna tekjuskattur, 600.000 '24 og 900.000 '25. Þannig að hagnaður af áframhaldandi starfsemi, hann var '24 5 milljónir evra en 400.000 núna á síðasta ársfjórðungi, breyting þarna 4,6 milljónir evra.

Hérna sjáum við súluritið svipað og hitt sem að við vorum að skoða hér á undan, að fjórði ársfjórðungur núna með 400.000 og síðan ef við lítum á fjórða ársfjórðung '24 með 5 milljónir, að þá munar þarna mest vaxtatekjurnar og gengismuninn. Og síðan á þessum ársfjórðungi að þá fengum við inn 1,6 milljónir evra sem að var það fyrsta sem að við fengum út úr stóra fiskeldisverkefninu í Sádí-Arabíu hjá fyrirtækinu NEOM.

Og síðan ef við förum aftur til '23 að þá var það líka 400.000 evrur. Nú, síðan lögðum við af starfsemi á síðasta ári til þess að hagræða, framleiðslufyrirtæki Poldan í Póllandi og Mørenot Danmark í Danmörku.

Stærsti hlutinn af þessu kom í þriggja sem sagt uppgjöri fyrir fyrstu þrjá ársfjórðungana, en síðan voru þarna eftirhreytur sem að voru 600.000 evrur á síðasta ársfjórðungi. Og til samanburðar þá voru svipaðir liðir í lok '24 300.000 evrur.

Þannig að hagnaðurinn sem var 4,8 milljónir '24, að hann 200.000 evrur í tap á síðasta ársfjórðungi. Og þarna breyting 5 milljónir evra.

Nú, ef við förum síðan í uppgjörið fyrir 2025 fyrir allt árið, að þá sjáum við aðeins öðruvísi tölur. Salan 2024, hún var 311 milljónir en fer í 359,7 milljónir á síðasta ári, eykst þarna 48,7 milljónir eða 15,7%.

Og þarna sjáum við rekstrartekjurnar hvernig þær hafa þróast undanfarin ár: 359,7, '24 þá voru 311, en vel að merkja ef þið kíkið í ársreikninginn þá munuð þið sjá töluna 318,8 milljónir, þetta þessi leiðrétting sem að verður til út af aflagðri starfsemi. '23 322 milljónir.

Og það þarna '23 að þá fyrri hluta ársins þá erum við að eignast Mørenot og núna sem sagt á í febrúar á síðasta ári þá vorum við að eignast Kohinoor og IRB. Ef við förum þarna lengra aftur í tímann, 2016, það var árið þegar við eignuðumst Vónina í Færeyjum, þá tvöfaldaðist velta Hampiðjunnar.

Nú, þetta alltaf áhugavert fyrir okkur að skoða hversu stór hluti af rekstrartekjunum eru á Íslandi. Og þau salan á Íslandi var alveg prýðileg á síðasta ári, þannig að þrátt fyrir að Kohinoor kæmi þarna inn í samstæðuna, að þá hlutfallið samt 10% hér á Íslandi, sem að þá 90% sem kemur til okkar erlendis frá.

Nú, rekstrargjöld án afskrifta, sem voru 273,4 milljónir, voru á síðasta ári 320,1, breytist þarna 46,7 milljónir evra og að hækka þarna 17,1% á milli ára. Og EBITDA-n, sem var 37,6, að hún varð 39,6 og að hækka 2 milljónir evra á milli ára eða 5,3%.

Og EBITDA-hlutfallið sem var 12,1% varð 11% á síðasta ári. Og hérna sjáum við hvernig EBITDA-n hefur þróast: '25 39,6, '24 37,6 og '23 37,5.

Nú, það var voru tveir liðir sem voru svona mjög einstakir á síðasta ári, aðallega tengdir kaupunum á Kohinoor á Indlandi. Þannig að ef að við tökum þessa liði út úr myndinni og aðlögum EBITDA-na, að þá væri þetta 37,6 '24, samsvarandi 40,4 milljónir í fyrra, fer úr 12,1% í 11,2%.

Að hækka þarna 2,8 milljónir eða 7,4%. Nú, þarna koma inn afskriftirnar: 14 milljónir '24, fara í 15,3, að hækka þarna 1,3 milljónir evra.

Og þarna náttúrulega Kohinoor að koma inn með sínum afskriftum. Þannig að rekstrarhagnaðurinn, hann fer úr 23,6 í 24,3 og að hækka þarna 700.000 evrur á milli ára eða 2,9%.

Þannig að þarna svona sjáum við efri hlutann af uppgjörinu og núna komum við að þessum liðum sem við vorum að fjalla áðan, fjármunatekjunum og gengismun og vaxtakostnaði og slíku, að þá sjáum við að fjármunatekjurnar breytast þarna mjög mikið á milli ára, fara úr 4,7 milljónum evra í 1,6 milljónir evra, að lækka þarna 3,2 milljónir evra. Fjármagnsgjöldin, þau eru að lækka, fara úr 13,5 milljón í 12,7, þannig að það koma þarna inn 800.000 til tilbóta.

Gengismunurinn hins vegar, hann sveiflan á milli ára gríðarlega mikil. Að við vorum með 2,1 milljón í gengishagnað 2024, en í gengistap 2025 var það 1,9 milljónir evra.

Þannig að sveiflan þarna á milli ára eru 4 milljónir evra. Og síðan koma þarna inn hlutdeildarfélögin með 200.000 2024 og 100.000 2025.

Þannig að fjármagnsgjöldin, sem voru 6,4 milljónir evra, eru árið 2025 13 milljónir evra. Þarna munar hvorki meira né minna en 6,6 milljónum evra.

Og þetta hefur náttúrulega gríðarleg áhrif á uppgjör ársins. Nú, hagnaðurinn fyrir skatta, sem var 17,2, verður 11,3 og að breytast þarna 5,9 milljónir evra.

Tekjuskatturinn, sem var 2,9, varð í fyrra 2,5 milljónir. Og síðan þá hagnaður af áframhaldandi starfsemi, sem var 14,3, hann í ár 8,8 milljónir eða í fyrra, réttara að segja.

Og þarna eru sem sagt þessir liðir, fjármagnsliðirnir að hafa svona mikil áhrif á uppgjörið þótt að salan sé að aukast og EBITDA-n sé að hækka, að þá eru fjármagnsliðirnir að taka það til baka. Og hérna sjáum við súlurit sem sýnir hagnað af reglulegri og áframhaldandi starfsemi.

Og þarna búið að taka út árunum fram til 2016, við vorum með hlutdeildartekjur af HB Granda sem hét þá, og síðan 2016 þegar við seldum hlutabréfin í HB Granda til þess að kaupa Vónina í Færeyjum. Þannig að þarna sem sagt eiginlega hreint súlurit yfir hagnað af reglulegri starfsemi, sem var þá 8,8 2025, 14,3 2024.

Og þetta þessar tölur eru leiðréttar miðað við aflagða starfsemi eins og ég minntist á áðan. Nú, við lögðum af þessa starfsemi í Danmörku og Póllandi á síðasta ári og heildarkostnaðurinn við það var 2,9 milljónir evra.

Þannig að hagnaðurinn 2024, 14 milljónir, að í fyrra varð hann 6 milljónir evra, að lækka þarna 8 milljónir evra á milli ára. Nú, við ætlum að greina þarna EBITDA-na betur og sýna ykkur hvernig hagnaðurinn og sjóðstreymið þarna hefur þróast yfir árið.

Og Emil Viðar fjármálastjóri þarna ætlar að taka við og fara aðeins í gegnum það.

Emil Viðar

Já, takk fyrir. Við ætlum að byrja á því að fara yfir EBITDA-brú ársins þar sem að við förum sem sagt hvernig EBITDA-n var á árinu 2024 og hvaða liðir eru að breytast sem leiða okkur í EBITDA ársins í ár eða 2025.

En þá sjáum við að EBITDA '24 var 37,6 milljónir evra. Tekjurnar eru að aukast 48,7 milljónir á árinu '25 frá '24.

Framleiðslukostnaðurinn, hann eykst á móti 35,2 milljónir evra og rekstrarkostnaður að aukast 11,5 milljónir. Þetta leiðir okkur í 39,6 og svo eins og Hjörtur kom inn á áðan þá einskiptiskostnaður á árinu einkum tengdur kaupunum á Kohinoor, 787.000 og sem sagt þá aðlöguð EBITDA ársins '25 þá 40,4 milljónir.

Ég ætla að fara aðeins líka yfir hagnaðarbrú, hvernig við förum úr hagnaði af áframhaldandi starfsemi '24, sem var 14,3 milljónir, yfir í hagnað af áframhaldandi starfsemi '25 og svo niður í lokatöluna í rekstrarreikningnum. En EBITDA-n að aukast þarna á milli ára rúmar 2 milljónir evra.

Á móti eru afskriftir að aukast 1,3. Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld eru að minnka þarna á milli ára eða kostnaður að aukast 2,4 milljónir.

Og síðan kemur þessi stóra tala sem Hjörtur minntist á áðan í gengismun, neikvætt á milli ára 4 milljónir. Tekjuskatturinn að lækka 440.000 og afkoma af hlutdeildarfélögum að lækka 127.000, þannig að hagnaður af áframhaldandi starfsemi 8,8 milljónir.

Síðan kemur inn þarna til viðbótar aflögð starfsemi, tæpar 2,9 milljónir og hagnaður ársins 2025 5,9 milljónir eða tæpar 6 milljónir evra. Ég ætla líka að fara yfir sjóðstreymisbrú hérna, hvernig handbært fé hjá samstæðunni að breytast á árinu.

En fyrst að þá var handbært fé 41,4 milljónir, EBITDA-n 39,6. Á móti kemur kostnaður út af aflagðri starfsemi, 2,9 milljónir tæpar.

Rekstrartengdar eignir aukast umfram skuldir 8,5 milljónir, þannig að við erum að binda 8,5 milljónir í rekstrartengdum eignum. Vextir og skattar hafa neikvæð sjóðstreymisáhrif upp á 14,4 milljónir.

Fjárfestingahreyfingar aðrar heldur en fjárfestingar í dótturfélögum eru 18,4 milljónir á tímabilinu og við fjárfestum í dótturfélögum fyrir 23,7 milljónir. Á móti þessu erum við að taka bankalán, 18,2 milljónir.

Innborguð aukning á hlutafé frá minnihluta í dótturfélagi, við jukum hlutaféð í Kohinoor á Indlandi til þess að greiða fyrir landið sem við keyptum þar. Og þetta sem sagt hlutdeild minnihluta í þeirri hlutafjáraukningu.

Þeir lögðu fram 24,9% á meðan við lögðum fram 75,1%. Síðan greiddur arður, 5,3 milljónir, svo kemur gengismunur af handbæru fé 888.000 og svo var handbært fé frá keyptu dótturfélagi 129.000.

Samtals þetta 26,4 milljónir handbært fé í árslok. Ég ætla að fara líka aðeins yfir efnahagsreikninginn og helstu breytingar í honum á milli '24 og '25.

Ef við byrjum í fastafjármunum að þá eru varanlegir rekstrarfjármunir að hækka 13,3 milljónir. Skýringin þar einkum tilkoma Kohinoor inn í samstæðuna.

Óefnislegar eignir eru að hækka 18,5 milljónir, fara úr 86,6 í 105,1 milljón í árslok '25. Og það sama þarna, þarna einkum að ræða goodwill eða viðskiptavild eða yfirverð út af kaupunum á Kohinoor, en þá á eftir að framkvæma kaupverðsútlutningu.

Hún verður framkvæmd núna á fyrsta ársfjórðungi þessa árs og myndi þá koma inn í reikningana okkar frá og með fyrsta ársfjórðungi. Eignarhlutir í hlutdeildarfélögum eru að hækka 100.000 evrur, eignarhlutir í öðrum félögum, sem þá einkum hlutdeild eða hlutur okkar í Síldarvinnslunni, 2,2 milljónir evra, breytist þarna ósköp lítið á milli ára.

Skuldabréf og langtímakröfur eru að aukast 1,8 milljón evra á milli ára og tekjuskattsinneignin að hækka þarna töluvert, 1,8 milljón og þarna einkum að ræða áhrif af tilkomu Kohinoor inn í samstæðuna hjá okkur. Og þetta hefur áhrif á gjaldfærða vexti í rekstrarreikningi á móti.

Já, fastafjármunir voru 274,7 í árslok '24, eru 310,3 í árslok '25, sem sagt aukning 35,6 milljónir. Síðan eru veltufjármunir, þar eru birgðir 138,4, voru 126,7 í árslok '24, eru þarna að aukast 11,7 milljónir.

Með smá glærur hérna á eftir þróun í birgðum. Viðskiptakröfur eru að aukast 5,3 milljónir, fara úr 66,6 milljónum '24 í 71,9 í árslok '25.

Handbært fé að lækka 15 milljónir, fer úr 41,4 í 26,4. Síðan eru eignir vegna aflagðrar starfsemi, þetta tengist framleiðslu á flot hringjum fyrir fiskeldi sem í Danmörku upp á 400.000 evrur.

Og það búið að ganga frá sölu á þessu, það var gert bara hérna í upphafi árs. Veltufjármunir samtals eru þá 237,2 milljónir evra en voru 234,8, aukning 2,5 milljónir.

Heildareignir þá 547,5 milljónir, voru 509,5 í árslok '24, aukning 38 milljónir. Aðeins birgðir innan samstæðunnar að þá eru birgðirnar núna 138,4 eins og ég kom inn á áðan.

Áhrif af Kohinoor í birgðir samstæðunnar circa 7 milljónir í árslok, munur þarna á milli ára. Skýring á annarri hækkun einkum sú eins og Hjörtur kom inn á í upphafi að velta á þessum ársfjórðungi var minni en menn bjuggust við og það skilar sér sem sagt í að það séu aðeins hærri birgðir á árslok heldur en voru.

Og einnig var eitt dótturfélag okkar í árslok '24 með svona óvenjulega lága birgðastöðu sem að eru núna svona á eðlilegum stað. Ef við förum aðeins yfir veltuhraðann, þá sjáum við að hann nú aðeins að aukast þrátt fyrir að birgðirnar hafi hækkað, hann 1,42 á árinu '25, var 1,33 á árinu '24, '24.

Og við viljum svo sem sjá hann halda áfram að aukast og þannig að við náum markmiðum okkar að lækka birgðastöðu samstæðunnar. Og það má sjá hérna ef það farið lengra aftur að 1,42 svona í takt við það sem var að gerast, en hérna á Covid-árunum '20, '21 og '22 þá má sjá hvað veltuhraðinn dettur niður.

Þá varð svona birgðaaukning í samstæðunni. Ef við förum síðan í skuldahliðina, að þá sjáum við að langtímaskuldir eru að aukast 13,4 milljónir, voru 127,6 í árslok '24, 141 núna.

Tekjuskattsskuldbindingin, hún að lækka aðeins á milli ára, 7,6 milljónir, var 7,9, lækkar 300.000. Þannig að langtímaskuldir eru 148,6 en voru 135,5 í árslok '24.

Skammtímaskuldir, viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir eru að aukast þarna 9,7 milljónir, fara úr 46,7 í 56,4. Þetta helst aðeins í hendur við birgðirnar líka hjá okkur.

Ógreiddir skattar eru að lækka 1,3 milljónir, 1,7 var 3 milljónir í árslok '24. En skammtímaskuldir við lánastofnanir eru að aukast 19,4, voru 51 í árslok '24 og eru 70,4 í árslok '25.

Þannig að skammtímaskuldir eru 128,6 en voru 100,8 í árslok '24. Eigið fé 270,3 milljónir evra í árslok '25, var 273,2 í árslok '24, þannig að heildareigið fé að lækka 2,9 milljónir evra.

Í ár þá verðum við fyrir töluverðum þýðingarmun af dótturfélögum inn í samstæðuna og það einkum að ræða Kohinoor, en gengi rúpíunnar gagnvart evru veiktist töluvert á árinu. Sama má segja dollara, sem sagt eignirnar dótturfélaga okkar í Bandaríkjunum og í Kanada líka.

Þannig að það koma yfir 6 milljónir evra í neikvæðum þýðingarmun af dótturfélögum inn í eigið fé. Þannig að eigið fé og skuldir samtals 547,5 milljónir, var 509,5 í árslok '24, þannig að breyting 38 milljónir.

Hérna sjáum við eiginfjárhlutfall samstæðunnar. Þrátt fyrir þessa lækkun þá engu að síður eiginfjárhlutfallið töluvert sterkt, það 49,4% í árslok '25, var 53,6% í árslok '24.

Og eiginfjárhlutfallið hefur verið svona í kringum 50% alveg frá 2016 þegar við keyptum Vónina. Já, þá ætlum við að fara yfir uppbyggingu á nýja iðnaðarsvæðinu í Árva, svo gjörðu svo vel Hjörtur.

Hjörtur Erlendsson

Já, takk fyrir. Já, eftir að við keyptum Kohinoor á Indlandi, þá eins og kom fram áðan, þá ætlum við að byggja upp þar og stækka.

Og við leituðum að landi og fundum síðan mjög heppilegt land sem 120.000 m². Þar getum við byggt 76.000 m², en við ætlum að ekki nýta það til fulls, við ætlum að byggja 59.200.

Og sýni ykkur aðeins meira það. Hérna sjáum við kort af Indlandi og hérna sjáum við sem sagt Mumbai sem hét Bombay í gamla daga.

Og við erum með starfsemi á tveim stöðum, aðallega á tveim stöðum: í Selu þar sem aðalverksmiðjurnar eru og netavefstæði í Jalna. Ef við kíkjum hérna meira til hægri, þá svona nákvæmara kort.

Hérna sjáum við aftur Mumbai, Selu og Jalna. Og í Selu, þar erum við með þrjár verksmiðjur sem eru að framleiða garn, kaðla og net og þar flatarmál verksmiðjanna 51.000 m².

Og síðan í Jalna, þá erum við með netavefstæði sem 5.276. Og svona til að skýra fjarlægðirnar, að til þess að komast að verksmiðjunum okkar, þá fyrst flug í klukkutíma í eiginlega mest í austur og þar Aurangabad sem stórborg, hún síðast þegar talið þá voru 1,2 milljónir sem að bjuggu þar.

Og síðan klukkutíma akstur austur, þar Jalna þar sem við erum með netavefstæðið. Og síðan tekur tveggja tíma akstur í suðaustur til Selu þar sem við erum með þessar verksmiðjur þar sem verið að framleiða kaðlana og netin.

Og þið sjáið þarna niðri á glærunni, til vinstri sjáið þið elstu verksmiðjuna sem var stofnuð 1984. Í miðjunni sjáið þið stóru kaðlaverksmiðjuna sem að svona hjartað í starfseminni í dag.

Og til hægri niðri, þar netavefstæðið sem við rekum núna í Jalna. Síðan í appelsínugula punktinum, að þar erum við búin að fá land.

Þetta land sem 120.000 m² inni á mjög góðu iðnaðarsvæði. Og þar ætlum við að byggja núna og erum reyndar byrjaðir að byggja 59.200 m².

Og ég ætla að sýna ykkur myndband af byggingunum sem að við erum að fara að reisa. Nú, hérna sjáum við síðan yfirlit yfir hvernig byggingaframkvæmdaáætlunin.

Og þurftum náttúrulega að byrja á því að sækja bygginga- og starfsleyfi sem töluvert þarna langt ferli, en við erum komin með sem sagt öll þau leyfi núna. Þannig að núna í febrúar þá var hægt að byrja á því að jafna út landið og afmarka það.

Þetta náttúrulega gríðarlega stórt land, 120.000 m². Og síðan byrjuðum við núna í mars, þá byrja sjálfar byggingaframkvæmdirnar og við erum að byggja þarna eiginlega fjögur hús: tvö stór verksmiðjuhús, byggingu tvö og byggingu þrjú.

Þið sjáið á vídeóinu byggingu eitt sem eiginlega minnsta byggingin, hún 14.000 m². Við ætlum að bíða aðeins með hana og sjá hvernig húsin nýtast, en svona ég pínulítið farinn að hafa áhyggjur af því að húsin séu of lítil, þannig að það verður kannski stutt í að við byggjum þessa 14.000 m².

En byggingarnar að þær verða byggðar núna í vor og í sumar og sú fyrri, hún á að vera tilbúin í lok júlí og sú seinni, stóra, á að vera tilbúin í lok ágúst. Skrifstofubyggingin byggð að mestu leyti samhliða, hún 2.000 m² og hún á að vera tilbúin í lok október.

Og það sama á við eldhús- og þjónustubygginguna sem 1.200, að hún á líka að vera tilbúin í lok október. Og síðan þurfum við að setja þarna upp gufukatla og verkstæði og síðan að ganga frá akstursleiðum og bílastæðum og síðan garðinum og verklok eru áætluð í lok nóvember.

Og þetta náttúrulega gríðarlega hraður og mikill byggingarhraði. En við erum búin að semja við stóran verktaka sem heitir Ascon og hjá þeim starfa 6.000 byggingaverkamenn og 1.200 verkfræðingar.

Og meðan á byggingunni okkar stendur, þá verða 500 manns á svæðinu. Og það skýrir þennan mikla hraða.

Þarna náttúrulega eru aðstæður til bygginga afskaplega góðar, þarna veður ekkert að trufla eða neitt slíkt. Þannig að ég ætla að sýna ykkur hérna þarna drónamynd sem var tekin af byggingasvæðinu, hún var bara tekin núna á þriðjudaginn.

Það nú ekkert hljóð með henni, ég ætla bara að tala með myndinni. En hérna sjáið þið sem sagt landið okkar.

Þarna vegur sem liggur hér í kring og ég minntist á áðan, hann tvöfaldar akreinar. Og hérna til vinstri þarna sjáið þið svona litabrigði, hér svona neðanjarðargöng þar sem að í eru allar lagnir: raflagnir, vatnslagnir, skólplagnir, ljósleiðarar og annað slíkt.

Og landið okkar, það afmarkast af veginum og hér á milli og síðan að endanum þar sem verið að grafa út. Þannig að þetta svæði hér, þetta eiginlega fjórar byggingalóðir.

Og þar sem við erum með stærstu nágranna okkar, japanskt fyrirtæki sem ætlar að framleiða heimilistæki, þeir eru byrjaðir, búnir að grafa niður og setja undirstöður. En á landinu okkar að þá unnið á fullu við að hreinsa sem sagt jarðveginn ofan af og það komið hér niður í klöpp og það sést kannski ekki vel, en það verið að brjóta þarna ofan af klöppinni og við erum að flytja efnið héðan og fylla upp hér við veginn til þess að gera þetta allt í sömu hæð og það verður sem sagt circa 1,8 m fyrir ofan veghæðina.

Nú, hér fyrir sunnan þá sjáið þið þarna lítinn bæ, hann heitir Karmad og þar búa núna rétt 10.000 manns. Og síðan hér til vinstri þá sjáið þið inn á svæðinu að þar eitt fyrirtæki sem búið að byggja upp á þessu Auric-svæði.

Og þetta bara lítill hluti svæðisins og hlutinn sem fyrir austan, myndavélin hún horfir eiginlega í suður, en það sem fyrir vestan, það að stórum hluta fullbyggt. Svo til gamans þá má sjá að það eru stök og stök tré hér inn á landinu, en þeir eru mjög strangir með það á Indlandi að varðveita gróður.

Þannig að áður en við byrjuðum að byggja, þá þurfti að fara mjög vandlega yfir allt svæðið, skoða trén, gefa leyfi fyrir að fjarlægja ákveðin tré, en þetta eru tré sem að verða eftir og við komum til með að nota síðan þegar við göngum frá landinu. Nú, síðan þegar kemur að því að flytja vélar inn í húsnæðið, að við reyndar byrjuðum að flytja vélarnar nú þegar, við erum búin að flytja kaðlavélar til Selu og þær eru komnar í notkun.

Við erum búin að flytja mikið af saumavélum til Indlands og það eru saumavélar til þess að sauma saman fiskeldiskvíar. Og við erum búin að framleiða í Hampiðjan Baltic 100 tonn af hnútalausu neti, 60 tonn eru komin til Indlands og 20 tonn leggjast af stað og síðan koma síðustu 20 tonnin og þá á að vera komið nóg efni til þess að hefja framleiðslu.

Síðan erum við búin að taka niður vefstóla sem framleiddu hnútalaust net í Noregi og flytja þá til, þetta eru tveir vefstólar sem við erum búin að flytja til Indlands, þeir verða gangsettir þarna og komnir í gang fyrir lok maí. Og síðan erum við að taka niður tvo vefstóla til viðbótar í byrjun júní og þeir verða tilbúnir til notkunar í lok september.

Síðan eigum við að taka niður vefstól sem í Hampiðjan Baltic og flytja hann út. Og þessar síðustu vélar eru að fara beint inn í nýju verksmiðjuhúsin.

Og síðan eigum við eftir að flytja enn meira af saumavélum og síðan netaframleiðslustarfsemi sem í Hampiðjan Baltic, flytjum hana yfir, en það tekur dálítið lengri tíma vegna þess að við getum bara flutt fáar vélar í einu. En allavegana að allt sem snýr að fiskeldinu að það verður komið þarna út og í fulla notkun í lok október samkvæmt þessari áætlun.

Ég ætla aðeins að koma hér inn á starfsþáttagreiningu, en hún hefur svona vaxið með fyrirtækinu, eftir því sem við höfum keypt fleiri fyrirtæki, þá hafa bæst við þarna starfsþáttaflokkum. Við erum núna með sex starfsþætti.

Fyrsti þátturinn móðurfélagið ásamt framleiðslufyrirtækjum, það sem sagt Hampiðjan hf. og Hampiðjan Baltic í Litháen og Kohinoor Ropes.

Síðan eignuðumst við fyrirtæki á Írlandi og seinna í Skotlandi og það var starfsþáttur tvö. Starfsþáttur þrjú Cosmos í Danmörku.

Og síðan söfnuðum við saman í einn starfsþátt öllum svona minni dótturfélögum Hampiðjunnar bara víða heim. Síðan eignuðumst við Vónina og þar gerðum við úr því sérstakan starfsþátt.

Og síðan '23 þá eignuðumst við Mørenot og það verður þá sjötti starfsþátturinn. Og okkur finnst þessi greining ekki vera nógu skýr, þannig að núna á þessu ári ætlum við að breyta henni, þannig að fyrsti þátturinn hann verður eiginlega óbreyttur, það Hampiðjan hf.

og Kohinoor og Hampiðjan Baltic. En síðan verðum við með starfsþátt þar sem eingöngu veiðarfæri og það eru öll fyrirtæki Hampiðjunnar sem eru í veiðarfæragerð.

Og síðan verður starfsþáttur þrjú sem eingöngu fiskeldi og þar erum við búin að safna saman öllu fiskeldis, þjónustu og sölu í eitt fyrirtæki, Eldi, eins og þið sáuð áðan og það verður sem sagt í einum starfsþætti. Og síðan í fjórða þættinum að þá verður úthafsiðnaður sem að kallast á ensku offshore og þar erum við með tvö fyrirtæki: Hampiðjan Advant í Noregi og Jackson Offshore í Skotlandi.

Og þetta ætti að gefa miklu skýrari mynd af starfsemi Hampiðjunnar þegar fram líður og við birtum fyrsta starfsþáttayfirlit samkvæmt þessu núna fyrir fyrsta ársfjórðung '26. Nú, aðeins að segja frá horfunum á næstu mánuðum og þá ætla ég að taka það eftir þessum starfsþáttum.

Og ég ætla að byrja á framleiðslunni. Þarna getum við sagt frá því að verkefnastaða á efnum til veiðarfæraframleiðslu og á fiskeldistkvíum, staðan almennt góð í byrjun þessa árs.

Það hefur gengið afar vel að færa innkaup á snúnum köðlum, sem samstæðan notar, yfir til Kohinoor. Fyrir kaupin þá keyptum við af Kohinoor 510 tonn, en það eins og áður hefur komið fram að þá þekktum við Kohinoor ágætlega, vorum búin að vera með samning við Kohinoor í nokkur ár áður.

Þannig að hluti viðskiptanna var þegar kominn til þeirra. En á síðasta ári þá þarna jókst þetta upp í 1.508 tonn og afgangurinn, hann að færast á milli núna í ár og 1.200 tonn.

Svona til þess að setja það í samhengi, þá þegar við keyptum Kohinoor, þá átti Kohinoor að framleiða 14.200 tonn af efni, þannig að við erum að bæta þarna töluvert mikið í. Nú, það mjög mikið að gera hjá Kohinoor í framleiðslu á fiskeldiskvíum og ég nefndi þarna áðan verkstæði í Jalna og það dugar ekki til.

Og til þess að anna öllum verkefnum, þá höfum við tekið á leigu stóran vinnusal sem nálægt núverandi netavefstæði. Þannig netavefstæðið 5.276 og salurinn þarna eitthvað 3.000 eða 4.000 m².

Og í þessum viðbótarsal þá þarna verðum við með þjálfun á starfsfólki til þess að taka við framleiðslunni sem núna í Evrópu og við ætlum að flytja til Indlands í haust. Nú, aukin framleiðsla á veiðarfæraefni í Hampiðjan Baltic í Litháen fyrir eigin fyrirtæki samstæðunnar sífellt að aukast í kjölfar kaupanna á Mørenot og það mun skila sér í aukinni framlegð innan samstæðunnar.

Nú, orkuverð í Litháen eins og, bæði rafmagn og gas í jafnvægi og hráefnisverð stöðugt og framboð gott. Við erum með fasta samninga rafmagn og gas fram á mitt næsta sumar.

Hráefnisverðið, það sveiflast með heimsmarkaðsverði og hefur verið bara mjög stöðugt undanfarin ár eftir að náðist jafnvægi eftir Covid. Hráefnisverðin þau sveiflast með olíuverði og það sem að við sjáum yfirleitt að ef að olíuverð hækkar eða sem sagt hækkar eitthvað verulegt, að þá erum við að sjá það birtast í hráefnisverðum svona tveim, þrem mánuðum síðar.

Nú, varðandi veiðarfærin, þá verkefnastaðan í veiðarfærum ágæt, en það má búast við að veiðarfærakaup útgerða við Norður-Atlantshaf litist af minni kvóta á makríl, á kolmunna og á Barentshafsþorski á þessu ári. En fyrirsjáanlegur minni kvóti, hann hefur valdið miklum verðhækkunum á þorski, makríl og kolmunna, þannig að þessi áhrif kvótaminnkunar, hún verður minni en ætla mætti á fjárhag útgerða.

Og það náttúrulega mikilvægt fyrir okkur að þau þarna standi vel, því að þá viljinn til að kaupa veiðarfæri meiri. Nú, góð loðnuvertíð skilar sér vel til íslenskra útgerða og notkun á nótum, sem hefur ekki verið nein undanfarin tvö ár í loðnuleysinu, mun skapa töluverð verkefni hér á landi, sérstaklega þegar kemur fram á haustið þegar verður farið yfir næturnar fyrir næstu vertíð.

Og lægðin sem var í sölu á veiðarfærum í Bandaríkjunum á fyrri hluta síðasta árs og sem orsakaðist af lágu verði á Alaskaufsa, að það gekk yfir og þetta ár fer virkilega vel af stað. Og þróun á Flóka, við erum alltaf að reyna að þróa og bæta, en Flóki, það botntrolls lengja sem kemur í stað gúmmíbobbangalengju, sú þróun hefur gengið vel og hún verður fullbúin til sölu á næstu mánuðum.

Síðan fer ég yfir í fiskeldið. Að þá eins og kom fram áðan, þá tók þarna sameinað félag til starfa núna í byrjun ársins og fór afar vel af stað.

Og eins og ég nefndi áðan, þá var þessu myrklega vel tekið og með þessari skipulagsbreytingu, að þá fáum við mjög gott tækifæri til þess að sameina samhæfa og styrkja sölu, þjónustu og vöruþróun innan samstæðunnar. Og vöruþróunin fyrir þarna fiskeldismarkaðinn, að hún búin að vera gríðarlega öflug allt frá byrjun síðasta árs.

Við keyptum jú Mørenot sumarið eða sem sagt árið fyrri hluta ársins '23, en byrjuðum strax að huga að vöruþróun og mörg stór verkefni fóru af stað í byrjun síðasta árs sem við kynntum síðan þarna á sýningunni Aqua Nor í Noregi í ágúst í fyrra og þau verkefni eru að gefa ávöxt núna. Nú, verkefnastaðan góð í framleiðslu á nýjum fiskeldiskvíum og afkastagetan fullbókuð fram á sumar á Indlandi.

Á netavefstæðunum tveimur í Litháen, Vóninni og Mørenot Baltic, þar framleiðslugeta bókuð til loka maí. Og það bara gott útlit með sölu á fiskeldisbúnaði næstu misseri, sérstaklega í stífu HDPE, það high-density polyethylene, fiskeldiskvíum, en þær eru allar framleiddar hjá Kohinoor á Indlandi.

Og þetta sem sagt efni, það það stíft, það ekki hægt að nota við það saumavélar, það verður að sauma allt í höndum, gríðarlega vinnufrekt verk. Og við vorum bara ekki samkeppnisfærir með svona kvíar með framleiðslu í Evrópu, en erum núna mjög vel samkeppnishæfir með framleiðslunni hjá Kohinoor.

Nú, eins og ég sagði áðan, þá efni úr hnútalausu næloni, sem framleitt hjá Hampiðjan Baltic ásamt saumavélum, það komið til Kohinoor og þjálfun starfsmanna hefst núna á næstu vikum. Og þeir starfsmenn sem við erum að þjálfa upp, að þeir munu flytjast til Auric þegar 28.000 m² netavefstæðið, sem verður reyndar það stærsta í heimi, verður tilbúið til notkunar.

Nú, við töluðum áðan mikið kostnað við aflagða starfsemi og hagræðingaraðgerðir síðasta árs, sérstaklega lokun Mørenot Danmark í Danmörku og Poldan í Póllandi, mun styrkja reksturinn á þessu ári. En engu að síður við erum áfram að vinna að hagræðingaraðgerðum í kjölfar stofnunar Eldis sem mun lækka kostnað þegar líður á árið.

Og ég var að tala vöruþróun áðan og eitt af því sem við kynntum í Noregi á síðasta ári kerfið Bio-Size, en það kerfi sem safnar og dælir upp úrgangi og laxi í fiskeldiskvíum ásamt óétnu fóðurkorni. Og þetta verkefni í mjög góðum farvegi og við erum búin að ná fyrstu sölunni og þetta að fara í notkun.

Og fyrir fiskeldið þá skiptir þetta gríðarlega miklu máli að ná öllum úrganginum sem annars myndi falla á sjávarbotninn. Og þegar að þetta situr á sjávarbotninum, tekur til sín súrefni og minnkar súrefnisstigið í vatninu, þannig að aðrar lífverur í hérna á svæðinu eiga erfiðara uppdráttar og þá líka eftir takmarkandi þáttur fyrir að auka fiskeldið á viðkomandi svæði.

Þannig að með því að hreinsa allt upp, að þá möguleiki að auka laxeldið á svæðunum. Þess vegna eðlilegt að fiskeldisfyrirtækin hafi gríðarlegan áhuga á þessu.

Nú, síðan með úthafsiðnaðinn, sem heitir á ensku bara einfaldlega offshore, að þá mjög góður gangur í sölu á ofurtogum og ofurstroffum fyrir olíuiðnað og í djúpsjávarverkefni og stór verkefni í vinnslu hjá Hampiðjan Baltic. Og slitbekkurinn sem við settum upp síðastliðið sumar hjá Hampiðjan Baltic í Litháen, og hann gerður fyrir allt að 2.000 tonna átak og hann getur tekið allt að 104 m langa stroffur, hann búinn að vera í mikilli notkun í vetur.

Og það að geta boðið upp á allt ferlið: framleiðslu, álagsprófanir, vottun á sama stað, það gefur Hampiðjan Baltic mikið forskot og það hefur sýnt sig í aukningu á framleiðsluverkefnum í ofurstroffum. Og þarna ég sem sagt búinn að fara yfir svona horfurnar í næstu mánuðum í þessum fjórum þáttum.

Og við erum búin að koma á framfæri sem við ætluðum að segja, þannig að nú spurning hvort að þið hafið einhverjar spurningar uppgjör eða annað sem við vorum að tala. Og ég vil þarna líka nefna að við erum að senda að sjálfsögðu út reikningana og kauphöllina í dag.

Með því fylgir umsögn og það margt í umsögninni, smáatriði og annað slíkt sem að hefur ekki komið fram hér sem að þar til staðar, þannig að ég hvet ykkur endilega til þess að kíkja á það og lesa vandlega. Eru einhverjar spurningar?

Jón, þú ert að taka við spurningum sem koma inn með tölvupósti?

Jón

Já, það ekkert komið ennþá allavegana.

Hjörtur Erlendsson

Ókei. Eitthvað á salnum?

Við erum greinilega búin að fara mjög vandlega í gegnum þetta.

Emil Viðar

Já, greinilega.

Hjörtur Erlendsson

Eigum við að gefa þessu nokkrar sekúndur í viðbót við tölvupóstinn?

Það ekkert.

Jón

Það kemur ekkert.

Hjörtur Erlendsson

En þá bara þökkum við fyrir okkur og óskum ykkur góðs dags.

Emil Viðar

Kærar þakkir.