Nova Klubburinn hf.

Nova Klubburinn hf.

IICE:NOVA
3.32
ISK
-0.03
(-0.90%)
0.18EPS
21.08P/E
12.82BMarket Cap

Q2 FY2026 · Earnings Call TranscriptAugust 26, 2026

Silvía

Jæja, velkomin til okkar á ársfjórðungsuppgjör annars hálfs annars ársfjórðungs Nova klúbbsins 2026. En áður en við höldum af stað og kynnum uppgjörið, að þá langaði mig að staldra aðeins við og fara yfir hvað Nova klúbburinn, af því að hann búinn að taka verulegum breytingum á ársfjórðungnum.

Samstæðan að vaxa frá því, eða þróast frá því að vera eitt öflugt fjarskiptafélag yfir í að vera safn eða klúbbur félaga þar sem að tækni, innviðir og þjónusta mætast. Og þar ætlum við að sækja fram.

Og það gerðum við svo sannarlega á þessum ársfjórðungi. Óvar kemur inn í klúbbinn 1.

júní, Kosmos kemur sem áskorandi inn á markaðinn í maí og við erum enn þá að vinna í samstarfi við Rafall og Líkó að líta svona dagsins ljós núna í haust. Ótrúlega spennandi verkefni þar líka á ferðinni.

Og það sem mig langaði líka svona aðeins að hnykkja betur á að Nova á bæði þjónustuna og virku innviðina. En við teljum að í rekstrinum skipti það máli til þess að gefa okkur forskot og vera hröð inn á markaðinn.

En það sem að kemur ekki alltaf alveg í ljós eru verðmæti innviðanna sem að eru inni í Nova. Og þau munu skýrast betur eftir ársreikningur fyrir Nova Innviði og í rauninni líka Sendafélagið.

Nova Innviðir kemur með sinn fyrsta ársreikning í lok ársins. Þannig að 2027 eða þegar 2026 liggur fyrir og og byrjun árs 2027 að þá verður þetta mun skýrara, þessi verðmæti.

Uppgjörið í hnotskurn sýnir það að grunnurinn sterkur. Við erum samt sem áður að sjá kostnaðarþrýsting og hefur kostnaðurinn verið að vaxa umfram tekjur og við tökum þessu alvarlega.

Við erum búin að fara í markvissar aðgerðir og á árinu og erum í mikilli nafnaskoðun og ég segi ykkur betur frá því á eftir. Samstæðan að taka á sig mynd.

Óvar kemur sterkt inn í félagið. Við erum líka að sjá sterkt sjóðstreymi sem að myndi bætast við sjóðstreymi móðurfélagsins.

En tekjuvöxtur á fyrri árshelmingi Óvar var 26% og EBITDA 46%, þannig að það kemur gífurlega sterkt inn. Við erum líka að sjá nýja tekjustrauma verða að veruleika og þarna markmiðið að auka þjónustutekjur félagsins.

Og þar hefur Nova átt gott góða getum Nova líka komið með sitt á borðinu og Óvar með fyrirtækjamarkaðinn. Eins og ég sagði áðan, Kosmos kom og ögrar markaðnum.

Þarna erum við með virkilega lágan kostnaðargrunn og litla yfirbyggingu af því að við erum að nýta okkur gervigreind og stafræna þróun til þess ítrustu. Það eru ótrúlega fáir sem að eru að vinna stórt og mikið verk og þarna lágverðsverið okkar komið af stað.

Og við erum ótrúlega spennt líka yfir því hvað við getum lært af því að hafa sett þetta á koppinn, af því að það auðveldara að nýta sér gervigreindina í algjörlega nýju félagi en í félagi sem að hefur einhverja tækniskuld og þarf að greiða úr tækni flækjum. Síðan erum við í ótrúlega öfundsverðri aðstöðu, við erum bæði vaxtar- og arðgreiðslufélag og mig langar að fara aðeins yfir með ykkur hvernig við sjáum fyrir okkur að forgangsraða fjármagninu.

En byrjum á Nova. Nova Fyrirtæki fékk nýja ásýnd á ársfjórðungnum og við ætlum líka að einfalda vöruframboð fyrir Nova Heimili á í í haust.

Þannig að við erum mjög spennt fyrir því og munum koma líka með nýjan endabúnað í í haust sem að verður gaman að kynna. Ég þreytist náttúrulega ekki á að tala hvað grunnurinn sterkur.

Við bjuggum til 1 milljarð af handbæru fé til rekstursins. En síðan sjáum við líka töku þennan tekjuvöxt í ljósleiðara, heimilistengingum og vörusölu, 15% þar, og sérlausnum.

Og við höfum verið í mikilli nafnaskoðun og erum að velta við hverjum steini og til marks það að þá höfum við til dæmis ákveðið á þessum ársfjórðungi að loka versluninni í Kringlunni og henni verður lokað í lok september. Óvar eða geitin, við bjóðum hana velkomin í klúbbinn og öllum hennar vinum.

Óvar gífurlega sterkt á fyrirtækjamarkaði og leyfi mér þess að klárast hérna. Fínt tími til þess að fá sér hérna.

En birgðastaðan sterk sem að skiptir máli í þessum rekstri þar sem að eftirspurnin mikil inn í haustið fyrir sérstaklega hjá fyrirtækjum í búnaði. Við sjáum líka að sjóðstreymi og tekjuvöxturinn hár og þarna ætlum við að fara að fara fullt fram líka að búa til meiri þjónustutekjur.

Við mátum samlegðaráhrifin sem 250 milljónir við kaupin. Við erum líka að fara að skoða það enn þá frekar núna á haustmánuðum.

En við erum strax farin að sjá merki þess að að þjónustutekjur eru að aukast og nýir tekjustraumar eru að koma inn og við erum líka farin að vinna að því að færa birgðastýringu Nova yfir til Óvar. En þetta kemur kemur inn á næsta ári og svona það tekur 2 ár að raungera allt virðið.

Lágdýrið kom í maí og það fór formlega af stað þá og við sjáum, voru markmið, voru áætlanir fyrir Kosmos og og vöxturinn í takt við þær. Þarna erum við að með langódýrustu fjarskiptaþjónustuna á markaðnum, erum að bjóða 25% afslátt fyrir að koma og binda sig í ár.

Þannig að þar líka ótrúlega spennandi vara sem við fylgjumst vel með. Og síðan svona rétt til að segja ykkur frá því að við erum að nýta innviðina hérna á á svona nýjan hátt og Líkó eða Rafall og Óvar, Rafall og Nova hérna verkefnið vann í Reykjavíkurborg götuhljósastýringu.

Þannig að við erum að fara inn á götuljósastýringu, inn á fasteignafélögin, vakta og nýta okkur hlutarnetið. Og það sem spennandi þar núna að AI gerir þetta líka, gervigreindin hjálpar mikið til við að safna upplýsingum úr mælum og öðru slíku í tengslum við hlutarnetið.

En áður en að Þórhallur tekur við að þá það þannig að þegar við forgangsröðum fjármagninu og því sjóðstreymi sem að félagið býr til, að þá leggjum við fyrst eða fyrsti forgangur að vera með sterkan efnahagsreikning og gott skuldsetningarhlutfall, hlúa síðan að kjarnarekstrinum þannig að að að við gerum það. Og síðan eins og ég sagði áðan að þá erum við í virkilega öfundsverðri stöðu að geta verið bæði vaxtarfélag og arðgreiðslufélag.

Og við sjáum fram á það, og við byrjuðum endurkaup núna í júní og við sjáum fram á það að vera bara í takt við fyrri ár hvað það varðar þrátt fyrir þennan vöxt. Þannig að við erum stolt af því.

En eins og þið sjáið að þá þetta, höfum við ekki setið auðum höndum á Q2 og margar tölur eru á hreyfingu. Þannig að Þórhallur ekki í öfundsverðri stöðu að útskýra þetta í reikningnum.

Þannig að við ætlum að bjóða upp á spurningar í lokin þannig að endilega spyrjið þið ef að eitthvað óskýrt. Þannig að yfir til þín, Þórhallur.

Þórhallur

Já. Takk fyrir það, Silvía.

Og jú, jú, það var sannarlega margt sem gerðist á ársfjórðungnum og við reynum hér eftir okkar bestu getu að útskýra og gefa sem bestu innsýn í tölurnar. En þannig að ef við byrjum á að skoða tekjurnar og skoðum fyrst bara Nova klúbbinn eins og hann hefði verið á fjórðungnum án áhrifa frá Óvar og Kosmos, þá sjáið þið að það áframhaldandi tekjuvöxtur.

Og ef við leiðréttum samanburðinn vegna tekna frá Sendafélaginu á síðasta ári þá jukust heildartekjur í raun 5% á tímabilinu. Þjónustutekjurnar sem samanstanda af tekjum af flakk- og fastneti voru að vaxa 3,2% á milli ára.

Flakknets tekjurnar í heildina standa nokkuð veginn í stað á milli ára. Þar eru tekjur af farsímaþjónustu að hækka en á móti hafa erlendar reikitekjur lækkað.

Bæði það vegna lækkunar reikitekna í Bretlandi sem að utan roam like home á samanburðarári en innan þess á þessu ári, en einnig erum við einfaldlega farin að sjá breytta kauphegðun hjá okkar viðskiptavinum sem ferðast út fyrir EES svæðið og kaupa sér frekar local eSIM kort. En tekjur af fastnetinu áfram helsti vaxtardrifkrafturinn.

Þar sjáum við bæði góða þróun í fjölgun viðskiptavina í ljósleiðara sem og áframhaldandi góðan vöxt í tekjum af sérlausnum fyrir fyrirtæki sem eru stórnotendur af gagnamagni. Vörusalan styrktist svo eftir hægari gang í byrjun árs og jókst 15% á fjórðungnum.

Það skýrist helst af aukinni sölu handtækja. Í upphafi árs voru afhendingar frá birgjum ekki í samræmi við okkar sölugetu en það batnaði á öðrum ársfjórðungi.

Aðrar tekjur eru svo einnig að vaxa. Það skýrist einkum vegna aukinnar tekna af endursölu og heildsölutekna.

Þannig að meginniðurstaðan á fjórðungnum góður tekjuvöxtur í Nova þar sem mesti vöxturinn liggur í þjónustutekjum. Ef við skoðum svo tekjur samstæðunnar þegar Óvar og Kosmos eru tekin inn þá breytist bæði stærð og samsetning samstæðunnar verulega.

Heildartekjur námu tæplega 4,2 milljörðum og jukust 22% frá útgefnum tölum fyrra árs, 29% ef borið saman við leiðréttar tölur. Eins og Silvía kom inn á áðan þá varð Óvar hluti af samstæðunni frá og með 1.

júní og skilaði rétt tæplega 770 milljónum í tekjur. Þar af voru 620 milljónir í vörusölu og 150 milljónir í sölu á hugbúnaði og þjónustu.

En innkoma Óvar fylgir jafnframt breytt tekjusamsetning. Vörusalan verður mun stærri hluti af heildartekjum samstæðunnar.

Það hefur sannarlega áhrif til lækkunar á EBITDA framlegðinni en hefur aftur á móti mjög jákvæð áhrif á sjóðstreymið. Kosmos hóf svo að selja sína þjónustu í byrjun maí en tekjuáhrif þess mjög takmörkuð á fjórðungnum þar sem félagið býður sínum viðskiptavinum upp á fyrsta mánuðinn frían.

En í raun erum við ekki komin með nýja samstæðu nema að hluta í tölunum, en við sjáum strax hvernig tekjugrunnurinn að vaxa og breikka. Ef við skoðum því næst reksturinn og byrjum aftur að horfa á Nova klúbbinn án Óvar og Kosmos.

EBITDA nam 700 milljónum króna og EBITDA hlutfallið var 20,5% á fjórðungnum sem í raun í takt við áætlanir félagsins. Lækkunin frá fyrra ári skýrist að mestu af breyttu rekstrarfyrirkomulagi í Sendafélaginu þar sem kostnaður sem áður birtist að hluta sem afskriftir og fjárfestingar kemur nú fram sem keypt þjónusta í kostnaðarverði seldra vara og lækkar því EBITDA á milli ára.

Á móti því færist svo hlutdeild Nova í afkomu Sendafélagsins neðar í rekstrarreikninginn. En Sendafélagið annars í virkilega góðum takti og niðurstöður úr rekstri þess munu opinberast þegar félagið gefur út sinn ársreikning í upphafi næsta árs.

Kostnaðarverð seldra vara hækkar einnig vegna hækkunar á vörusölutekjum sem hækkuðu 15% hjá Nova eins og ég sagði áðan, en einnig vegna fjölgun viðskiptavina á fastneti og í sérlausnum þar sem Nova kaupir hluta þjónustu frá sínum ljósleiðarabirgjum. Við sjáum líka að launakostnaður hækkar 5,4% á milli ára.

Það skýrist einkum vegna kjarasamningsbundinna launahækkana áramót en stöðugildum hefur í raun fækkað frá áramótum og voru á öðrum ársfjórðungi í línu við samanburðarár. Annar rekstrarkostnaður hækkar svo 15,8% en á tímabilinu gjaldfærði félagið 18 milljónir vegna kaupanna á Óvar.

Ef við leiðréttum fyrir því þá hækkunin tæplega 10% á milli ára sem má segja sé mest vegna almennra verðlagshækkana þjónustuaðila. Ef við skoðum svo reksturinn þá Óvar og Kosmos hefur bætt við Nova klúbbinn.

EBITDA samstæðunnar nam þá 705 milljónum samanborið við 700 milljónir án nýju félaganna. Þannig að nettoáhrif breyttrar samstæðu á EBITDA þessa fjórðungs eru mjög takmörkuð.

Óvar skilaði jákvæðu EBITDA framlagi í júní en júní ekki sterkasti hluti ársins í rekstri félagsins, þannig að framlag eins mánaðar ekki lýsandi fyrir afkomu félagsins yfir heilt ár. Rekstur Óvar á fyrri árshelmingi í heildina var mjög sterkur þar sem félagið skilaði 366 milljónum í EBITDA en þar af voru tæplega 26 milljónir sem komu inn í samstæðu Nova klúbbsins í júní.

En rekstrarkostnaður vegna uppbyggingar og starfsemi Kosmos kemur inn á fjórðungnum. Félagið mjög létt í kostnaðarlega en skilar neikvæðu framlagi á tímabilinu.

EBITDA hlutfall samstæðunnar lækkar því í 16,7% sem gerist að miklu leyti vegna breyttrar tekjusamsetningar og aukins vægis vörusölu. Við horfum því ekki á þessa umbreytingu eingöngu út frá framlegðarhlutfalli heldur einnig út frá bætingu á sjóðstreymi og þeim möguleikum sem skapast til frekari verðmætasköpunar fyrir samstæðuna.

Og ef við skoðum svo í heildina rekstrarreikninginn bæði ársfjórðunginn og fyrri helming ársins. Við erum búin að fara nokkuð vel yfir ársfjórðunginn þannig að ef við skoðum fyrri helming ársins samtals þá voru heildartekjur 7,4 milljarðar og vaxa 10% sem skýrist helst af viðbót Óvar frá og með 1.

júní en einnig góðum vexti í þjónustutekjum Nova. Heildarrekstrargjöld námu rúmlega 6 milljörðum og hækka 29%.

Stærsta breytingin á rekstrargjöldum í kostnaðarverði seldra vara. Þar koma saman innkoma Óvar og breytt fyrirkomulag Sendafélagsins.

Hækkun á þessum lið endurspeglar því fyrst og fremst breytingu á umfangi og samsetningu samstæðunnar en ekki hefðbundinn kostnaðaraukningu í Nova klúbbnum. Laun og annar rekstrarkostnaður hækkar einnig við innkomu Óvar og uppbyggingu Kosmos.

En þetta leiðir þá til þess að EBITDA á fyrri helming ársins samtals 1351 milljón og lækkar 690 milljónir. En aftur hafa þarf í huga að breytingar á samstæðunni hafa veruleg áhrif og eru því samanburðartölur ekki að fullu samanbærilegar.

Ef við skoðum svo því næst efnahagsreikninginn. Hann sýnir skýrt að Nova klúbburinn orðinn stærri og fjölbreyttari samstæða.

Heildareignir námu 28,7 milljörðum í lok júní og jukust 22% frá áramótum. Viðskiptavildin hækkar 2,9 milljarða vegna kaupanna á Óvar, en athugið að kaupverðsúthlutun enn bráðabirgðamat og getur því tekið breytingum innan þess frests sem reikningsskilareglur gera ráð fyrir sem eru 12 mánuðir.

Birgðir og viðskiptakröfur hækka einnig verulega, að mestu vegna innkomu Óvar. Það sýnir vel að samstæðan nú ekki aðeins fjarskiptafélag heldur einnig samstæða með stærri vöru-, dreifingar- og þjónusturekstur sem endurspeglar breytt viðskiptamódel.

Lán til tengdra aðila lækkar 1,6 milljarða. Það vegna endurgreiðslu Sendafélagsins á hluta af láni sem veitt var samhliða sölu dreifikerfisins.

Það fjármagn var svo nýtt í kaupin á Óvar. Á skuldahliðinni kemur inn nýtt 1,7 milljarða króna lán vegna kaupanna á Óvar auk skulda og leiguskuldbindinga sem fylgja rekstri félagsins.

Eigið fé nam því 9,3 milljörðum króna, eiginfjárhlutfallið var 32,5% og handbært fé 930 milljónir. Þannig að stækkunin hefur aukið skuldsetningu en eiginfjárstaða og lausafjárstaða áfram mjög traustar.

Ef við skoðum svo aðeins nokkrar kennitölur úr efnahagsreikningnum og hvernig þær eru að þróast. Kaupin á Óvar hafa tímabundið töluverð áhrif á skuldsetningarkennitölur en eins og ég sagði áðan, eiginfjárhlutfallið 32,5% og veltufjárhlutfallið 1,35 sem sýnir áfram mjög traustan lausafjárgrunn.

Heildarskuldir hækka í 15,5 milljarða með leiguskuldbindingum og skuldsetningarhlutfallið hækkar í 3,41 þar sem nettó vaxtaberandi skuldir, leiguskuldbindingar og aðrar skuldir eru teknar á móti hlaupandi 12 mánaða EBITDA. En þar sem við höfum bara 1 mánuð af EBITDA Óvar inni í samstæðu þá áætlum við hvernig EBITDA þess félags hefur þróast síðustu rúllandi 12 mánuði og bætum því við útreikninginn til að sýna hlutfallið í réttara ljósi.

En eins og Silvía kom líka inn á áðan þá forgangsröðun fjármagns skýr hjá okkur. Fyrst að verja sterkan efnahag og fjárhagslegt svigrúm, síðan að fjármagna kjarnareksturinn og að lokum ráðstafa fjármagni í vöxt eða skila til hluthafa.

Ef við skoðum því næst sjóðstreymið. Handbært fé frá rekstri nam rúmum 1 milljarði á öðrum ársfjórðungi og jókst 266 milljónir frá sama tímabili í fyrra og þetta með því hæsta sem við höfum séð í handbæru fé frá rekstri og skýrist að hluta af góðri jákvæðri breytingu á veltufjármunum.

Sjóðstreymisbrúin sýnir svo meðal annars hvernig kaupin á Óvar voru fjármögnuð. Handbært fé var 2,2 milljarðar í upphafi fjórðungsins, 2,7 milljarðar var af nýju láni og reksturinn skilaði rúmum milljarði.

Á móti voru svo 3,9 milljarðar í kaup á dótturfélagi þar sem kaupverðið var endanlegt 4,3 milljarðar en á móti því nettast yfirtekið handbært fé. 350 milljónir tæplega voru greiddar í arð, 310 milljónir fóru í fjárfestingar og aðrar fjármögnunarhreyfingar voru 380 milljónir sem samanstanda af afborgunum lána að mestu leyti.

Þannig að handbært fé í lok tímabilsins var því 930 milljónir króna. Við sjáum hér líka free cash flow kennitöluna sem byggir á veltufé frá rekstri að frádregnum fjárfestingum og nam hún 390 milljónum króna á tímabilinu eða 9% af tekjum og sýnir vel hversu stöðugt frjálst fjárflæði í félaginu á sama tíma og samstæðan fjárfestir í vexti og hefur lokið stærstu kaupum í sögu klúbbsins.

Aðeins fjárfestingarnar. Þær námu 310 milljónum á öðrum ársfjórðungi og lækka 101 milljón frá sama ársfjórðungi í fyrra.

Fyrir fyrri árshelming námu þær samtals 724 milljónum í heildina samanborið við 860 milljónum ári áður. Fjárfestingar í rekstrarfjármunum lækka á milli ára.

Það skýrist að stórum hluta af breyttu eignarhaldi og rekstrarfyrirkomulagi eftir að 4G og 5G dreifikerfið var selt til Sendafélagsins. Lækkunin því ekki einfaldlega niðurskurður heldur endurspeglar einfaldlega breyttan strúktúr samstæðunar.

Áfram fjárfest markvisst í kjarnakerfi og stofnneti, aukin afkastageta og öryggi kerfa almennt. Fjárfestingar í óefnislegum eignum aukast og beinast meðal annars að Nova appinu, þjónustuvefnum, eSIM innviðum og einfaldari stafrænum þjónustuverklum.

Þar á meðal eru fjárfestingar Kosmos í sínum þjónustukerfum. En fjárfestingar Kosmos og Óvar námu samtals 86 milljónum á tímabilinu.

Leiðrétt fyrir þeim var lækkun fjárfestinga Nova samtals 190 milljónir tæplega á milli ára. En til að taka saman þá áherslan á þrjú meginþemu: sterka innviði, betri stafræna upplifun og aukna sjálfvirkni.

Fjárfestingar eru í heild í takt við áætlun og styðja við bæði rekstraröryggi og framtíðarvöxt samstæðunnar. Og svona að lokum.

Afkomuspá ársins var uppfærð í júlí í kjölfar kaupanna á Óvar og innifelur rekstur þess frá 1. júní.

Gert ráð fyrir heildartekjur samstæðunnar verða á bilinu 19 til 19,4 milljarðar og EBITDA verði á bilinu 3,6 til 3,8. Einnig gert ráð fyrir að heildarfjárfestingar verði 1,2 milljarðar.

Á tekjuhliðinni byggir spáin á áframhaldandi vexti í þjónustutekjum Nova, einkum af fastneti og sérlausnum, auk þess sem Óvar verður hluti af samstæðunni allan seinni helming ársins. Á kostnaðarhliðinni tekur spáin mið af nýju rekstrarfyrirkomulagi Sendafélagsins, uppbyggingu Kosmos og samþættingu við Óvar.

Aðgerðir til að bæta áfram kostnaðaraga hafa hafist en gert ráð fyrir að áhrif þeirra komi stigvaxandi fram þegar líður á árið. Síðari árshelmingurinn mun því gefa mun skýrari mynd af nýrri samstæðu sem innifelur 6 mánuði af Óvar í stað eins, frekari uppbyggingu tekna frá Kosmos og áframhaldandi þróun kjarnareksturs Nova.

Og þá hef ég lokið að fara í gegnum það sem ég ætlaði að fara í gegnum og býð Silvíu að koma upp til að taka við spurningum með mér. Hvort það kæmi eitthvað úr sal eða eitthvað komið á netið eða vefinn hjá okkur?

Já, það eru komnar hérna nokkrar spurningar í gegnum netfangið okkar. Frá Alexander hjá Akur.

Hann spyr, gerir uppfærð afkomuspá ráð fyrir að upphafleg afkomuspá Nova sé óbreytt? Það að segja, eru breytingarnar bara vegna Óvar?

Þórhallur

Já, uppfærð afkomuspá gerir í raun fyrir að afkomuspáin fyrir Nova sé óbreytt. Þetta fyrst og fremst viðbót vegna Óvar.

Takk fyrir það. Hann spyr áfram, getið þið gefið lit á hversu mikil árstíðasveifla í rekstri Óvar og hversu mikil hún verður hjá Nova eftir kaupin?

Þórhallur

Já, ég get svarað því. Sko, júní og júlí og janúar eru jafnframt tekjulægstu og framlegðarlægstu mánuðir hjá Óvar.

Eins og kom fram þá var EBITDA-an 26 milljónir í júní en 366 á fyrri árshelming. EBITDA-an að sveiflast svona frá 26 upp í tæplega 100.

Og þessir þrír mánuðir júní, júlí og janúar eru lægstir.

Takk fyrir það. Hann heldur áfram.

Hvernig fer Kosmos af stað? Er það yfir eða undir væntingum og skiptingin á kúnnum þar samkvæmt markaðshlutdeild félaganna eða eru þeir frekar að koma frá Nova?

Silvía

Já, það kannski best að ég svari þessu. Eins og ég sagði áðan að þá Kosmos að fara af stað í takt við áætlanir.

En til að byrja með að þá var þetta svona tengt Nova klúbbnum en við sjáum núna að þetta að færast í átt að vera meira í takt við markaðshlutdeild. Hérna sem sagt takturinn af viðskiptavinum hvaðan þeir eru að koma.

Takk. Það voru ekki fleiri frá Alexander, en svo Gunnar Þorvaldsson, hann spyr aðeins út í Kosmos aftur.

Þegar þið kynntuð Kosmos til leiks sagðir þú Silvía, „Með Kosmos erum við meðvitað að ógna okkur sjálfum og skapa beina samkeppni við Nova á einstaklingsmarkaði. Við trúum því einfaldlega að besta leiðin til að verja sterka stöðu sé að vera fyrst til að endurskilgreina hana.“ Geturðu útskýrt þessi ummæli nánar?

Silvía

Já, endilega. Bara gaman að því.

Þegar við komum út með Kosmos að þá erum við í rauninni að höfða til verðnæmasta viðskiptavinahópsins og sérstaklega þeirra sem að geta nýtt sér 5G tækni. Þarna bara ný vara að koma inn á markaðinn og hvernig við pökkum henni inn.

Þetta þýðir það að Nova þarf líka aðeins að endurskilgreina sig, til hvaða markhóps Nova ætlar að sækja. Og við munum einfalda vöruframboð Nova í haust og höfða til breiðari markhóps.

Þannig að þetta hefur þau áhrif að Nova þarf líka að hugsa svona hvernig við nálgumst markaðinn. Og þar Nova að keppa á góðri þjónustu og persónulegri þjónustu meðan Kosmos alsjálfvirkt og svona algjörlega bara virkilega ódýrasta leiðin af því að ná sér í fjarskiptaþjónustu.

Þannig að þetta eru bara ólíkir markhópar sem að sækja sitthvora vöruna. Og svo var ég búin að svara það ekki hinu?

Jú, hann var með framhaldsspurningu frá hvaða félögum hafa viðskiptavinir Kosmos aðallega komið, en það búið að svara því í áður svari.

Silvía

Já. Til að byrja með þá var þetta tengt klúbbnum en núna sjáum við þetta vera að þróast í þá átt að bara vera í takt við markaðshlutdeild félaganna.

Takk Silvía. Eru einhverjar spurningar úr sal?

Nei, það ekkert frekara.

Þórhallur

Þá segjum við þetta bara gott, það ekki? Og þökkum fyrir okkur.

Silvía

Bara takk kærlega fyrir að fylgjast með og við erum alltaf til í að svara spurningum ef eitthvað vaknar í kjölfarið þegar þið skoðið þetta betur. Takk kærlega fyrir komuna.