Sjova-Almennar tryggingar hf

Sjova-Almennar tryggingar hf

IICE:SJOVA
43.80
ISK
-0.20
(-0.45%)
46.00BMarket Cap

Q2 FY2026 · Earnings Call TranscriptJuly 16, 2026

Hermann

Afkomukynningu hjá okkur í Sjóvá fyrir annan ársfjórðung ársins 2026 og leið náttúrlega 6 mánuði fyrir 2026. Að vanda erum við þrjú sem að sinnum kynningunni eða förum í gegnum þetta.

Ég svona fer yfir það helsta fyrst, Sigríður Vala tekur síðan við og Þórður í framhaldinu. Og síðan komum við upp og hérna opnum fyrir spurningar ef einhverjar eru, hvort sem þær eru á netinu, ött fjárfesta@sjova eða hér úr sal.

Ef við vindum okkur þá í þetta að þá annar fjórðungur var býsna sterkur hjá okkur. Við erum mjög ánægð með niðurstöðuna sem að hann skilar okkur, fjórðungurinn, og þá sérstaklega náttúrulega vátryggingamegin.

Hagnaður var eftir skatta upp á 900 milljónir og þá tæplega 750 milljóna króna afkoma af vátryggingasamningum fyrir skatta. Þetta skilar okkur samsettu hlutfalli upp á 91,5% fyrir annan fjórðung.

Og afkoma af fjárfestingum var fyrir skatta upp á 405 milljónir sem skilar okkur ávöxtun á safnið upp á 1,4%. Nú að vanda þá förum við aðeins yfir svona þetta helsta sem að hefur á okkar daga drifið í þessum fjórðungi og þarna fellur til þá stærsta niðurstaðan úr stærstu vinnustaðakönnun landsins sem Fyrirtækjakönnun VR.

Og þar eins og áður og undanfarin ár þá höfum við skorað mjög hátt þar, sem mjög ánægjulegt. Þetta eins og ég segi stærsta vinnustaðagreining landsins þar sem að starfsmenn eru spurðir að ýmsum þáttum og þessir þættir hafa mismunandi vægi eftir árum eða milli ára.

Og því nú ekkert alveg heiglum hent að fá svona niðurstöðu eins og við erum að fá upp á 4,5 af 5 mögulegum í gegnum tíðina. Og við erum afar stolt af því.

Þarna eru þættir eins og starfsánægja, jafnrétti og starfsandi og sveigjanleiki að koma mjög vel út hjá okkur. Eins og sagt var áður að við erum í þannig bransa, við erum fólk að sinna fólki, og þarna skiptir því miklu máli að menningin okkar, starfsandinn, sem sagt bara mannauðurinn, sé sterkur til þess að sinna þeirri þjónustu sem að okkur falin.

Að sama skapi erum við þá líka að máta okkur við kúnnann og við stöðuna reglulega. Og þar eru kannanir enn þá þannig, þær hafa verið það býsna lengi, þar sem að staða okkar gríðarsterk á markaði: staða vörumerkisins, ímyndarstaða og svona fyrsta val á markaði gerir okkur kleift að standa mjög sterk í þeirri samkeppni sem að nú ríkir sem gríðarlega hörð og harðari heldur en nokkru sinni.

Þannig að þetta eru góðar niðurstöður. Nú reglubundið förum við í gegnum mat Reitunar á UFS-stöðlunum eða viðmiðunum og þar eins og áður erum við að skora vel yfir markhópnum og erum að skora þarna í kringum 80 stig, 81 stig og hérna, sem verður að teljast bara stórfínt og hérna mjög vel viðunandi.

Nú við kynntum til sögunnar í maí nýtt app, app sem að við lögðum mikið upp úr að væri næst notendavænt og svona gagnaðist okkar viðskiptavinum. Við reynum að sinna vöruþróuninni þannig að þetta snúist nú fyrst og fremst að okkar viðskiptavinum og sé þeim til hagræðis.

Tilkynning á tjónum og þeirra aðkoma að þeirri stöðu og tryggingavernd mjög aðgengileg, sem gott. Og samhliða því þá kynntum við til sögunnar nýtt samstarf sem við tókum upp með Icelandair sem mjög kærkomin viðbót við Stofninn.

Stofninn eitt af þeim vildarkerfum á landinu sem að hvað þekktast þegar þau eru mæld vildarkerfin. Og þetta því skemmtileg viðbót eða skemmtilegt krydd við það þar sem að okkar viðskiptamenn sem að fá Stofnendurgreiðslur geta þá valið hvort að það í fjármunum eða punktum hjá Icelandair.

Og því til viðbótar að þá eru tilboð sem standa okkar Stofnfélögum til boða reglubundið frá Icelandair. Nú eins og ég vék að áðan og verður komið betur að þá voru fjárfestingarnar undir væntingum hjá okkur.

Í sjálfu sér það alltaf svona afstætt, það að segja fjárfestingarnar sem slíkar eru kannski ekki lakari og jafnvel örskárri heldur en svona viðmiðunarmælikvarðar. En eins og málshefð þekkja nú á markaðinum hefur ekki verið hliðhollur eða hagstæður við þessar kringumstæður að undanförnu og þá sérstaklega hlutabréfamarkaðurinn.

Nú að þessu sögðu þá ætla ég að hleypa Sigríði Völu að.

Sigríður Vala

Já, komið þið sæl. Virkilega góður fjórðungur í vátryggingarekstrinum hjá okkur, 744 milljóna króna afkoma fyrir skatta og samsett hlutfall 91,5% sem nokkuð betra en okkar áætlanir gerðu ráð fyrir.

Tjónaþróun hagfelld en auk þess féll ekkert stórt tjón til á fjórðungnum frekar en á sama tímabili í fyrra. Og við sjáum í rauninni hversu sterkur grunnreksturinn okkar þegar við skoðum síðustu fjórðunga sem að hér eru birtir og hérna ber þess merki að grunnreksturinn sé hraustur og hérna afar sterkur.

Nú afkoma fjárfestinga var jákvæð 1,4% með ávöxtun á safninu okkar sem nokkuð undir okkar langtímamarkmiðum og væntingum líkt og í rauninni við sjáum á fyrsta fjórðungi sem og á sama tímabili í fyrra. Nú ef við skoðum vátryggingasamningana þá hafa tekjurnar hjá okkur aukist 2,2% á fyrstu 6 mánuðum ársins.

Og það aðeins að hægja á vextinum. Eins og Hermann nefndi samkeppnin mikil og hefur verið það undanfarið auk þess sem að minni umsvif í hagkerfinu hafa auðvitað áhrif á hérna tekjuvöxt og þá aðallega fyrirtækjamegin.

Nú tekjuþróunina þarf að sjálfsögðu að skoða í samhengi við þróun kostnaðar sem í rauninni að þróast með sama hætti og tekjurnar, það að segja eykst 2,2% á tímabilinu. Og skilar okkur því í nær óbreyttu samsettu hlutfalli á milli ára.

Nú við sjáum hérna á myndinni lengst í vinstra horninu þróunina í samsettu hlutfalli vátryggingagreina. Og við sjáum þar að ökutækjatryggingarnar eru að skila betri afkomu á sama tíma og aðrar greinar hafa aðeins versnað.

Nú við sjáum ökutækjatryggingarnar þróast í rétta átt undirliggjandi, en eins og við nefndum síðast og gott að fara aftur yfir að þá vorum við að breyta úthlutun á kostnaði sem leiddi til þess að ökutækjatryggingarnar fá minni kostnað til sín á meðan að kostnaður eykst annars staðar. Hefur engin áhrif í heildarsamhenginu á samsett hlutfall en við teljum þetta endurspegla betur þann kostnað sem að hérna greinarnar taka til sín.

Nú þá rekstrarafkoma fjórðungsins og við sjáum minni tekjuvöxt núna heldur en á fyrri fjórðungum. Við sjáum vöxt á einstaklingsmarkaði sem að drífur í rauninni þennan vöxt áfram en við erum hins vegar farin að sjá tekjur á fyrirtækjasvæði dragast lítillega saman.

Nú tjóna- og endurtryggingakostnaður stendur í stað á milli ára og skilar sér því í lægra tjóna- og endurtryggingahlutfalli en í fyrra. Og þar munar töluvert jákvæða matsþróun og lægri kostnað af endurtryggingasamningum sem að vegur upp á móti örlítið hærra tjónahlutfalli tímabilsins á fyrstu 6 mánuðum þessa árs.

En þetta eru alveg eðlilegar sveiflur á milli fjórðunga. Nú báðir mjög góðir fjórðungar í vátryggingastarfseminni og 744 milljóna króna hagnaður þar fyrir skatta samanborið við 690 milljónir í fyrra.

Nú fjármálsliðirnir eru að þróast með eðlilegum hætti og bara í takt við það sem við spáðum í upphafi árs. Og það að segja miðað við óbreytta vaxtastig og hérna óbreytta vexti.

Nú afkoma fjárfestingarstarfseminnar var undir væntingum og Þórður mun fara betur yfir það, og afkoma eftir skatta 900 milljónir. Nú fyrir 6 mánuðina að þá tekjuvöxturinn 2,2% og aftur þarf að sjálfsögðu að skoðast í samhengi við tjónaþróun og kostnaðarþróun.

Gott tíðarfar í byrjun árs skilar sér í hérna aðeins betra tjónahlutfalli tímabilsins. Það féll ekki til stórtjón á tímabilinu frekar en á sama tímabili í fyrra.

Nú rekstrarkostnaður í heild sinni að aukast 4,8% á milli ára, 4% í vátryggingastarfseminni. Og þessi aukning á milli ára í rauninni drifin áfram af auknum launakostnaði án þess í rauninni að stöðugildum sé að fjölga.

En við fylgjumst að sjálfsögðu vel með þróun á rekstrarkostnaði og kostnaðarhlutfalli. En hafandi sagt það þá erum við líka að vinna að ýmsum og fjölmörgum verkefnum sem að miða að því að bæta þjónustuupplifun til okkar viðskiptavina ásamt því að ná fram aukinni skilvirkni í rekstrinum.

Nú ofan í háan endurtryggingakostnað á fyrsta ársfjórðungi útskýrir hækkun í endurtryggingakostnaði á milli ára en heildarniðurstaðan 1.534 milljóna króna afkoma af vátryggingasamningum og eykst lítillega á milli ára. Virkilega góð niðurstaða og eins og áður sagði endurspeglar sterkan tryggingarekstur.

Nú eignamarkaðir hafa verið ansi þungir undanfarið, afkoman undir væntingum þar. En þrátt fyrir það útskýrir afkoma vátryggingasamninga í rauninni viðsnúning í afkomu á milli ára og niðurstaðan 1.138 milljóna króna hagnaður á tímabilinu.

Nú gjaldþol og gjaldþolshlutfall, það nam eða var í 1,44 í lok annars ársfjórðungs og gjaldþolið hækkar í raun í takt við afkomuna. En við drögum frá keypt eigin bréf sem og þau bréf sem að eru útistandandi samkvæmt okkar áætlunum endurkaup sem að nam samtals 500 milljónum sem við kynntum núna á vormánuðum.

Nú gjaldþolskrafan að hækka töluvert og það í rauninni bara markaðsáhættan sem að hækka á fjórðungnum. Og það aðallega vegna hærri hlutabréfaáhættu sem helgast af þróun á samkverfa aðlögunarstuðlinum sem hækkaði 5 prósentustig á fjórðungnum og skilar okkur þá í 1,44 í lok tímabils.

Nú efnahagsreikningurinn að þróast bara með mjög hefðbundnum hætti miðað við árstíma, verðbréfin, við sjáum áhrifin af arðgreiðslu, á móti kemur ávöxtun á verðbréfasafnið sem og innstreymi úr vátryggingarekstrinum sem hækkar þá eignirnar á móti. Eigið fé tekur að samaskapi mið af þessu og við sjáum að skuldbinding vegna vátryggingasamninga hefur lækkað frá áramótum.

En það helgast í rauninni bæði af því að verið að greiða úr stórum tjónum sem og að minni umsvif og minni tekjuvöxtur í rauninni hægir aðeins á vexti skuldarinnar. En efnahagsreikningurinn afar sterkur sem fyrr.

Þórður.

Þórður

Já, svo komið hefur fram að þá voru fjárfestingarnar undir væntingum á fjórðungnum. Og ef við svona kíkjum á þetta að þá horfum við fyrst á kannski bara á afkomuna af skuldabréfum, þá hún bara í ágætis takti við það sem að vænta má.

Þið sjáið að afkoman í kringum 2% sem að þá kannski rúm 8% á ársgrundvelli og þá svona lítillega yfir stýrivöxtum á fjórðungnum sem að mun ekki fá sérkafla í endurminningum mínum en þetta alveg ásættanleg afkoma. Ef við horfum á hérna óskráð hlutabréf að þá þetta eignaflokkur sem að hreyfist tiltölulega hægt í verðmati út af svona eðli eignanna.

Nú það voru engar meiriháttar verðbreytingar á fjórðungnum og hérna en ef við kannski svona það sem helst var að frétta þarna að það var að við bókfærum arðgreiðslu frá Skyggni eignarhaldsfélagi sem að áður hét Origo upp á 152 milljónir og síðan munurinn á því og hérna þessum 68 milljónum það að hérna það var bara innkallanir í sjóði. Það var engin ný fjárfesting á fjórðungnum í þessum eignaflokki.

Nú stóra fréttin að það eru hlutabréf og þau auðvitað ollu vonbrigðum, hérna afkoman neikvæð 0,1%. Það sem að kannski svona helst setti svip sinn á fjórðunginn að það var að í lok maí að þá fékk Oculis, sem hlutabréf sem við áttum töluvert í, neikvæða niðurstöðu úr rannsóknum og í kjölfar þess að þá fengum við nokkra barsmíð á markaðnum eins og sjá má.

En Oculis hérna að svona í kjölfarið á því ef við horfum á og setjum aðeins í samhengi lækkunina sem að varð á hlutabréfum Oculis að þá frá sínu hæsta gildi niður á sínu lægsta gildi, svona spönnin þarna, að hún var 68%. Og það í sjálfu sér ekkert sko óviðbúið, sérstaklega ekki fyrirtæki sem í þróunarstarfsemi á íslenska markaðnum.

Ef við horfum á þetta svona sem kallaðst maximum drawdown að þá fyrir fyrirtæki í kauphöllinni að þá það að meðaltali 56%. Ef við tökum bara til dæmis annað dæmi fyrirtækis sem að hefur fengið töluvert drawdown en svona kannski burðarás í kauphöllinni sem að Marel að þá áttu þeir sko hérna spönn upp á 66%.

Og svona staðalfrávik út frá þessu meðaltali í kauphöllinni að það rétt rúm 20%. Þannig að það erfitt að segja að þetta hafi verið mjög óvæntur atburður þannig séð.

Það sem að hins vegar var óvænt og var óvenjulegt og við höfum aldrei séð áður að það að bréfin lækkuðu 50% á einum degi. Og það eitt sem að hefur lækkað meira og það var síðasti dagur fyrirtækis sem var ógjaldfært en í hérna gjaldværum félögum að þá höfum við aldrei séð neitt þessu viðlíka.

Það hins vegar varð til þess að þessi hraða lækkun og hraða breyting að það var töluvert streymi af peningum út af hérna hlutabréfamarkaðnum og markaðurinn auðvitað bara enn þá að vinna úr því vegna þess að niðurstöður úr rannsókn hjá Oculis ætti í sjálfu sér ekki að hafa þannig séð áhrif á verðmæti annarra fyrirtækja þó það vissulega hafi áhrif á verðþróunina og markaðurinn bara svona að vinna úr því. En þetta meginskýringin á slakri afkomu af hlutabréfa á fjórðungnum.

Ef við förum svo aðeins í eignaskiptinguna að þá erum við svona með tiltölulega lága stöðu í hlutabréfum núna miðað við það sem við höfum verið með sögulega. En við jukum mest við ríkisskuldabréf á fjórðungnum þá á kostnað annarra skuldabréfa.

Ef við horfum á stærstu breytingarnar að þá sjáum við sérstaklega í skuldabréfum að þar eiginlega mestu breytingarnar fólgnar í því að bréf voru á gjalddaga og í einhverjum tilfellum hérna sko framlengd eða keypt ný bréf sambærilegum útgefanda. Þannig að það var engin sérstök breyting þar og við sjáum það að bæði verðtryggingarhlutfall og meðallíftími lítið breyttur á fjórðungnum.

Í hlutabréfum að þá voru heldur engar stórar eða taktískar breytingar. Svona helsta breytingin var sú að við hérna jukum við hlut okkar í Íslandsbanka þar sem við höfum verið töluvert undirvigin þá á kostnað Arion banka og Kviku.

En þannig að það var ekki nein breyting á sektor þar. Jafnframt jukum við aðeins við okkur í fasteignafélögum þannig að það má segja auðvitað að við höfum fært okkur meira yfir í vaxtanæm félög.

Nú ef við horfum þá á fyrstu 6 mánuðina að þá afkoman slök. Ávöxtun fjárfestingareigna 1% og þetta skýrist eins og annar ársfjórðungur að mestu leyti af slakri afkomu af hlutabréfum.

Hermann.

Hermann

Þá til að sýna hérna afkomu af einstökum vátryggingagreinum eins og við höfum gert, hluta niður, og þarna sést þá á vinstri dálkarnir lengst vinstra megin, þrír, svona mynda 75% af heildarinnkomunni hjá okkur. Þannig að það eru þeir sem svona vigta mest í þessu, hitt sveiflast kannski meira eftir því hvernig tjón falla til.

Eins og kom fram í máli Sigríðar Völu áðan þá var svona hérna niðurstöðurnar varðandi ökutækjatryggingarnar verið svona horfa til betri vegar hluta til vegna þess að úthlutunin hjá okkur sem við töldum rétt að fara í en að hluta til eru líka aðrir þættir eins og áfelli sem að var í upphafi árs og á vetrarmánuðunum, framrúðutjón og fleira sem að vigta jákvætt. En þetta engin slík teikn að hægt sé að ramma þau inn eða gera ráð fyrir því að þau séu komin endanlega til að vera.

Það eins og oft áður, við þekkjum það, að sveiflurnar geta verið miklar þarna á þessum stöðum. Og sama má segja þá eignatryggingarnar.

Þarna sést bara glöggt og það kom fram í máli Sigríðar Völu að við vorum svona stabíl þarna og engin stórtjón fyrir 6 mánuðina í fyrra, ekki frekar en núna. En svo þurfi ekki annað en að sjá 2024 þar sem að komu stórtjón inn á fyrstu 6 mánuðinum, þannig að það sveiflast mikið til líka þar.

Nú aðeins bara þá til að draga þetta saman að eins og komið hefur fram ítrekað, við erum mjög sátt við niðurstöðuna, þetta góður árangur, sérstaklega ef litið til þess sem að við höfum þá svona almennilega stjórn á sem þá vátryggingastarfsemin og getum mjög vel við unað með 91,2% samsett hlutfall fyrir fyrstu 6 mánuðina. Nú nýtt skipurit var kynnt hérna hér aðallega innanhúss getum við sagt í maí þar sem við erum aðeins að við tölum við sem aðeins að eydda okkur getum við sagt.

Auðvitað kallar alltaf samkeppnin og bara umhverfið í sjálfu sér, samfélagið, á það að við svona aðlögum okkur að því umhverfi sem að við vinnum í hverju sinni. Og núna getum við sagt að nýtt samkeppnisumhverfi kallar á það að við þurfum að straumlínulaga okkur og skipuritið hefur fyrst og fremst snúist það að þær deildir sem að hafa verið að vinna þétt saman en kannski á milli sviða eða deilda eru komnar miklu nær hver annarri og vinna þá þéttar saman undir einni stjórn og gerir þá svona skilvirkara allt saman.

Áfram erum við að fara að vinna að því að huga að þjónustuupplifun, huga að því að sinna okkar viðskiptavinum af mikilli kunnáttu. Það það sem að hefur skilað okkur árangri og við viljum halda því áfram.

En það sem við gerðum fyrir ári síðan ekkert endilega það sem að virkar í dag heldur breytist alltaf samfélagið og við þurfum að koma til móts við það. Og talandi breytingar á samfélagi og þó kannski ekki breytingar á samfélagi heldur kannski aukin ákall ýmsa þætti eins og aukna vernd að þá kynntum við líka til sögunnar núna á fyrstu 6 mánuðunum fjölskylduvernd sem ný vara hjá okkur og fellur undir sjúkdómatryggingu.

Og held ég að sé mjög kærkomin og góð fyrir þá sem að lenda í þeim áföllum sem kalla á vernd sem þessa. Nú hvað varðar endurkaupin að þá eins og við kynntum síðast að farið af stað og erum búin að kaupa fyrir eitthvað tæplega 150 milljónir í endurkaupum, heimild upp á 500 milljónir, og sem sagt hyggjumst þá halda því áfram.

Hvað varðar horfurnar okkar þá gerum við ráð fyrir því að þær verði óbreyttar. Stöndum á hálfu ári núna og horfurnar okkar fyrir árið eru að afkoma af vátryggingastarfseminni verði á bilinu 1.800 til 2.500 milljónir og samsett hlutfall verði á bilinu 93 til 95%.

Að svo sögðu þá viljum við mjög gjarnan fá spurningar úr sal eða á netinu ef einhverjar hafa borist.

Það hafa komið nokkrar á netinu. Sú fyrsta er: Kom ekkert til greina að uppfæra afkomuspá vátryggingastarfseminnar í ljósi sterks samsetts hlutfalls á fyrstu 6 mánuðum ársins?

Hermann

Já, hérna auðvitað kom það til tals að skoða það. En svona þegar við lítum aðeins til baka, eins og ég var aðeins að víkja að áðan, að þá það þannig að við gerum ráð fyrir því í okkar áætlunum að það falli til stórtjón.

Og það hefur svona verið reynslan oft á tíðum. Og þegar ég talaði eins og 2024 þá féllu nú til 4 stórtjón á einni viku getum við sagt, í júní held ég hafi verið.

Og hérna þá vorum við líka spurð að því hvort við teldum ekki ástæðu til þess að breyta horfum á til hins verra miðað við stöðuna þá. Það gerðum við ekki og kláruðum árið bara innan þeirra horfa sem að við birtum.

Að sama skapi núna getum við sagt, og í sjálfu sér í fyrra líka, að þá féll til stórtjón á seinni helmingi ársins. Þannig að það ekki alveg tímabært eða ástæða til að endurskoða horfur fyrr en við sjáum betur ofan í reksturinn og þá það frekar á þriðja ársfjórðungi sem að tímabært að gera það.

En staðan eins og hún núna, hún góð en við þekkjum það alveg að þetta sveiflukenndur rekstur og við vitum ekki hvenær hérna tjónin falla til.

Og næsta er: Sér félagið fram á aukinn svigrúm til að skila fjármagni til hluthafa, hvort sem í formi endurkaupa eða viðbótararðgreiðslu, í ljósi sterkari eiginfjárstöðu og lægra gjaldþolsviðmiðs?

Hermann

Spurningarnar þínar heyrast það ekki örugglega? Já, já, fínt.

Þetta nú áhugaverð spurning og hérna kannski fyrst því til að svara að þeir sem að þekkja til okkar og þeir sem þekkja til okkar vegferðar frá því að Sjóvá fór á markað fyrir 12 árum síðan, þá þekkist Sjóvá af því að vera mjög sterkt arðgreiðslufélag. Og við höfum skilað hérna gríðarlega sterkum og góðum arðgreiðslum til okkar hluthafa.

Og það hefur ekkert breyst nema síður sé og auðvitað bara eykst. Það ekki okkar að taka þá ákvörðun heldur það stjórnar og jafnvel hluthafafundar að taka þetta ákvörðun á endanum.

En hins vegar það rétt sem að kemur fram í spurningunni að staða okkar sterk, svigrúmið hefur verið aukið, við höfum hafið endurkaup, þannig að allt þetta spilar saman og svona málið að lykum að því ef að reksturinn gengur eins og hann hefur gengið að svigrúmið klárlega til staðar.

Já, og sú síðasta á netinu ökutækjatryggingar: Afkoma ökutækjatrygginga batnar en samsett hlutfall enn óhagstætt. Búist þið við því að hlutfallið fari undir 100% á einhverjum tímapunkti?

Hvernig sjáið þið þróunina á hlutfallinu út árið miðað við óbreytta spá samsett hlutfall 93 til 95% og munið þið bregðast við með verðhækkunum ef það ekki útlit fyrir lægra hlutfall?

Hermann

Já, þetta nú svona líka fín spurning og kannski ágætt að setja það í samhengi við það sem við höfum verið að tala getum við sagt síðustu 2 árin, að þarna hefur afkoman okkar af ökutækjatryggingum ekki verið góð. Og við höfum ekkert hérna farið í neinn grafgötur með það og svona alveg sagt frá því.

Og sérstaklega getum við sagt að afkoman af frjálsu ökutækjatryggingunum að hún sé á þessum stað sem hún þar sem uppgjörshraði tjóna töluvert mikill, það óásættanlegt. Varðandi lögboðnu þá það þannig að uppgjörshraðinn miklu miklu lengri, það að segja halinn lengri eins og kallað, þannig að við erum með fjármunina þar lengur til ávöxtunar, þannig að oft og tíðum hefur íslenskur markaður einkennst af því að liggja í kringum 100% samsett hlutfall í lögboðnum ökutækjatryggingum og svona kannski betur unað við það.

Þannig að já, hvernig horfurnar verða og hvort við sjáum ástæðu til að hækka iðgjöld, þetta alltaf eitthvað samspil. Við erum ekki ein í þessari kúlu hérna, við erum í samkeppnismarkaði og ég hef áður lýst því að svona verðnæmnin á samkeppnismarkaðnum snýr fyrst og fremst að ökutækjunum.

Og það hörð barátta núna. Þannig að í sjálfu sér þarf eitthvað að gera en ég svo sem get ekki boðað hér eða staðið hér núna og boðað verðhækkanir eða eitthvað slíkt, það eitthvað sem við þurfum bara að taka ákvarðanir.

En við birtum það ekki hér og nú á þessum stað. En þetta eru klárlega hlutir sem að við höfum ekkert farið leynt með að afkoman af þessum greinum eru vonbrigði og hafa verið vonbrigði til nokkuð langs tíma og hérna hlutir sem að þarf að koma til betri vegar.

Við höfum reynt, eins og eftir fremsta megni, að veita til dæmis okkar birgjum líka mikið aðhald í þessu. Auðvitað hafa átt sér stað verðhækkanir þar, bæði launahækkanir þar eins og annars staðar og náttúrulega líka innflutt hérna verðhækkun á sem að kemur inn í verðið á iðgjöldunum.

Þar þurfum við að standa vaktina. En þetta eru hlutir sem að ég get engu lofað framhaldið.

Eins og ég nefndi áðan líka þó að teiknin séu ágæt núna í bili að þá höfum við áður séð það að teiknin hafi verið góð en síðan hafa þau sveiflast til verri vegar og öfugt. En í þessu ljósi getum við sagt að svona afkoman okkar af vátryggingastarfseminni í heild sinni hefur verið sterk og það til nokkuð langs tíma.

Fleiri spurningar? Ef ekki þá bara þökkum við kærlega fyrir hérna mætinguna og þessar góðu spurningar.

Takk fyrir.