EIK Fasteignafelag HF

EIK Fasteignafelag HF

IICE:EIK
14.20
ISK
0.00
(0.00%)
48.86BMarket Cap

Q1 FY2026 · Earnings Call TranscriptMay 8, 2026

Hreggviður

Á uppgjörsfundinn okkar. Þakka kærlega fyrir frábæra mætingu á kynninguna.

Og hérna erum við í beinni útsendingu á internetinu. Reksturinn á 1.

fjórðungi gekk bara ágætlega hjá okkur. EBITDA-n var við efri mörk í afkomuspánni okkar.

Það sem við svona erum líka stoltastir af gangur í endurfjármögnun félagsins. Við gáfum út skuldabréf í 3 flokkum á markaði.

Viðskiptabankarnir okkar sýndu okkur hérna mikinn áhuga og sterkan stuðning sem við erum mjög þakklátir fyrir. Og við sjáum hækkað útleiguhlutfall sem ég mun fara yfir með ykkur á eftir.

En við ætlum að byrja á því að Lýður Gunnarsson, fjármálastjóri félagsins, fari yfir tölurnar úr uppgjörinu. Gjörðu svo vel, Lýður.

Lýður Gunnarsson

Já, takk fyrir það, Hreggviður, og sæl verið öll. Festing kom inn í lok síðasta árs og sjáum við áhrif Festingar koma vel inn á rekstrartölur félagsins, þar sem að leigutekjur ukku mjög hratt, rekstrarkostnaður óx hægar, þannig að EBITDA-n fór hraðast upp, sem nákvæmlega eins og við viljum sjá það.

En ef við förum aðeins yfir helstu tölurnar, þá sjáum við að rekstrartekjur námu 3,5 milljörðum, upp rúm 18%. Þar af voru leigutekjur 3,1 og voru upp 19,5% miðað við sama tímabil í fyrra.

Rekstrarkostnaður 1.300 milljónir, upp 13,6%, þar sem dró mest vagninn þarna var aukning sem sagt í fasteignagjöldum og tryggingum, upp 21%. Skrifstofu- og stjórnunarkostnaður óbreyttur á milli tímabila, 201 milljón, og virðisrýrnun krafna var lítillega niður á milli tímabila.

Það þýðir að EBITDA-n, rétt rúmir 2,2 milljarðar og upp 2- 21,4%. Söluhagnaður 26 milljónir og matsbreyting fjárfestingareigna 2,7 milljarðar.

Helstu áhrif á matsbreytinguna var náttúrulega verðbólga á fjórðungnum og sem sagt hækkun á [WACC-inu?] til lækkunar á virði eigna.

Heildarhagnaður tímabils því rétt tæpur milljarður. Ef við kíkjum aðeins á eignahlið efnahagsreiknings, þá sjáum við að heildareignir eru komnar núna í 186 milljarða og vex efnahagsreikningur upp 2,1% frá áramótum.

Fjárfestingareignir til útleigu eru 160 milljarðar. Aðrir hlutir eins og fjárfestingareignir í þróun, fasteignir til eigin nota, hótelið 1919, og byggingarheimildir og lóðir á bilinu 4,2 til 5,2 milljarðar.

Þá var félagið með 3,5 milljarð í handbært fé við lok fjórðungsins. Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur vaxa nokkuð frá áramótum.

Það fyrst og fremst vegna útistandandi söluverðs á fjárfestingareign, þar sem við sjáum að aðrar skammtímakröfur eru tæpir 11- tæpar 1.100 milljónir. En ef við skoðum viðskiptakröfur og langtímakröfur, sem eru svona að mestu leyti bara eldri viðskiptakröfur, þá sjáum við áframhaldandi lækkun á þeirri stöðu, sem bara mjög sterkt.

Aðeins á skuldahliðina: eigið fé 55,7 milljarðar, vaxtaberandi skuldir 106 milljarðar, þannig að nettó skuldsetningarhlutfall félagsins í lok fjórðungsins 58,6%. Aðrar skammtímaskuldir 3,2 milljarðar og tekjuskattsskuldbinding 15,8.

Örstutt sjóðstreymið: handbært fé frá rekstri, töluverð aukning þarna á milli tímabila, 42% aukning, skýrist meðal annars vegna svona hagstæðra hreyfinga á þarna rekstrartengdum eignum og skuldum, þannig að ég á svona von á að þetta muni aðeins [fade-a?] út eftir því sem að árið líður.

En engu að síður, ansi sterkt sem sagt handbært fé frá rekstri á þessum fjórðungi. Fjárfestingahreyfingar neikvæðar 300 milljónir, fjármögnunarhreyfingar neikvæðar tæpa 500, og staða handbærs fjár eins og áður segir, 3,5 milljarður tæpir.

Við þessu samhengi höfum við svona sýnt ykkur þessa mynd undanfarið sem sýnir það sem sem sagt uppsafnað handbært fé síðastliðna 12 mánuði sem hlutfall af eigifé annars vegar, sem dökka línan, og sem hlutfall af markaðsvirði, sem ljósa línan. Sem hlutfall af eigifé félagið búið að [genera-a?]

9,5% af eigifénu út frá handbæru fé frá rekstri síðastliðna 12 mánuði, en 11,5% af markaðsvirði félagsins. Sem þýðir að miðað við sama takt og í rauninni enga aukningu í þarna handbæru fé frá rekstri þá erum við 8,5 ár að borga til baka markaðsvirði félagsins með handbæru fé frá rekstri.

Svona áður en ég gef boltann yfir til Hreggviðs aftur ætlaði ég aðeins að fara yfir fjármögnun félagsins. Kannski tókuð eftir því að undir skammtímaskuldum þá voru vaxtaberandi skuldir þar 20 milljarðar í lok fjórðungs, sem náttúrulega há staða.

Við vorum á 1. fjórðungi þá gáfum við út nýjan flokk, EIK 1502 66, sem ég mun koma aðeins betur inn á á eftir.

Við vorum í endurkaup á 26-flokknum sem á lokagjalddaga í júlí. Og þarna sjáum við hérna tvær stórar súlur sem eru í rauninni allar sem sagt '26 og '27, þetta allt á næstu 12 mánuðum.

En við höfum nýtt tímann vel frá lok 1. fjórðungs.

Á þessum 5 vikum þá höfum við verið með ágætis [activity?] , við höfum verið með 2 útboð.

Nýr flokkur, 150- 1505 31, þar sem við gáfum út tæpa 4 milljarða. EIK 29 1, gáfum út rúma 3.

Við héldum áfram endurkaupum á 26-flokknum, tæpar 900 milljónir. Við greiddum upp óveðtryggt bankalán að fullu, sem var yfirtekið samhliða kaupum á Festingu.

Við erum búin að tryggja okkur endurfjármögnun á veðtryggðu bankaláni sem var yfirtekið samhliða kaupum á Festingu, ásamt því að hafa lanalínu upp á 2,6 milljarð. Þannig að ef við horfum aftur á sömu tvær súlur þá sjáum við að 26-línan, við höfum tryggt okkur nægilegt fjármagn til að greiða upp EIK 26 flokkinn sem á lokagjalddaga núna eftir 2 mánuði.

Og eini lokagjalddagi á næsta ári sem sagt þarna 27 flokkurinn sem upp á 3,5 milljarð. Þannig að þetta töluverð breyting frá stöðunni eins og hún var í lok 1.

fjórðungs, þannig að hún farið frá því að vera kannski há yfir í að vera bara orðin mjög þægileg. Þannig að eina svona fjármögnunin sem við þurfum svona að endurfjármagna næstu 2 árin í rauninni 27 flokkurinn á næsta ári.

Við gáfum út útgáfuáætlun í lok árs í fyrra. Við höfum haldið takti í takt við hana.

Við erum með 4 útboð það sem af ári. Ráðgerum að halda 4 útboð til viðbótar það sem eftir lifir árs.

Eitt fyrir sumar og 3 eftir sumarið. Svona aðeins skuldabréfaflokkana.

Við erum búin að opna 3 nýja flokka það sem af ári. EIK 1202 66, þetta einn lengsti skuldabréfaflokkurinn í Kauphöllinni.

Meðallíftími var svona í kringum 15,7 ár við útgáfu. Við höfum gefið núna 3,7 milljarða í hann.

Svo EIK 1505 31, það svona týpískur bara millilangur eða millistuttur verðtryggður flokkur, með lokagjalddaga 2031. Svo EIK 29 1, það fyrsti óveðtryggði flokkurinn sem að félagið hefur gefið út, og hann einnig óverðtryggður.

Þannig að ágætis [activity?] það sem af ári, og við eigum ekki von á að koma með fleiri flokka á þessu ári allavega.

Sjáum hvað gerist á næsta ári. Takk.

Hreggviður

Já. Þökkum Lýð kærlega fyrir góða yfirferð.

Við erum að sjá eitthvað sem maður gæti kallað óverulega breytingu á útleigunni okkar. Við erum þarna í kringum 95%, þar sem við viljum vera.

Við tókum vel á móti Brú lífeyrissjóð sem flutti hérna í húsið í gær, byrjaði starfsemi í gær, og Berjaya Hotels sem flytja hérna inn fyrir sumarið á 15. hæð, og Brú komin á 7.

hæð. Þannig að bara samtöl og útleiga á turninum gengur heilt yfir bara mjög vel.

Turninn samt sem áður undir 94,8% nýtingu, þannig að hann undir nýtingu safnsins í heild. En við erum bara mjög ánægðir, við erum að halda verðum bara á fínum stað, og hérna erum svo sem ekkert að drífa okkur, við viljum bara að hérna verðin verði kannski ráðið og langtímaleigusamningar gildi hérna inn.

Og Glerártorg flott, Lindex hérna var með stórt rými þar, fyrrum rekstraraðili Lindex opnar tvær verslanir þarna á Akureyri, og að öðru leyti bara gekk hérna útleigan bara fínt hjá okkur. Við vildum fara aðeins í gegnum Kvosina.

Kvosin hefur verið mikið rædd hérna af okkar fjárfestum. Teljum bara að Kvosin sé að fullu útleigð.

Viss mikið og hérna við höfum svona pælt í því sko. Eða pælt í því, hérna bara eins og staðreyndin, við höldum eftir óútleigðum rýmum við Tryggvagötu í Kvosinni, þar sem við vonumst eftir að fá skipulagsbreytingu, og getum opnað sem sagt fleiri hótelherbergi eða þjónusturými fyrir hótelið okkar 1919.

Þannig að að öðru leyti að þá teljum við bara að annaðhvort samtöl séu bara komin á þann stað í Kvosinni að Kvosin sé bara fullleigð út. Við erum ekki að breyta horfum á árinu.

Við erum þarna í efra bili EBITDA-spár miðað við þá 1 ársfjórðung af 4, og teljum bara að við sjáum allavega ekki ástæðu til þess að hérna uppfæra horfur að svo stöddu hérna fyrir árið. Við seldum eignir.

Við fórum í sem sagt stefnumótun á árinu 2025 og erum bara búin að fara kerfisbundið í gegnum allt safnið okkar eins og það leggur sig, mynda okkur skoðun á tilteknum eignum. Suðurlandsbraut 20 bara sem dæmi eitthvað sem við seldum á 1.

fjórðung, og sem dæmi að þá eigum við þarna helminginn í húsinu, leituðumst eftir að eignast húsið að fullu. Það var ekki vilji til sölu hjá hérna makkaranum okkar í húsinu, þá ákváðum við þá að kaupa okkur út bara á því verði sem að við vorum tilbúnir til að kaupa þau út.

Og hérna kveðjum við bara fasteignina úr okkar safni. Við bara viljum bara eiga heil hús, við viljum eiga stór hús, heil hús, stóra leigutaka, og þessi tiltekna eign féll bara ekki þar undir.

50% hlutur í fasteign eitthvað sem við viljum ekki. Og erum að leitast við því að eyða þessum hérna svona eignum út úr okkar safni.

Í fyrra seldum við eins og þið munið úr Mjóddinni, þar sem við áttum 5% hlut í hérna í risafasteign, og við seljum bara út okkar hlut þar. Glæsileg niðurstaða síðan á Fossvegi 3 hérna á Eyrarveginum, ég ætla nú bara að fara á glæru Eyrarveginn, en Eyrarvegur á Selfossi, þar sem Húsasmiðjan var áður, í dag Samkaupsverslun, glæsileg Samkaupsverslun og hérna kjarninn með öðrum verslunum Dranga hérna þarna.

Við skiptum lóðinni upp í tvennt, og á þróunarsviðið okkar bara mikinn hérna heiður og hrósskilið fyrir frábæra vinnu hér. Fengum yfir 100 íbúðir samþykktar á lóðinni, og seljum síðan til byggingaverktaka sem mun byggja glæsilegar íbúðir þarna á Selfossi, í vesturbæ Selfoss.

Þetta bara einmitt sú þróun sem Eik vill gera. Við viljum þróa að byggingaráhættu og það bara aðilum hlutfallslega yfirburðum frá okkur sem geta haldið á byggingaráhættu.

Og við viljum ekki hvorki halda á byggingaráhættunni né rugla í rekstrarreikningnum okkar eða efnahagsreikningi með því að blanda saman verki í vinnslu og hérna útleigu fasteigna í okkar rekstri. Þannig að þetta bara frábær niðurstaða fyrir okkur og frábær niðurstaða fyrir Selfoss og við óskum fólkinu til hamingju og hrósskilið þar sem það á við.

Við bryddum upp á í stefnumótun Eikar, hvar höfum við hlutfallslega yfirburði? Hvar erum við sterk?

Og við erum sterk í að ráðstafa peningum á móti fasteignum sama hvar það í capital-strúktúr. Samanburðarfélög sem við höfum horft til erlendis, þessi stóru fasteignafélög eru að reka fasteignasöfn og lána síðan til hliðar út á fasteignir.

Ég held að það sé enginn betri heldur en fasteigna-operatör að átta sig á verðum eigna, útleigumöguleikum eigna, og hérna munum við bara nýta okkar tengslanet og okkar styrkleika til þess að fara kannski aftar í veðröð heldur en hefðbundin útlánastofnanir gera til atvinnuhúsnæðis. Við höfum áhætturammann upp á 5 milljarða með frá stjórn Eikar, og ekkert lán viljum við að fari yfir milljarð og ekkert lán kannski undir 100 milljónir.

Og eins og staðan í dag þá höfum við veitt 0 krónur til hérna í útlán. Hins vegar setjum við þetta bara upp hérna sem ákveðinn [krydd í?]

safnið okkar, við setjum þetta upp sem pressu á okkur, að við ætlum að [delivera?] vexti hérna.

Við sjáum okkur sem partner þá fyrir banka, ef bankar vilja hérna vinna með öðrum, að þá erum við til samstarfs reiðubúnir. Og munum leitast eftir því að taka annað veðrétt hérna í samstarfi við aðra.

Eða síðari veðrétti í samstarfi við aðra. Þannig að hérna það var fullt af ráðgjöfum hérna og bönkum þannig að ég bara hérna þið vitið hvar við erum og við vitum líka hvar þið eruð.

Hluthafahópur okkar aukist 13 stykki á árinu, og við bara fögnum þeim og bjóðum öll velkomin í hópinn. Ég myndi segja að það séu óverulegar breytingar síðan á topp 20 listunum okkar frá áramótum.

Ókei. Þá bjóðum við upp á hérna spurningar og svör.

Það hafa ekki borist hérna spurningar á netinu, seinast þegar ég vissi. Já, gjörðu svo vel, Helgi.

Helgi vill...

Helgi

[unclear] rekstri hefði verið ef Festing væri ekki í safninu? [unclear]

Hreggviður

Spurningin frá Helga, hver vöxturinn hefði verið ef Festing hefði ekki verið inni í safninu. Og hann hérna...

Vöxturinn hefði bara verið verðbættur milli ára. Er það ekki svona sirka?

Lýður Gunnarsson

Festing í kringum 15% af vöxtinum.

Hreggviður

Já, 15% af 18% vexti, þannig að já, heldurðu... það ekki?

Já. Þetta fyrst og fremst hérna vöxtur Festingar.

Helgi

[unclear] En hvað með vaxtaálag? Hvernig farið þið [unclear] vaxtaálagið sem að Eik mun leitast við í [unclear]?

Lýður Gunnarsson

[unclear]

Hreggviður

Það spurt vaxtaálag, Eik mun leitast við í hérna í útlánum sínum. Við erum að læsa á capital-strúktúr í fasteignum og við munum bara leitast við að fá að minnsta kosti greitt í samræmi við staðsetningu í capital-strúktúr.

Að minnsta kosti. Er það ekki?

Heyrðu, að þá þakka ég bara kærlega fyrir spurningarnar og samtalið, og við munum halda áfram. Það nóg af kaffi og kökum fyrir þá sem komu.

Bara takk kærlega fyrir.