Villi
Velkomin á þennan fjárfestafund okkar í Eimskip fyrir annan ársfjórðung 2026. Við Rósa fjármálastjóri, sem hérna með mér, við munum gera grein fyrir svona helstu niðurstöðum og fara yfir tölur og helstu áhersluatriði, verkefni og svo framvegis.
En ef við förum yfir svona það helsta, að þá einkennist fjórðungurinn af árangri í fjölmörgum verkefnum sem hefur verið efst á baugi mitt síðasta ár og þá sérstaklega í kjölfarið af óhappi í rekstri Norðuráls á síðasta ári, en ekki síður rekstrarstöðvun PCC. Það leiddi til þess að við fækkuðum eitt gámaskip í rekstri, hættum á Ströndinni sem sagt með skip, jukum eigin akstur og jukum landflutninga þessu samhliða.
Og þegar við greinum núna í síðustu viku síðast hvernig afraksturinn af þessu sérstaka verkefni, þá sjáum við að við erum að ná heldur betri árangri og heldur betri framlegð með þessum breytingum í rekstri heldur en við gerðum ráð fyrir, sem mjög jákvætt. Við höfum líka fækkað fólki á síðastliðnum 12 mánuðum, margar hverjar sársaukafullar aðgerðir, eitthvað í gegnum starfsmannaveltu, eitthvað í gegnum uppsagnir og við erum 50 færri stöðugildi núna heldur en fyrir ári síðan og sem gerir það að verkum að launakostnaður okkar helst í jafnvægi frá síðasta ári.
Rósa mun gera betur grein fyrir þessu. Og þriðja kannski atriðið sem að contributa inn í þetta þá svona tekjuáhersluverkefni sem við höfum verið með.
Þannig að þetta kannski svona þrennt sem gerir það að verkum. Til viðbótar það síðan það að það var sterkt magn í fjórðungnum bæði í línukerfinu, það að segja siglingakerfinu, það var sterkt magn í flutningsmiðluninni og almennt gott magn í öðrum okkar einingum.
Þannig að það auðvitað hjálpar til. Þannig að við erum bara ánægð með þennan árangur.
Þetta sama niðurstaða og á öðrum ársfjórðungi í fyrra og við teljum það bara gott, sérstaklega ef haft í huga margvíslegar ytri aðstæður. Og það auðvitað alltaf eitthvað að gerast í okkar umhverfi.
Það getur runnið með okkur og getur runnið á móti eins og gengur. En við vorum líka að glíma við verkfall í fyrsta skipti hjá sjómönnum okkar í minnstakosti einhverja áratugi, sem reyndist okkur mjög krefjandi og okkar viðskiptasamböndum sem því hjálpaði ekki til.
En síðan höldum við áfram að fjárfesta í fyrirtækinu okkar líka og við erum með þarna glæru síðar þar sem við förum aðeins yfir fjárfestingu í nýju kerfi sem styður við gámasiglingakerfið, en við erum líka að fjárfesta í öðrum innviðum og munum gera betur grein fyrir því. Förum þá bara svona í gegnum þjónustulínurnar okkar þrjár.
Og hérna sjáið þið siglingakerfið í Norður-Atlantshafi og það einn nýr litur sem við bættum við þetta 4. ágúst.
Við sjáum það aðeins betur á eftir. Fjólublá lína, tenging og til og frá Færeyjum.
En mjög sterkt magn. Við höfum séð sterkt magn áður og meira, sérstaklega í gegnum COVID, en þetta sterkasta magnið í þó nokkurn fjölda fjórðunga hjá okkur og mjög sambærilegt og á öðrum ársfjórðungi í fyrra.
Og það þrátt fyrir að vanti klárlega 3.000 gámaeiningar sem annars vegar vegna lokunar PCC og Norðuráls. Þannig að við erum að sjá vöxt í öðru.
Við vorum með mikið umflutning á vatni. Það var sterkur fjórðungur í laxi og fiski almennt.
Og innflutningur var sterkur. Þið sjáið að það 100 TEUs aukning í innflutningi og það þrátt fyrir að það vantaði töluvert mikið af anóðum til dæmis í innflutningi og svoleiðis.
Þannig að álið hefur áhrif, eins og þið þekkið, bæði í inn- og útflutningi. Það búið að vera kvótasamdráttur í Noregi sem skýrir samdráttinn þar, en engu að síður mjög ánægjulegt að sjá að norðurleiðin, það að segja inn til Noregs, þarna í töluvert miklum vexti.
Það minnkun í transatlantic báðar leiðir. Afkoman hins vegar á transatlantic var í fínu jafnvægi og sambærileg og á öðrum ársfjórðungi í fyrra.
En við teljum að innleiðing okkar á nýju kerfi, við erum með 500 notendur í kerfinu, hafi haft áhrif síðustu mánuði á afkastagetu okkar í sölu og það hafi þarna einhver áhrif. Og við munum þá losa það upp núna á lok 3.
ársfjórðungs og síðan fram á við. Fjólubláa línan, við erum með þessu að fjölga eitt gámaskip í rekstri.
Það verður eingöngu í siglingum til og frá Færeyjum. Mjög sterk lína að fara á þriðjudagskvöldum frá Þórshöfn niður til Rotterdam, komið á fimmtudagskvöldum til Rotterdam, og frá og með 6.
apríl, nei 6. september fyrirgefið, tengjum við á bakhleiðinni í Álasundi og svo þaðan til Þórshafnar.
Á sama tíma að þá ætlum við að breyta appelsínugulu línunni sem kemur aðeins betur í. En þarna erum við að targetera laxinn sem hefur verið gríðarlega vaxandi undanförnum árum, mikil eftirspurn eftir þessum degi sérstaklega niður til Rotterdam.
Við getum líka tengt inn á þessa línu vörur sem að við erum að pikka upp á okkar rauðu línu á Reyðarfirði og Austfjörðum í gegnum þá Færeyjar sem að við höfum ekki náð að bjóða tengingar þannig inn til Rotterdam. Og endastaður þessa útflutnings inn á Urk í Hollandi en svo mikið niður til Portúgals, Spánar, Ítalíu, inn á Þýskaland og okkur reiknast til að meðaltali séum við með þessu að stytta akstursleið fyrir okkar viðskiptavini rétt 1.000 kílómetra miðað við þá lausn sem að viðskiptavinir okkar í Færeyjum höfðu áður hjá okkar samkeppnisaðila sem sigla niður til Hirtshals í Danmörku á þessum degi.
Þannig að þetta klárlega betri lausn sem við erum að koma þarna með. Það mun auðvitað taka einhvern tíma að byggja hana upp.
En samhliða þessu að þá erum við að breyta appelsínugulu línunni og þarna sjáið þið eins og hún lítur út í dag þar sem að við erum að tengja frá vesturströndinni yfir til Færeyja. Og hún mun verða svona.
Þetta mun gefa aukinn slaka í appelsínugulu línuna okkar og þarna ætlum við á móti að fækka eitt skip. Þannig að þar drögum við þá úr rekstrarkostnaði.
Við teljum að við höldum samt lunganum af magninu sem hefur verið á fjórum skipum í dag í þá þeim þremur skipum sem við höldum eftir og við náum að fara neðar á norsku ströndina þar sem að skipin eru ekki bundin af því að fara vikulega yfir til Færeyja. Og við ætlum síðan að tengja í Álasundi þar sem að við erum að sópa þar sem að sem sagt gámahæft og á leiðinni til Ameríku til dæmis.
Við ætlum að tengja það í Álasundi yfir í púrpurlínuna og þannig náum við tengingum milli Noregs og Færeyjar eins og við vorum að gera á púrpurlínunni. Þannig að þessi heildarpakki eftir að við förum í gegnum business case-ið, fjölgum eitt gámaskip, fækkum eitt frystiskip, gera appelsínugulu línuna sveigjanlegri og til viðbótar að þá náum við appelsínugulu línunni að vera á okkar í Hollandi og Bretlandi á virkum dögum sem ódýrara heldur en staðan í dag þar sem hefur verið helgi á báðum stöðum sem dýrari afgreiðsla.
Þannig að við trúum á þetta business case en það mun auðvitað taka smá tíma að hérna innleiða það. Hérna geysileg áhrif ytri afleiðinga af stríðinu í Miðausturlöndum sem gerði það að verkum að í byrjun árs þá voru olíuverðin sem við vorum að kaupa á einhvers staðar í kringum $600 þar sem við erum að kaupa hérna 70% af okkar olíu og tæplega $400 þar sem við erum að kaupa 30% af okkar olíu á skipin og þið sjáið að það verður rúmlega tvöföldun á olíukostnaði á skömmum tíma og olíukostnaður á öðrum ársfjórðungi rétt 53%, hvorki meira né minna, hærri heldur en á öðrum ársfjórðungi í fyrra.
Og síðan gerist sams konar eða í raun og veru hækkanir á alþjóðlegu flutningsverðum með seinkun og þarna í upphafi árs var Drewry-vísitalan, alþjóðlega flutningsvísitalan, rétt rúmlega $2.000 en þið sjáið að hún fer upp í $4.500. Þetta hefur náttúrulega geysileg áhrif á þá sem eru að flytja vörur á milli heimshluta og annað slíkt og náttúrulega kostnaðarbasann.
Og það ekki bara kostnaður og akstur í skiparekstri heldur hefur þetta auðvitað afleiðingar inn í akstur á landi, flutningabílum og öðru, talandi síðan það að minnka akstursvegalengdir í Evrópu sem dæmi sem að styrkir enn frekar það business case sem ég var að kynna fyrir ykkur. Við höfum, eins og Rósa mun koma inn á, við höfum hins vegar gegnum tekjustýringu náð að verjast þessum hækkunum geysilega vel en það hefur auðvitað verið krefjandi.
Varðandi alþjóðlega flutningsnetið okkar, flutningsmiðlunarnetið, þá sjáum við vöxt á milli tímabila sem mjög ánægjulegt. Við höfum verið með markmið vöxt.
Við opnuðum tvær nýjar skrifstofur í Kína í fyrra. Þær eru að skila inn í þennan vöxt og þetta mesta magn sem við höfum séð frá COVID-tímabilinu.
Og það vöxtur í Evrópu, á Evrópuskrifstofunum okkar, í Asíu og Norður-Ameríku sem mjög ánægjulegt. Óverulegur samdráttur í Skandinavíu.
Og þarna áhugavert að sjá að við höfum aldrei séð eins mikið af því magni sem við erum að miðla í þessu innan Asíu. Asía-Evrópa áfram mjög sterkt og heldur sínum svona 1/4 hluta í þessu.
En það líka vaxandi og Afríka virðist vera að styrkjast, ákveðnir markaðir þar. Þannig að við höfum aftur séð í okkar kerfi að Evrópa inn til Afríku.
En síðan eru auðvitað þessi geopólitísku áhrif tollanna. Við sjáum bara áfram áhrifin af því að Asía inn til Afríku, Indlands og svona hefur líka vaxið á kostnað Asíu til dæmis Bandaríkin, þó að það hafi verið óveruleg breyting kannski síðustu mánuði að þá þetta önnur mynd heldur en var kannski fyrir tveimur árum síðan.
Og þriðja segmentið okkar sem fjölbreytt, það eru landflutningarnir, vöruhúsin, frystigeymslur og hafnarstarfsemi. Þar var mikið magn á tímabilinu.
Trucking jókst og ekki síst kannski vöxturinn var töluvert mikill á Íslandi auðvitað vegna þess að við erum ekki lengur með strandflutningana og það fer meira í landflutninga. En það var líka gott magn sem endurspeglast auðvitað bara magnið í skipunum okkar í okkar hafnarstarfsemi.
Vöruhús og frystigeymslur hins vegar hefðu mátt vera með heldur meira flæði í gegn eins og við sjáum á þessum myndum. En okkur sýnist það svona á tölunum á þeim myndum sem við erum að sjá núna að það hafi vaxið á 3.
ársfjórðungi. En sterkt magn í trucking og terminals.
Rétt áður en ég gef á Rósu þá langar mig hins vegar að deila með ykkur að það auðvitað mikið fjallað landflutninga, álag á þjóðvegi og annað slíkt, en þá skuluð þið gjarnan þegar þið mætið trukkunum okkar á þjóðvegum landsins taka eftir því að nánast í undantekningartilfellum þá Eimskip með aftanívagna sem eru með 12 hjól. Flestir okkar samkeppnisaðilar eru með 6 hjóla aftanívagna.
Það geysilegur munur á álagi á þjóðvegina með þessu. 12 hjóla aftanívagnar kosta auðvitað meira.
Þeir eru dýrari í viðhaldi en samfélagslega ábyrgt, miklu minna álag á þjóðvegina. Þannig að við erum mjög stolt af þessu og við finnum það líka hjá okkar viðskiptavinum að þeirra samviska verður betri fyrir vikið.
Yfir til þín, Rósa.
Rósa
Góðan daginn. Gaman að sjá ykkur öll hérna, bæði þið sem eruð mætt hér í salinn og ykkur sem eruð að fylgjast með á netinu.
Ég ætla að byrja að fara yfir rekstrarreikninginn svona heilt yfir og langar kannski bara að byrja á því að taka undir það sem að Villi sagði áðan. Við erum ánægð með afkomuna á fjórðungnum og sérstaklega ef við lítum til þess hvernig undanfarnir fjórðungar hafa verið í rekstrinum.
En við sjáum líka að átökin í Miðausturlöndum eru að hafa mikil áhrif á reikninginn. Við erum að sjá mikla hækkun bæði í tekjum og gjöldum.
Tekjurnar eru að hækka 11,4% og ég mun svo fara aðeins betur yfir það á eftir, og á sama tíma eru gjöldin að hækka 12,7%. En þið sjáið í absolút tölum að þá þetta eiginlega sömu evrutölurnar, 23 milljónir báðum megin.
Mig langar aðeins að draga athygli ykkar að þróun sem við sáum núna á 1. fjórðungi og þá að halda áfram núna, það launakostnaður.
Laun eru að hækka 400.000 evrur á 2. ársfjórðungi eða 0,9%.
Þrátt fyrir eins og við höfum áður farið yfir hér að stór hluti launakostnaðar á Íslandi og við vorum með náttúrulega launahækkanir áramótin sem að eru svo sirka 4% hjá okkur þar sem að stór hluti okkar starfsmanna eru á krónutöluhækkunum. Þannig að þetta í raun og veru hluti af þeim aðgerðum sem að Villi fór yfir áðan og við höfum gripið til.
En starfsmenn eru núna svona 48 færri heldur en voru á sama tíma í fyrra. Við vorum með verkfall hérna í byrjun apríl í upphafi fjórðungsins og við erum að áætla að áhrif þess bæði þá á tekjur og kosta hafi verið 700.000 evrur á EBITDA.
Svo vorum við með starfsemi Baldurs í fyrra og það var að skila okkur í fyrra 300.000 evrur í EBITDA. Þannig að þarna eru einhver milliliðir líka sem að þá að hafa áhrif á samanburð.
Við sjáum að afskriftir eru að lækka. Það fyrst og fremst vegna þess að við erum með færri skip á fjórðungnum að meðaltali núna heldur en við vorum í fyrra.
Það hins vegar töluverð aukning í fjármagnskostnaði sem skýrist algjörlega af gengisbreytingum. Voru sem sagt jákvæðar í fyrra en eru þá í hina áttina núna.
Afkoma af hlutdeildarfélögum sterk á fjórðungnum og að skila 3,4 milljónum evra. Það kom fram tilkynning frá aðila sem á sem sagt Elbstrand sem á hlut með okkur að það var selt skip núna fyrr á árinu en það mun koma inn á 3.
ársfjórðungi. Ef við kíkjum þá á tekjurnar og ég ætla bara líkt og áður að fara yfir þetta eftir starfsþáttunum.
En ef við bökkum aðeins svona og horfum á þetta heilt yfir að eins og ég sagði áðan þá eru tekjur að hækka 11,4%. Og ef við byrjum á siglingakerfinu sem þá gámasiglingakerfi hérna í Norður-Atlantshafi og frystiskipin okkar í Noregi, þá eru tekjur þar að hækka 10,3%.
Og við erum að sjá lækkun í magni en mig langar að taka fram að magnið til dæmis í Iceland liner sem þá inn- og útflutningur á Íslandi á fjórðungnum með því mesta sem við höfum séð. Þannig að það var gott magn þrátt fyrir að við höfum verið með sem sagt minni afkastagetu hjá Norðuráli.
En það sem að lita tekjurnar að við settum á neyðarolíugjald í mars sem þá að hækka bæði eða hækka þá tekjurnar á móti auknum kostnaði. Og svo hefur verið mikill fókus á meðalverð hjá okkar viðskiptavinum sem að líka að skila sér.
Ef við förum þá yfir í alþjóðlegu flutningsmiðlunina, þar eru tekjur að hækka 21% rúmlega á milli ára. Og það í rauninni þríþætt.
Við erum að auka magnið 5,5%. Alþjóðlegu flutningsverðin hækkuðu að meðaltali 10,2%, þó hækkuðu reyndar 33% tæp frá 1.
ársfjórðungi. En svo vorum við líka með sérverkefni á fjórðungnum sem að að skila ágætis tekjum.
Að lokum ef við förum svo yfir Logistics and Agency eða aðra flutningstengda þjónustu sem að eru þá trucking, það vöruhúsin, frystigeymslurnar, hafnarstarfsemin okkar og svo umboðssalan eða agency, að þar eru tekjur í raun óbreyttar á milli ára. En ef við tökum tillit til ferjunnar sem við vorum með í fyrra þá eru þær að hækka lítillega.
Og hér sjáum við vel þessa mismunandi þróun innan þessara leg-a hjá okkur. Sjáum hvað hækkunin þá sem í raun og veru vegna olíuverðs og annarra kostnaðar í forwarding þá að draga tekjurnar upp þarna.
Ef við förum þá í kostnaðinn, þá hann að hækka 12,7% eða 23 milljónir. Og af þessum 23 milljónum þá kostnaður vegna þriðja aðila að hækka 15,6 milljónir evra og mig langar aðeins að staldra við það.
Þetta vegna þess að alþjóðlegu flutningsverðin hækkuðu, þetta þá það sem við erum að greiða alþjóðlegu stóru skipafélögunum. Það stór hluti af þessu.
En það líka sem við sjáum töluverða hækkun í transport á landflutningum. Það þá tvíþætt: annars vegar hér af því við vorum náttúrulega með strandflutninga, skipulagðar strandsiglingar hér á Íslandi í fyrra sem að nú færist meira yfir á vegina, en erlendis erum við að sjá að þegar við erum í raun og veru að flytja þá vörur okkar viðskiptavina til þeirra viðskiptavina eftir að koma í hafnir að þar var mikil aukning í raun og veru bara á gjaldi hjá trucking-fyrirtækjum erlendis.
Þannig að það hefur áhrif bæði á tekjur og gjöld. Og þetta í rauninni bara út af olíuverði.
Innan í þessum kostnaði líka leigukostnaður vegna skipa sem hækkaði á milli ára. Eins og þið sjáið þá bunkerinn að hækka tæp 53% á milli ársfjórðunga og ETS að hækka þarna 900.000 sem að fyrst og fremst vegna innleiðingar sem orðin þá full núna frá 1.
janúar á þessu ári. Þannig að ef við tökum þá það sem að eftir stendur, maður þá búinn að taka kostnað vegna þriðja aðila og þá olíu- og ETS-kostnaðinn, að þá eru annar kostnaður að hækka 800.000 sem eitthvað rétt 1,5% sem við teljum að sé nokkuð gott bæði ef við horfum til þess að inni í þessu hækkun á launakostnaði og þeirri þrýsting á verði sem bæði búið að vera hérlendis og erlendis núna síðastliðna 12 mánuði, að þá erum við nokkuð sátt við þetta.
Þetta í raun og veru þá þessar aðgerðir sem við höfum verið að grípa til sem við getum séð þarna meðal annars í þessari breytingu. Ef við skoðum þá brúna, mig langar bara að benda og draga fram hvað það sem sagt hærri hækkun þarna í gámasiglingakerfinu heldur en tekjum.
Þarna verkfallið komið inn en einnig aukinn kostnaður vegna leiguskipa. Það samt ánægjulegt að sjá að annars staðar erum við að sjá í raun og veru minni hækkun í kostnaði eða lækkun í kostnaði heldur en við sjáum þá í tekjum.
Og þetta skilar sér þá í þessa EBITDA. Forwarding þá að skila töluvert betri afkomu heldur en á sama tíma í fyrra og svo og sem sagt önnur flutningatengd þjónusta að skila 11% hærri EBITDA á þessum fjórðungi heldur en á sama tímabili í fyrra.
Ef við förum þá í sjóðsstreymi og efnahagsreikning, að þá sterkt sjóðsstreymi frá rekstri í raun og veru í takt við betri afkomu á fjórðungnum. Og við erum að sjá þarna aðeins jákvæðar breytingar á working capital.
Það samt enn þá að aukast bara með aukinni veltu og hærri verðum. Skuldsetningarhlutfallið að hækka en mig langar að draga athygli að því að hækkunin í skuldsetningu fyrst og fremst vegna leiguskuldbindinga sem eru að hækka þarna 15 milljónir á milli tímabila.
Ég ætlaði bara rétt í lokin að fara yfir fjárfestingarnar eins og þær eru eftir fyrstu sex mánuðina. Viðhaldsfjárfestingar standa í 15 milljónum sem bara í takt við okkar plön.
Það aðeins hærri núna kostnaður vegna IT vegna þess að við erum að innleiða nýtt sölu- og þjónustukerfi í gámasiglingakerfinu. Hins vegar ef við horfum á nýfjárfestingar þá eru þær aðeins á eftir áætlun sem fyrst og fremst vegna þess að við höfum fyrirhugað að fara af stað fyrr á árinu í nýja dreifingarmiðstöð á Selfossi og það verkefni hefur aðeins dregist inn á árið.
Þá held ég að ég bara gefi þér orðið aftur, Villi. Gjörðu svo vel.
Villi
Takk fyrir Rósa. Og áður en ég dreg þetta saman í restina þá langar mig að fara með ykkur örstutt, örsnöggt yfir svona það sem við köllum business stories eða sögur bara úr lífinu í Eimskip og hvað við höfum verið að fást við.
Við erum að tengja allar okkar helstu aðgerðir við nýja stefnu sem að við kynntum í upphafi árs og það eru lykiláherslur, þessar fjórar lykiláherslur sem að þar liggja undir til grundvallar okkar starfa og þau verkefni sem við eigum að vera sem að þá styðja við okkar framtíðarsýn. Og fyrst langar mig að fara aðeins yfir þetta verkefni hérna, eins og ég nefndi í upphafi að þá þetta geysilega viðamikið verkefni.
Við erum með 500 notendur nú þegar í kerfinu. Þetta skýjalausn sem að komin í stað 20 ára gamals svona það sem kallað legacy system í SAP sem var geysilega dýrt, ósveigjanlegt í rekstri.
Þetta algjörlega breytt ásýnd hvernig annars vegar okkar viðskiptavinir eru að sjá rafrænt sína þjónustustöðu, viðskiptapantana, hvar gámar eru og vörur og annað slíkt, en líka gjörbylting fyrir starfsfólk. Og ég held að þegar við tölum líka sko fækkun á starfsfólki að þá séum við þrátt fyrir krefjandi innleiðingu þá séum við nú þegar auðvitað hluti af fækkunin tengist því að við erum komin í nýtt platform sem styður við það.
Það líka gaman að sjá að svona nútímakerfi, ég ætla ekkert að segja endilega að þetta kerfi sé búið að taka okkur inn í framtíðina en heldur bara nútíðina, en þetta styður sannarlega við framtíðina og hvernig hlutirnir eru að þróast. Og við erum með tvo rafræna starfsmenn þarna eða gervigreindarstarfsmenn, annars vegar Línus sem að veit allt kerfið.
Þannig að ef starfsfólk að byrja eða veit ekki hvernig á að skrá, sækja upplýsingar og annað, þá veit Línus svarið við því. Og síðan erum við með Skipper sem veit allt sem búið að gerast í kerfinu.
Þannig að starfsfólk getur farið þarna inn og spurt Skipper ákveðnar sendingar, sendingaröð, ákveðnar hafnir, ákveðnar ferðir, hvort að skráningarsigur sé rétt, hvort það vanti eitthvað, hvort það sé tekjuleki eða einfaldlega yfirlit yfir ákveðnar sendingar og bera saman og annað slíkt. Og þetta auðvitað gjörbylting frá því sem áður var og við höfðum ekki þessi tæki og tól.
Á þessum grunni sambærilegum munum við síðan fara núna eftir einhverja mánuði í landflutningakerfi yfir grúppuna, síðan vöruhúsakerfi og svo þegar fram í sækir nýtt flutningsmiðlunarkerfi á þessum grunni. Þetta líka mjög skemmtilegt verkefni og við höfum einbeitt okkur að því þegar við höfum verið með endurnýjun á okkar gámaflota og þá sérstaklega frystigámaflota að tryggja að hann sé búinn 4G búnaði þannig að við getum frá skrifstofunni í okkar gámastýringu eða sölueiningum fylgst með hvar gámarnir eru staddir, en ekki bara það heldur miklu frekar fylgjast með rétt hitastigskráning.
Þetta líka mikilvægt upp á tryggingamál eða ef það eru einhverjar skemmdir á vörum og annað. En það sem kannski líka kemur kostnaðarspurningin sú staðreynd að það má ekki flytja frystigáma með vöru viðskiptavina öðruvísi en að þeir séu áður testaðir og það tímabil sem getur tekið einhverja klukkutíma.
Og það hefur hingað til gert, ef það ekki svona búnaður, þá þetta bara manual vinna í höfn að plögga frystigáminn inn og keyra þá í raun og veru upp, kallast PTI eða Pre-Trip Inspection. Þetta getum við núna gert frá skrifstofu og hérna ef það búið að þrífa gáminn og geysilegur sparnaður í.
Svona aðgerð getur kostað kannski á milli $150 eða svo bara eitt og sér fyrir einn gám þar sem við erum að kaupa þetta sem þriðja aðila þjónustu. Og við ætlum að halda áfram á þessari braut.
Endanlega skrefið að sjálfsögðu líka að viðskiptavinirnir munu fá aðgang að þá staðsetningu í gegnum þetta af þeirra vörum þó við séum ekki komin inn í þá lausn ennþá. Þriðja og síðasta sagan að deila aðeins með ykkur geysilega formlegu og flottu prógrammi sem búið að vera í Danmörku síðan 2005 og skilar okkur mörgu frábæru og vel þjálfuðu starfsfólki.
Og við sjáum mun í Danmörku á því hvort að fólk hefur byrjað hjá okkur í gegnum þetta prógramm eða kemur annars staðar inn. Og við erum með tæplega 200 starfsmenn í Danmörku, þar hefur starfsemin verið vaxandi.
Það eru 25%, rétt 50 manns, sem hafa þá farið í gegnum þetta prógramm. Mjög margir eru að þróast áfram í starfi hratt.
Og gaman að segja frá því að framkvæmdastjórinn okkar í Danmörku, Thomas, fór í gegnum þetta prógramm 2005, einn af þeim fyrstu, og fyrir þremur árum síðan að þá fékk hann tækifæri til að leiða Danmörku og sem hefur vaxið undir hans stjórn. Þetta algjörlega til eftirbreytni og við erum að reyna að læra af svona hlutum sem vel eru gerðir í samstæðunni okkar.
Og þá ætla ég að draga þetta saman í lokin. Við erum á góðum tíma.
Við gerum ráð fyrir, það eru auðvitað blikur á lofti í íslensku hagkerfi. Það óvissa með, ja ég ætla ekki að segja kannski eins mikil óvissa með verðbólgumælinguna sem mun koma 27.
ágúst, en það óvissa hvernig mun þróast í framhaldinu á vinnumarkaði vegna þess að það eru allar líkur á því að verðbólgan verði yfir þeim mælikvarða og verkalýðsforystan hefur þá tækifæri til að segja upp kjarasamningum. Vonandi mun ríkja friður.
Það eru engar forsendur til þess að mínu viti að láta þennan brest leiða til einhverrar neikvæðrar niðurstöðu heldur verðum við bara að vinna í því saman að ná niður verðbólgu og vöxtum. Og þá ekki síst auðvitað hið opinbera sem hefur verið að draga áfram kostnaðarhækkanir eins og sést á öllum mælikvörðum og Seðlabanki var sérstaklega vel yfir.
Að þessu sögðu þá stöðugleiki í innflutningi hjá okkur. Við gerum ráð fyrir í okkar tölum að byggingarvara muni heldur dragast saman á síðari hluta árs en það kannski svona eini sektorinn sem að þá á við hjá okkur.
Transatlantic hefur síður allra síðustu viku verið í mjög góðu jafnvægi. Laxaútflutningur vart á Norður-Ameríkuleiðinni bæði frá Færeyjum og Íslandi hefur verið sterkur og svo erum við náttúrulega komin þá með þessa nýju línu, purple, sem að styður við gámasiglingakerfið.
Flutningsmiðluninni gerum við ráð fyrir að magnið og verð verði svona í línu við það sem að við sjáum á öðrum ársfjórðungi. Það eru auðvitað þessar blikur á lofti sem geta verið að hreyfa verð og hreyfa aðgengi hjá þessum stóru skipafélögum annars vegar á plássi eða gámum en okkur hefur gengið nokkuð vel að ráða við það.
Og svo sjáum við svona það sem að af þessum fjórðungi að í hafnarstarfsemi, landflutningum hefur gengið vel og útlit fyrir að það muni halda áfram. Við gerum líka ráð fyrir að afkoman af frystigeymslustarfseminni og vörustarfseminni verða svona heldur betri og meira magn í gegn heldur en á öðrum fjórðungi þessa árs, nú ekki að bera saman við þriðja og fjórða fjórðung síðasta árs.
Þetta það sem að við ætluðum að segja. Klukkan rétt rúmlega 9:00 en við erum alveg til í að taka spurningar ef einhverjar eru áður en við lokum.
Rósa
Ég með eina spurningu. Hvernig var loðnuútflutningurinn okkar?
Gleymdi ég að minnast á það kannski?
Villi
Það kemur spurning frá fjármálastjóra félagsins! Hvernig var loðnuútflutningur?
Já, það rétt, við minntumst ekki sérstaklega á það. Að sjálfsögðu studdi góð loðnuvertíð við magnið í útflutningi á öðrum ársfjórðungi.
Það var eitthvað sem auðvitað fór á fyrsta ársfjórðungi en studdi vel við útflutning og átti auðvitað sinn þátt í að koma í staðinn fyrir til dæmis samdráttinn í iðnaðarvörunni og svona og samanborið við til dæmis árið í fyrra þar sem var ekki loðnuvertíð sem dæmi að sjálfsögðu. Eru einhverjar fleiri með spurningar en fjármálastjórinn?
Já.
Svo gott ef það væri sérstaklega sterkt magn á þessum fjórðungi. Er þetta svona meira one-off eða getum við sko þetta varptrú áfram á næstu fjórðungum?
Villi
Sko, við tölum þá ertu að tala línukerfið. Þegar við segjum nokkuð oft að það hafi verið sterkt magn, við höfum séð meira magn, þannig að við erum ekki að segja sko sterkasta magnið heldur segjum sterkt magn.
Við erum bara mjög ánægð með magnið og það kannski litast aðeins af því að það vantaði 3.000 gámaeiningar frá Norðuráli og PCC og við náum nánast að vinna það upp með öðrum vöruflokkum sem að gefur okkur þessa tilfinningu að hérna magnið hafi verið sterkt. Það líka, ég meina það var samdráttur í Noregi og það búið að vera kvótasamdráttur þar undanförnum árum.
Þar finnst okkur við dálítið vera búin að finna botninn og það til dæmis búið að boða hækkun í botnfiskkvóta í Noregi fyrir næsta tímabil og svo Norðurál komið til baka. Þannig að já, við búumst við því að magnið verði sterkt áfram þrátt fyrir auðvitað kannski einstaka geirar á einstökum tradelines geti dregist saman bara eins og gengur.
Og síðan til viðbótar vorum við þá að kynna þessa nýju línu í Færeyjum.
Hvað með tekjur og svoleiðis breytingar á siglingaleið?
Villi
Við höfum nú...
Hvað með tekjuskiptingu?
Villi
Já, hvaða magn vonumst við til og tekjur að muni vera á þessari nýju línu? Við höfum ekki gefið það upp.
Geturðu sagt hvað viðbót þetta í virði?
Villi
Þetta viðbót eitt gámaskip og við erum þá með 10 gámaskip í rekstri sem þá hvað, 10% af fjölda skipa. Þetta eitt af minnstu skipunum sem við erum með af þeim þannig að það hlutfallslega minna heldur en 10%.
Þannig að það kannski gefur einhverja indikasjón að þetta auðvitað undir 10% og töluvert af því sem við erum að búast við að verði vöxtur í magni eðli máls samkvæmt ef við horfum bara á afkastagetu allra skipanna sem við erum með. En engu að síður fyrir færeysku starfsemin okkar skiptir þetta máli.
Þetta gefur okkur líka tækifæri til að ná meiru út úr Noregi. Og það telur alveg í nokkur hundruð þúsund evrum bara á þessu ári til dæmis það að fækka eitt skip í Noregi ábatinn af því.
Fleiri spurningar?
Já, mig langaði að spyrja sko hagræðingaraðgerðirnar sem þið eruð að vinna í. Mér finnst kannski lítið talað þær núna.
Eitthvað sem kemur fram sko þessum fjórðung hvað svona má helst búast við að það komi út úr þessu svona á ja næstu 12 mánuðum?
Villi
Já, ef ég man rétt að þá vorum við að tala það að á ársgrundvelli væri hagræðingin það sem við erum búin að ráðast í 13 milljónir evra. EBITDA-áhrifin man ég ekki alveg, þau eru aðeins minni heldur en í heildina af því að sumt af því sem sagt fyrir neðan EBITDA.
Það heldur lægri fjárhæð heldur en við vorum með í huga þegar við kynntum Q1-uppgjörið og það helgast af því að Norðurál að koma fyrr inn heldur en gert var ráð fyrir. En það auðvitað bara jákvæðar fréttir.
Það auðvitað betra að hafa heilbrigðan viðskiptavin sem skilar okkur góðri framlegð og svona heldur en að vera kannski að ná einhverri hagræðingu á þessu ári á móti því. Þannig að það auðvitað jákvætt.
Það hluti af þessu sem að við gerðum grein fyrir sem að kannski náum bara á þessu ári en verður ekki á næsta ári. Það til dæmis eins og hagræðingin sem við vorum með year-to-date af minnkuninni hjá Norðuráli.
En hluti af því eru auðvitað recurring eins og starfsmannafækkunin, eins og ábatinn af því breytingu að við fækkuðum Lagarfoss og fórum meira í strandflutninga og svo framvegis. Þannig að þetta eru verulegar fjárhæðir.
Það dálítið erfitt að sjá þetta samt í sko reikningum okkar. Þetta hér og þar.
Þetta í starfsmannakostnaði og við sjáum til dæmis að launakostnaður á Íslandi nánast óbreyttur. En því miður eru launahækkanir svo miklar að þrátt fyrir að við fækkum mikið af fólki þá lækkar ekki launakostnaður en þarna erum við að koma í veg fyrir þá hækkun.
Ég veit ekki hvort þetta svara spurningunni að fullu en þetta eru verulegar fjárhæðir.
Rósa
Við erum bara á plani.
Villi
Og við erum á plani.
Kannski má ég aðeins bæta við sko hérna sérverkefnin sem þú nefndir sem þú sagðir að skila ágætlega sko. Er þetta algjörlega one-off eða eitthvað möguleiki á að þetta geti aukið eitthvað capacity hjá...
Villi
Sko hvert og eitt sérverkefni one-off bara byrjum þar. Við höfum hins vegar séð þau sko koma og við erum með bæði í okkar dótturfélagi TVG á Íslandi og þá sérstaklega líka í starfseminni okkar í Danmörku þar sem við erum með dedicated teymi í sérverkefnum.
Þau eru eðli máls samkvæmt þannig að þau eru ekki að gerast í hverri viku. Stundum gerast þau ekki einu sinni í hverjum ársfjórðungi en svo kannski koma tvö eða þrjú í næsta ársfjórðungi á eftir.
Þannig að ég get ekkert lofað að það verði framhald af því þó að við sjáum eitthvað í pípunum. En grunnreksturinn í flutningsmiðluninni var mjög góður.
Við fengum kannski svona aðeins top-up með sérverkefnunum. Og þá kannski vert að nefna líka aðeins top-up í afkomu okkar til dæmis á Íslandi hérna að cruise-ið eða umboðsmennskan tengd cruise-i náttúrulega alveg í high season núna í Q3 eins og áður sem styður auðvitað við þriðja ársfjórðungs uppgjörið okkar.
Svo kannski síðast, hvað þarf að gerast í rekstrinum til þess að EBITDA verði jafnmikil og áður en þetta byrjaði allt á óveðri?
Villi
Hvað þarf að gerast í rekstrinum til að EBITDA verði jafnmikil og fyrir þetta í siglingakerfinu fyrir utan óveður? Við þurfum að hérna ná að klára okkur af á fjólubláu línunni með þær tekjur sem við erum að gera ráð fyrir því og kostnaðarlækkunin og hagræðinguna sem við erum að ná í Noregi á móti vegna þess að þetta bara sitthvor hliðin á sama peningnum sem við erum að vinna þar annars vegar.
Svo þurfum við að ná heldur meira magni og stærðarhagkvæmni í Ameríkusiglingunum okkar. Það skiptir miklu máli.
Við erum með lítils háttar afkastagetu þannig að ef við færum í meira. Þar erum við að reka til dæmis eitt 700 TEUs skip, eitt 900 TEUs skip og eitt 1.000 TEUs skip.
Það ekkert alveg optimal að þetta skiptist þessu og það dálítið erfið stýringin að vera með misstór skip svona og við lendum oft í því til dæmis að 700 TEUs skipið það bara yfirbókað, við erum með vörur viðskiptavina hérna sem bíða extra viku áður en það fer síðan á stærsta skipið sem kemur. Ef við náum til dæmis að skala þetta aðeins upp þá náum við aðeins hérna kostnaði okkar per einingu niður og hægt og sígandi þá hérna þá batnar afkoman í takt við það.
Og við þurfum líka að ná meiri árangri að hækka okkar einingaverð en okkur hefur tekist hingað til. Það bara alveg ljóst.
Og bara eilíft verkefni auðvitað í rekstrinum. Það í sjálfu sér ekki átaksverkefni, það bara verkefni rekstrarins.
Framlínan okkar að ná. Bara eins og í banka, þið komið mikið úr bönkum, þetta bara vaxtamargínan.
Þetta bara nákvæmlega þar sko. Og svo getum við auðvitað, þeir sem mættu á fundinn, þið hafið tækifæri til að skora á okkur hérna rétt á eftir, öfugt við þá sem eru að fylgjast með á netinu þó við séum mjög þakklát fyrir að það sé fólk sem að fylgjast með á netinu.
En takk fyrir okkur.
Already premium?