Festi hf.

Festi hf.

IICE:FESTI
303.00
ISK
+1.00
(+0.33%)
15.31EPS
20.00P/E
96.06BMarket Cap

Q2 FY2026 · Earnings Call TranscriptJuly 29, 2026

Ásta Fjeldsted

Komið sæl og blessuð og verið hjartanlega velkomin á uppgjörsfund Festi fyrir annan ársfjórðung ársins 2026. Ásta Fjeldsted heiti ég og forstjóri Festi, og með mér hér í dag, sem mun fara yfir uppgjörstölurnar hér á eftir, Magnús Kr.

Ingason, sem framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Festi. Minni á að punkta hjá sér helstu spurningar og sérstaklega þau ykkar sem að eru í streymi að senda þær síðan á [email protected] og við munum taka við spurningum hér í lokin.

En að vanda þá byrjum við á hápunktum ársfjórðungsins, förum yfir helstu punkta starfseminnar og tökum svo uppgjörið sjálft með Magga hér á eftir. Nú, rekstrarsamstæðan gekk ágætlega á fjórðungnum þó að framlegð af eldsneyti hafi verið undir áætlunum.

Vörusala nam rúmum 46 milljörðum króna, sem aukning 6,4% á milli ára, og framlegðarstigið nam 24,9% og lækkar 0,4 prósentustig frá árinu á undan en að hækka milli fjórðunga 0,6 prósentustig. Nú, laun sem hlutfall af framlegð að hækka milli ára, en við förum yfir það betur hér á eftir.

Við fjölgum stöðugildum 60 milli ára, og snýr það fyrst og fremst að nýju kælivöruhúsi, opnun stærri verslunar á Reykjanesi og frekari útbreiðslu snjallverslunar land allt. Nú, í heildina þá eru þessi laun og starfsmannakostnaður 3,2% hækkun ef ekki tekið tillit til þessara breytinga á stöðugildum.

Rekstrarhagnaður, EBITDA-n, hún 3 milljarðar 908 milljónir, að lækka 0,8% milli ára, og EBITDA-hlutfallið sem hlutfall af framlegð að lækka sömuleiðis 1,9 prósentustig og stendur í 33,9%. Nú, handbært fé frá rekstri nam 287 milljónum króna, að lækka 4,9 milljarða á milli ára, en einskiptisáhrif í rekstrartengdum eignum og skuldum skýra mismuninn og við ætlum að fara betur yfir þetta hér á eftir.

Í meginatriðum fínn fjórðungur, undirliggjandi rekstur sterkur en ytri aðstæður eru að hafa áhrif á afkomuna. Nú, við sýnum hérna þróunina í magni að vanda, og þó svo að afgreiðslufjöldinn hafi staðið í stað svona nánast, að þá hefur körfustærðin farið vaxandi, það við seljum fleiri einingar vara og jókst fjöldi þeirra 3,7%.

Og áfram fer afgreiðslum í gegnum stafræna miðla fjölgandi, það í gegnum appin okkar og netverslanir, en vöxturinn 10,7% á milli ára þvert á samstæðu og eru öll félögin að sækja í sig veðrið í þessum efnum. Nú, fjöldi seldra lítra eldsneytis dróst saman 4,3%, sem skýrist aðallega vegna minni sölu til stórnotenda, og má rifja upp að á síðasta ársfjórðungi var staðan algjörlega öfug þar sem að aukningin var 18,5%.

Nú, alltaf forvitnilegt að skoða innlenda og erlenda kortaveltu, og þar sjáum við að innlenda kortaveltan, hún 5% hærri en á sama tíma í fyrra, en það sem stingur kannski í augu þarna að erlenda veltan að lækka 11%, og þetta má rekja til fækkunar ferðamanna á ársfjórðungnum. Samkvæmt þeirri tölfræði sem við erum með úr farsímakerfum að þá hefur fjöldi ferðamanna á Íslandi á öðrum ársfjórðungi fækkað 10,8% á milli ára, og þetta endurspeglast í þessum niðurstöðum okkar, en einnig má rekja samdrátt í erlendri kortaveltu til lækkunar virðisaukaskatts og opinberra gjalda á eldsneyti sem að stór hluti af erlendu kortaveltunni hjá samstæðu Festi.

Nú, í helstu hápunkta af félögunum, að þá það græjubúðin okkar, ELKO, byrjum þar. Á meðan sem sagt raftækjamarkaður samkvæmt tölum Meniga að dragast saman 4,1% samkvæmt já Meniga, að þá ELKO að sækja fram, höldum áfram að sækja fram 0,7%, erum gríðarlega ánægð með það.

Vefverslunin, hún gefur ekkert eftir og hlutfall hennar af sölu fer sífellt vaxandi, nú orðið 27,5% á móti 25,3% á öðrum ársfjórðungi 2025. Og ELKO opnaði núna sjöttu verslun sína í Smáralind, rétt við nýju mathöllina í júní, og hafa fengið gríðarlega góðar viðtökur.

En fyrstu vikurnar ganga samkvæmt áætlun og fjöldinn þar rúmlega 24.000 sem hefur heimsótt verslunina. Nú, næsta verkefni hjá ELKO að endurnýja verslun sína út á Granda, sem komin til ára sinna en nýtur ávallt vinsælda, og við ætlum að hefja framkvæmdir í september og opnum með pompi og prakt nokkru síðar.

Nú, Krónan heldur áfram að skila sínu og þrátt fyrir lokun Krónunnar í Lindum, okkar stærstu verslunar í tæplega 9 vikur, að þá fjölgaði afgreiðslum í verslunum Krónunnar sem sagt á þessum fjórðungi 2,6% á milli ára. Seldum vörum fjölgaði þar sömuleiðis 4,5%.

Ef við leiðréttum fyrir lokun Linda að þá hefði myndin verið enn þá betri, eins og sést hér á glærunni: 7,4% vöxtur í afgreiðslum og 10,7% í fjölda seldra vara. Ég kem inn á með snjallverslunina, við erum í gríðarlegri aukningu með þjónustu snjallverslunar land allt og hefur hún vaxið 52% núna á milli ára, og þar samhliða náttúrulega mikill vöxtur í seldum vörum og aukning í fjölda afgreiðslna.

Með Lindir, bara rétt til að svona hnykkja á því, að þá hafa fyrstu vikurnar verið ævintýralegar, vissulega eru tilboðsdagar og annað, en við sjáum eftir rúman mánuð að þar 21% aukning í veltu miðað við sama tíma í fyrra og 15% í magni seldra vara. Þannig að hún lofar góðu og við hlökkum til að sjá hana blómstra áfram.

Nú, það má sjá sama trend hjá Lyfju. Þar Lyfju-appið og lyfja.is, söluvefurinn, í mikilli sókn og Lyfja mælist sömuleiðis með jákvæðustu viðhorfin frá viðskiptavinum á apótekamarkaði og hefur hækkað meðmælaskor sitt gríðarlega á milli ára.

Það auðvitað mjög bara skýr og hnitmiðuð markaðsáhersla á aðrar vörur en lyf, svo sem húðvörur, sem að hefur verið að skila sér í mikilli aukningu, 10% aukning í seldum vörum í þessum vöruflokki, og viðburðir meðfram þessu sem hafa virkilega slegið í gegn og verið uppselt á í mörg skipti. Nú, Lyfja Heyrn sömuleiðis að sækja í sig veðrið og samkvæmt könnun Gallup nú metfjöldi sem segist leita til Lyfju Heyrnar fyrst, frekar en annarra aðila, og framlegð rekstrarins hefur verið að aukast mikið, 39% aukning á milli ársfjórðunga og fleiri seld heyrnartæki 11%.

Nú, N1, þar hefur sala á þjónustustöðvum land allt staðið í stað, sem að í raun og veru ákveðinn svona varnarsigur þar sem, eins og fram kom áðan, að við sjáum samdrátt í fjölda ferðamanna sem eru að fara landið og stoppa á þjónustustöðvum okkar land allt. Veðrið hefur auðvitað alltaf líka áhrif.

Nú, minni sala til stórnotenda skýrir vissulega minni sölu eldsneytis á fjórðungnum, en stöðin mín á einstaklingsmarkaði hefur fengið frábærar viðtökur og við sjáum aukningu þar. Nú, við munum fara betur yfir þetta hér á eftir, en það nokkuð ljóst að við verðum fyrir miklum áhrifum af verðhækkunum eldsneytis og innkaupaverð, eins og þið þekkið vel, hefur vissulega sveiflast gríðarlega og hækkað mjög mikið.

Við höfum ekki fleytt þessum verðhækkunum að fullu út í verðlag og þar með hefur framlegð eldsneytissölu verið undir áætlun, en við förum betur ofan í þetta hér á eftir eins og ég nefndi. Við opnuðum nýja stöð við Geysi í byrjun júní, einum vinsælasta ferðamannastað landsins, en þetta færsla frá fyrri staðsetningu sem bara hagkvæmari og betri fyrir alla.

Og síðan það nýtt dekkja- og þjónustuhótel sem við erum að opna á Borgarhelli í Hafnarfirði í haust, og það gríðarleg eftirspurn eftir slíkri þjónustu, dekkjahótelinu þá sérstaklega, en líka fyrir stærri og minni bíla þar sem allt á einum stað og þetta svona hálfgert destination með þvotti og rúmgóðu plássi. En ég ætla að láta þetta duga af fréttum þessa ársfjórðungs, hleypa Magnúsi Kára að og fara hérna yfir helstu tölur, og fæ svo að kíkja hérna á ykkur aftur rétt í lokin.

Takk fyrir.

Ingason

Já, takk fyrir það, Ásta. Magnús Kári heiti ég, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Festi.

Ég ætla þá að hérna renna aðeins yfir með ykkur tölu annars ársfjórðungs. Það má kannski segja, eins og Ásta sagði, að reksturinn hafi gengið í meginatriðum ágætlega á fjórðungnum þó að niðurstaðan hafi verið aðeins undir okkar áætlunum.

Það nú bara stundum þannig í rekstri að sumir starfsþættir eru betri og aðrir eru verri, og það var raunin í þetta sinn. Tekjurnar okkar námu 46,3 milljörðum, eru að aukast þarna 6,4% milli ára.

En ef við leiðréttum fyrir áhrifum heimsmarkaðsverðs og gengis þá aukningin eingöngu 1%. Framlegð af vörusölu nam 11,5 og að aukast þarna 4,7% milli ára.

Framlegðarstigið 24,9% og að lækka þarna 0,4 prósentustig milli ára en að hækka 0,9 prósentustig ef við tökum út áhrif gengis, heimsmarkaðsverðs eldsneytis og breytinga, þar sem að þetta í raun og veru að segja okkur þarna að hérna þessi minnkun í eldsneyti sem við erum að selja á milli ára, hún á sér stað í sölu til stórnotenda og við erum með hærri framlegðarkrónur af hérna eldsneyti til hérna í bensín dísel og þess vegna lagast í raun og veru hérna framlegðarstigið okkar hérna ef við tökum út hérna áhrif af breytingum á heimsmarkaði og gengi. Nú, launa- og starfsmannakostnaður, hann nam 6 milljörðum og að aukast þarna 7,5% milli ára.

Það að aukast töluvert hjá okkur stöðugildin. Þau eru hérna aukast 60 á fjórðungnum eða hérna 3,5% milli ára.

Við höfum aðeins farið yfir það áður að byrjað nýtt kælivöruhús í Bakkanum og við það eru að aukast stöðugildi tæplega 30. Og það skilar sér í bætingu í framlegðarstigi í dagvöru í staðinn.

Þetta í raun og veru þýðir að við erum ekki lengur að fá reikninga sem koma til lækkunar á framlegð, heldur það kemur í raun og veru kostnaðurinn í laun hjá okkur í staðinn. Nú, annar rekstrarkostnaður að aukast óverulega, 0, eða 100 milljónir, 1,7% milli ára.

Og EBITDA-n nánast sú sama og í fyrra, 3,9 milljarðar. Og hagnaður fjórðungsins nam 1,3 milljörðum, sem lækkun 120 milljónum milli ára.

Það eitt óvenjulegt í uppgjörinu, sem að að við erum að gjaldfæra hérna óvirkar varnir af hérna olíuvörnum meðal fjármagnsliða upp á 83, 84 milljónir, sem stafar af því að við þessar óvenjulegu aðstæður sem urðu hérna 28. febrúar þegar að hérna stríðið byrjaði í Íran og heimsmarkaðsverðið hérna flaug upp, að þá hérna fyrir okkar stórnotendur þá keyptu þeir, þeir fylltu allt, eins og við fórum yfir í síðasta uppgjöri í lok mars, þegar við sáum að það var aukning í seldum eldsneytislítrum upp á 18%, og það í raun og veru þá gripu varnirnar okkar ekki hérna þetta inn á þessum fjórðungi.

Þannig að hagnaður tímabilsins nam 1,3 hérna milljörðum og þá lækkun 120 milljónir. Lykiltölurnar okkar eru í sjálfu sér yfir okkar markmiðum.

Við erum að horfa á 12 mánaða EBITDA á framlegð 35,9%, við viljum vera yfir 35%, og við höfum séð að arðsemi eigin fjár hefur verið að hækka og stendur núna í 13,1%. En svona heilt yfir við erum í raun og veru í þessu uppgjöri, eins og þið sjáið, að skila mjög bara sambærilegri niðurstöðu og á síðasta ári á þessum fjórðungi.

Nú, það sem að hérna náttúrulega, það eru fullt af styrkleikum í uppgjörinu. Við sjáum, sem mjög jákvætt, að það aukin vörusala í magni í nánast öllum vöruflokkum nema í eldsneyti.

Og auðvitað ástæðan þar að það fluttist bara svolítið inn á fyrsta ársfjórðung sem að hérna kemur þá niður á öðrum ársfjórðungi í sölu til stórnotenda. Nú, heildarframlegðin, eins og áður sagði, hún 11,5 og að aukast 4,7%.

Framlegðarhlutfallið 24,9 og hérna þannig að framlegðarstigið að batna eins og áður sagði. Nú, við erum að sjá framlegðarhlutfallið vera að bætast í nánast öllum vöruflokkum.

Sjáið þarna dagvaran komin í 23,9% og að bætast 0,3 prósentustig milli ára. Þarna kemur auðvitað hérna áhrif af hérna kælivöruhúsinu inn, en auðvitað líka við höfum verið að ná gríðarlegum árangri í rýrnun og hérna sem að að hjálpa okkur þarna.

Það sama má segja í raftækjunum. Við erum þarna að bæta framlegðarstigið þar líka 1,8%.

Lyfseðilsskyld lyf, þetta sama og við höfum verið að fara yfir, við höfum bara ekki fengið hérna hækkun á álagningu lyfja frá Lyfjastofnun frá 2023 og lyf eru alltaf að verða dýrari. Við erum að selja meira af dýrum sjúkrahúslyfjum og annað slíkt og hérna en með okkur skömmtuð krónutöluálagning, þannig að framlegðarstigið okkar lækkar.

Nú, önnur vöru- og þjónustusala í raun og veru mjög svipuð milli ára í framlegðarstigi. Þannig að þegar við horfum á krónurnar í framlegð þá framlegð dagvöru aukast 7,8%, framlegð eldsneytis og rafmagns að minnka 2,6, framlegð raftækja að aukast 8,2%, framlegð af lyfjum að aukast 2,3% og af öðrum vörum 3,2%.

Nú, hérna launa- og starfsmannakostnaðurinn, förum aðeins dýpra í hann. Hann að aukast þarna 7,5% milli ára og þetta eru fjölgun stöðugilda.

Við erum hérna með nýtt kælivöruhús sem eru svona 25, 26 stöðugildi. Við erum með hérna aukningu í snjallverslun, við erum með stærri verslun hérna á Reykjanesi og svo erum við með nýja verslun í Smáralind sem að skýra þetta.

En ef við tökum út hérna áhrifin af þessu þá sjáum við að meðallaunakostnaður á stöðugildi, hann eingöngu að aukast 3,7% og í heildina þá nemur hækkunin milli ára 3,2%. Við höfum verið að auka aðeins í stöðugildi líka til að minnka yfirvinnu, þannig að við sjáum þetta í fjölgun stöðugilda en lækkun meðallaunakostnaðar hérna á móti.

Nú, ELKO, við hérna fyrir ELKO þá hafði það töluverð áhrif að stærsta verslun Krónar var lokuð í Lindum í 9 vikur. Við sáum minni hérna veltu í gegnum verslunina okkar í Lindum á þeim tíma.

Það hefur líka áhrif hérna þessi fækkun ferðamanna til landsins á ELKO, þannig að 1% aukning í tekjum. Jákvæða að við erum að sjá aukningu þarna í framlegðarstigið, þetta samt partur sölumix.

Það að færast svolítið sala frá flugstöðinni yfir í verslanirnar okkar á höfuðborgarsvæðinu og það hérna hjálpar framlegðarstiginu okkar. EBITDA-n 425 og við erum í sjálfu sér með bara mjög svipaða niðurstöðu hjá ELKO á þessum fjórðungi og í fyrra.

Það kemur líka smá viðbótarkostnaður út af opnun nýrrar verslunar í Smáralind inn á fjórðunginn og það verður gríðarlega spennandi að sjá hérna auðvitað sumarið svolítið erfiður tími í Smáralind en svona þegar við förum inn á haustið og annað hvernig gengur. Nú, Krónan í mikilli sókn eins og við höfum séð alla fjórðunga.

Þrátt fyrir lokun Linda þá hérna tekjurnar að hækka þarna 8,1% milli ára. Við erum auðvitað með, eins og áður sagðist, stærri verslun og fleiri staði, en framlegðarstigið að hækka hérna 0,2 prósentustig frá síðasta ársfjórðungi og 0,4 milli ára.

EBITDA-n að aukast 9,7% þannig að það verið að skila í raun og veru allri hérna aukningunni niður í EBITDA og hagnaðurinn að aukast 11,5%. Nú, Lyfja, tekjurnar 5,3 milljarðar, eru að aukast þarna 6,6%.

Við erum búin að tala aðeins framlegðarstigið og jákvæða hér að það að hækka frá síðasta ársfjórðungi. Það hefur áhrif líka á Lyfju svo það sé sagt hérna með lokun þarna Linda.

Það hérna töluverð sala á vítamínum og steinefnum sem við erum að flytja inn í gegnum Heilsu hérna í Lindum, þannig að það hafði áhrif á fjórðunginn. Það líka kostnaður sem að koma inn hjá Lyfju sem að kom inn á þriðja ársfjórðungi í fyrra, þetta svona aðeins spurning hvernig þetta dettur, þannig að við vonumst til að þegar við förum inn á seinni helming ársins að við munum sjá hérna ágæta bætingu milli ára.

EBITDA-n 341 milljón, lækkun 51 milljón, og hagnaðurinn nam 37 sem lækkun 28 milljónum milli ára. Nú, stóra í þessu uppgjöri auðvitað N1, þar sem að hérna tekjurnar eru að aukast þarna 1 milljarð og við horfum þarna á magnið í lítrum að lækka 4,3%, þar sem að við sjáum það gríðarlega erfitt í svona miklum sveiflum og mikilli verðhækkun á eldsneyti, þá reynist það bara gríðarlega erfitt að koma þessu öllu út í til neytenda má segja.

Þannig að við sáum þetta hérna síðast þegar Úkraínustríðið byrjaði 2020 og var það ekki 23 og 22, að þá hérna þá lækkaði framlegð í bensín dísel og hérna það sama gerist má segja í júní og við sjáum þetta sama trend gerast aðeins inn í júlí sem líka þá hérna meginástæðan fyrir því að við erum að lækka hérna afkomuspána okkar. En að öðru leyti þá gengur rekstur N1 vel.

Við hérna njótum góðs af því þegar að hérna sólin á Austurlandi og Norðurlandi, þá erum við á ferðinni landið og það bara hérna það gríðarlega mikið að gera hérna á stöðvunum okkar, höfum séð það. Þannig að hérna svona heilt yfir að öðru leyti og við horfum á þetta svona sem svolítið einskiptis hérna atburð, þetta stríð í Íran og hvernig hérna þessar sveiflur eru að hafa áhrif, að þá hérna annað í bara góðum gangi.

EBITDA-n 600 milljónir, sem lækkun 66 milljónir milli ára og hérna eða 3,9%. Hagnaðurinn 402 og að lækka 127 milljónum milli ára.

Nú, Yrkir, þetta svona svolítið lítið af fréttum þarna, þetta bara hérna fasteignafélagið okkar, tekjurnar 1,2 milljarðar og eru að aukast 8,2% milli ára. Það aðeins aukning í fjölda fasteigna eigu samstæðunnar milli ára og það að skila þarna viðbótartekjum umfram hérna verðbólgu.

Við erum með þarna gangvirðishækkun upp á 61 milljón inn á fjórðunginn og EBITDA 960 sem að aukast þarna 8% milli ára og hagnaðurinn 29 milljónir. Nú, efnahagsreikningurinn okkar, hann hefur heldur betur hérna ber merki þessara miklu verðhækkana á eldsneyti.

Hann að aukast þarna 600 milljónir frá áramótum og við sjáum þarna að birgðastaðan okkar hefur vaxið 3,3 milljarða og viðskiptakröfurnar okkar eru líka að vaxa þarna 1,1. Og þarna erum við í raun og veru bara að hérna binda fé í birgðum og viðskiptakröfum.

Þetta eru einskiptisáhrif þegar að þetta ástand vonandi lagast og verð taka að lækka aftur. Þannig að þið sjáið að handbært fé að hérna lækka hjá okkur frá áramótum 4,6 milljarða.

Við greiddum arð í apríl upp á 2,2 milljarða og við jukum aðeins við skammtímalán hjá okkur í víxlum og öðru slíku líka bara til að hérna fjármagna þetta ásamt því að hefja endurkaup í byrjun júlí. Þannig að þetta svona hérna dregur upp óvenjulega stöðu hérna hvernig þetta lítur út, en líka bara svona til að tryggja lausafjárstöðu og annað slíkt þá vorum við með hérna 4 milljarða í ódregnum lánalínum í lok hérna júní.

Nú, sjóðstreymið okkar, það litað af þessum einskiptisliðum. Við erum með aukna fjárbindingu í birgðum og viðskiptakröfum vegna hækkunar á olíuverði og lækkun á vaskhlutfalli, þetta eru 3,5 milljarðar sem að hérna við sjáum að við munum fá til baka seinna á seinni árshelmingi vonandi.

Það óvenjulega há staða viðskiptaskulda því að í raun og veru með afnámi olíugjalds það verið að leggja þetta ofan á eldsneyti og þetta verða viðskiptakröfur hjá okkur og við fáum þetta greitt strax, en hérna núna í raun og veru þetta ekki lengur inni í viðskiptaskuldum, þannig að það koma einskiptisáhrif þarna inn í viðskiptaskuldir, þannig að þær eru 1 milljarði hérna lægri aftur einskiptisáhrif. Greiddur arður til hluthafa 2,2 milljarðar og hérna við erum þarna að byrja endurkaup fyrir 1 milljarð frá 1.

júlí. Já, handbært fé 1,3 milljarðar í lok fjórðungsins og hérna í sjálfu sér lítið annað þetta að segja.

Þannig að ég þakka bara fyrir mig.

Ásta Fjeldsted

Takk fyrir þetta, Magnús. Bara hérna rétt í lokin varðandi stöðuna hjá okkur og horfur að þá eru þær heilt yfir góðar þrátt fyrir náttúrulega óvissu í efnahags- og alþjóðamálum.

Krónan, eins og áður segir, í mikilli sókn og útlit fyrir að hún skili áfram kröftugum og arðbærum vexti og ELKO og Lyfja halda sínum takti á meðan útlit fyrir að N1 verði áfram fyrir neikvæðum áhrifum af hækkun og sveiflum á heimsmarkaðsverði. Nú, það eru gríðarlega spennandi og mörg mikilvæg verkefni fram undan, meðal annars opnun nýs apóteks Lyfju á Völlunum í Hafnarfirði, opnun nýrrar verslunar Krónunnar á Höfn og svo frekari uppbygging veitinga- og þjónustu N1.

Nú, við erum búin að fara yfir fjárhagslega stöðu en hún traust þó að við sjáum náttúrulega aukna fjárbindingu í vörubirgðum og viðskiptakröfum sem hafa tímabundið þessi miklu áhrif á sjóðstreymið, en undirliggjandi rekstur sterkur og tækifærin mörg til að efla afkomu félagsins enn frekar. Nú, í ljósi þess að þessir ytri þættir hafa haft sín áhrif að þá höfum við lækkað afkomuspá félagsins 500 milljónir og erum þá komin í 16 til 16,5 milljarða fyrir árið í ár.

CAPEX-spá félagsins stendur hins vegar óbreytt og í 7,5 til 8 milljörðum. Nú, rétt svona af markaðnum, við sjáum náttúrulega áframhaldandi trend í fjölgun hluthafa sem við höfum verið mjög ánægð með.

Við erum með 2.073, hefur fjölgað 344 frá áramótum, 120 frá síðasta ársuppgjöri, og markaðsvirði félagsins sveiflast auðvitað með genginu en markaðurinn hefur nú átt frekar svona erfitt uppdráttar á árinu. Úrvalsvísitalan búin að lækka eitthvað 8% en við rétt helming af því, 4%.

Við höldum áfram að skila hagnaði á hlut rétt 20 krónur og núna í 19,5 krónu og mikil bæting þar á milli ára. Maggi kom inn á að við hófum endurkaup núna 1.

júlí og við höfum heimild til þess að kaupa allt að 3 milljónum hluta eða fyrir milljarð sem samsvarar tæplega 1% hlutafjár, og við höfum nú þegar keypt fyrir 800 og við höfum keypt 850.000 hluti og höldum áfram nú út sumarið. Við erum með augun á boltanum, við vitum hverjar áherslur þurfa að vera næstu misserin.

Fjárhagsstaðan traust, undirliggjandi rekstur góður líka og fram undan spennandi mánuðir. Ég ætla að láta þetta duga í bili á þessum sumarfundi, opna á spurningar ef einhverjar eru úr sal eða úr streymi sem að Viktor sendir á okkur.

Takk fyrir. Bý kannski bara Magga að koma hérna með mér upp.

Einhverjar spurningar úr sal? Helgi?

Já, get tekið tvær sko.

Ásta Fjeldsted

Já, Helgi Frímanns, gjörðu svo vel.

Hérna, ég vil bara kannski byrja að spyrja aðeins varðandi guidance.

Ásta Fjeldsted

Já.

Og lækkunina á honum sko. Getið þið kannski aðeins farið lið fyrir lið hvað gerast, hvernig efnið, framlegðina í eldsneytinu.

En og þú segir að það komi ekki verðhækkun út í verðið sko. Kannski aðeins bara að fá smá hérna átt að og hvernig eru og aðrir þættir að fara eins og Krónan gengur vel og önnur fyrirtæki?

Eru þau að áætlun og hækka kannski sem sagt til móts við og...?

Ásta Fjeldsted

Já. Þetta náttúrulega, sko ef maður hugsar út í það, auðvitað þetta frekar þröngt guidance fyrir jafn umsvifamikinn rekstur og hjá Festi.

Við erum að tala 500 milljónir af tæpum þarna 17 milljörðum sem vorum með úti, vorum í 16,5 til 17. Og við sjáum bara eins og þið sjáið eftir fyrsta hálfa árið, eða sem sagt fyrstu tvo ársfjórðungana, að þá erum við rétt yfir síðasta ári sem var auðvitað frábært ár hjá okkur.

Gekk gríðarlega vel í fyrra og við vorum með mikinn vöxt í öllum þáttum. Leið og rekstur eins og hjá N1 í olíunni eins og hann hefur verið núna undanfarið misseri með jafn mikilli óvissu, að þá teljum við bara ekki ráðlegt annað en að í raun og veru sýna fram á að við höfum ekki náð lengra eftir þetta hálfa ár.

En fram undan vissulega áfram óvissa, þó svo að við séum ekki að segja að það bara verði ekki hægt að ná neinni framlegð úr olíunni, að þá finnum við alveg að það það mikill þrýstingur, rétt eins og við nefndum eftir Úkraínustríðið, og sagan segir okkur að þegar svona tímar eru þá erfiðara í háu verði og jafnvel hækkandi verði að koma kostnaðinum út í verðlag.

Ingason

Kannski aðeins hérna bara til að bæta við þetta. Við erum auðvitað hérna líka bara að sjá það að hérna nú júlí búinn í sjálfu sér og hérna og við erum að sjá svipað trend áfram í fjölda ferðamanna, erlendra ferðamanna.

Það tæplega 10% fækkun ferðamanna milli ára. Þannig að hérna og við erum að sjá það að framlegðarkrónurnar okkar í júlí, þær hérna eru ekki að ná áfram okkar markmiðum.

Að því sögðu, hérna verðið á eldsneyti, það var að toppa svolítið þarna í júní-ish og hérna þessar verðhækkanir og annað slíkt hérna. Þannig að þá bara menn þorðu ekki alla leið í hérna að ýta þessum hérna hækkunum út í verðlag, þannig að við sjáum fyrir okkur að þetta muni lagast hérna þegar að hérna gengur hérna aðeins inn á árið.

Að því sögðu líka þá þetta langstærstu mánuðir hérna í sölu eldsneytis, bensín dísel, þetta skiptir svo miklu máli hérna þessar framlegðarkrónur yfir júní, júlí, ágúst, þannig að þetta hittir okkur svona eiginlega bara á versta tíma. Það eiginlega bara meginástæðan hérna.

En hérna...

Ásta Fjeldsted

En varðandi hin félögin af því að þú spyrð svo Krónuna, Lyfju, ELKO, að þá bara góður gangur þar og við auðvitað erum mjög opin með það. Við lokuðum Lindum, sem stærsta verslun Krónunnar á annan mánuð, og vissulega rífur það í, en við sjáum strax núna viðbrögðum að það að koma hratt til baka.

Við erum bara að vera raunsæ og hafa borð fyrir báru. Við höfum verið að jústera oft og títt upp á við, nú jústum við niður á við.

Við viljum bara reyna að lenda alveg á réttu bili þar sem við erum að setja okkur áætlanir og hérna og horfurnar eru, vitandi því sem horft sund, hvernig þetta hefur þróast, það eiginlega ómögulegt okkur svolítið þröngur stakkur sniðinn varðandi innkaup og svo hvenær við seljum okkar birgðir. Og það getur stundum heppnast mjög vel en stundum eru tímabil eins og núna þar sem að við náum ekki að koma þessu öllu út og þá þetta hratt að gerast.

Bara svona aðeins að spyrja sko hérna á kostnaðinn. Þið eruð búnir að vera að fjölga stöðugildum alveg, þetta eru 50, 60 eða eitthvað svona á milli ára sko.

Og þið svona ástæður fyrir því en svona kannski ef horft næstu fjórðunga fram í tímann, eruð þið komin á eitthvað level þar sem við getum séð þessi stöðugildi vera kannski bara að núllast fjölgunin núllast eða hvernig svona, þurfið þið áfram að bæta við eða hvernig svona hvað ætlið þið að gera?

Ásta Fjeldsted

Já, við erum að fá hérna spurningu sem ég ætla að fá að endurtaka svo að þau ykkar í streymi heyri. Það verið að spyrja kostnaðinn í félaginu og þá kannski sérstaklega launakostnað, starfsmannakostnað og kannski svona heilt yfir rekstrarkostnað en aðallega auðvitað launakostnað.

Við erum búin að vera að gefa í núna að auka stöðugildi, meðal annars til þess að bæta framlegðina, talandi kælivöruhús og annað. Við erum að flytja önnur vöruhús inn í okkar eigin vöruhúsi, sem Heilsa sem undir Lyfju, þannig að það hefur verið ákveðinn kostnaður í því að bæta við stöðugildum sem við sjáum ekki fara vaxandi með jafn örum hætti og hefur verið.

Þannig að út þetta ár á meðan þessi samanburður við fyrra ár að þá lítur það út þannig eins og sé mikill vöxtur. En þetta á að skila sér og sérstaklega eins og með snjallverslunina þar sem við erum að fara út á land og þjónusta mörg sveitarfélög, við erum komin með meginþorra landsins út frá þó samt sömu verslunum og við erum bara með áður fyrr.

Við höfum ekki verið að opna nýjar verslanir út land allt og það hefur í för með sér sem sagt aukningu í stöðugildum. En á sama tíma var snjallverslunin að aukast 52% frá síðasta ári og orðin bara mikilvægur hluti í raun og veru af veltu Krónunnar.

Ingason

Auðvitað hérna, þetta stærsti kostnaðarliðurinn okkar fyrir utan auðvitað bara innkaup á vörum og hérna þannig að við höfum áhyggjur af launahlutfalli og öðru slíku. Þannig að þetta klárlega eitthvað sem að hérna erum að skoða.

Ásta Fjeldsted

Þetta eilífðarbarátta, auðvitað bara á Íslandi fyrir rekstraraðila. Það nú ekkert annað í fréttum heldur en og auðvitað ýtir þetta á okkur að hugsa enn frekar hagræðingu hjá okkur.

Það bara þannig, skýr skilaboð. Fleiri spurningar úr sal?

Viltu taka eitthvað sem hérna?

Ingason

Það spurning hvort við tökum, það nú eitthvað búið að svara held ég af spurningum sem komu úr streymi en hvað segið þið hérna, eitthvað þarna sem að kom inn?

Já, það kemur hérna spurning frá Kviku: „Þið nefnið mikla fækkun ferðamanna á milli ára á fjórðungnum en gerið þó enn ráð fyrir svipuðum fjölda ferðamanna á milli ára í afkomuspá ykkar. Hvað eruð þið að gera ráð fyrir mörgum ferðamönnum á þessu ári í ykkar forsendum?“

Ásta Fjeldsted

Það kannski ágætt að fara bara aðeins yfir að svona heimildir okkar fækkun ferðamanna, sko gögn frá Ferðamálastofu stangast aðeins á við nýjustu gögn sem við erum að sjá af farsímagögnum. Þannig að við erum að horfa til þess vonandi að þetta rætist úr næstu mánuðum og verði bara með svipuðu sniði og síðasta ári, en gögn sem við vorum að fá að kíkja á bara núna síðast í gær varðandi farsímagögn sýna að minnkunin meiri heldur en við höfum gert ráð fyrir.

En við teljum að með svona góðu veðri og öðru sem að hefur sýnt sig núna að við séum á nokkuð góðum stað en fækkun verður örugglega einhver.

Það önnur spurning hérna úr streymi: „Tekjur ELKO héldu ekki í við verðbólgu en raftækjamarkaðurinn skrapp enn hraðar saman. Er þarna kólnun í hagkerfinu að koma skýrt fram?

Hvernig sjáið þið næstu fjórðunga í sölu ELKO?“

Ásta Fjeldsted

Sko já, það verið að tala kólnun. Sko ELKO hefur staðið svolítið í stað.

Sko vissulega ELKO eins og þú nefnir að sækja fram miðað við hvernig markaðurinn að því virðist dragast saman samkvæmt tölum sem við höfum frá Meniga. Mögulega einhver kólnun en við veðjum nú á að svona eins og við köllum back to school haustið þar sem að allir fara aftur á stjá, að hérna þá þurfi að endurnýja búnað og annað.

En við fylgjum auðvitað líka húsnæðismarkað og öðru sem að þar sem fólk að kaupa sér ný tæki og nýja hluti fyrir heimili og annað, að þetta fylgir því að sjálfsögðu. Þannig að það bara í öllum þeim verslunum sem eru í þessum geira finna fyrir þessu trendi en við búumst við góðu gengi núna á næstu fjórðungum.

Það eru stórir fjórðungar fram undan, sérstaklega auðvitað með opnun nýrrar verslunar í Smáralind og stóru tilboðsdögum hjá ELKO.

Ingason

Ég held líka bara að taka einn fjórðung og hérna fara að álykta kólnun hagkerfisins, það bara allt of snemmt að álykta eitthvað það en hérna tek bara undir það sem að Ásta segir að við erum bara bjartsýn fyrir hönd ELKO á hérna seinni helming árs.

Afkoma Lyfju undir ykkar væntingum eða þetta samkvæmt áætlun?

Ásta Fjeldsted

Sko Lyfja bara á fínum stað. Við auðvitað erum alltaf að þrýsta á félögin okkar að ná betri árangri.

Við erum eins og við höfum oft rætt í framlegðaráskorun á þessum markaði og það sem hefur verið að gefast vel það að veðja á aðra vöruflokka sem við stýrum svolítið meira ferðinni. Við sjáum líka þessa aukningu í online-sölu og öðru.

Við erum með spennandi opnanir á næstu misserum þannig að við teljum að Lyfja muni halda áfram að vaxa á nýjum opnunum sínum. En þetta áskorun á þessum markaði, það vissulega staðan.

Ingason

Þetta auðvitað bara mjög erfitt umhverfi þegar að allur kostnaður að hækka og hérna þér skömmtuð framlegð hérna af lyfjum. Og þegar þú ert ekki búinn að fá breytingar í 3 ár þá auðvitað hérna þarftu að reyna að finna aðrar leiðir og það það sem að við erum að gera og þær aðgerðir hafa ekki komið fram að fullu enn þá.

Ásta Fjeldsted

Einhverjar fleiri spurningar?

Ég held að það séu tvær eftir hérna úr streymi: „Miðað við uppgjör Haga nýtur Olís góðs af hærra olíuverði þessar mundir vegna samninga við stórnotendur. Hvers vegna það ekki staðan hjá N1?“

Ásta Fjeldsted

Sko við viljum og getum ekki farið að tjá okkur uppgjör Haga eða samkeppnisaðila. Það náttúrulega líka mikilvægt að benda á að við erum náttúrulega með mismunandi uppgjörstímabil og þess vegna þetta ekki alveg like-for-like milli félaga.

Inni hjá þeim eru aðrir mánuðir sem að voru krítískir og sömuleiðis hjá okkur. Og svona með innkaup á olíu, það fer eftir mörgum breytum sem að stundum hittist vel á og önnur skipti hittist ekki eins vel á.

Þannig að það eiginlega bara staðan á mismuninum þarna.

Þá var það seinasta spurningin hérna úr streyminu: „Skuldsetning enn þá mjög lág þrátt fyrir lítillega aukningu. Munið þið halda áfram að skila fjármunum til hluthafa?“

Ásta Fjeldsted

Við erum náttúrulega í endurkaupum núna og erum bara að styðja við stokkinn okkar og erum áfram tilbúin í tækifæri fram á veginn en munum passa það og það sést líka á niðurstöðum þessa ársfjórðungs að við erum að skila áfram mjög góðri arðsemi, þannig að á meðan það skilar sér til hluthafa þá höldum við áfram. En endurkaupin munu skila sér núna allavegana út sumarið.

Eitthvað meira sem þú vildir...?

Ingason

Já, það kannski bara hérna eins og ég segi, við erum með milljarð núna í endurkaupum og gerum ráð fyrir því að þau klárist núna í lok ágúst. Og við munum bara taka stöðuna aftur þá.

Við höfum sagt að við erum að skoða tækifæri í fjárfestingum bæði innan samstæðu og utan og ef að þau verkefni eru að dragast eitthvað þá munum við klárlega hérna skoða það að halda áfram að skila peningum út til hluthafa.

Ásta Fjeldsted

All right. Fleira?

Ekki fleira.

Ásta Fjeldsted

Nei. Þá bara þökkum við fyrir okkur og óskum ykkur gleðilegs sumars, þó það sé kannski seint sé, en allavegana góðrar verslunarmannahelgi, sérstaklega fyrir þau ykkar sem eru að halda í [unclear].

Góða útihátíð. Takk fyrir kærlega.