Kvika banki hf

Kvika banki hf

IICE:KVIKA
13.30
ISK
+0.08
(+0.57%)
1.12EPS
11.76P/E
61.04BMarket Cap

Q2 FY2026 · Earnings Call TranscriptAugust 13, 2026

Ármann

Já, góðan daginn og velkomin á þessa kynningu á uppgjöri Kviku fyrir annan ársfjórðung. Við verðum með hefðbundið snið.

Ég ætla að taka aðeins svona saman helstu tölur í ársfjórðungnum sem var talsvert viðburðaríkur að mörgu leyti og kannski áhrifin af því sem hefur verið í gangi erum við kannski líka bara að fara að sjá aðeins dálítið meira á næstu mánuðum. Ég ætla aðeins að fara yfir það.

Og svo ætlar hann Eiríkur að fara yfir tölurnar í meiri smáatriðum og svo kem ég aðeins þarna í lokin og tek þetta aðeins saman, svona hvað fram undan og hérna og gefa fólki færi á að spyrja spurninga. Nú hérna, við vorum með hagnað fyrir skatta í fjórðungnum upp á 1.545 milljónir miðað við rúmlega 2 milljarða á öðrum fjórðungi í fyrra.

Lækkunin skýrist að langmestu leyti, þetta eiginlega nákvæmlega sama tala, lækkun í þóknununum. Og við vorum kannski svona í lægri kantinum í þóknunum miðað við run rate-ið okkar í þessum fjórðungi, en málið var að náttúrulega í fyrra að þá sáum við útboðið á sölu hlut ríkisins í Íslandsbanka og það skapaði mörg hundruð milljóna króna þóknanir hérna hjá okkur sem ekki fyrirsjáanlegt í ár.

Svo að það hérna telur dálítið mikið. Að öðru leyti var smávægilegur vöxtur í vaxtatekjum þó að vaxtatekjur væru að lækka aðeins á milli fjórðunga sem ég kem að á eftir.

Kostnaður var að lækka á milli ára og þar erum við að sjá bara mjög umtalsverða breytingu í kostnaðarleveli þó að við höfum verið að grípa til hagræðingaraðgerða sem að kallaði á rúmlega 100 milljón króna gjaldfærslu, þá erum við samt 50 milljónum undir eða næstum 50 milljónum undir kostnaði ársins í fyrra. Og ég kem líka aðeins betur að því á eftir.

En þetta var að skila sér í rúmlega 15% arðsemi á efnislegt eigið fé sem talsvert undir markmiði. En við erum eiginlega alveg að sjá núna að við erum að fara að ná þessum markmiðum núna bara á næstu mánuðum og næstu fjórðungum.

Og það sem í fyrsta lagi að gerast að hérna náttúrulega með þessum útgreiðslum og á þessum miklu arðgreiðslum og hlutafé til endurkaupum að þá bara efnislegt eigið fé hefur náttúrulega minnkað mikið. Áhrifin af þessu koma meira í næsta fjórðungi eða þessum fjórðungi heldur en þessum sem við erum að kynna núna.

Einfaldlega vegna þess að það bara tekið meðaltalið yfir fjórðunginn þannig að meðaltalsstaða eiginfjár í öðrum fjórðungi var rúmlega 40 milljarðar, verða í kringum 35 milljarðar í næsta fjórðungi sem þýðir í raun og veru að til þess að ná 20% markmiði þurfum við að vera að skila í kringum 1.800 milljónum í hagnað fyrir skatta. Við höfum náttúrulega verið að borga út mikinn arð og fara í endurkaup og við erum hérna búin að náttúrulega lækka dálítið eiginfjárhlutfallið okkar, en það enn þá aðeins yfir hérna okkar markmiðum sem að vera 2 til 400 punktum yfir kröfunni frá Fjármálaeftirlitinu.

Og við stefnum áfram að því að vera þarna á milli 2 og 400. En það verða breytingar hjá Moody's varðandi hvernig þeir meta eiginfjárhlutföll inn í sitt mat sem að þar sem þeir eru að gera ríkari kröfur til háts eiginfjárhlutfalls í raun og veru.

En á sama tíma hefur margt breyst hjá okkur sem þeir hafa verið að draga niður í okkar lánshæfiseinkunn sem við höfum væntingar til þess að muni hækka og við erum bara að sjá svona á næstu mánuðum hvernig þetta mun útleggjast. En væntingarnar og vonin að við getum farið að nálgast þetta meira þennan stjórnendaauka á næstunni.

Eins og við höfum nefnt áður þá hefur bara verið í gangi hérna undanfarin ár áhersla á aukinn fókus í starfseminni. Og hluti af þeirri vinnu eða útkoman úr þeirri vinnu var meðal annars að við ákváðum að greiðsluþjónustan sem við höfum haft inni í Straumi hún sé ekki lengur hérna hluti af okkar kjarnastarfsemi eða fókus og það var ákveðið að hefja söluferli á Straumi sem að bara hefur gengið prýðilega og við erum í dag komnir í einkaviðræður við Arion banka sölu á félaginu og hérna erum að vonast til þess að sem sagt við getum sagt nákvæmar frá því bara á næstu vikum vonandi og að salan sjálf muni verða gengin í gegn vonandi fyrir árslok, en það veltur á eftirlitsaðilum líka.

Nú svo var tilkynnt að ég hyggst stíga niður úr starfinu fyrir árslok 2026 og hérna stjórn bankans bara á fullu að vinna í að finna eftirmann og það verður bara tilkynnt það eftir því sem að það hérna þróast. Mig langaði aðeins að tala af því að þetta var í raun og veru fjórðungur þar sem var ótrúlega margt jákvætt að gerast þar sem að kannski sumt af því að skila sér neikvætt á þessum ársfjórðungi, en allt allavega að skila sér jákvætt á næsta fjórðungi.

Í fyrsta lagi að þá höfum við náttúrulega bara verið að fara í kjölfarið á því að samruninn við hérna Arion gekk ekki eftir að þá höfum við náttúrulega bara verið að fara í að búa til svona meira efficient fjármagnsskipan í bankanum og við byrjuðum á því að borga út 10 milljarða sérstaka arðgreiðslu í byrjun júní. Og reyndar vorum náttúrulega búin að borga út meiri arð og fara í endurkaup fyrr á árinu þannig að við erum búin að skila mjög miklum peningum til hluthafa á árinu.

Þetta auðvitað gerir það að verkum að hérna sem sagt að eiginfjárbassinn eins og ég var að nefna áðan, hann náttúrulega lækkað umtalsvert og en á móti kemur að við það að fara 10 milljarðar út að þá náttúrulega dregur það aðeins úr vaxtatekjum bankans, en nettoáhrifin eru þau að arðsemi á eigið fé að hækka. Við fórum í gríðarlega vel heppnaða hérna útgáfu á AT1 skuldabréfum í Svíþjóð sem að hérna aftur var í raun og veru forsenda fyrir því að geta greitt út svona mikinn arð og farið í þessi endurkaup sem núna standa yfir, sem kannski ganga aðeins hægar út af markaðsaðstæðum heldur en við höfðum ætlað.

En til að byrja með hefur þetta líka smá áhrif á að hérna draga úr vaxtamun af því að við erum að koma þessum peningum í erlendri mynt í vinnu. Við fórum líka í frábærlega vel heppnað skuldabréfaútboð í Evrópu þar sem við vorum að gefa út 150 milljónir evra á 160 punktum yfir millibankavöxtum sem eru langbestu kjör sem bankinn hefur fengið og til lengri tíma þetta náttúrulega að gera okkur kleift að endurfjármagna dýrari skuldir og líka að hérna vöxtur í útlánastarfseminni verður miklu arðbærari heldur en áður.

Þannig að þetta að hafa mjög jákvæð áhrif á vaxtamuninn á næstu hérna mánuðum. Og ég skal bara telja upp hvað þetta.

Við erum að fara endurfjármagna bankalán sem við höfum verið með úti í Bretlandi sem það bil 5 milljarðar og eru á kjörum sem eru rúmlega 300 punktar yfir. Og síðan stór skuldabréfaflokkur til uppgreiðslu í nóvember úti í Svíþjóð sem að við gáfum út á í kringum 400 punktum yfir.

Þannig að áhrifin af þessu þegar við erum komin að virkja peningana náttúrulega mjög mikið og við munum sjá það svona seinna á árinu. Og svo líka allur vöxtur núna í erlendu þar sem við erum að koma peningum í vinnu á 4, 5, 600 punktum yfir og taka pening af hérna lausafé sem á 0% vöxtum bara að hafa mikil áhrif á vaxtamanninn og náttúrulega auka vaxtatekjur sem kemur þá á móti því að vaxtatekjur lækka við þessar miklu arðgreiðslur.

Og kannski því tengt þá hefur hérna erlenda lánabókin okkar verið að vaxa mjög hratt undanfarið, óx alveg ágætlega á síðasta ársfjórðungi og síðan í júlí var mikill vöxtur þar líka. Nú á kostnaðarliðinni að þá held ég megi segja okkur hefur tekist rosalega vel til, jafnvel áður en við fórum í hagræðingaraðgerðirnar vorum við að ná að halda kostnaði hérna nánast óbreyttum milli ára.

Og við það að fara í hagræðingaraðgerðirnar sem fóru í júní að þá erum við að lækka kostnað á ársgrundvelli í kringum 3 til 400 milljónir. Það hins vegar kallar á 100 milljón króna gjaldfærslu í þessum korter, þannig að öllu óbreyttu þá myndum við gera ráð fyrir að kostnaður í næsta fjórðungi yrði bara út af þessu í kringum 200 milljónum lægri heldur en hann var í þessum fjórðungi.

Svo náttúrulega þriðji fjórðungur auðvitað þannig að það orlofsstaka þannig að það alltaf langléttasti kostnaðarmánuðurinn okkar þar að auki. Orlofsstakan munar hjá okkur örugglega einhvern tímann einhvers staðar plús mínus 200 milljónir, en svona long term þá eru áhrifin miðað við kostnaðarbasann í þessum fjórðungi svona sirka 200 milljónir.

Við ákváðum líka bara í ljósi efnahagsaðstæðna að fara mjög vel og gera bara sérstaklega hérna yfirferð á lánabókinni okkar og tókum verið að segja bara frekar íhaldssamt view á öll lán sem að hérna við töldum rétt að skoða og það gerði það að verkum að niðurfærslur voru hlutfallslega hærri í þessum fjórðungi, svona kannski rúmlega 100 milljónir í einhverju svona óvenjulegu en við teljum að það muni hérna hafa bara jákvæð áhrif og skila sér í þá heldur lægri niðurfærslum ef eitthvað hérna í framhaldinu. Svo erum við með margt í gangi sem lýtur að hérna sölu á eignum sem að hafa áhrif á afkomuna okkar.

Í fyrsta lagi þá söluferlið á stærstu einstöku fjárfestingareign bankans úti í Bretlandi mjög langt komin. Það fyrirtæki sem heitir Cornerstone sem að bankinn og viðskiptavinir hafa átt í hérna í nokkur ár og það söluferli lítur mjög vel út.

Við höfum yfirleitt verið að meta þessar fjárfestingareignir okkar frekar hófvært og sett varúðarfærslur á það þannig að ef þetta gengur mjög vel eftir á seinni hluta ársins að þá hefur það áhrif á fjárfestingatekjur og eins hérna erum við með árangursþóknanir tengdu þessu verkefni þannig að þetta dálítið stórt verkefni fyrir okkur. En við gerum ráð fyrir að það sé já, klárast já, einhvern tímann ætli það klárist ekki á fjórða ársfjórðungi en gæti haft áhrif á afkomu í þriðja.

Síðan höfum við verið eins og fólk hefur kannski tekið eftir núna síðustu tvo fjórðunga með eitt stærsta lánið okkar úti í Bretlandi hefur verið á stage 3 en það gríðarlega vel tryggt lán. En á meðan það á stage 3 þá hefur það áhrif á, við hérna bókum ekki að fullu vaxtatekjur þar og við erum líka með hærra impairment heldur en á öðrum lánum.

En salan á þessari undirliggjandi eign á bak við þetta lán gengur mjög vel og að klárast annaðhvort í lok þriðja eða í byrjun fjórða. Og miðað við boðin sem eru komin í að þá erum við að fara að fá allar vaxtatekjur greiddar til baka og við erum langt frá því að verða fyrir einhverju tjóni þannig að þetta á eftir að hafa jákvætt áhrif going forward.

Nú salan á Straumi hefur nú engin áhrif í þessum fjórðungi, en áhrifin í stuttu máli af sölunni miðað við verðið sem verið að tala það að söluverðið á annan milljarð sem nokkur hundruð milljónum hærra heldur en bókfært verð hjá okkur þannig að það kemur one-off áhrif á því. En áhrifin á reksturinn sjálfan, bottom line í rekstrinum eiginlega nákvæmlega núll.

Straumur hefur verið rekinn með smávægilegum tapi, en hins vegar með framlag til sameiginlegs kostnaðar sem fer þá út þannig að áhrifin á reksturinn eiginlega bara akkúrat núll. En það hefur auðvitað áhrif á að þóknanatekjur munu lækka en kostnaður mun lækka enn frekar.

En þannig að eiginlega allt þetta sem ég hef talið upp núna að hafa jákvæð áhrif bæði á hagnaðinn en kannski sérstaklega líka bara á arðsemi eiginfjár. Já, ef ég fer aðeins yfir hérna einstakar einingar að þá gekk viðskiptabankasviðið mjög vel, frekar áframhaldandi eins og svo sem hefur verið sagan hjá okkur eiginlega á öllum sviðunum að það bara góður vöxtur í lánabókunum.

Það sem var kannski sérstaklega jákvætt á þessum fjórðungi var að við sáum mikinn vöxt í hérna innlánum og innlán jukust á fjórðungnum sirka 12 milljarða. Það var svona búið að hægjast talsvert á vextinum okkar í Auði á fjórðungunum á undan sem að ég held að að mestu leyti hafi stafað af því að á undanförnum mánuðum hafa allir þrír stóru bankarnir komið fram með sín eigin fríðindakerfi þar sem að var mikil áhersla lögð á að bjóða þeirra viðskiptavinum há kjör á innlán ef að þeir væru í margvíslegum viðskiptum við viðkomandi banka.

Og það bara dempaði aðeins vöxtinn hjá okkur og nú eru áhrifin af því komin fram og þá erum við farin að sjá áframhaldandi mikinn vöxt í innlánum og þetta í fyrsta skipti sem að heildarinnlán bankans fara yfir 200 milljarða sem eru ákveðin tímamót. Já, ég var búinn að tala Straum og já, þannig að ég held að þetta sé nú það helsta hér.

Nú í fjárfestingabanka starfseminni, það svið gekk vel eins og það hefur verið að gera sérstaklega á lánasviðinu. Þó að þetta sé erfitt efnahagsumhverfi þá hefur tekist ótrúlega vel hjá fjárfestingabankasviðinu að stækka lánabókina sem skiptir okkur miklu máli.

Og þar erum við náttúrulega með litla markaðshlutdeild og sem kannski ástæðan fyrir því að okkur tekst að stækka í umhverfi sem ekkert frábært. Hins vegar auðvitað eins og við sjáum í hjá uppgjöri hjá öðrum og aðeins hjá okkur líka að hérna markaðsaðstæður eru áfram mjög krefjandi sem hefur auðvitað áhrif á hérna miðlunina okkar og við vorum að sjá í veltu á hlutabréfamarkaði í fjórðungnum miðað við fyrir ári síðan drop upp á 50% sem náttúrulega mjög leiðinlegt og sorglegt að veltan skuli vera að minnka svona mikið og maður getur ekki annað en vonað að það taki eitthvað við sér, en við sjáum til.

Fyrirtækjaráðgjöfin átti prýðilegan fjórðung og var að loka nokkrum skemmtilegum verkefnum eins og Sidekick og vorum ráðgjafar líka í sölunni á Evrydata til Creditinfo. Í eignastýringunni þá náðum við þar var kannski stóru það sem var að gerast í eignum í stýringu var það að Fasteignafélag Íslands sem var selt til Kaldalóns fer úr stýringu og það var náttúrulega dálítið stór upphæð, en við erum samt að ná að halda eiginlega eignum í stýringu á svipuðu leveli og það bara vegna þess að það að koma eignir í stýringu annars staðar frá frá stofnanafjárfestum og úr öðrum áttum.

Síðan erum við með þrjá sjóði sem eru bara þokkalega langt komnir í fundraising. Það Kreditsjóðurinn okkar, hérna sem sagt ACF VI, náttúrulega erum með nokkra og þetta bara erum að halda þeirri vegferð áfram.

Við erum að fara af stað með hérna Iðunni, hérna sem sagt framtakssjóðinn sem að sérhæfir sig í hérna sprotafyrirtækjum og svo í samvinnu við Kviku UK erum við að byrja að setja af stað næsta annan Hörpusjóðinn. Og erum að byrja það í lok vikunnar, en sá sjóður fullfjárfestur.

Og í Bretlandi fyrri hluti ársins í Bretlandi var svona ágætur, en aðeins undir væntingum. En út af mörgu af því sem ég var að nefna hérna kannski áðan þá eigum við hérna von á því að seinni partnum verði mjög góður.

En það var samt mikið í gangi eins og í private equity-megin og Hörpusjóðurinn núna orðinn fullfjárfestur auk þess sem við vorum að selja niður einstök verkefni og pipeline-ið þarna úti ótrúlega sterkt og þetta orðið mjög öflug eining sem að vinna í private equity-inu. Og síðan höfum við verið að sjá líka mjög góðan vöxt í hérna á lánahliðinni.

Vöxturinn var aðeins hægari á fyrri partinum heldur en við gerðum ráð fyrir, en það hefur verið mjög mikill vöxtur núna á undanförnum vikum þannig að okkur sýnist að við séum alveg að ná okkar markmiðum þar fyrir árið. Og síðan þetta sem ég nefndi áðan varðandi bæði hérna söluna á eigninni sem undir stærsta láninu þeirra og hérna söluferlinu á Cornerstone að mun væntanlega hafa talsverð jákvæð áhrif núna á seinni hlutanum.

Þá ætla ég að bjóða Eirík hérna.

Eiríkur

Kærar þakkir. Og ég ætla að fara aðeins yfir uppgjörið.

Ef við skoðum kannski hérna svona kannski helstu þætti í uppgjöri annars ársfjórðungs að þá sjáum við að að vaxtatekjurnar eru þarna rétt rúmir 3 milljarðar, aukast 51 milljón frá því fyrir ári síðan en dragast aðeins saman á milli fjórðunga. Og það eru kannski nokkrir þættir sem koma þar inn, fer bara betur yfir það á eftir.

Þóknanatekjur, það 1,4 milljarðar sem bara sambærilegt og hefur verið undanfarna fjórðunga, en lækkun frá fyrra ári. Og það stafar sem sagt aðallega af því að hérna í fyrra þá vorum við umsjónaraðili að útboði Íslandsbanka.

Aðrar rekstrartekjur aukast á milli ára 96 milljónir, aðallega fjárfestingatekjur en en líka aðrar tekjur. Og hreinar rekstrartekjur, þær eru þarna 4 milljarðar 4 milljarðar 756 milljónir samanborið við 5 rétt rúmlega 5 milljarða á síðasta ári, dragast saman 372 milljónir.

Hérna rekstrarkostnaður, hann lækkar á milli ára sem náttúrulega gríðarlega gott. Og það náttúrulega við erum búin að fara í við erum með mikinn mikla áherslu á kostnaðarhald og það verður það áfram.

Og inni náttúrulega inni í þessum tölum eru 112 milljóna króna sem sagt einskiptiskostnaður sem kom til vegna hagræðingaraðgerða í fjórðungnum. Virðisrýrnunin, hún 269 milljónir og hækkar á milli milli ára og það eins og Ármann fór yfir áðan, við erum að að bæta aðeins í virðisrýrnun.

Það þú veist á ýmsum sviðum sérstaklega hérna heima sem að sem að sem sagt í fyrirtækjarekstri hérna heima sem að sem að þörf á að kannski aðeins að bæta í. Þetta bæði í byggingageira en líka í í í öðrum öðrum rekstri sem að sem að þetta kemur til.

Hagnaður fyrir skatta 1.545 milljónir samanborið við rúmlega 2 milljarða í fyrra. Tekjuskattur 340 milljónir og sérstakir bankaskattar eru 302 milljónir.

Hreint skatthlutfall tæplega 35% og ástæðan fyrir því að þessir sérstöku bankaskattar aukast svona á milli ára að sérstakur fjársýsluskattur, hann að hækka. Og það kemur til út af tæknilegum ástæðum, út af lokun á skiptasamningum í tengslum við fjármögnunarsamninga að hérna að það kemur til að það fellur til þegar þeim lokað.

Þannig að þetta tiltölulega tæknilegs eðlis. En hagnaður eftir skatta 903 milljónir samanborið við 1.439 milljónir á sama tíma í fyrra.

Ef við skoðum 6 mánuðina þá sjáum við að að hérna vaxtatekjur aukast talsvert á milli ára, eða hækka 400 milljónir. Náttúrulega gríðarlega sterkur fyrsti ársfjórðungur og og í sjálfu sér annar fjórðungur líka í í í hérna í í vaxtatekjum.

Þóknanatekjur lækka á milli ára 500 milljónir og aftur það þær skýringar leita í því að í fyrra vorum við umsjónaraðili á á útboði Íslandsbanka. Aðrar rekstrartekjur hækka á milli ára rúmlega 200 milljónir og það eru sérstaklega fjárfestingatekjur sem eru sem eru að aukast.

Og rekstrartekjur eru að aukast 66 milljónir á milli ára, eru 9 milljarðar 643 milljónir. Kostnaður dregst saman á milli ára, hérna 5 milljarðar 961 milljón.

Virðisrýrnun aðeins að aukast 175 milljónir, 363 milljónir á fyrri helmingi ársins. Endurmat á skilyrtri skuld eiginlega engin af núna en var 593 milljónir fyrir ári síðan og það kom til vegna þess að við vorum að kaupa eftirstandandi hluta af stofnendum Ortusar.

Hagnaður fyrir skatta á fyrri helmingi ársins 3 milljarðar 354 milljónir samanborið við 7 2,7 milljarða á síðasta ári og eykst 628 milljónir á milli ára. Tekjuskattur 687 milljónir og aðrir bankaskattar eru 200 389 milljónir og hagnaður eftir skatta 2 milljarðar 277 milljónir á fyrri helmingi ársins samanborið við 1.629 1.625 milljónir á á fyrri helmingi síðasta árs.

Ef við skoðum aðeins vaxtamuninn og og vaxtatekjur að þá sjáum við þarna að þær eru að aukast aðeins á milli ára. Hann var náttúrulega gríðarlega sterkur fyrsti annar fjórðungur á síðasta ári.

Við sjáum að að hérna að hérna að vaxtamunur lækkar frá frá fyrsta fjórðungi og það eru margir þættir sem koma þar inn. Það náttúrulega arðgreiðslan eins og eins og hérna eins og Ármann nefndi hérna áðan, það var 10 milljarða arðgreiðsla og við það þá missum við út hérna sem sagt hækkunina á á Seðlabankavöxtum sá peningur, bara lausafé sem á Seðlabankavöxtum.

Við fórum í í fjármögnun bæði hérna óveðraða fjármögnun í evrum upp á 150 milljónir evra og og hérna og svo AT1 útgáfu sem að var á á var á 4% 4,25% vöxtum yfir yfir millibankavöxtum. Og hérna og svo verðbólga líka að þrátt fyrir að við séum ekki með stóran verðbólgujöfnuð að þá var verðbólga á fyrsta ársfjórðungi hún var hún hún var miklu hærri heldur en á öðrum fjórðungi, 10% á fyrsta fjórðungi samanborið við 5% á öðrum þannig að það hefur einhver áhrif líka.

Ef við horfum kannski fram á veginn með með hvernig við sjáum þetta þróast þá að þá í raun og veru bara áhrifin af af hérna af endurfjármögnun ætti að skila svona 0,1, 0,2% hækkun á á á hérna á vaxtamuninum. Og og svo þar fyrir utan þá erum við að nota lausafé sem við höfum fengið úr fjármögnun í í það að lána í bara í í arðbærari starfsemi, til dæmis eins og í Bretlandi.

Og og það mun bara enn frekar styrkja styrkja vaxtamuninn þannig að þannig að við teljum að að að þetta muni muni svona stíga upp á við á á næstu fjórðungum og styðja við og styðja við við arðsemi bankans. Þóknanatekjur, þóknanatekjur eru 1.416 milljónir í fjórðungnum, lækka lækka talsvert frá fyrra ári en þetta bara sambærilegt við það hefur verið undanfarna fjórðunga.

Þóknanatekjur hafa verið að rúlla svona á milli 14 og 1.500 milljónir undanfarna fjórðunga. Þannig að þetta svona í sambærilegum takti við það.

Og og kannski helsta breytingin þarna í í í í í hérna í fyrirtækjaráðgjöf og og hérna og markaðsviðskiptum. Og og þetta náttúrulega skýrist eingöngu af því að í fyrra vorum við umsjónaraðili að útboði Íslandsbanka fyrir hönd ríkisins þannig að þannig að þetta var langhæsti fjórðungur í í þóknanatekjum fyrir ári.

Aðrar þóknanatekjur lækka líka og þetta eru að mestu leyti þjónustutekjur sem að við vorum með til TM á öðrum fjórðungi í fyrra eftir að það var farið úr úr úr samstæðunni en þeir voru enn þá að kaupa af okkur ákveðna þjónustu hérna áður en að áður en að þau fluttu endanlega yfir í til Landsbankans. Aðrar rekstrartekjur, þær aukast á milli ára.

Þetta eru bæði fjárfestingatekjur sem eru að aukast, hefur gengið vel sérstaklega í í í fjárstýringu og eigin viðskiptum hér heima og aðrir þættir í sjálfu sér bara ágætlega líka og og talsvert betur en fyrir ári síðan. Og svo eru aðrar rekstrartekjur líka að aukast og þetta aðallega á viðskiptabankasviði sem að sem að sem að sem að þetta að koma.

Þannig að það bara og þetta eru tekjur sem að eru eru hérna eru svona recurring þannig að þannig að þetta bara í góðum góðum gangi á þessu. Rekstrarkostnaður, já það gríðarlega mikil áhersla á á að halda rekstrarkostnaði niðri.

Í grunninn þá bara okkar strategía að auka tekjur en að reyna að halda kostnaðinum eins mikið niðri og mögulegt. Og og hérna við fórum í hagræðingaraðgerðir á fjórðungnum og hérna og svo höfum við ekki verið að hérna ráða í þau störf sem losna.

Og þetta veldur því að að að að starfsmannafjöldinn hefur lækkað fækkað 18 frá frá því í í lok síðasta árs. Og hérna og og og og þetta svona eru dræverarnir í því að að hérna að rekstrarkostnaður hann hann hann að lækka á milli ára þó að við séum að taka 112 milljóna króna gjaldfærslu í fjórðungnum vegna vegna hérna vegna hagræðingaraðgerða.

Þannig að þetta bara gríðarlega sterkt. Annar kostnaður að lækka líka og það fyrst og fremst af því að við erum í hagræðingaraðgerðum, við erum að ekki að stofna til kostnaðar nema nema brýna nauðsyn beri til.

Þannig að þetta þannig að og það verður áfram áfram áfram hérna fókus á þetta á næstu misserum. Stökkvum yfir þessa.

Lánabókin, lán til viðskiptavina eru að aukast og hafa þú veist voru 223 milljarðar í lok fjórðungsins samanborið við 172 milljarða fyrir ári síðan. Þar allar, við sjáum að við erum að stækka í raun og veru bara á öllum sviðum.

Í í á viðskiptabankasviði nei á fyrirtækjasviði hérna á á á Íslandi þá erum við að fara úr 65 í 82 milljarða. Það var hægur vöxtur í Bretlandi framan af svona á síðasta ári og framan af ári en hefur gengið vel núna þannig að við erum komin í 46 milljarða þar.

Viðskiptabankasvið sem sagt að stækka úr 56 í 60 og svo eru eru íbúðalánin undir Auður heima. Þau voru voru lítið farin af stað fyrir ári síðan en við erum núna stöndum í 27 milljörðum.

Þannig að þetta bara gríðarlega góður gangur hérna á öllum öllum sviðum og við sjáum að það muni bara halda áfram. Útlánagæði, lán á stigi 3 eru svona lækka aðeins á milli ára milli milli tímabila en en en eins og Ármann fór hérna yfir áðan að þá hækkuðu þau svolítið á síðasta fjórðungi með tilkomu eins láns í Bretlandi sem að fór á stig 3.

Og það útlit fyrir að það mál klárist svona já, ég ætla rétt að vona að það verði á fjórða fjórðungi og þá mun það fara út. Það engin sérstök mjög hófleg niðurfærsla í tengslum við það lán þar sem að úrlausnin á því gengur mjög vel og og og það mun verða án þess að að til sérstakrar niðurfærslu komi.

Við fórum hins vegar svona almennt í í svona endurmat á lánabókinni á á á fjórðungnum og og fórum í og var niðurfærsla upp á 269 milljónir. Það var allt tengt sem sagt bara til fyrirtækjalána.

Aukningin má skýra af fyrirtækjalánum hér á Íslandi og og og það eftir bæði fyrirtæki í fasteignaþróun og og sem og í annarri starfsemi þannig að þetta var svona farið yfir þetta nokkuð heildstætt. En já.

Og við sjáum í sjálfu sér já, þetta var kannski í hærra lagi núna en en hérna já, sjáum svo sem enga stóra breytingu á því svona fram á veginn. Ætla ekkert að stökkva ekkert að fara sérstaklega í þetta.

Nú innlán, innlán náðu sem sagt eru 201 milljarður og komu þá yfir 200 milljarða. Og það í fyrsta sinni í sögu þessa banka sem það gerist og bara góður vöxtur í í innlánum almennt.

Innlán til einstaklinga eru að aukast og og einnig einhver vöxtur í öðrum innlánum líka. Og og og og útlán sem hlutfall af innlánum lækka á milli tímabila sem að hjá núna 111% samanborið við 120% í lok síðasta árs.

Þannig að þetta bara gríðarlega góð þróun hér og bara mjög jákvætt. Varðandi hérna markaðsfjármögnun að þá hefur hún gengið mjög vel og og hefur orðið bara talsvert mikil breyting á á hérna á svona fjármögnun bankans á undanförnum misserum.

Við fórum í júní í útgáfu á í annað sinn sem bankinn fer í útgáfu í í evrum, við gáfum út 150 milljónir evra. Og það tókst alveg gríðarlega vel, það var þreföld umframspurn og hérna og kjörin sem við fengum voru voru 100 voru 85 punktum betra heldur en það sem við fengum í fyrra, þannig að 165 punkta samanborið við við 250 fyrir ári síðan.

Það voru 38 fjárfestar sem að tóku þátt samanborið við 24 fyrir ári. Þannig að við erum bara komin með með góða mjög gott aðgengi að þessum markaði sem styrkir fjármögnun okkar.

Við fórum líka í í í í útgáfu á AT1 skuldabréfum sem að líka heppnaðist gríðarlega vel. Það var í Svíþjóð og og og þar höfum við líka byggt upp mjög gott fjár sterkt fjárfesta fjárfestamengi.

Þannig að hérna þannig að allt þetta hefur hefur hefur styrkt okkar fjármögnunarprófíl. Við erum svo fengum leyfi í fjór fjórðungnum til að gefa út sértryggð skuldabréf og og hérna sem að við vorum búin að bíða svolítið eftir, en hérna en það klárast klárast núna í sumar.

Og við erum bara að leggja lokahönd núna á sértryggðan skuldabréfaramma og munum í framhaldinu byrja útgáfu á sértryggðum skuldabréfum hérna hérna á Íslandi sem þá til fjármögnunar á á sem sagt með tryggingu í íbúðalánum. Þannig að það mjög spennandi verkefni sem á sem sem núna á döfinni.

Lausafjárhlutfall, lausafjárhlutfall bankans bara gríðarlega sterkt. Við erum með 276% í hérna í LCR hlutfalli.

Og hérna og það bara hérna það lausafjárhlutföll bankans hafa verið mjög sterk og og munu bara verða það áfram. Í sjálfu sér ekkert mikið þetta að segja.

Nú ef við horfum á á hérna á eiginfjárstöðu að þá voru miklar breytingar á henni í fjórðungnum. Þið sjáið ef við kannski horfum hérna vinstra megin að á CET1 hlutfallið, sem sagt hlutfall eiginfjárhluta eiginfjárþáttar 1, að hérna þá lækkar það úr 23,8% í 18,3%.

Og það hluti af af þessari vegferð að að fá hagstæðustu samsetningu á eigin fé. Og og þetta tilkomið út af út af stórri arðgreiðslu í í í fjórðungnum upp á 10,2 milljarða.

Á sama tíma fórum við í þessa AT1 útgáfu upp á 4 milljarða þannig að þannig að áhrifin á heildar heildareiginfjárhlutfallið, CAD hlutfallið eru minni. Það fer úr 26,7% í 23%.

Hérna við erum 5,3% yfir sem sagt lágmarki eða sem sagt lágmarksviðmiðum Seðlabankans og og við höfum sett fram þessi hérna markmið að vera 2 til 4% yfir yfir mörkum eftirlitsaðila. En eins og Ármann kom að hérna áðan að að þá að þá þurfum við líka að horfa til svona hvernig Moody's að horfa á okkur.

Og og þeir meta okkur núna með eiginfjárhlutfall yfir 18%, það sem sagt einn af eina eina af svona forsendunum í í í í í í hérna lánshæfismatinu hjá þeim. Þannig að þannig að við þurfum að svona sjá hvernig hérna aðrir þættir í lánshæfismatinu þróast áður en við getum farið að taka frekari skref til til breytingar á á á eiginfjárhlutfallinu.

Já, þá í loki minni yfirferðar þá kannski Ármann kemur aftur og og svona fer yfir þróun og horfur á næstu mánuðum og misserum.

Ármann

Já, reyndar aðallega bara svona framhald af af hérna af því sem að í kjölfarið að þegar að sam hætt var við samrunann við Arion að þá komum við náttúrulega fram og sögðum að hérna að að planið væri þá að fara okkar stand-alone vegferð og hún myndi ganga út á það að losa talsvert eigið fé sem við höfum verið að gera, en að síðan værum við að fara í aðgerðir til þess að halda áfram að bæta arðsemi eiginfjár í bankanum. Og og þannig að hérna vinstri hliðin á þessari glæru eitthvað sem við höfum kynnt áður og mig langaði bara að fara yfir hvað hefur verið að gerast í í þeim efnum og taka það saman kannski af því að þið hafið nú heyrt mesta af þessu hérna áðan.

En náttúrulega planið var að í fyrsta lagi að borga út mikinn arð og ná eiginfjárhlutfallinu nær okkar markmiðum en síðan halda áfram á þessari vegferð sem að kannski í grunninn eins og Eiríkur nefndi aðeins gengur út á að stækka lánabækurnar, auka vaxtatekjur og halda kostnaði í skefjum. Og hérna og það í raun og veru bara ganga ótrúlega vel eftir.

Í fyrsta lagi þá að þá hefur lánabókin bara stækkað vel á árinu eða 16 milljarða og við erum bara að sjá mjög góðan vöxt núna á þessum fjórðungi líka. Við okkur hefur tekist mjög vel held ég megi segja halda halda utan kostnað og við erum að fórum í aðgerðir á fjórðungnum sem að að lækka kostnaðarbasann 3 til 400 milljónir.

Og þess utan eins og Eiríkur nefndi að þá höfum við líka þetta ekki bara hérna launakostnaður, við erum líka að að bara að að lækka allan rekstrarkostnað og það sést dálítið í þessu uppgjöri og mun halda áfram að sjást í næstu uppgjörum. Á sama tíma erum við líka að lækka fjármagnskostnað og hérna þessi útgáfa í júní 85 punktum lægri heldur en við sáum í útboðinu þar á undan og enn þá meiri munur held þegar borið saman við útistandandi skuldir bankans eins og ég nefndi áðan.

Þannig að við eigum eftir að sjá bætingu á næstu mánuðum sem munar þegar kemur að fjármagnskostnaði. Svo erum við auðvitað alltaf að reyna að finna leiðir til þess að auka þóknanatekjur og og þó að við séum að eiga við erfiðar markaðsaðstæður hérna á Íslandi en en við erum og hérna en við erum eins og ég nefndi áðan með þrjá tiltölulega stóra sjóði sem eru með tiltölulega háar þóknanir í burðarliðnum og vonumst til þess að geta lokað þeim á árinu sem mun þá aðeins styrkja þóknanamyndun okkar til framtíðar.

Síðan erum við náttúrulega höfum sagt að við erum alltaf þó að fókusinn sé fyrst og fremst á innri vöxt og hérna og núverandi rekstur, að auðvitað fylgjumst við með ef það einhver tækifæri til kaupa á fyrirtækjum sem falla vel að okkar kjarnastarfsemi. Og svo líka höfum við sagt að við myndum skoða sölu á einhverjum einingum sem að falla ekki undir kjarnastarfsemina og það auðvitað það sem að við höfum ákveðið að gera að selja Straum og ég fór yfir áhrifin af því á á á hérna reksturinn áðan.

Þannig að ég held að eins og ég nefndi kannski í byrjun að að ég held að bankinn í í mjög sterkri stöðu núna og ég held við eigum eftir að sjá áhrifin af þessu aðgerðum okkar á næstu fjórðungum. Og ég á erfitt með að sjá annað heldur en að við séum að fara að ná okkar arðsemismarkmiðum bara strax í næsta fjórðungi og og og í fjórðungunum þar á eftir ef ekkert óvænt kemur upp.

Ókei, þetta var. Eru einhverjar spurningar?

Operator

Já, við erum með spurningar af netinu. Eigum við að bjóða einhverjum úr salnum að byrja, langar einhvern að?

Ef við þá kannski bara hef byrjað þetta á nokkrum spurningum frá Akur, Alexander Jenssen. Fyrsta spurningin er: Hvernig sjáið þið vaxtamuninn fyrir ykkur þróast næstu misseri?

Hversu mikil áhrif hefur endurfjármögnun í erlendri mynt?

Eiríkur

Já, ég held að hafi kannski aðeins komið inn á þetta áðan. Sem sagt að áhrifin af endurfjármögnuninni mun koma á næstu fjórðungum.

Og svona okkar mat að það muni hafa svona eitt og sér 0,1 til 0,2% hækkun á vaxtamuninn í för með sér. Og svo því til viðbótar að þá þegar við notum meira af fjármögnuninni til sem sagt útlánavaxtar á arðbærari hátt að það mun líka styðja við vaxtamuninn.

Þannig að svona já, þetta hefur svona jákvæð áhrif verður svona 0,1, 0,2 bara af fjármögnun og svo eru aðrir þættir sem munu styrkja enn frekar myndi ég segja.

Operator

Næsta spurning er: Hver verða áhrifin á tekjur og kostnað við sölu á Straumi fram á veginn?

Ármann

Já, ég held ég hafi nú rúllað yfir þetta áðan en þú veist sem sagt þóknanir munu lækka aðeins. Ég man ekki alveg hver heildartalan þar.

Einhver í salnum sem að En það það nokkur hundruð hérna milljónir, en samsvarandi lækkun verður í kostnaði og endanlegu áhrifin á reksturinn eins og ég nefndi áðan eru eru bara nákvæmlega nánast núll. Og þá tekið tillit til alls, meðal annars framlags Straums til sameiginlegs kostnaðar eins og ég nefndi áðan.

Þannig að í raun og veru ef að fólk að meta ef að við til dæmis tækjum þennan rúmlega þú veist söluverðið á annan milljarð, ef við tækjum hann og kæmum honum í 20% arðsemi að þá ættum þá myndu nettóáhrifin til dæmis vera jákvæð 200 250 milljónir á á hérna í kringum 250 milljónir á ársgrundvelli. En þú veist til að byrja með þá náttúrulega eykur þetta eiginfjár hérna stöðu okkar þannig að það það líka auðvitað líkur á því að þetta endi bara í í auknum útgreiðslum.

Operator

Þriðja spurning hans er: Munu hagræðingaraðgerðir fyrst og fremst koma fram í launakostnaði eða líka í öðrum rekstrarkostnaði sem var óvenjulágur á síðasta fjórðungi?

Eiríkur

Já, það náttúrulega sko fyrst og fremst þetta í launakostnaði en það hefur í för með sér þegar launakostnaður lækkar og starfsfólki fækkar að þá lækkar annar kostnaður með að öllu jöfnu. En fyrst og fremst þetta launakostnaðurinn.

Operator

Og svo fjórða spurningin er: Hvernig tímalínan varðandi sölu á eignum í Bretlandi?

Ármann

Já, söluferlið sem sagt á bæði Cornerstone og síðan eignina á bak við lánið úti í Bretlandi mjög langt komið. Það að segja það eru komin fjöldi tilboða í báðar eignir þannig að við vitum svona sirka hvað stefnir í að söluverðið.

Það tekur hins vegar bara eins og margir þekkja að bæði þegar verið að selja fyrirtæki og líka þegar verið að selja fasteignir í Bretlandi að það tekur smá tíma að loka þessu. En ég mundi halda að hvoru tveggja sé líklegra til þess að falla í fjórða fjórðungi heldur en þriðja fjórðungi.

En þetta getur samt haft áhrif þó á afkomuna í þriðja fjórðungi ef þetta að gerast rétt eftir fjórðunginn. En það á eftir að koma í ljós.

Operator

Svo koma hérna nokkrar spurningar frá Helga Frímannssyni, Landsbankanum. Fyrsta spurningin er: Getið þið farið yfir hvernig þið sjáið fyrir ykkur að ná 20% ROTE-markmiðinu?

Hvaða þættir geta helst drifið þá bætingu og hvenær teljið þið raunhæft að bankinn geti skilað yfir 20% ROTE yfir lengri tíma?

Ármann

Já, eins og ég nefndi áðan, við það að í næsta fjórðungi þá efnislegt eigið fé sem bundið í rekstrinum í kringum 35 milljarðar, rétt rúmlega. Það þýðir það að við þurfum að skila 1.800 milljónum á fjórðungi.

Í þessum fjórðungi skilum við 1.550. Bara áhrifin á kostnaðarliðinn, það að segja við erum ekki að fara að taka aftur 100 milljónir í einskiptiskostnað á næstu fjórðungum og við erum að lækka launakostnað 100 milljónir á fjórðungi.

Þar bara 200, þannig að þar erum við komin í 1.750. Þar að auki í næsta fjórðungi að þá út af orlofsstöku verður kostnaðurinn væntanlega enn þá lægri sem munar 100 til 200.

Þannig að ef ekkert annað breytist þá erum við að fara að ná markmiðinu í næsta fjórðungi. Þetta sem við erum að ræða sem mun styrkja vaxtamuninn mun koma meira fram síðan í fjórða fjórðungi.

En þá erum við ekki náttúrulega með þessa orlofsstöku þannig að kostnaðurinn verður þá sirka sem munar 200 milljónir. Þannig að þess utan lítur margt ágætlega út eins og hvað varðar fjárfestingatekjur út af sölunni úti og lánabókar hafa stækkað.

Við erum vonandi ekki að fara að taka jafnháar niðurfærslur í næstu fjórðungum. Þannig að ég get ekki betur séð heldur en að við séum að fara að ná þessu í næsta fjórðungi og við munum líka ná þessu í þarnæsta fjórðungi og síðan bara áfram sko.

En ef að þetta gengur ekki eftir þá mælist þið til að þið takið það upp við næsta bankastjóra.

Operator

Næsta spurning er: Annar rekstrarkostnaður á öðrum fjórðungi lækkar 140 milljónir króna milli ára. Hvað skýrir það helst og hvernig sjáið þið þennan lið þróast næstu fjórðunga?

Eiríkur

Þetta bara tilkomið út af hagræðingaraðgerðum og kostnaðarhaldi og við sjáum bara áframhalda að hann verði bara áfram hóflegur þessi kostnaður og sé ekki einhverjar sérstakar hækkanir í honum. Þannig að þetta eru áhrifin af kostnaðarhaldi að koma fram.

Operator

Þriðja spurningin er: Hvernig metið þið samspil nýlegra hagræðingaraðgerða og getunnar til að efla og auka þóknanatekjur? Eruð þið með þeim aðgerðum að búa ykkur til dæmis við minni umsvifum á markaði næstu fjórðunga?

Ármann

Nei, sem sagt hagræðingaraðgerðirnar náðu í raun og veru yfir flest svið bankans. Þannig að þetta var ekki þannig að við værum að fækka mjög mikið sérstaklega í tekjusviðunum.

Það varð alveg fækkun þar í ljósi markaðsaðstæðna, en það ekki það sem að hefur áhrif á tekjumyndunina. Ef að markaðurinn tekur við sér að þá höfum við alveg nægan mannskap til þess að nýta okkur það.

Operator

Svo þá ein í viðbót, hún hérna: Hvar stendur ferli við ráðningu nýs bankastjóra og hvenær má vænta þess að niðurstaða liggi fyrir?

Ármann

Já, ég kem ekkert að þessu ferli. Þetta alfarið í höndum stjórnarinnar þannig að ég satt að segja veit ekkert mikið meira heldur en þið.

En ég veit að stjórnin vill náttúrulega það aldrei gott að hafa óvissu þessa hluti þó að ég geti alveg verið hérna fram að áramótum og kannski lengur ef þörf krefur, að þá það auðvitað markmiðið hjá stjórninni að reyna að tilkynna ráðningu sem fyrst. En við getum í raun og veru mjög lítið sagt þetta að öðru leyti.

Ég held að það séu væntingarnar til þess að það verði á næstu vikum, en bara það fer eftir ýmsu væntanlega, en við vitum bara ekkert mikið það.

Operator

Má bjóða einhverjum að bæta við? Þá held ég að við séum bara klár.

Ármann

Ókei, takk.