Kvika banki hf

Kvika banki hf

IICE:KVIKA
13.30
ISK
0.00
(0.00%)
1.12EPS
11.76P/E
61.04BMarket Cap

Q4 FY2025 · Earnings Call TranscriptFebruary 12, 2026

Ármann

Komið þið öll sæl að kynningu á uppgjöri bankans fyrir árið 2025. Ég ætla að byrja á að gefa smá yfirsýn yfir árið og síðasta ársfjórðunginn, og svo ætlar Eiríkur að koma og fara nánar í tölurnar og svo ætla ég að koma hérna upp aftur og tala aðeins hérna já útgreiðslugetu bankans og hérna og stöðuna í samrunanum sem nú líka aðeins samtengt.

En ef ég byrja á að taka bara svona saman það helsta sem gerðist hjá okkur á árinu, þá held ég að það sé óhætt að segja að síðasta ár var gríðarlega viðburðaríkt hjá Kviku. Þetta megi nú jafnvel færa rök fyrir því að þetta hafi verið viðburðaríkasta ár í sögu bankans og ef maður nefnir svona það helsta þá má kannski byrja á að segja frá sölunni á TM sem var auðvitað stórt skref fyrir okkur og teljum okkur hafa gert mjög góða sölu þar sem við seldum félagið fyrir 32,3 milljarða, það sem gerði okkur kleift að greiða út metfjárhæðir til hluthafa, 27 milljarða í fyrra, aðallega í gegnum arðgreiðslur en líka með endurkaupum.

Þá lauk við endanlega kaupunum á 100% hlutafjár í Ortus af stjórnendum. Þetta hefur verið gríðarlega vel heppnuð kaup hjá okkur og við það að kaupa eftirstöðvarnar, og gerðum það aðeins fyrr heldur en við höfðum upphaflega áætlað, þá eigum við núna 100% af hagnaðinum og þetta hefur líka gert okkur kleift að samtvinna starfsemina í Bretlandi miklu betur heldur en við gátum áður, sem hefur gengið bara prýðilega á árinu.

2025 var líka fyrsta starfsárið hjá Hörpu, sem sagt framtakssjóðnum sem stýrt hér af eignastýringunni en fjárfestir í Bretlandi í gegnum bresku starfseminnar. Og þessi sjóður, þó hann sé ekkert mjög stór, þá hefur hann umbreytt dálítið dýnamíkinni hjá okkur úti í Bretlandi.

Það svo miklu meira dílfló sem að fara þar í gegn og ýmis tækifæri sem eru að verða til sem að við höfum ekki séð áður. Þannig að fyrir utan fjárfestingar sem að sjóðurinn gerði, þá vorum við líka að selja niður fjárfestingar til viðskiptavina og auka þannig einnig meiri stýringu.

Og þannig að þetta hefur verið mjög mjög skemmtilegt. Nú stærsta nýjungin hjá okkur held ég á árinu megi segja að hafi verið Auður heima, íbúðalánin okkar sem að tókst mjög vel að koma af stað og hérna við enduðum árið með að vera með rúmlega 23 milljarða í íbúðalánum, sem var talsvert fram úr væntingum.

Stærsta verkefnið var held ég að megi segja að hafi síðan verið salan á hlut ríkisins í Íslandsbanka, stærsta útboð Íslandssögunnar og gríðarlega vel heppnað. Og ég held að við getum nú tekið dálítið mikið kredit fyrir þetta.

Við vorum auðvitað sem sagt söluaðilar ásamt Barclays og Citibank en salan náttúrulega þróaðist eins og allir vita þannig að þetta var allt selt á Íslandi þannig að allt útboðið var keyrt hér í gegnum Kviku og það var nánast ekki deild hérna innanhúss sem kom ekki að þessu og þó þetta hafi verið svona stórt og mikill fjöldi þá held ég að megi segja að þetta hafi bara gengið hnökralaust og við erum mjög stolt af þessu. Nú þá tókum við stór og mikilvæg skref í fjármögnun bankans, sérstaklega erlendis, og fórum meðal annars í fyrsta útboðið okkar á Evrópumarkaði.

Við höfum áður verið aðallega að gefa út fyrir utan landssteinana í Skandinavíu en gáfum út €200 milljóna skuldabréfaútboð í Evrópu sem jafnframt stærsta útboð í sögu bankans. Svo náðum við að fagna 10 ára afmæli bankans rétt eftir að við hófum samrunaviðræður við Arion sem standa nú yfir og ég fer aðeins betur yfir á eftir.

Það var mikið markvert sem gerðist á árinu en þetta var líka ár þar sem við sáum mikinn hagnaðarvöxt í undirliggjandi rekstri. Og hagnaður fyrir skatta nam rúmlega 6,2 milljörðum króna samkvæmt reikningi, en það eftir að við vorum búin að gjaldfæra tæplega 1,1 milljarð króna vegna þriggja aðgerða sem að allar eiga það sameiginlegt að styrkja rekstur bankans til lengri tíma og ég held maður geti með góðri samvisku kallað svona one-off liði.

Það var í fyrsta lagi að með því að flýta kaupunum á Ortus að þá gjaldfærðum við 580 skilyrta skuld, ég man ekki einu sinni hvað þetta heitir, en við það að þá eigum við núna 100% af hagnaðinum going forward. Og eins og ég nefndi áðan þá hefur gert okkur kleift að hraða samþættingu bresku starfseminnar.

Þá fórum við í að nýta þessar skuldabréfaútgáfur, stóru sem við fórum í úti í Evrópu og reyndar líka í Skandinavíu í fyrra, til þess að kaupa til baka eldri og dýrari útgáfur sem að eru á gjalddaga á þessu ári. Og það fól í sér að við þurftum að hérna borga smá yfirverð en sem að við gjaldfærum en fáum síðan aukinn vaxtamun fram á veginn.

Og þá færðum við niður einnig í tengslum við söluna á TM sem að síðan í kjölfarið hefur orðið til að lækka heldur rekstrarkostnað bankans. Og að teknu tilliti til þessara atriða þá var undirliggjandi rekstur að skila 7,3 milljörðum króna í fyrra sem aukning rúm 25% á milli ára.

Þá var líka gaman að segja frá því og sjá hvað hefur gengið vel hjá okkur að efna þessa strategísku sýn sem að við kynntum á fjárfestadeginum sem við héldum hérna í lok ágúst þar sem að við vorum svona að segja frá okkar plani eftir að við höfðum ákveðið að selja TM. Og þar kom til dæmis fram að við værum að stefna að því að tvöfalda lánabókina fram til 2027, taka hana úr sem var þá 140-50 milljarðar þegar fundurinn var haldinn, og taka þetta upp í 280-300 milljarða árið 2027.

Og þetta fer alveg hérna mjög vel af stað og við erum í að skila lánabók núna í árslok sem 208 milljarðar, aukning upp á tæplega 60 milljarða á árinu. Og það gaman að segja frá því að það eiginlega bara spot-on eins og áætlanir okkar gerðu ráð fyrir sem við kynntum.

Við vorum líka að segja frá því á þessum fundi að við vildum breyta dálítið samsetningunni á lánabókinni og sem sagt stærsti parturinn þar var að koma inn með meiri íbúðalán en svona fara í aukin vöxt í fyrirtækjalánum hérna heima og hérna úti í Bretlandi. Og við hérna núna í árslok að þá var eiginlega þetta hlutfall eiginlega strax komið nokkuð eins og við höfum viljað sjá það.

Við vorum að gera ráð fyrir að bílalán dyttu niður, þau voru hærra hlutfall, dyttu niður í 20-25%, það núna komið í 27. Við vorum að gera ráð fyrir að neytendalán væru á milli 3 og 5%, þau eru í 3,9%.

Íbúðalánin, sem við vorum að gera ráð fyrir að við myndum fram til 2027 ná upp í 10-15%, það fór hraðar af stað heldur en við gerðum ráð fyrir og íbúðalán eru núna 11,2% af heildarlánabókinni. Í Bretlandi erum við að stefna að þetta sé svona 20-25% og enduðum árið tæplega 20%.

Ég á von á því að vöxturinn verði hlutfallslega hraðari í Bretlandi á þessu ári og síðan gekk gríðarlega vel í fyrirtækjalánunum sem við vorum að stefna að yrðu 30-40% af bókinni en eru núna 38%. Þannig að það ekki bara við höfum stækkað lánabókina á síðustu tveimur árum heldur hefur hún hérna að mínu mati hún orðin dreifðari og hún orðin í raun og veru áhættuminni.

Nú þá töldum við okkur nú vera ágætlega metnaðarfull að samhliða þessum mikla vexti ætluðum við að greiða út 30-35 milljarða til hluthafa á árunum 2025-2027 en við erum þegar hérna búin að borga 27 milljarða eins og ég nefndi áðan. Og ég að fara að segja frá hérna getu okkar til þess að greiða út á þessu ári, sem auðvitað háð samrunanum, en miðað við getu okkar að þá erum við að tala að strax í ár verðum við búin að greiða umtalsvert hærra heldur en hærri mörkin sem við stefndum að borga fram til 2027.

Það sem ég myndi segja að við erum að vinna að en erum ekki alveg komin í mark með arðsemismarkmiðið sem að 20% af efnislegu eigin fé fyrir skatt. Og hérna við vorum með í 2024 18,8 og miðað við þetta þegar maður tekur tillit til einskiptisliðanna þetta 16,8% í fyrra.

Og hérna ég held að ein stærsta ástæðan fyrir þessu að þetta að minnka og þetta ekki alveg í 20% það að við höfum verið með gríðarlega mikið capital eftir söluna á TM og það fer náttúrulega eins og enn og aftur eftir því hvernig þetta verður með samrunann, en ef að við höfum allavega mikla getu til þess að vinna með miklu meira efficient balance sheet sem mun í raun og veru án mikilla annarra aðgerða skila okkur upp í 20%. Nú ef ég fer yfir síðasta fjórðunginn á árinu, þá nam hagnaður fyrir skatta 1.522 milljónum króna sem smávægileg lækkun milli ára.

Ég held svona ef maður væri að horfa fram á veginn undir venjulegum kringumstæðum hefði þessi hagnaður átt að vera nær 2 milljörðum en það voru óvenjumargir einskiptisliðir á þessum ársfjórðungi og svo sem í báðar áttir. En ég vildi samt sérstaklega nefna tvo sem voru dálítið stórir.

Í fyrsta lagi þá hérna keyptum við dýran skuldabréfaflokk til baka sem að við höfum gefið út í Skandinavíu og það kallaði á tæplega 200 milljóna króna gjaldfærslu en að skila sér síðan í hærri vaxtamun eftir það. Og síðan urðum við að færa niður 150 milljónir króna árangurstengda þóknun eignastýringunni í kjölfarið á söluferli með eitt stærsta fasteignasafnið sem í stýringu hjá okkur en hérna niðurstaða úr söluferli sem við vorum með þar var talsvert undir væntingum hjá okkur, sem voru smá vonbrigði.

Annars vegar mjög jákvætt að sjá vöxtur í vaxtatekjum var mjög mikill milli ára og það trend sem að einkenndi dálítið árið í fyrra og við erum bara held ég að horfa fram á að haldi áfram og þetta var í fyrsta skipti sem við náum hreinum vaxtatekjum sem yfir 3 milljörðum. Þóknanatekjurnar voru kannski vonbrigðin og drógust saman milli ára.

Einskiptisliðurinn sem ég nefndi áðan vegur dálítið þungt, það skýrir ekkert allt. Það dálítið erfitt þetta þóknanaumhverfi hérna á Íslandi þegar kemur að miðlun og eignastýringu og fyrirtækjaráðgjöf og svo sveiflast þóknunin talsvert milli fjórðunga en við eigum svona í venjulegum fjórðungi myndi ég segja að við ættum að vera svona 1500 milljónir og yfir, þannig að þetta var svona óvenjulegur fjórðungur að því leytinu.

Sama má aðeins kannski segja kostnaðinn, að þetta var svona frekar þungur fjórðungur í kostnaði eins og reyndar hérna síðasti fjórðungurinn stundum. Og það skýrist á ýmsum ástæðum sem Eiríkur fer kannski aðeins betur yfir á eftir.

En ég held að við höfum í raun og veru mjög góða stjórn á kostnaði í undirliggjandi rekstri. Við höfum fækkað fólki frá því á árinu, sem sagt það eru held ég þremur stöðugildum færra hérna heldur en var í árslok hérna 2024 og launahækkanir hérna hafa verið í bara og undir hækkun launavísitölu.

Og við erum svona að gera ráð fyrir að kostnaður svona jafnaði þó að það sveiflast náttúrulega dálítið þessir fjórðungar eftir til dæmis orlofstöku, en við erum svona að gera ráð fyrir að kostnaður sé að jafnaði nær 3 milljörðum heldur en hérna 3,260 hérna eins og var núna. Ef ég fer bara aðeins stuttaralega yfir einingarnar þá gekk vel á viðskiptabankasviðinu.

Við vorum að stækka náttúrulega mikið þar lánabækurnar, bílalánin stækkuðu 17% á árinu. Ég var búinn að segja frá íbúðalánunum sem að auðvitað var mikil aukning og enduðum í yfir 23 milljörðum sem auðvitað mikil breyting fyrir okkur.

Það gekk líka vel í neytendalánum hjá okkur bæði í gegnum Aur og Netgíró sem að var með met síðasta fjórðung í veltu og svo vorum við að klára þarna mikilvægan áfanga hjá Straumi þar sem við vorum að færa allt færsluhirðinguna frá Rapyd til Adyen sem búið að vera stórt verkefni. Fjárfestingabankasvið átti mjög gott ár og kannski sérstaklega á lánasviðinu þar sem að við sáum lánabókina hérna stækka 47% og þetta hefur gengið frábærlega og átt mikið þátt í því hvað hefur aukist vaxtatekjur hjá okkur.

Í miðluninni þá hefur gengið alveg ágætlega, markaðurinn hefur verið svona upp og niður en átti prýðilegan síðasta fjórðung. Árið í heild í fyrirtækjaráðgjöf var mjög gott, vorum náttúrulega með mörg mjög stór verkefni sem gengu vel eins og kannski Íslandsbankaútboðið sem ég nefndi, en síðasti fjórðungur var reyndar þetta fellur nú stundum svona misjafnlega þannig að það voru litlar tekjur bókfæri þarna í síðasta fjórðungi en lítur ágætlega út með árið.

Í eignastýringu að þá var afkoman aðeins undir væntingum á árinu enda aðstæður á þeim markaði eru bara mjög erfiðar. Það mikil samkeppni þarna á milli aðila, lífeyrissjóðir eru að taka meira og meira til sín í stýringu og markaðsaðstæður voru svona frekar í lakari kantinum þó að þetta hafi nú kannski aðeins verið að ganga betur eftir því sem leið á árið.

Það gekk hins vegar ágætlega að auka eignir í stýringu sem jukust tæplega 10 milljarða á síðasta fjórðungnum og rúmlega 12 milljarða yfir árið. Og þar skipti stóru máli þarna tveir sjóðir sem við settum upp í fyrra.

Annars vegar Hörpusjóðurinn sem ég nefndi áðan sem samstarfsverkefni eignastýringar og Bretlands og síðan veðskuldabréfasjóðurinn ACF 5. Nú við áttum enn einn metfjórðunginn í Bretlandi þar sem bæði lánastarfsemin og framtaksfjárfestingar, það að segja private equity fjárfestingarnar, hafa gengið mjög vel.

Harpa, eins og ég nefndi áðan, hefur gjörbreytt umsýslunni hvað varðar fjárfestingarverkefni í Bretlandi og það mjög mikið að vera á skrifstofunni út af því. Við seldum síðan helminginn af stöðu okkar í breska fyrirtækinu sem heitir Disturbia á fjórðungnum sem að kannski sumir þekkja sem skilaði talsverðum fjárfestingatekjum á fjórðungnum en bara frá upphafi þá fórum við í þessa fjárfestingu í árslok 2023 og hérna en hún hefur gengið frábærlega en við eigum enn þá helminginn í henni.

Það var bandarískur sjóður sem að keypti sig inn í félagið. Og það stefnt að því að hérna að stefna á frekari vöxt þar náttúrulega.

Þá langaði mig að nefna á lánahliðinni erum við aðeins að auka fókusinn okkar aðeins á fasteignaláni á Írlandi. Við höfum alltaf verið með svona 15-20% af bókinni á Norður-Írlandi og svo höfum við verið að færa okkur aðeins í að hérna auka lánveitingar á Írlandi þar sem við sjáum mjög áhugaverð tækifæri og erum aðeins að fara að gera meira af því og svo erum við farin að taka þátt í einstökum fyrirtækjalánum, einkum verið að vinna með hérna OakNorth bankanum í Bretlandi sem við höfum unnið með í hérna í mörg mörg ár.

Og þannig að við erum aðeins að auka hvað eigum við að segja dreifinguna á bókinni og þetta líka gerir okkur kleift að vaxa aðeins hraðar úti í Bretlandi. Og kannski ein ástæðan af hverju ég nefndi að við gerum ráð fyrir að það muni stækka dálítið hraðar á næsta ári úti.

Heyrðu, en ég ætlaði þá bara að gefa Eiríki orðið. Gjörðu svo vel.

Eiríkur

Heyrðu þá ætla ég að renna aðeins yfir uppgjörið. Má sjá.

Og kannski kannski bara byrjum aðeins að hérna fara hérna kannski hérna yfir hérna vaxtatekjurnar. Það kannski það svona kannski sem mjög sterkur punktur í þessu uppgjöri.

Það eru 3 milljarðar 65 milljónir samanborið við 2,4 milljarða ári áður, hækkun upp á 567 milljónir eða tæplega 23%. Og hérna þóknanatekjurnar þær dragast aðeins saman, kannski fer aðeins eins og Ármann fór yfir þá var þarna var þarna niðurfærsla á árangurstengdri þóknun í í hérna í eignastýringu en einnig voru aðrir þættir sem að voru kannski ekki ekki mjög sterkir svona.

Aðrar rekstrartekjur þær voru góðar, 642 milljónir. Gekk vel í fjárfestingum bæði í Bretlandi og hérna heima.

Og heildarrekstrartekjur eru 4 milljarðar 972 milljónir samanborið við 4,7 milljarða ári áður. Rekstrarkostnaður hann eykst á milli ára 13% en undirliggjandi kostnaður hann að aukast sirka 7%.

Fer betur yfir það á eftir. Aðrir þættir, virðisrýrnun hún eykst aðeins á milli ára en hún stöðug, þarna í kringum 30 punkta á lánabók.

Og hagnaður fyrir skatta hann 1.522 milljónir og dregst aðeins saman á milli ára, var 1.601 milljón fyrir ári síðan. Hagnaður eftir skatta 1.266 milljónir samanborið við 1.528 milljónir í fyrra.

Og ef við skoðum hagnað samstæðunnar að þá hann líka 1.266 milljónir samanborið við 3,4 milljarða ári áður. En í fyrra þá náttúrulega var árið 2024 þá var náttúrulega var var hérna var afkoma TM inni í samstæðunni og það var gott uppgjör góð afkoma á TM á þeim tíma sem skýrir þennan mun.

En í heildina bara ágætis fjórðungur í svona í heildina. Nú ef við skoðum árið í heild að þá svona sömu sögu að segja, að vaxtatekjur eru mjög sterkar og eru að aukast á milli ára, eru 12 milljarðar eða tæplega 12 milljarðar, 11,9 milljarðar, aukast 2,2 milljarða á milli ára.

Þóknanatekjur þær aukast einnig lítillega á milli ára og kannski drifkrafturinn þar að það voru mjög mjög gott gott ár í fjárfestingabanka í fyrirtækjaráðgjöf, voru stór verkefni sem kláruðust á árinu mitt ár og og skiluðu mjög mjög hérna góðum þjónustu þóknanatekjum. Einnig voru fjárfestingatekjur bara mjög sterkar heilt yfir árið, 1.200 milljónir, dragast lítillega saman á milli ára.

Og og rekstrartekjur í heildina 19,4 milljarðar samanborið við 17, 17,2 milljarða ári áður og aukning upp á 2,2 milljarða á milli ára. Rekstrartekju rekstrarkostnaður hann eykst á milli ára já tæplega 14% úr úr 10,6 milljörðum í í í 12, rétt rúmlega 12 milljarða.

Hérna virðisrýrnun hún bara nokkuð stöðug, lækkar lítillega á milli ára og í sjálfu sér ekkert að frétta þar. Það eru litlar breytingar á á útlánagæðum og og í rauninni bara mjög stöðugt.

Svo það hérna endurmat á skilyrtri skuld. Hún sem sagt 604 milljónir yfir árið og það þessi einskiptisliður sem að Ármann minntist á hérna rétt áðan sem að sem sagt hérna kaupin á eftirstæðum hlut stjórnenda Ortusar eða stofnenda Ortusar og hérna sem að sem sagt upp á 580 milljónir sem að skýrir þetta.

Enda náttúrulega hlutur sem að sem að svo styrkir afkomu okkar til framtíðar. Hagnaður fyrir skatta 6,2 milljarðar samanborið við 5,8 milljarða ára árið á undan sem aukning upp á 400 milljónir á milli ára.

Skattar eru samtals 1.800 milljónir og og hagnaður eftir skatta því 4,3 milljarðar samanborið við 4,7 milljarða árið á undan. Hagnaður samstæðunnar að teknu tilliti til afkomu TM á fyrsta ársfjórðungi í fyrra og alls ársins í í 2024 sex koma 6 milljarðar 264 milljónir samanborið við 8,2 milljarða árið á undan.

Ef við skoðum aðeins vaxtatekjurnar þá þetta klárlega svona svona mjög sterkur hluti í í í í í þessu uppgjöri og þær eru þarna eru að aukast já rúmlega rúmlega 500 milljónir króna á milli fjórðunga. Og það sem að keyra á sem sagt að styrkja vaxtatekjurnar náttúrulega bæði stækkandi lánabók og batnandi fjármagns hérna fjármagnskjör.

Og hérna þannig að þannig að hérna lánabókin einmitt var að var að styrkjast bæði hérna bæði í fyrirtækjalánum og svo komu líka íbúðalán. Þannig að þannig að það það var að bæta hérna vaxtatekjurnar talsvert.

Og svo voru líka hérna vorum við líka að greiða upp óhagstæðari skuldabréfaflokka á árinu og endurfjármagna á hagstæðari kjörum sem líka að hérna að að styrkja vaxtatekjurnar. Og þið sjáið þarna vaxtamuninn að hann að aukast á milli fjórðunga úr úr úr 4% í 4,3% og milli milli ára úr úr fjögur úr 3,8 í 4,3%.

Þannig að þetta klárlega styrkur. Og við sjáum ekki annað heldur en að bara vaxtatekjur verði áfram sterkar.

Ég meina va hérna lánabókin að stækka, við erum að greiða upp eldri skuldabréfaflokka já þú veist á árinu sem að eru eru dýrari heldur en núveru núverandi fjármögnunarkjör gefa til kynna. Þannig að við sjáum fram á að þetta verði bara áfram áfram mjög sterkt.

Ef við skoðum svo þóknanatekjurnar þá klárlega hérna ef að ef það eru einhver vonbrigði í í þessu uppgjöri þá þá held ég að megi segja að það séu séu séu þóknanatekjurnar. Sjáum að þóknunin í eignastýringu lækkaði 225 milljónir á milli á milli ára.

Það var þessi einskiptis niðurfærsla eða bakfærsla á á á árangurstengdri þóknunum í í út af út af fasteignasafni upp á 150 milljónir í í í fjórðungnum. En svo eru líka aðrar tekjur aðeins að draga saman.

Þóknanir af af af af af hérna miðlun og og og fyrirtækjaráðgjöf draga saman á milli frá fyrra ári en hérna það eru talsvert sveiflukenndar. Og hérna kannski árið í heild heild sinni var bara bara ágætt sérstaklega í í hérna í fyrirtækjaráðgjöf og og líka líka í miðlun framan af ári.

En hérna en kannski síðasti fjórðungur var var kannski ekki jafn sterkur eftir eftir eftir gott ár framan af. Þannig að það kannski skýrir þessa lækkun á milli á milli ára.

Aðrar rekstrartekjur hérna eru fjárfestingatekjurnar, þær eru bara mjög sterkar. Við sjáum að við erum að hérna fjárfestingatekjur í Bretlandi eru þarna 355 milljónir og svo líka bara góð afkoma hér af af hérna í fjárstýringu og og markaðsvakt hérna á Íslandi, 165 milljónir.

Og inni í þessum tölum búið að taka tillit til gjaldfærslu út af endurkaupum á á hérna á á skuldabréfum upp á 190 milljónir. Þannig að hérna þannig að það væri enn þá sterkara ef að ef þess hefði ekki notið við.

Þannig að þetta bara mjög góður gangur á á á þessum liðum. Rekstrarkostnaður, rekstrarkostnaður svona hvað eigum við að segja, headline-talan að aukast tæplega 14% á milli ára.

Það þarf hins vegar að taka tillit til þess hér að að að því að í fyrra þá vorum við að úthluta kostnaði til TM eða TM var að taka þátt í sameiginlegum kostnaði sem að sem að og hérna Þannig að til að ná þessu á sama til þess að horfa á þetta svona á sama grunni og og kannski og og tekið tillit til svona kostnaðar sem að féll til á árinu, til dæmis við kostnað við samruna við ætlaðan samruna við Arion, að þá kostnaðarhækkunin 7%. Og það kannski svona það sem að sem að sem kannski raunverulegu undirliggjandi kostnaðarhækkun hjá okkur.

Og svo má kannski deila það hvort að það sé mikið eða lítið þegar við erum að horfa á að hérna að verðbólga á sama tíma 5% og launavísitala var að hækka 7% á árinu. Þannig að það talsverður undirliggjandi undirliggjandi kostnaðar hérna kostnaðarhækkanir.

Við erum samt mjög fókuserað á að halda kostnaði niðri eins og sést hérna í í í í starfsmannafjölda. Ég meina starfsmönnum já fækkaði þrjá frá fyrra ári.

Ég meina við það í sjálfu sér já við höfum ekkert verið að hérna í sjálfu sér að bæta við fólki eða eða auka almennt kostnað í rekstri. Þannig að þannig að þannig að kostnaðarhald alveg alveg alveg lykilatriði hér.

Hérna ef við skoðum efnahagsreikninginn að þá í sjálfu sér hann bara stærð hans í rauninni alveg óbreytt. Kannski kannski sem kannski breyting og sést ágætlega á þessari mynd að þarna bláa súlan sem sem hérna eru lán til viðskiptavina að það hlutfallslega að aukast á á kostnað lausafjáreigna sem neðri hlutinn neðri hlutinn á grafinu.

Og við sjáum það kannski bara betur betur hér á þessari mynd. Ef við skoðum hérna neðri myndina að þá sjáum við að að hérna að að að lán til viðskiptavina eru að aukast 47 milljarða, nei 57 milljarða á á á hérna á árinu.

Það gekk mjög vel í í í í hérna já á hérna fjárfestingabankasviði í fyrirtækjalánum sem eru að aukast úr þarna 46 eða 47 milljörðum í 70 í tæplega 77 milljarða. Og þetta allt hérna á Íslandi.

Minni hækkun í Bretlandi úr 40 40 43 tæplega. En síðan viðbótin kannski stærsta að við vorum að veita íbúðalán á miðju ári og og sem voru í rauninni bara hverfandi hérna í í í í lok árs 2024 að þau voru 23,2 milljarðar í lok síðasta árs.

Þannig að það bara mjög góður gangur á á á þessu hjá okkur. Skuldir, ég ætla nú aðeins að stökkva yfir já skuldir, ég ætla nú bara að hoppa yfir þessa, ekkert merkilegt þarna.

Útlánagæði, eins og áður segir það í rauninni bara voða lítið að frétta hér. Virðisrýrnun að að að breytast voða lítið milli ára, í rauninni bara mjög stöðug og og við sjáum hérna að að hérna afskriftareikningur útlána og annað slíkt það bara bara bara mjög á mjög mjög stöðugt á milli tímabila.

Lán á stigi 3 eru fara eru 2,9% samanborið við 4,5 4,1% fyrir ári síðan og 2,6% í á á síðasta fjórðungi, þannig að engar marktækar breytingar hér. Og við sjáum engar undirliggjandi marktækar breytingar á á útlánagæðum.

Bara alveg það alveg stöðugt. Innlán, innlán hérna eru 173 milljarðar, lækka aðeins á milli ársfjórðunga.

Það kom fram talsvert áhugaverð samkeppni á á innlánamarkaði í í upphafi í upphafi svona í kringum fjórða upphafi fjórða ársfjórðungs og þá urðu smá hreyfingar á á á hérna á innlánum einstaklinga í upphafi fjórðungsins en hefur síðan hefur verið stöðugt síðan þá. Þannig að það kannski skýrir þessa breytingu á milli fjórðunga.

Já. Þannig að þannig að í sjálfu sér ekkert annað að frétta hér.

Fjármögnun, fjármögnun bankans bara mjög sterk. Eins og sést kannski hérna á efri myndinni þá höfum við verið að kannski hefur markaðsfjármögnun minnkað frá því mitt ár.

Við fórum í stóra skuldabréfaútgáfu í í maí eða byrjun júní. Og hérna og höfum síðan keypt til baka eldri skuldabréfaflokka sem skýrir þessa lækkun á milli fjórðunga.

Hérna svo hérna endurgreiðsluferill lána, hann bara mjög hóflegur. Við erum með 14 milljarða í í sem eru til endurgreiðslu á á þessu ári, 7 milljarða í krónum á næsta ári og svo næst þarna árið 2028, þannig að það bara mjög hóflegar endurgreiðslur af af af af af af hérna af fjármögnun á komandi misserum.

Og öll svona fjármögnunarhlutföll eru gríðarlega sterk. Þið sjáið þarna MREL-hlutfallið langt yfir yfir öllum öllum hérna öllum kröfum og mörkum.

Lánshæfismat, við erum með Baa2 lánshæfismat frá Moody's á á með stöðugum horfum og sem bara sem bara teljum bara bara að vera mjög sterkt og á mjög góðum stað. Lausafjárstaða, lausafjárstaðan áfram gríðarlega sterk.

Við erum með lausafjárhlutfall, það lækkar aðeins á milli tímabila en það kemur til af því að við erum að greiða til baka þessa skuldabréfaflokka sem ég nefndi hérna áðan en en við erum samt með bara mjög sterka stöðu bara til að halda áfram til vaxtar og annað slíkt, þannig að þannig að við munum nýta okkur það í framtíðinni. Og þetta klárlega lykilstyrkleiki svona í í fjárhagslegri stöðu bankans að vera með þetta sterka lausafé.

Nú svo það hérna hérna eiginfjárstaðan, að hún styrkist mikið á milli á milli fjórðunga. Þið sjáið hérna CAR-hlutfallið fer úr 23% í 26,8% og svona stærsti stærsta ástæðan fyrir því eru þessar breytingar sem að urðu á á reglum á á hérna á á á lögum áramót.

Það sem sagt að þessar svokölluðu CRR 3 reglur tóku gildi Evrópusambandsins tóku gildi áramótin sem hafði þau áhrif að áhættugrunnur, eins og við sjáum þarna á neðri myndinni, hann lækkaði 17%. Og og þar af leiðandi kom til hækkunar á á hérna á á á á eiginfjárgrunninum.

Þannig að þetta bara gríðarlega sterkt og kannski Ármann ætlar aðeins að fara yfir það á eftir hvernig hvernig við sjáum svona framtíðina fyrir okkur í þessum efnum. Við erum þarna línan sem þarna hún sýnir kröfurnar kröfur eftirlitsaðila og við erum með sem sagt tæplega 9% tæplega 9% yfir sem sagt lögboðnum kröfum.

Þannig að þannig að sem náttúrulega og markmið bankans að vera 2-4% yfir yfir kröfum. Og svo bara markmiðin okkar náttúrulega okkar fjárhagsleg markmið að vera með arðsemi efnislegs eiginfjár yfir 20% og og hérna og á árinu 2000 25 vorum var var það 14,5% og á fjórða ársfjórðungi 13,2.

Það náttúrulega sterkur undirliggjandi rekstur í bankanum og svo höfum við hérna ákveðin tæki í kringum varðandi að ná fram hagstæðustu samsetningu eiginfjár sem að sem að kannski getur tekið okkur yfir yfir yfir þetta upp í þetta markmið. Eiginfjárhlutfall þar markmið að vera 2-4% yfir mörkum eftirlitsaðila.

Við erum tæplega 9% yfir og hérna þannig að það bara aftur á sama grunni. Og svo það hérna arðgreiðsluhlutfallið, það 25%.

Það voru sérstakar aðstæður á síðasta ári þar sem að við greiddum út mjög stóran arð út af sölunni á TM og og vorum í endurkaupum, samtals verið tæplega 27 milljarðar, þannig að það var 431% en hérna arðgreiðsluhlutfallið en en svona að jafnaði að þá stefna okkar að vera með það í kringum 25%. Heyrðu nú ætlar Ármann að koma aftur og kannski fara aðeins yfir svona næstu skref í kringum samrunann og annað slíkt.

Ármann

Já, kannski byrja aðeins á að fjalla fjármagnsskipanina okkar. Hérna eins og hefur náttúrulega komið fram í þessari kynningu hefur verið bankinn verið rekinn með mjög miklu umframeigiðfé í kjölfar sölunnar á TM, arðbærs rekstrar og og síðan það sem að kemur núna með þessari CRR löggjöf sem hérna þar sem að áhættuvogun eigna mun hagstæðari fyrir okkur heldur en var áður, það að segja lánasafnið okkar bindur minna eigið fé heldur en það gerði.

Þetta virkar nú svona stundum eins og við höfum fengið svona lottóvinning en ég vildi nú nefna sko að mér finnst þetta það sem að gerast með þessari löggjöf að það í raun og veru bara held ég að endurspegla miklu betur styrkleika lánasafns banka eins og okkar. Þess vegna var þetta hlutfallslega höfðum mest áhrif hér þó þetta hafi líka haft reyndar mikil áhrif á íslensku bankana.

Ég held almennt séð hafi þetta hjálpað íslensku bönkunum mikið miðað við annars staðar. En þarna það sem að gerast í raun og veru að það verið að taka miklu meira tillit til þess hversu þegar hversu góðar tryggingar eru á bak við lánin.

Og það sem hefur einkennt lánabókina hjá Kviku eiginlega bæði hérna á Íslandi og úti í Bretlandi að við leggjum mikla áherslu á að vera með mjög vel tryggð lán, yfirleitt í fasteignum en eins og líka í bílum og tækjum í gegnum Lykil. Og áður en þessi breyting varð að þá þá vorum við stundum með lán hérna inni sem voru kannski tryggð með fyrsta veðrétti í í góðu húsnæði hérna og með 50% veðsetningarhlutfalli en við þurftum að setja 150% áhættuvægi á þetta af því að lántakinn hafði hug á að selja eignina.

Þetta voru einhverjar mjög skrítnar reglur, þannig að þetta orðið miklu eðlilegra og í raun og veru myndi ég segja að við höfum verið að náttúrulega halda verið með allt of allt of lágt eiginfjárhlutfall en það allavega búið að breyta því. Og hérna en þetta þetta þetta mikla eigið fé sem við höfum verið með og og háa eiginfjárhlutfall, þetta hefur auðvitað neikvæð áhrif á arðsemi eiginfjár og það að sjálfsögðu ekki markmið okkar að reka bankann með svo miklu umframeigiðfé til langs tíma.

Og við stefnum að sem hagstæðastri fjármagnsskipun og þá erum við að horfa til þess að að eiginfjárhlutfall bankans verði í kringum 20,9%, það að segja krafan 17,9% frá frá hérna Fjármálaeftirlitinu og svo erum við með management buffer sem 2-4% og ef við miðum við að vera bara í miðju því bili að þá þá kemur þá út sem 20,9%. Það sem við höfum hug á líka fyrir utan að vera með þetta í kringum 21% að hérna að líka nýta okkur þessa getu til að að ráðast í AT1 útgáfu og það eitthvað sem að við höfum hug á að að gera og mögulega á árinu.

Og ef að við ráðumst í hana og og stefnum að því að taka hérna CAR-hlutfallið úr 26,8 í 20,9 þá þýðir það það að að að umframeigiðfé sem við gætum komið til hluthafa á þessu ári, án þess að hafi nokkur áhrif á okkar hérna vaxtarplön sem eru náttúrulega metnaðarfull eins og þið vitið, að þá það tala upp á allt að 15 milljörðum, sem náttúrulega dálítið mikið há tala miðað við markaðsvirði bankans. Hvað við síðan gerum nákvæmlega á árinu að það ræðst auðvitað dálítið af yfirstandandi samrunaviðræðum.

Og það í raun og veru þrír möguleikar held ég sem að bara getur sagt sér eiginlega að að verða. Annað hvort verður samruninn og það verður ákveðið að greiða ekki neitt neinn arð umfram það sem að við greiðum á aðalfundinum.

Síðan gæti sú ákvörðun verið að samruni verði en það verði ákveðið að sameinaði bankinn þurfi ekki svona mikið eigið fé og hluti af af þessu excess eigifé hjá okkur verði greiddur út fyrir samruna. Og svo auðvitað sá þriðji möguleiki til staðar, sem vonum nú ekki, að samruninn verði ekki og þá myndum við fara má gera ráð fyrir að bankinn fari bara í þessa heildarútgreiðslu sem við erum að nefna hér.

Og talandi samrunann þá ætlaði ég að ljúka þessu með nokkrum orðum stöðuna. Þetta nú ekki mikið af nýjum fréttum.

Við erum í raun og veru bara að að hérna að halda áfram þessum viðræðum við Samkeppniseftirlitið og þær þær ganga eigum við ekki að segja bara gangi ágætlega en auðvitað ég skal viðurkenna að við höfðum kannski væntingar til þess að að þær hefðu gengið hraðar en þetta bara stór samruni og þetta tekur langan tíma og hefur farið mjög mikið í náttúrulega í gagnasöfnun sérstaklega í í fyrra en við erum núna að komast í hvað eigum við að segja, erfiðari samtölin eða svona meiri svona samtöl þar sem við sjáum vonandi á næstu vonandi á fjórðungnum eða í byrjun næsta fjórðung hvort að þetta að ganga allt heim og saman eða ekki. Og við látum auðvitað bara vita leið og og og eitthvað gerist í því.

En þetta bara hefur sinn gang og gengur bara prýðilega en þetta bara tekur lengri tíma heldur en maður ætlaði. Heyrðu, þá held ég að það sé bara komið.

En hérna við ætluðum að bjóða upp á spurningar. Vala hérna með með míkrafóninn ef einhver vill spyrja.

Vala

Einhver í salnum sem vill bera upp spurningar? Ég get kannski bara byrjað á nokkrum sem okkur hafa borist.

Við fengum spurningu sem að segir: Vaxtamunur hækkar töluvert milli fjórðunga. Hvort vegur þyngra, stærri lánabók eða betri fjármögnunarkjör og hvernig sjáið þið fyrir ykkur vaxtamuninn á þessu ári?

Eiríkur

Já, kannski bara byrja á þessu. Hvort vegur þyngra, ég held að svona útlánavöxturinn og það að við erum að fara úr sem sagt að vera með sem sagt hluta af eignum okkar í lausafjáreignum yfir í útlán, það að hafa mjög góð áhrif á vaxtamuninn.

En það svo náttúrulega líka þetta með að við séum að greiða upp óhagstæðari fjármögnun og fjármagna okkur á betri kjörum, það náttúrulega í sjálfu sér mjög mikilvægur þáttur líka. Og vaxtamunurinn á þessu ári, ég held að hann bara verði sterkur áfram.

Þetta trend eitthvað sem í gangi að hérna sem sagt að lánapakkarnir eru að stækka á mjög arðbæran hátt og hérna og fjármögnunarkjörin eru að batna. Þannig að og það sem við sjáum líka bara kannski þegar náttúrulega bötnuðu í þeim útgáfum sem við fórum í í fyrra en líka bara fram á veginn og bara markaðsaðstæður eins og þær eru núna þá gefur svona manni vonir framhaldið að þetta muni halda áfram að styrkjast sko.

Vala

Þakka þér fyrir. Þið segið að fyrirtækjaráðgjöfin hafi átt metár en tekjumyndun á fjórða ársfjórðungi sé takmörkuð vegna tímasetningar verkefna.

Pípan sterk. Hvernig sjáið þið fyrir ykkur tekjumyndun á árinu samanborið við 2025?

Ármann

Já, ég held sko við vorum náttúrulega í fyrra það vó dálítið þungt þarna mjög stórt verkefni sem var útboð Íslandsbanka og svo framvegis. Maður veit ekki ef ríkið ákveður ekki að setja Landsbankann á markað þá held ég að það verði aðeins erfitt með að ná jafnmiklum þóknanatekjum á þessu ári.

En ég held að pípan bara prýðileg og við eigum von á ágætis ári.

Vala

Hér spurt, hvernig tímalínan í útgáfu á AT1? Viljið þið bíða með útgáfu þar til línur skýrast varðandi samrunann?

Ármann

Já, ég held að sko hérna við gætum örugglega gefið út AT1 núna bara á næstu vikum eða mánuðum en það liggur náttúrulega fyrir að á meðan að samrunaferli í gangi að þá myndum við aldrei gera slíkt nema það væri þá í hérna í samtali við Arion. Þannig að við eigum bara aðeins eftir að sjá, þetta aðeins eins og með útgreiðslurnar að það svona hlutir sem að við getum ekki tekið í raun og veru ákvörðun fyrr en við sjáum hvernig þetta endar með samrunaviðræðurnar.

Vala

Spurt, hvað finnst ykkur ásættanlegur vöxtur í rekstrarkostnaði á þessu ári?

Eiríkur

Ég veit ekki alveg hvað ásættanlegt en hérna það sem að hérna við erum að svona miða við að náttúrulega og það sem að ræður vexti í rekstrarkostnaði eru undirliggjandi bara verðlagshækkanir og launahækkanir bara almennt í þjóðfélaginu. Þannig að hlutir bara eins og breytingar á kjarasamningum og bara almennar verðlagshækkanir eru það sem keyra það áfram.

Og við erum að miða við bara í núverandi umhverfi að hérna kostnaðarhækkanir séu á bilinu 4-5%, bara 4-5%, svipað bara eins og verðlagshækkanir eru.

Ármann

Ég held við erum að gera ráð fyrir svona að jafnaði sé þetta kannski rétt rúmlega 3 milljarðar á ársfjórðungi og þá rétt rúmlega 12 milljarðar yfir árið. En þetta sveiflast náttúrulega dálítið mikið eftir ársfjórðungum.

Þriðji ársfjórðungur verður örugglega dálítið undir 3 milljörðum og hinir þrír verða örugglega dálítið aðeins yfir 3 milljörðum. Þetta eitthvað svona.

Eiríkur

Já.

Vala

Ég með eina í lokin hérna úr tölvupóstinum. Það spurt, hvað útskýrir hækkun á virku skatthlutfalli á ársfjórðungnum sem og á árinu?

Eiríkur

Já, sko það náttúrulega bara samsetning tekna sem að skiptir mestu máli. Það náttúrulega voru sem sagt hlutir eins og staða á framvirkjubók hérna tekjur af því hefur mikið áhrif á skatthlutfallið.

Og hérna og það kannski bara sú samsetning sem að var öðruvísi á síðasta ári heldur en árið á undan. Og svo voru komin gjöld í fyrra sem að voru ekki hérna eins og til dæmis hérna endurmat á skilyrtri skuld vegna Ortusar að það ekki frádráttarbært frá skatti.

Þannig að það eru ýmis atriði sem hafa áhrif á skatthlutfallið hjá okkur. Og skattaliðirnir venjulega bara hreyfast rosalega mikið í þessu fyrirtæki.

Og það kannski svona líka bara til að bæta við að það ástæðan fyrir að við horfum alltaf á arðsemi fyrir skatt til að vera ekki að taka inn þennan rosalega sveiflukennda lið.

Vala

Vill einhver bæta við?

Helgi Frímann

Já, góðan daginn, Helgi Frímann hjá Landsbankanum. Hérna mig langar aðeins að spyrja ykkur með tímalínuna á samrunaviðræðunum.

Man ekki hvort það væri í október eða nóvember síðasta uppgjör þar sem þið sögðuð að svona vonuðust eftir að hafa getað verið með einhverja mælistikuna fyrir áramót. Nú segið þið að það tírendra sögu en Arion sagði svona öðru hvoru megin við páska.

Hversu vel líður ykkur með þessa tímalínu? Og kannski svona í framhaldi af því, ég held að það hafi verið bara mitt ár í fyrra þegar það var talað svona 9-12 mánuði að þetta myndi klárast.

Sjáið þið það enn þá svona vera í augsýn að þetta gæti klárast mitt ár eða erum við að horfa kannski á eitthvað seinna á árinu svona miðað við eins og þið sjáið hérna viðræðurnar ganga núna?

Ármann

Já, einmitt. Ég held að ég hafi nú sagt í fyrra þarna megnið af árinu að hérna fyrst byrjaði ég að segjast að ég vonaðist til þess að hafa svona einhverjar línur í þessu hérna fyrir lok þriðja ársfjórðungs og svo þegar hann var liðinn þá byrjaði ég að tala að ég vonaðist til þess að hafa skýrari línur í þessu fyrir lok árs og nú maður að segja maður vonast til þess að hafa skýrari línur í lok fjórðungsins.

Þetta svona dálítið eins og maður að byggja hús, að ef maður vissi hvað þetta tæki langan tíma þá myndi maður örugglega aldrei fara í þetta en maður þarf að vera með svona ákveðna bjartsýni í þessu. En það samt að fara að draga til tíðinda núna og auðvitað hérna og mars, apríl, ég trúi eiginlega ekki öðru heldur en að við þá fáum svona einhverjar línur í þetta og þá verði ákveðið hvort það verði fælað eða ekki.

Og það fer auðvitað eftir bara hvað þessu samtali við hérna Samkeppniseftirlitið. Það sem að náttúrulega síðan þegar búið að fæla að þá vonast maður til þess, þetta kannski eins og ég sé að fara að byggja annað hús, að það taki líka miklu styttri tíma heldur en það myndi venjulega taka vegna þess að öll vinnan sem hefur verið gríðarleg af hendi okkar og náttúrulega ekki síður af hendi Samkeppniseftirlitsins á síðasta ári við að safna saman gögnum og gerir í raun og veru allt sem við myndum gera ef við hefðum verið bara að fæla strax í byrjun, að hún ætti þá að vera bara lokið.

En þannig að hvort að við náum þessu fyrir mitt ár eða við vorum einmitt hérna að tala daginn að svona kannski raunhæfara væri haustið eitthvað svoleiðis. En hérna en þetta aðeins maður aðeins að giska, það verður nú bara að viðurkennast.

En við erum að reyna að ýta þessu áfram eins og við getum, það ekki okkar hagur að hafa þessa óvissu hérna yfir okkur.

Vala

Einhverjir fleiri?

Ég var að pæla með bara hérna þóknanatekjurnar, nettóþóknanatekjur. Miðað við samstæðuna í dag og svona eðlilegt árferði, hvað getið þið skilað miklum þóknanatekjum?

Miðað við núverandi samstæðu náið þið í 7 milljarða?

Ármann

7, já. Ég held eins og ég nefndi áðan, ég veit ekki hvort þú vilt segja, en ég held að við teljum þetta vera svona í kringum 1500, 1500-1600.

Þetta búið að vera bara dálítið flatt núna mjög lengi, svo kom reyndar mjög góður fjórðungur í fyrra þarna í kringum Íslandsbankaútboðið sem hafði áhrif auðvitað í ráðgjöfinni en líka í miðluninni og svo kemur þessi fjórðungur núna í lokin sem var óvenju lár. En ég held við séum meira að tala einhverja svona 1500 já 15-1600 going forward.

Þetta aðeins við erum að sjá vöxt sum staðar en svo bara erfiðara annars staðar en ég held að þetta sé einhvers staðar þar ef maður á að gefa einhverja indication sem þá hvað? 6, 6 og hálfur.

Svo auðvitað ef það koma einhver stór verkefni þá getur það alveg breytt þessu og svoleiðis en þetta svona það sem við erum að horfa á.

Vala

Einhverjir fleiri?

Ármann

Já. Heyrðu, þá bara þökkum við kærlega fyrir.