Guðni
Góðan daginn og verið velkomin á afkomukynningu Reita vegna 1. ársfjórðungs ársins 2026.
Þetta eru svona þessi hefðbundna framsaga, við Einar fjármálastjóri munum fara í gegnum uppgjörið og að því loknu fara yfir spurningar. Nú fyrir þá sem vilja koma spurningum á framfæri, þá bendi ég á tölvupóstfangið [email protected].
Nú niðurstaðan fyrir 1. ársfjórðung liggur fyrir.
Við getum ekki annað en verið ánægð með árangurinn. Ekki bara uppgjörið sjálft og tölurnar heldur líka hvernig þær urðu til.
Það sem kannski stendur upp úr kröftugur vöxtur tekna, bætt og góð arðsemi og stöðugur framgangur á þeim lykilverkefnum sem við erum að vinna að. Þannig sjáum við að leigutekjur eru að vaxa tæplega 12% milli ára.
Á sama tíma eru kostnaðarliðirnir að vaxa hægar eða 6% þannig við sjáum að rekstrarhagnaðurinn að hækka umfram tekjur eða nálægt 15% milli ára. Ég bendi sérstaklega á hvernig eða hvaðan þessi vöxtur kemur og þar sjáum við að hann knúinn áfram af verkefnum innan eignasafnsins, bæði innri fjárfestingu og endurnýjun leigusamninga.
Þannig að við sjáum að raunvöxtur eða vöxtur tekna milli ára 9,4% sem við erum mjög ánægð með. Önnur leið til að horfa á þetta, ef við lítum bara á vöxt tekna milli ára sem í kringum 500 milljónir, þá eru 80% af þessum vexti komin af verkefnum innan safnsins og við komum aðeins meira að því.
Nú verðlag hefur áfram hækkað umfram væntingar og kannski spár og við sjáum það í uppgjörinu. Matsbreytingin veruleg, 2,8 milljarðar, en við lítum þannig á að áhrifin eigi eftir að koma frekar fram seinna á árinu.
Og þess vegna sjáum við ekki ástæðu fyrir því á þessum tímapunkti að breyta áður útgefnum horfum afkomu þessa árs. Þið munið að við vorum að spá fyrir rekstrarhagnað á bilinu 13 til 13,3 milljarðar og við erum nákvæmlega á efri mörkum á því bili.
Nú nýtingarhlutfallið, heildarnýtingarhlutfallið óbreytt en virka nýtingarhlutfallið lækkar örlítið. Ástæður þess eru margs konar, einna helst að við vorum að taka þar inn nýjar eignir inn í safnið sem hafa þessi áhrif.
En meira það seinna. Nú við höfum lagt á í stefnumörkun fyrirtækisins, lagt mikla áherslu á innri vöxt fyrirtækisins og 1.
ársfjórðungur þessa árs engin undantekning. Þar erum við að sjá vöxt fyrirtækisins 2,6 milljarða á ársfjórðungnum.
Nú þetta eru ef við horfum á þetta, yfir 850 milljónir á mánuði og það mjög gott að vera komin með fyrirtæki á þann stað að við erum að framleiða eða framkvæma fyrir eitthvað sem líklega nálægt 40 milljónum á hverjum virkum degi. Framkvæmdir í dag eru jú tekjur framtíðarinnar.
Takturinn mjög góður í þessum verkefnum og við gerum ráð fyrir að enda árið á innri vexti í kringum 10 milljarða. Þessi verkefni eiga auðvitað mislangan meðgöngutíma eða framkvæmdatíma.
Ef við tökum þrjú stærstu verkefnin sem við erum að vinna að þessa mundir, það að segja uppbygging hótelsins og uppbygging hjúkrunarheimilisins við Nauthólsveg og fyrsta áfanganum í Korpuntúni í Mosfellsbæ, þá eru þetta verkefni sem eiga ekki mikið eftir. Þau eru kannski á lokametrunum getum við sagt.
Koma öll til að skila tekjum á næsta ári og ef við lítum bara á það þá munu þessi verkefni skila 1,3 milljarði af nýjum tekjum á næsta ári. Ef við setjum það í samhengi við rekstrarreikning fyrirtækisins þá það í kringum 7% af tekjum þessa árs.
Enn og aftur, verkefni dagsins í dag eru auknar tekjur framtíðarinnar og við leggjum á þetta mikla áherslu. Kannski stærsta verkefnið á þessu ári Hyatt hótelið.
Þar erum við að reisa hótel við Laugaveg. Gengur mjög vel.
Þetta stórt hótel, 5 stjörnu hótel með 177 herbergjum. Við erum búin að klára í kringum 75% af verkefninu og höfum gert samninga annað eins, þannig að ef við horfum á það sem við höfum gert samninga og klárað, þá telst okkur til að við séum komin með svo 94% af verkefninu klárað eða frágengið.
Og það mjög gott því að þá vitum við nákvæmlega á hvaða tölu við munum enda og þar gengur mjög vel. Við erum að ná þessu hóteli meira og minna á kostnaðaráætlun.
Nú lykillinn að aðkomu Reita að hótelstarfsemi og þessu verkefni samstarfið við Hyatt. Sérstaða Hyatt allnokkur.
Ekki bara gríðarlega sterkt vörumerki heldur mjög sterkur vildarklúbbur eða vildarkerfi. Ekki kannski stærsta kerfi í heimi, 63 milljónir manns sem eru inni.
Krafturinn felst í uppbyggingu og gæðum kerfisins. Það þannig og tölur sýna okkur að þessi hópur í Hyatt klúbbnum, hann virðist almennt hafa meira á milli handanna en aðrir kúnnar.
Hann eyðir 76% meira en aðrir hótelviðskiptavinir. Þessi hópur líka þannig að hann heldur mikið tryggð við Hyatt brandið og tölur fyrir síðasta ár sýna að af öllum gistinóttum í þessum 15 hótel 1.500 hótelum sem eru í Hyatt keðjunni þá var 50% af þeim meðlimir í þessum klúbbs.
Þannig að klúbburinn sterkur en líka uppbyggingin hjá Hyatt mjög sérstök og góð. Þeir hafa byggt það þannig upp að það eru 40% fleiri vildarklúbbsmeðlimir per hótel en næstu keðju sem kemur þar á eftir.
Þetta skiptir gríðarlega miklu máli fyrir hótelrekandann. Það verður meira endurtekin viðskipti, það minni bókunarkostnaður, jafnari nýting og hærri tekjur per herbergi.
Þannig að við erum mjög ánægð að fara þessa vegferð með Hyatt og gerum ráð fyrir því að opna hótelið núna áramót. Það eru fleiri verkefni sem eru í stöðugum framgangi.
Nú loksins eru sjálfar framkvæmdirnar hafnar við Kringlureitinn. Jarðvegsvinna hafin eins og þið sjáið á myndinni.
Gengur bara mjög vel þar og uppsteypa hefst svo í framhaldinu. Og við gerum ráð fyrir að íbúðirnar, þar munu fyrstu íbúðirnar vera komnar í sölu árið 2029 og það mjög gaman að geta fylgst með þessari framvindu.
Annað sem var nýtt á þessum ársfjórðungi var okkar fyrsta erlenda fjármögnun. Við tókum lán hjá NIB Fjárfestingabanka fyrir 4,4 milljarða til 10 ára.
Þessi lán eru veitt út frá ákveðnum lánareglum bankans og hjá okkur það heilsutengd starfsemi einna helst sem við erum með þar undir. Ánægð með þennan samning, hann á betri og hagstæðari kjörum fyrir okkur en önnur fjármögnun.
En það ekki bara þetta eina lán sem við erum að hugsa, þetta hluti af stærri heild og stærri strategíu félagsins. Við ætlum okkur stærri hluti í heilsutengdri starfsemi og þá fjármögnunin á þeirri starfsemi líka lykilatriði.
Einnig það sjálfstætt markmið okkar að auka fjölbreytileika í fjármögnunarleiðum félagsins og þetta svona eitt skrefið í þá átt og meira sem á eftir að koma í framhaldinu. Nú það ekki bara stjórnmálamenn sem tala dagvistunarmál þessa dagana, það erum líka við hjá Reitum.
Við kynntum á dögunum samstarf við byggingarfélagið Húsi. Og þetta kemur ekki að ástæðulausu.
Það ekki að ástæðulausu að dagvistunarmál eru svona efst á eða í forgrunni í umræðunni þessa mundir. Vandinn stór og þetta þekkjum við.
Hann ekki bara eftirspurnarhliðinni heldur líka hvernig hefur verið staðið að uppbyggingu á þessum málaflokki síðustu árin. Og ég held að bara leikskólann til dæmis við Kleppsveg í Reykjavík sé svona ákveðin táknmynd þessa leikskólavanda.
Þetta verkefni sem var byrjað fyrir 5 árum og 5 árum síðar og yfir 3 milljörðum síðar þá verkefnið ekki á góðum stað. Þarna erum við að tala framkvæmd sem kostnaðurinn á 2 milljónir á fermetra.
Með slíkum aðferðafræðum þá náum við aldrei að leysa þennan vanda. Við hjá Reitum höfum áhuga á að taka þátt í verkefnum sem snúa að samfélaginu, geta gert okkar samfélag betra þar sem okkar styrkleikar fái að njóta sín.
Og það í sjálfu sér ástæðan og grundvöllurinn fyrir þessum samstarfi við Húsi. Við sjáum þar að það mikil þörf fyrir skilvirkari, hraðar og sveigjanlegri og ódýrari lausnir og það akkúrat það sem við erum að bjóða upp á með Húsi.
Við förum af stað með það sem við kalla Small, Medium og Large stærð á leikskólum og getum þannig lofað að koma leikskólum upp á 6 mánuðum sem gríðarlega miklu meiri sveigjanleiki en í núverandi fyrirkomulagi og líka á verði og gæðum sem sjást ekki í dag. Líka annað sem varð á þessum ársfjórðungi að við kláruðum samninga varðandi hótelin, Grand Hótelið við Sigtún og Reykjavík Natura við Nauthólsveg.
Íslandshótel mun taka við leigusamningum 1. september næstkomandi og Berjaya þá ljúka þeim samningum.
Bara til þess að undirstrika hvernig þetta, við höfum talað áður þessa nýju samninga, þeir tóku í sjálfu sér gildi í október í fyrra, Berjaya hefur borgað samkvæmt þeim samningum, þá erum við að tala þær tölur sem við kynntum í uppgjörinu í fyrra. Og svona bara til að rifja það upp að við gerum þar ráð fyrir að aukning tekna þar 650 milljónir króna á ári fyrstu 2-3 árin og svo 720 milljónir á ári þar á eftir.
En þetta byrjaði strax í október og Íslandshótel mun halda áfram með sama samning. Svo bara til upplýsingar þá var fyrri samningur sem var gerður árið 2010 hann var ekki með veltutengda leigu heldur einungis fasta leigu.
Það mjög ánægjulegt með þetta að hótelin séu komin í rekstur hjá einni stærstu hótelkeðju landsins sem og þegar rekur 17 önnur hótel. Nú það stöðugur gangur vil ég segja í kjarnastarfseminni.
Nokkrir hlutir sem kannski rétt að benda á. Kringlan í ákveðinni uppsveiflu.
Við erum þar að opna nýtt útisvæði í sumar, verður tilbúið fyrir EM kvenna með útiskjám og öllu þessu, þetta verður mjög skemmtilegt. Við erum líka að sjá góða aukningu.
Við vorum með míní-aðsprengju í síðustu viku sem setti met. Þar voru nálægt 30.000 gestum sem einhverjum telst til að það hafi 1 af hverjum 9 íbúum höfuðborgarsvæðisins mætt niður í Kringlu þennan dag.
Er það mark aukinn kaupmátt í samfélaginu? Ég skal ekki alveg segja það, en við erum að vinna með ákveðið nýtt módel, við erum að tileinka okkur aðferðafræði sem hefur virkað mjög vel erlendis hjá verslunarmiðstöðvum þar sem uppleggið að blanda saman afþreyingu og verslun og þetta að virka gríðarlega mjög vel.
Það eru líka nýjar verslanir sem eru að koma inn í Kringluna. KappAhl opnaði á dögunum og verslanir Lindex og Mango munu opna núna í þessum mánuði eða þeim næsta.
Nú það eru fleiri verkefni sem ganga ágætlega. Við tökum dæmi þarna Grímsbæ við Fossvoginn, þar hefur opnað skemmtilegt kaffihús og veitingastaður, Fossinn, líka þar stúdíó eða sjúkraþjálfun á sömu hæð.
Og mikið sagt að þessi verslunarmiðstöð að ganga í endurnýjun lífdaga og fá nýja og skemmtilega og bætta ásýnd. En þá förum við kannski í tölurnar og þá held ég að ég kasti keflinu yfir til Einars.
Einar
Takk fyrir. Við kannski byrjum á að fara yfir, eins og Guðni nefnir, þá byrjar árið vel bæði fyrir tekjur og kostnaðarhliðina og raunvöxtur tekna upp á 7,1%, nafnaukning tekna upp á 11,8%.
Og þetta bara í takti við svona þann gang sem hefur verið hjá félaginu síðustu 18 mánuði eða svo. Við höfum talað hvernig við sjáum fyrir okkur að raunvöxturinn verði inn á árið 2027 og 2028 og góður gangur í því framkvæmdaverkefnum sem Guðni talaði mun styðja við þennan vöxt inn á næsta ár og árið þar á eftir.
Meðalverðlagið hækkaði 4,5% milli ára og sá sprettur í verðbólgunni sem verið hefur síðustu mánuði ekki farinn að hafa áhrif á tekjur en hann farinn að hafa áhrif á efnahagsreikninginn í gegnum fjármagnsgjöldin undir lok fjórðungsins. Þannig að matsbreytingin og fjármagnsliðirnir eru hærri heldur en við sjáum kannski tekjuaukninguna vera.
Eins og Guðni nefnir að þá aukningin í leigutekjum bland við kannski minni aukningu í kostnaðarliðunum gerir það að verkum að rekstrarhagnaður fjórðungsins að aukast 411 milljónir eða 14,7% milli ára. Það gríðarlega sterkt fyrir okkur.
Matsbreyting upp á 2,8 milljarða að mestu drifin áfram af verðlagsbreytingum og umtalsvert meiri en var á sama tíma á síðasta ári. Í fjármagnsgjöldunum þá verðlagsbreytingar vegna lána að hafa mest áhrif á gjöldin og aukningin sömuleiðis mikil á milli ára og þetta balance-ar hvor tveggja á rekstrarreikningum, það að segja matsbreytingin annars vegar og verðbætur og fjármagnsgjöld hins vegar.
Ef við horfum á hlutfall rekstrarins þá virka nýtingarhlutfallið, og við fjöllum kannski aðeins betur það á eftir, að dragast saman 1,1% milli ára og í heild nýtingin nánast sú sama og var í fyrra. Og það breyting úr verkefnum sem voru í fyrra í endurbótum og framkvæmdum sem eru núna komin í rekstur og samsetningin á óútleigða hlutfallinu að breytast.
Kostnaðarhlutfallið á 1. ársfjórðungi var 25,9% sem samdráttur 1,3% frá fyrra ári og stjórnunarkostnaðurinn 5,4% sem samdráttur sömuleiðis.
Ég held að ef við horfum á samsetningu rekstrarhagnaðarhlutfallsins í kringum 63% að þá grunar mig að árið verði að mestu leyti á þessum nótum, það að segja einhvers staðar í kringum þessa tölu allavega lagt upp með það í áætlun ársins. Efnahagsreikningurinn mjög sterkur og það gott jafnvægi í því hvernig fjármagnsskipanin.
Heildareignirnar vaxa 5 milljarða milli ára og öll breytingin komin til vegna fjárfestingareigna. Fjárfesting upp á 2,7 milljarða og matsbreyting upp á 2,8.
Staðan í handbæru fé þarna í lok fjórðungsins öllu minni en við hefðbundið viljum sjá. Við vorum komin með tímalínu í þessari NIB fjármögnun og hún lá nokkurn veginn fyrir, þannig að við vissum að handan mánaðamótanna kæmi fé inn og höfðum enga sérstaka áhyggjur af því.
Aukning í skuldunum 4,4 milljarðar. Við seldum skuldabréf í febrúar og nettóútgáfa umfram afborganir á fjórðungnum 550 milljónir.
Afgangurinn af breytingunni vegna verðlags, þannig að samspil þessara þátta sem ég talaði áðan. Eigið fé að dragast saman 2,2 milljarða og það vegna arðgreiðslunnar sem samþykkt var á aðalfundi 25.
mars síðastliðinn og færist í rauninni öll niður í viðskiptaskuldir og arðgreiðslan sem greidd var í apríl farin út en sú sem greidd verður í september mun fylgja okkur inn í uppgjör 2. ársfjórðungs.
Lánaþekjan í lok fjórðungsins 59% og eykst 0,5% frá áramótum. Eiginfjárhlutfallið 29,5% og lækkar 1,4% yfir fjórðunginn.
Eins og Guðni nefndi áðan að þá erum við að staðfesta horfur ársins, það að segja ekki að gera breytingar á þeim. En við viljum merkja það að verðlagsþróunin sem að verið hefur síðustu mánuði ýtir öllu dálítið upp í félagi sem að byggir á verðtryggðum tekjum að miklu leyti, það nánast öllu leyti.
Þannig að við erum að segja frá því að leigutekjur ársins sem að við spáðum að yrðu á bilinu 19,6 til 19,9 milljarðar yrðu við efri mörkin á bilinu og það sama á við rekstrarhagnaðinn sem að spáð á bilinu 13 til 13,3 milljarðar. Nú eins og ég nefndi áðan að þá greiddum við fyrri hluta arðgreiðslunnar til hluthafa 17.
apríl og það voru 1.569 milljónir. Við höfum verið að stunda endurkaup og önnur áætlun félagsins á árinu í gangi þessa dagana.
Í lok síðustu viku höfðum við keypt 558 milljónir af eigin bréfum. Þannig að samtals ráðstöfunin til hluthafa orðin þetta rétt rúmlega 2 milljarðar.
Þannig að þetta held ég allt sem að var frá mér og við vindum okkur kannski bara í spurningar og svör. Við kannski byrjum á að tala nýtinguna, Guðni?
Guðni
Já, og það spurt hvernig við sjáum fyrir okkur nýtingarhlutfallið þróast út árið fram á við. Nú við gerum ráð fyrir óbreyttu nýtingarhlutfalli, kannski einhverri örlítilli lækkun.
Við höfum þegar í spám okkar fyrir árið gert ráð fyrir þeim byggingum sem eru að losna seinna á árinu þannig að það kemur okkur ekki á óvart. Við vitum alveg hvernig efnahagsástandið.
Það kólnun í hagkerfinu, það veltusamdráttur. Við sjáum bara tölur úr virðisaukauppgjöri fyrir janúar og febrúar sem sýna 5% raunsamdrátt frá fyrra ári.
Við höfum ekki merkt nein miklar breytingar hjá okkar viðskiptavinum en auðvitað þegar kólnun hagkerfisins þá mun sumum kólna meira en öðrum og þess vegna förum við varlega í þetta, gerum ráð fyrir óbreyttu eða kannski örlítið hækkandi óútleigðu hlutfallinu en ekki þannig að það verði neinir stökkbreytingar ræða. Við erum líka spurð endurkaupin, hefur félagið myndað sér skoðun eða stefnu endurkaup?
Verða þau gegnumgangandi á meðan markaðsvirði undir innra virði að teknu tilliti til tekjuskattsskuldbindingar? Við höfum eins og mörgum félögum verið með endurkaupaáætlun, ætlum að halda því áfram.
Auðvitað erum við að kaupa bréfin þegar við sjáum gott virði í endurkaupunum þannig að svarið við þessari spurningu jú já.
Einar
Ég held að stefnan okkar ráðstöfun til hluthafa sé mjög skýr og hún hefur verið í gildi frá árinu 2015 ef ég man rétt og gengur út á það að við séum að skila til hluthafa annaðhvort í formi arðgreiðslna eða endurkaupa 1/3 af rekstrarhagnaði á hverju ári. Þannig að miðað við spá ársins þá þetta 4,3 milljarðar sem fara til hluthafa á þessu ári.
Guðni
Já, við höfum verið kannski í samanburði við mörgum félögum þá höfum við ef við horfum á endurkaup og arðgreiðslu svona hlið við hlið þá höfum við verið kannski þéttari í arðgreiðslunni og verið minna í endurkaupunum ef við horfum á þessi hlutföll. Það má vel vera að á næsta ári þá breytum við þessari samsetningu, kemur bara í ljós og ræðst meðal annars af virðinu.
Einar
Einmitt. Kannski verðmat þróunareigna ef þú vildir kíkja eitthvað snöggt á það, Einar?
Já, við svo sem fórum nokkuð ítarlega í gegnum hvernig þróunareignirnar eru verðmetnar í síðasta uppgjöri. Þróunareignirnar eru 21,1 milljarður í uppgjörinu núna og aukningin yfir fjórðunginn, það að segja frá áramótum, hún samanstendur fyrst og fremst af ákvörðuðum kostnaði sem að við erum að setja á þessi verkefni.
Og eins og þú minntist á áðan að þá hótelið langstærst af því og við sjáum fyrir okkur að það muni byggjast upp inn í árið þangað til að það fer í sína vinnu hérna þegar hótelið opnar.
Guðni
Einhverjar fleiri spurningar? Ásgeir?
Ókei. Já, nei.
Það ekki. Þá þökkum við bara fyrir okkur og við sjáumst þá aftur 27.
ágúst og þá verðum við í Kringlunni, bjóðum upp á kaffi.
Einar
Takk fyrir.
Already premium?