Verið velkomin á uppgjörsfund Skaga fyrir annan ársfjórðung og fyrri árshelming ársins. Að þessu sinni mun ég fara bæði yfir helstu áfanga uppgjörstímabilinu og ásamt fjárhagslegu uppgjöri.
En forsvarsmenn dótturfélaga, þá minnist ég á Guðný Helga og Brynjar, eru hér í salnum og munu ásamt mér vera til svara í lok kynningar ef að einhverjar spurningar koma fram. En við skulum byrja á því að fara yfir það sem að upp úr stóð á fyrri árshelmingi.
Nú, rekstur Skaga gekk að mörgu leyti vel fyrstu sex mánuði ársins og nam hagnaður tímabilsins eftir skatta tæplega 400 milljónum króna. Afkoma vátryggingastarfsemi var áfram mjög sterk á fyrri helmingi ársins og var samsett hlutfall það lægsta síðan árið 2007.
Afkoma af fjármálastarfseminni var undir væntingum og við sáum samdrátt í tekjum tæplega 9% á milli tímabila frá árinu áður, en það sem skýrist einkum af erfiðum markaðsaðstæðum sem að hafa áhrif á, hvað eigum við að segja, sveiflukenndari tekjustrauma í fjármálastarfseminni. En fjárfestingatekjur, þær voru talsvert undir okkar markmiðum á sama skapi á fyrri árshelmingi og munaði þar mest þróun í skráðum og óskráðum hlutabréfum.
En ávöxtun safnsins var þó nokkuð yfir viðmiðunarvísitölu á sama tímabili. Og á öðrum ársfjórðungi að þá komu skipulagsbreytingar til framkvæmda í kjölfar stefnurýni félagsins þar sem að áhersla var lögð á einföldun, kostnaðarhagfræði og tekjuvöxt.
En hagræðingaraðgerðir þeim tengdum höfðu í för með sér nokkurn kostnað sem að var gjaldfærður að fullu á tímabilinu. Nú, þessar aðgerðir munu skila lægri kostnaðargrunni og stuðla að aukinni hagræði að rekstri samstæðunnar þegar horft fram á veginn.
En við gerum ráð fyrir að þessar hagræðingaraðgerðir munu skila hagræði sem nemur 300 milljónum króna á ársgrundvelli og það að miklu leyti þegar komið til framkvæmda á öðrum ársfjórðungi. Nú, grunnrekstur samstæðunnar hélt áfram að þróast með jákvæðum hætti á öðrum ársfjórðungi og fyrri helmingi ársins og var það að mestu drifið af sterkum tryggingarekstri.
Við sáum áframhaldandi tekjuvöxt, eða 8% á milli ára, og á öðrum ársfjórðungi náðu 12 mánaða tekjur samstæðunnar yfir 36 milljörðum króna í fyrsta sinn. En þetta var eitt af okkar þriggja ára markmiðum sem við settum okkur í ársbyrjun 2024 og það ánægjulegt að sjá að því markmiði náð.
Og að sama skapi jókst hagnaður af grunnrekstri á ársgrundvelli töluvert, líkt og sjá má hér hægra megin á glærunni. En færum okkur yfir í tryggingareksturinn.
Afkoma tryggingastarfsemi var áfram sterk eins og ég vék að áðan, bæði á öðrum ársfjórðungi og fyrri helmingi ársins. Sem fyrr segir var samsett hlutfall á fyrri árshelmingi 90,4% og það lægsta síðan árið 2007.
Og í samhengi við það uppfærðum við horfur fyrir árið í framhaldi af því og eins og ég mun koma betur að hér á eftir. En tekjuvöxtur, hann var kröftugur áfram og áfram fjölgaði viðskiptavinum VÍS jafnt og þétt.
Og það má segja að þessi árangur endurspegli öfluga undirliggjandi rekstur, góðan og arðbæran iðgjaldavöxt, og markvissa áherslu á rekstrarhagkvæmni sem að hefur gengið mjög vel að framkvæma á undanförnum misserum. Og það loks líka gaman frá því að segja að helstu þjónustu- og ánægjumælikvarðar hafa verið að þróast í rétta átt.
En VÍS leggur mikla áherslu á framúrskarandi þjónustu eins og við höfum mælt með áður og það styrkir enn frekar tengslin við viðskiptavini allt land. Nú, í fjármálastarfseminni var annar ársfjórðungur undir væntingum og drógust tekjur saman tæplega 9% frá sama tímabili árið áður.
Nú, þessi samdráttur, hann skýrist einkum af þungu árferði á mörkuðum og kemur það fram í lægri þóknunartekjum, sérstaklega í markaðsviðskiptum, en að einhverju leyti í fyrirtækjaráðgjöf líka ásamt neikvæðum fjármunatekjum hjá Fossum. Nú, horfur varðandi tekjur í fjármálastarfsemi fyrir árið voru uppfærðar í ljósi þessarar þróunar og ég mun einnig fara betur yfir það hér á eftir.
En afkoma Fossa á öðrum ársfjórðungi var neikvæð 146 milljónum króna eftir skatt. En vert að hafa í huga að nokkur einskiptiskostnaður féll til, bæði vegna forstjóraskipta og annarra starfsmannabreytinga, eða sem nemur fjárhæð 75 milljónum króna.
En þrátt fyrir erfitt árferði að þá eru ljósir punktar. Við sáum eignastýringartekjur vaxa áfram og það auðvitað virkilega ánægjulegt að sjá.
Og afkoma ÍVF var jákvæð tæpar 40 milljónir á fyrri helmingi ársins. En til að bregðast við þessum aðstæðum sem að eru í starfsumhverfi fjármálastarfseminnar að þá var gripið til hagræðingaraðgerða á tímabilinu bæði í Fossum og ÍVF, en samanlagt þá lækka þessar aðgerðir kostnað í fjármálastarfseminni 170 milljónir á ársgrundvelli, eða hátt í 6% af kostnaði starfseminnar.
Nú, loks má geta að eignir í stýringu innan samstæðunnar eru nánast óbreyttar frá áramótum og námu 251 milljarði í lok tímabilsins. En víkjum nú að fjárfestingum.
En eins og við komum inn á áðan þá ávöxtun þess undir okkar markmiðum það sem af ári. Enda hefur ekki beint blásið byrlega vegna markaðum undanfarið og þá sér í lagi á innlendum hlutabréfamarkaði.
Og á öðrum ársfjórðungi námu fjárfestingatekjur 396 milljónum króna og jafngildir það 0,8% ávöxtun og samanborið við 1,4% hækkun á viðmiðunarvísitölu. Þá voru helst skráð og óskráð hlutabréf sem að drógu niður afkomu fjórðungsins og munaði þar mest lækkun á virði Annata annars vegar og Okilis hins vegar.
En fyrri hluti ársins, hann kom betur út og námu fjárfestingatekjur 762 milljónum króna sem svarar 1,5% ávöxtun samanborið við 0,6% hækkun á viðmiðunarvísitölu. En afkoma fjárfestinga tekið tilliti til fjármagnsliða var hins vegar neikvæð 396 milljónir.
Nú, fyrirtækjaskuldabréf vógu þungt í ávöxtun á fyrri hluta árs og áfram hefur verið dregið úr vægi hlutabréfa í safninu. Og í lok tímabilsins þá var vægi hlutabréfa komið í 27%, en vægi skuldabréfa stóð í 73% sem verður að teljast orðið nokkuð varfærið.
En eins og fram hefur komið að þá kynntum við uppfærðar rekstrarhorfur fyrir árið sem að var tilkynnt til Kauphallar í síðustu viku. Og ég fór yfir það stuttlega áðan, en tryggingarekstur VÍS hefur verið áfram mjög sterkur og þróun samsetta hlutfallsins hefur verið hagfelldari en áætlanir gerðu ráð fyrir.
Og við hliðruðum því bilinu fyrir samsetta hlutfallið niður 2 prósentustig og gerum nú ráð fyrir að ljúka árinu með samsett hlutfall á bilinu 90 til 93% með markmið að vera undir 91,5%. Og að sama skapi að þá hafa tekjur í fjármálastarfseminni þróast á verri veg en okkar áætlanir gerðu ráð fyrir og við hliðruðum því tekjubilinu niður í 2,7 til 3,2 milljarða á árinu með markmið að vera yfir 2,9 milljörðum í tekjum af fjármálastarfseminni.
Nú, en eins og við höfum komið inn á nokkrum sinnum áður að þá gefum við ekki út afkomuhorfur varðandi ávöxtun fjárfestinga, en við birtum vænta ávöxtun í upphafi árs sem að við erum ekki að breyta yfir árið. En við skulum fara yfir fjárhagslegt uppgjör og byrjum á að fara yfir helstu rekstrarniðurstöður á öðrum ársfjórðungi, en hagnaður nam 730 milljónum og samsvarar það arðsemi eiginfjár upp á 12,9% á ársgrundvelli.
Nú, afkoma vátryggingasamninga var tæplega 1,5 milljarður og dróst lítillega saman á milli ára. En þess ber að geta á síðasta ári að þá féll til einskiptis tekjufærsla upp á tæpar 260 milljónir vegna aflagðrar starfsemi í erlendum endurtryggingum.
Og hreinar vaxtatekjur voru 131 milljón og jukust 42% á milli ára. Þóknanatekjur voru 518 milljónir og lækkuðu 21%, en samdráttur skýrist meðal annars af dræmum tekjum í fyrirtækjaráðgjöf ásamt krefjandi markaðsaðstæðum á öðrum ársfjórðungi eins og ég vék að áðan.
Og hreinar fjárfestingatekjur voru neikvæðar 207 milljónir á fjórðungnum og hreinar rekstrartekjur voru því samanlagt tæplega 2 milljarðar og lækkuðu ríflega 200 milljónir á milli ára. Og rekstrarkostnaður nam 890 milljónum og stóð í stað á milli ára og skattur var neikvæður 306 milljónir.
Niðurstaðan var því hagnaður eftir skatta upp á 731 milljón sem ríflega 240 milljónum lægra samanborið við annan ársfjórðung síðasta árs. En helstu niðurstöður fyrri árshelmings má svo sjá hér.
En hagnaður á tímabilinu var tæpar 400 milljónir og arðsemi eiginfjár því 3,4% á ársgrundvelli. Afkoma vátryggingasamninga var tæplega 1,6 milljarður og jókst rúmlega 130 milljónir á milli ára.
Hreinar vaxtatekjur voru 285 milljónir og jukust 43% á milli ára. Nú, þóknanatekjur voru rúmlega milljarður en drógust saman 12% á milli ára í erfiðu markaðsumhverfi.
Og hreinar fjárfestingatekjur voru neikvæðar 490 milljónir á fyrri helmingi ársins sem batnaði þó ríflega 740 milljónir á milli ára. Nú, hreinar rekstrartekjur voru samanlagt tæplega 2,6 milljarðar og jukust 45% frá fyrri helmingi síðasta árs eða tæplega 800 milljónir á milli ára.
Nú, rekstrarkostnaður nam ríflega 1,7 milljarði og stóðu nokkurn veginn í stað á milli ára. Skattur neikvæður 309 milljónir og niðurstaðan var því hagnaður eftir skatta upp á tæplega 400 milljónir sem fyrr segir sem talsverður afkomubati frá sama tímabili árið 2025.
Nú, efnahagur Skaga stóð í tæplega 85 milljörðum í lok tímabilsins og jókst 3% á milli ára. Fjárfestingasafn, lánasafn og fjárstýringareignir eru eftir sem áður stærstu eignir samstæðunnar en eignahliðin dróst saman ríflega 2,6 milljarða á öðrum ársfjórðungi, einkum vegna samdráttar í verðbréfafjármögnun hjá Fossum.
Nú, vátryggingaskuldin var nánast óbreytt á öðrum ársfjórðungi en hækkaði nokkuð á milli ára eða 6%. Og eigið fé samstæðunnar stóð í tæplega 23 milljörðum í lok annars ársfjórðungs og hækkaði 1,2 milljarða á milli ára.
En við skulum víkja að þróun á kostnaði. En rekstrarkostnaður samstæðu hækkaði 5,2% á milli ára eða 126 milljónir sem svona nokkurn veginn í takti við verðlagsþróun.
En hækkunin, hún nemur 82 milljónum í tryggingastarfsemi og fjárfestingum og 36 milljónum í fjármálastarfsemi. Nú, aðhald í rekstri sést vel á því að heildarstarfsmannafjöldi samstæðunnar hefur lækkað úr 245 stöðugildum í 233 stöðugildi.
Og samhliða þessari fækkun hefur komið til gjaldfærður kostnaður í tengslum við starfsmannabreytingar sem að eðli málsins samkvæmt hækkar kostnað tímabundið en lækkun á kostnaði mun koma í auknu mæli fram á síðari helmingi ársins. Við erum jafnframt farin að sjá fyrstu merki af uppfærðum áherslum sem að ég kynnti á síðasta uppgjörsfundi.
Hagræðingaraðgerðir í fjármálastarfsemi á fyrri hluta árs lækka kostnað starfseminnar 170 milljónir á ársgrundvelli. Einnig mun úthlutaður samstæðukostnaður koma til með að lækka talsvert horft fram á við í kjölfar einföldunar og fækkunar stöðugilda í móðurfélaginu.
Þannig að það óhætt að segja að við erum búin að setja töluverða vinnu í átt að einföldun og kostnaðarhagræði innan samstæðunnar á undanförnum mánuðum. En færum okkur yfir í gjaldþol og eiginfjárstöðu.
Gjaldþol samstæðu hækkaði á milli fjórðunga og stóð í 1,3 í lok ársfjórðungs á meðan gjaldþol trygginga í tryggingarekstri hækkaði í 1,48. En að ræða stöðu gjaldþols að teknu tilliti til arðgreiðslustefnu og endurkaupa.
Nú, félagið greiddi 760 milljónir í arð á fyrri hluta árs í samræmi við arðgreiðslustefnu félagsins, en auk þess stóð félagið í endurkaupum á sama tímabili. Fyrsta endurkaupaáætlunin var að fjárhæð 720 milljónir króna og lauk hún í lok maí og önnur endurkaupaáætlun allt að 500 milljónum hófst í byrjun júní og lýkur í dag, 15.
júlí. Og arðgreiðsla og endurkaup nema því samanlagt hátt í 1,8 milljarði það sem af ári.
En þrátt fyrir að ávöxtun fjárfestinga og afkoma í fjármálastarfsemi hafi verið undir væntingum að þá gjaldþol okkar sterkt sem að sýnir fjárhagslegan styrk samstæðunnar. En þess ber að geta að þessi styrkur var að hluta til nýttur til að auka hlutafé Fossa 300 milljónir króna á tímabilinu til að styðja við fyrirhugaðan vöxt á efnahag bankans og aukna lánastarfsemi á næstu misserum.
En áður en við ljúkum þessu hér í dag þá langar mig til að hnykkja á nokkrum lykilskilaboðum. Nú, grunnrekstur samstæðunnar þróast áfram í rétta átt á fyrri hluta ársins þrátt fyrir áskoranir sem við stöndum frammi fyrir í rekstrarumhverfi í fjármálastarfseminni.
En það enn og aftur tryggingareksturinn sem ber þá jákvæðu þróun uppi og það óhætt að segja að reksturinn þar sé í mjög góðu horfi. Nú, við höfum gripið til ýmissa aðgerða til að koma fjármálastarfseminni á rétt ról í núverandi markaðsumhverfi og meðal annars lækkað kostnaðargrunninn þar talsvert.
Og aðstæður á fjármálamörkum koma enn niður á ávöxtun fjárfestinga, en eins og ég kom inn á áðan þá má segja að safnið sé orðið varfærð enda vægi skuldabréfa hefur aukist talsvert og við teljum það vera rétta nálgun í núverandi markaðsumhverfi. Nú, við erum þegar farin að sjá fyrstu merki þess að uppfærðar áherslur séu farnar að skila sér í kostnaðarhliðinni heilt yfir í samstæðunni og við munum sjá enn meiri áhrif þess á komandi fjórðungum.
Og gjaldþol samstæðunnar sterkt eins og ég vék inn á áðan þrátt fyrir arðgreiðslu og endurkaup á fyrri hluta árs og við teljum að félagið sé í góðri stöðu til frekari vaxtar og greiðslu til hluthafa kjósum við að gera það. En þar með lýkur yfirferðinni í dag og mig langar til að opna fyrir spurningar úr sal.
En áður en við tökum fyrstu spurningu að þá langar mig til að minna á að það frekari ítarefni að finna í kynningunni sem var send út á markaðinn áfram og það hægt að hafa samband við okkur hérna sem hérna á [email protected] ef að það vakna spurningar. Einhverjar spurningar úr salnum?
Nú, svo ekki að þá þakka ég kærlega fyrir komuna í dag og óska ykkur gleðilegs sumars.
Already premium?