Haraldur
Góðan daginn og verið velkomin á uppgjörsfund Skaga fyrir 4. ársfjórðung og árið 2025 í heild, bæði þið sem eruð hér í salnum, endilega fáið ykkur sæti, og þið sem eruð á streyminu.
Nú sem fyrr að þá munum við, Brynjar fjármálastjóri, fara yfir uppgjörið og helstu áfanga á síðasta ári, en við munum einnig svara spurningum frá ykkur í lok kynningar ef einhverjar eru. En við skulum byrja á því að fara yfir það sem að upp úr stóð á síðasta ári.
Nú árið 2025 var viðburðaríkt hjá Skagasamstæðunni og það gekk vel hjá okkur á flestum vígstöðum. Nú hagnaður Skaga nam 1.902 milljónum eða 2.434 fyrir skatt en 1.902 eftir skatt, sem að samsvarar 8,6% arðsemi eiginfjár.
Nú grunnrekstur samstæðunnar var mjög sterkur sem að birtist í verulegum afkomubata hans á milli ára og mestu munaði þar sögulega góða ávöxtun hjá VÍS, sem átti hvorki meira né minna en sitt besta ár frá upphafi í afkomu af tryggingarekstrinum. Nú í fjármálastarfsemi ljóst að áhersla á tekjuvöxt farin að skila sér í aukinni stærðarhagkvæmni og arðsemin að komast á gott ról samhliða því.
Nú ávöxtun fjárfestingareigna var hins vegar nokkuð undir markmiðum ársins, sem kemur að mestu til vegna neikvæðrar þróunar á hlutabréfamörkuðum, en ávöxtunin var þó aðeins lítillega undir viðmiðunarvísitölu og nokkru betri en hjá samkeppnisaðilum okkar. Og nú við tilkynntum samrunaviðræður við Íslandsbanka í byrjun október síðastliðinn og eru þær nú langt komnar, en ég mun fara betur yfir það hér á eftir.
Nú hér á þessari glæru að þá sjáum við þróun á grunnrekstri samstæðunnar, það að segja afkomu tryggingarekstrar, afkomu fjármálastarfsemi og móðurfélags en án fjárfestingasafnsins. En eins og sjá má að þá góður gangur í grunnrekstrinum og kemur það bæði fram í talsverðum tekjuvexti í öllum rekstrareiningum eða 11% á síðasta ári sem og í verulegri aukningu afkomu fyrir skatt sem fer úr rúmum 800 milljónum fyrir árið 2024 og upp í ríflega 2,4 milljarða á síðasta ári.
Og það má því segja að árið 2025 sé árið sem að við byrjum að uppskera eftir nokkuð langt tímabil stefnumótunar og samþættingar undanfarinna ára. Nú og hér sjáum við svo myndrænt hvernig afkoma af grunnrekstri hefur aukist á milli ára á meðan afkoma fjárfestinga, það að segja ávöxtun fjárfestingasafns ásamt fjármagnsliðum og svo hærri skattar, draga afkomu ársins niður.
Nú eins og við komum inn á áðan þá átti VÍS frábært ár í tryggingarekstrinum en afkoma vátryggingasamningum sú besta frá upphafi og tvöfaldaðist á milli ára. Nú VÍS óx jafnframt meira en tryggingamarkaðurinn annað árið í röð og góð afkoma af rekstrinum vitnisburður það að þessi vöxtur arðbær.
Nú tekjur af vátryggingasamningum jukust 9,5% á milli ára en þar af jukust tekjur af líf- og sjúkdómatryggingum 12,2%. Og niðurstaða ársins samsett hlutfall upp á 90,7% og afkoma tæpir 3 milljarðar króna sem, sem fyrr segir, besta afkoma af tryggingarekstri í sögu félagsins.
Nú þá jókst einnig meðmælastig mest af öllum tryggingafélögum á árinu. En við munum á komandi ári halda áfram að kynna nýjungar sem miða að því að bæta upplifun viðskiptavina okkar allt land.
En stöldrum einnig við ávöxtun fjárfestingareigna en eins og flestir þekkja þá voru nokkrar sviptingar á mörkuðum á síðasta ári, sérstaklega fyrri hluta ársins. Ávöxtun skuldabréfa var góð en hlutabréfamarkaðir innanlands voru tiltölulega þungir og ávöxtun skráðra hlutabréfa dró afkomu ársins talsvert niður.
En eins og við komum inn á áðan þá var ávöxtun á safninu því undir okkar markmiðum fyrir síðasta ár og eins og sjá má hér á myndinni nokkuð undir því sem að við eigum að venjast til lengri tíma. En á þessu ári að þá ávöxtunarmarkmið okkar fyrir safnið 9,5% sem að í takt við sögulega ávöxtun undanfarinna ára.
Nú í fjármálastarfsemi að þá höldum við áfram að byggja upp tekjuhliðina og leggjum kapp á að auka arðsemi samhliða þeim tekjuvexti og aukinni stærðarhagkvæmni. Á vinstri hluta þessara mynda má sjá þróun 12 mánaða tekna í lok hvers ársfjórðungs.
En þar má sjá hvernig tekjur af fjármálastarfseminni eru að vaxa jafnt og þétt og hvernig hlutfall eignastýringartekna hefur jafnframt aukist. Og hægra megin má svo sjá 12 mánaða afkomu af fjármálastarfseminni sem heldur áfram að þróast í rétta átt.
Afkoma fyrir skatta nam 238 milljónum á árinu og sem talsverð bæting frá fyrra ári en í takt við það sem að við höfum verið að boða á undanförnum ársfjórðungum. Og loks má geta þess að samþætting á starfsemi ÍV inn í samstæðu Skaga gekk að mestu vel á árinu og nú lokið.
Nú hjá Fossum hefur verið mikil áhersla á að ná fram vexti í nýrri tekjustoðum sem að tengjast fjárfestingabankastarfseminni en jafnframt hefur verið mikill uppgangur í fyrirtækjaráðgjöf félagsins. Og það virkilega ánægjulegt að sjá að vöxtur á þessum sviðum hefur gengið mjög vel en tekjur af lánastarfsemi Fossa tvöfölduðust til dæmis á milli ára.
Þá hafa umsvif hjá fyrirtækjaráðgjöf bankans aukist talsvert og spilaði hún lykilhlutverk í fjölmörgum stórum verkefnum á síðasta ári. En ég held að það sé óhætt að segja að teymið sé komið kyrfilega á kortið og eru tekjur deildarinnar að þróast eftir því.
Í dag bankinn því með breiðari og stöðugri tekjumyndun en nokkru sinni fyrr og vel í stakk búinn til að byggja á því til framtíðar. Nú árið 2025 var einnig ár vaxtar hjá Íslenskum verðbréfum en eignir í stýringu jukust ríflega 16% á árinu sem mesta aukning meðal rekstrarfélaga á landinu.
Það ekki gefið að ná slíkum árangri samhliða mikilli vinnu við samþættingu Íslenskra verðbréfa inn í samstæðuna sem að fór fram á síðasta ári. Nú eins og við höfum komið inn á áður að þá leggjum við mikla áherslu á að vera leiðandi í milliliðafjármagni og í takt við þá stefnu setti ÍV á laggirnar tvo lánasjóði eða kreditsjóði á síðasta ári sem að samtals eru tæpir 18 milljarðar að stærð.
En þá skilaði einnig ÍV alþjóðlegur hlutabréfasjóður hæstu ávöxtun opinna sjóða á Íslandi á síðasta ári en þetta annað árið í röð þar sem að sjóður ÍV skilar bestu ávöxtun ársins. Nú við kynntum í lok síðasta árs fjárhagsleg markmið fyrir árið 2026 en fram til þessa að þá höfum við upplýst rekstrarhorfur í samsettu hlutfalli, tekjum af fjármálastarfsemi og ávöxtun fjárfestinga en birtum nú ítarlegri markmið samhliða því, meðal annars afkomu af grunnrekstri.
Nú og eins og sjá má á glærunni hér að þá náðum við flestum rekstrarmarkmiðum sem við settum okkur á síðasta ári fyrir utan ávöxtun fjárfestinga en það leiddi svo af því að arðsemi eiginfjár var undir markmiðum sömuleiðis. En fyrir árið 2026 að þá lækkum við enn frekar markmið samsett hlutfall úr 94% í 93,5%.
Við stefnum jafnframt áfram að áframhaldandi sterkum tekjuvexti í tryggingum og fjármálastarfsemi og sem fyrr segir stefnum að því að ávöxtun fjárfestinga verði yfir 9,5%. Og áætlun ársins gerir ráð fyrir því að hagnaður samstæðu verði rúmir 4 milljarðar króna.
En við munum halda ykkur upplýstum framgang þessara markmiða í komandi uppgjörum. Nú að lokum þá langar mig til að staldra við samrunaviðræður okkar við Íslandsbanka.
Og eins og við höfum sagt áður að þá sjáum við mikinn ávinning af sameiningu félaganna tveggja, meðal annars með því að innleiða samþætt viðskiptamódel sem byggir á styrkleikum beggja félaga, en að okkar mati verður sameinað félag leiðandi á banka- og tryggingamarkaði, auk þess sem að samruninn býr til öflugri fjárfestingabanka- og eignastýringarstarfsemi sem jafnframt hefur fjölmörg tækifæri til áframhaldandi sóknar. Nú áreiðanleikakönnunum og samlegðargreiningu lokið og það unnið að frágangi samrunasamnings.
Og þá einnig vinna við skil á tilkynningu til Samkeppniseftirlitsins vel á veg komin og viðræðum hefur miðað vel og væntingar standa til þess að hægt verði að greina frá frekari fréttum í náinni framtíð. En nú gef ég boltann yfir á Brynjar fjármálastjóra sem ætlar að fara nánar yfir fjárhagslegt uppgjör.
Brynjar
Já, góðan daginn. Ég ætla að fara yfir rekstur Skagasamstæðunnar á síðasta ári og byrjum á að fara yfir helstu rekstrarniðurstöður Skaga á 4.
ársfjórðungi sem skilaði 1.565 milljónum í hagnað og 27% arðsemi eiginfjár á ársgrundvelli. Afkoma vátryggingasamninga 50 milljónir á fjórðungnum sem 387 milljónum lægra en á fyrra ári en það skýrist að stærstum hluta af því að matsbreytingar voru neikvæðar á fjórðungnum í ár á meðan þær voru jákvæðar á sama tímabili árið áður.
Hreinar vaxtatekjur eru 138 milljónir og vaxa 79%. Og þóknanatekjur eru 686 milljónir og vaxa 1% en minni vöxtur þar skýrist að hluta af því að árangurstengdar þóknanir í eigna- og sjóðastýringu voru hærri árið 2024 en í ár.
Hreinar fjárfestingatekjur eru 1.532 milljónir og hækka 219 milljónir á milli ára. Hreinar rekstrartekjur eru samanlagt 2.591 milljón og lækka 78 milljónir.
Rekstrarkostnaður nemur 1.056 milljónum og hækkar 5% á milli ára en sú hækkun skýrist að hluta til vegna kostnaðar í tengslum við samrunaviðræður. Skattur jákvæður 80 milljónir.
Niðurstaðan því hagnaður eftir skatta upp á 1.565 milljónir sem 8 milljónum hærri hagnaður en á sama tímabili árið áður. Förum því næst yfir rekstur ársins í heild þar sem hagnaður nam 1.902 milljónum og arðsemi eiginfjár var 8,6%.
Afkoma vátryggingasamninga nam 2.970 milljónum og afkomubati því 1.491 milljón á milli ára. En matsbreytingar á milli ára eru sambærilegar en þær komu til fyrr á árinu 2025 en árinu á undan og því verulegur bati á milli ára í tryggingarekstri.
Hreinar vaxtatekjur eru 461 milljón og hátt í tvöfaldast á milli ára. Og þóknanatekjur eru 2.358 milljónir og vaxa 30%.
En miklu munar að hreinar fjárfestingatekjur skila 38 milljónum sem 1.862 milljónum lægra en á síðasta ári og hefur því veruleg áhrif til lækkunar á hagnaði á milli ára. Hreinar rekstrartekjur nema 6.148 milljónum og vaxa 475 milljónir þrátt fyrir að hreinar fjárfestingatekjur séu umtalsvert lægri.
Rekstrarkostnaður nam 3.508 milljónum og hækkar 18% á milli ára en hækkun skýrist af auknum umsvifum í fjármálastarfsemi, meginhluta ÍV, ásamt tilheyrandi kostnaði við mikið umbreytingarár í rekstri samstæðunnar. Afskriftir óefnislegra eigna nema 196 milljónum og hækka sem nemur auknum afskriftum af óefnislegum eignum eftir kaupin á ÍV.
Hagnaður fyrir skatta því sambærilegur fyrra ári en skattar eru hærri í ár eða 535 milljónir og skýrist af því að hærri hluti afkomunnar árið áður var vegna hækkunar hlutabréfa á meðan grunnrekstur að skila meiru í ár. Niðurstaðan því hagnaður eftir skatta upp á 1.902 milljónir.
Efnahagsreikningur Skaga stendur í ríflega 85 milljörðum í árslok og hefur vaxið 7% á árinu. Fjárfestingasafn, lánasafn og fjárstýringareignir eru eftir sem áður stærstu eignir samstæðunnar og eignahliðin vex ríflega 1,4 milljarða á síðasta fjórðungi ársins.
Á skuldahliðinni má nefna að vátryggingaskuldin hækkar 1 milljarð á fjórðungnum vegna samhliða vexti og neikvæðum matsbreytingum. Og Fossar halda áfram að auka við skuldabréfa- og víxlaútgáfur bankans sem nema nú samanlagt 8,6 milljörðum.
Eigið fé samstæðunnar stendur í tæplega 24 milljörðum í lok ársins. Lítum þá nánar yfir tryggingareksturinn á árinu en niðurstaða ársins hjá VÍS virkilega góð og afkoma vátryggingasamningum sú besta í sögu VÍS.
Allir mælikvarðar í tryggingarekstrinum eru að sýna fram á sterkan takt. Tekjuvöxturinn hátt í 9,5% á milli ára og hann markviss og arðbær.
Kostnaðarhlutfallið 18,1% sem 1 prósentustigs lækkun á milli ára en þess má geta að kostnaðarhlutfallið hefur lækkað hátt í 4 prósentustig frá árinu 2022. Tjónahlutfallið batnar einnig nokkuð á milli ára eða ríflega 3 prósentustig.
Tekjur líf- og sjúkdómatrygginga vaxa hátt í 14% á 4. ársfjórðungi sem í samræmi við áherslur að ná fram enn betri samsetningu tekna og lækkun tjónahlutfalls.
Allt saman leiðir þetta til þess að afkoma vátrygginga 2.970 milljónir sem tvöföldun í afkomu á milli ára. Í viðaukaglærum að finna nánari upplýsingar tryggingarekstur VÍS þar sem hægt að glöggva sig betur á hvernig markviss sókn VÍS að skila sér í bættri samsetningu tekna, lækkun kostnaðar og bættu tjónahlutfalli.
Einnig má þar sjá hvernig matsbreytingar hafa þróast yfir tíma. Í fjármálastarfsemi jukust tekjur 36% á milli ára og enduðu í 3.188 milljónum sem umfram tekjumarkmið ársins þar sem stefnt var að tekjum umfram 3.100 milljónir.
4. ársfjórðungur var sterkur með 976 milljónir í tekjur og 9% vöxt á milli ára.
Aukin stærðarhagkvæmni skilar sér líka í afkomubata 220 milljónir á milli ára þrátt fyrir talsverðan samþættingarkostnað á fyrri hluta ársins. Öll svið bankans hjá Fossum áttu góðan fjórðung þar sem stærri verkefni kláruðust í fyrirtækjaráðgjöf, bjarmanatekjur voru sterkari í eigin viðskiptum, markaðsviðskipti voru í góðum takti ásamt áframhaldandi uppbyggingu lánasafns sem stuðlar að hækkun vaxtatekna.
Tekjur af eigna- og sjóðastýringu fóru einnig vaxandi ásamt því að skila árangurstengdum þóknunum sem voru þó aðeins lægri en árið áður. Eignir í stýringu eru á undan áætlun komnar yfir markmið okkar 250 milljarða.
Við stefnum áfram á sterkan vöxt á eignum í stýringu á þessu ári og stefnt að því að vaxa umfram 270 milljarða í stýringu í ár. Markmiðið að fjármálastarfsemin skili yfir 20% arðsemi efnislegs eiginfjár sem bundið í fjármálastarfseminni.
En í því samhengi má geta þess að efnislegt eigið fé í fjármálastarfsemi Fossa og ÍV nemur ríflega 3 milljörðum króna áramótin. Nú 4.
ársfjórðungur fyrsti fjórðungurinn í fjármálastarfsemi þar sem hægt að gera svokallaðan like-for-like samanburð á milli ára þar sem að ÍV kom inn á 4. ársfjórðungi 2024.
Hérna má sjá að tekjur eru að vaxa 9% á milli ára á meðan kostnaðargrunnur að lækka örlítið en þetta skilar sér í aukinni afkomu af fjármálastarfsemi á milli ára upp á 236 milljónir á 4. fjórðungi.
Afkoman og afkomubati að mestu að koma fram hjá Fossum eða 222 milljónir fyrir skatta en afkoma Íslenskra verðbréfa var 16 milljónir fyrir skatta. Auk þess skila Fossar jákvæðum skatti sem leiðir til þess að fjármálastarfsemin skilar 299 milljónum í ár eftir skatta.
Markmiðið að sækja áfram frekari vöxt og aukna arðsemi í starfseminni. Í fjárfestingasafni VÍS má sjá að fjárfestingatekjur eru 2.355 milljónir hérna hægra megin niðri og ávöxtun á árinu 5,2% en það 4.
ársfjórðungur sem skilar 4% og langmestum hluta af þeirri ávöxtun sem að kemur fram á árinu eftir að markaðurinn tók nokkuð við sér á þeim fjórðungi. Skuldabréf skiluðu mestu framlagi í fjárfestingatekjur eins og sjá má hérna vinstra megin niðri eða ríflega 2,5 milljörðum en ávöxtun hlutabréfa var dræm á árinu í heild, sérstaklega í skráðum hlutabréfum.
Skráð hlutabréf voru neikvæð 922 milljónir á meðan óskráð hlutabréf í safninu hækkuðu 575 milljónir. Og hér niðri hægra megin má einnig sjá að fjármagnsliðir vega þungt á árinu eða samanlagt ríflega 2 milljarða og hækkun 600 milljónir á milli ára.
En dræm ávöxtun hlutabréfa og háir fjármagnsliðir leiða því til þess að hreinar fjárfestingatekjur VÍS skiluðu aðeins 20 milljónum á árinu. Fjárfestingasafn VÍS stendur í tæplega 50 milljörðum áramótin og tilfærsla í eignasafninu var helst sú að dregið var úr vægi skráðra hlutabréfa og ríkisskuldabréfa og aukið við óskráð hlutabréf á 4.
ársfjórðungi en þar var meðal annars tekið þátt í hlutafjárútboði Dranga. Í þróun samsetningar hægra megin niðri má sjá að vægi hlutabréfa samtals 34% í lok fjórðungsins.
Hlutabréfasafnið skiptist svo eftir sem áður í bæði óskráð hlutabréf og skráð hlutabréf þar sem óskráð hlutabréf vigta tæplega 15% og skráð hlutabréf 19%. Við minnum á að hægt að sjá nánara niðurbrot og stærstu eignir eignasafnsins í viðaukaglærum líkt og áður.
Þegar við horfum á rekstrarkostnað samstæðunnar í heild þá best að bera saman árin 2024 og 2025 miðað við samstæðuna í núverandi mynd. En á árinu 2025 má sjá að kostnaður í fjármálastarfsemi 2.845 milljónir og hefur hækkað ríflega 500 milljónir frá síðasta ári.
Þessum 500 milljónum má gróflega skipta niður í 100 milljónir vegna einskiptis- og samþættingarkostnaðar, hátt í 300 milljónir vegna hærri kostnaðargrunns sem fylgdi ÍV og þá má rekja 100 milljónir til hækkunar á grunnkostnaði vegna aukinna umsvifa og verðlagshækkana ár frá ári. Hækkun á grunnkostnaði nemur því 4% á milli ára.
Og þegar við horfum á rekstrarkostnað í tryggingastarfsemi þá hækkar hann á sama tíma 3,7%. Að lokum í minni yfirferð má hér sjá mælikvarða fjárhagslegan styrk samstæðunnar.
Og þar má sjá að gjaldþol samstæðu stóð í 1,31 í lok tímabilsins og hækkar á fjórðungnum á meðan gjaldþol í tryggingarekstri stendur nokkuð í stað í 1,44 vegna fyrirhugaðrar úthlutunar innan samstæðu, það að segja úr VÍS til móðurfélags, vegna tilvonandi arðgreiðslu Skaga til hluthafa. Tillaga arðgreiðslu til hluthafa nemur 760 milljónum að teknu tilliti til eigin bréfa og samsvarar það 40% af hagnaði í samræmi við arðgreiðslustefnu félagsins.
Félagið getur ráðist í frekari úthlutun til hluthafa umfram arðgreiðslu í formi endurkaupa en ákvörðun endurkaup verður ekki tekin að sinni heldur metin með tilliti til framgangs samrunaviðræðna. Þá minni yfirferð lokið og gef ég Haraldi aftur orðið.
Haraldur
Nú takk fyrir þessa yfirferð Brynjar. En áður en við förum í spurningar að þá langar mig til að draga saman nokkur lykilskilaboð.
Nú eins og fram hefur komið í kynningunni að við erum farin að sjá árangur af okkar vinnu síðustu árin og það að koma skýrt fram í verulegum afkomubata af grunnrekstri samstæðunnar. Nú VÍS hefur stórbætt afkomu af vátryggingum á sama tíma og félagið vex hraðast allra tryggingafélaga sem frábær árangur og Guðný Helga og hennar teymi eiga mikið hrós skilið fyrir þann árangur sem hefur náðst á undanförnum árum.
Nú fjármálastarfsemi félagsins heldur áfram að vaxa í takt við okkar markmið og tekjuvöxtur nú í auknum mæli farinn að skila sér í afkomu af starfseminni sem að einnig mjög góðar fréttir. Nú það góður gangur í samrunaviðræðum við Íslandsbanka og eins og við komum inn á áðan að þá væntum við þess að geta komið inn á það frekari fréttum í náinni framtíð.
En að þessu sögðu að þá langar mig til að opna fyrir spurningar úr sal og ég og Brynjar munum vera til svara ef að einhverjar eru. Ég læt fylgja að það eru einnig veitingar hérna fyrir þá sem eru í salnum og öllum frjálst að tala við okkur hérna að kynningu lokinni.
Helgi
Helgi heiti ég frá Landsbankanum. Mig langaði aðeins að spyrja iðgjöldin hjá VÍS sem eru auðvitað að vaxa miklu hraðar heldur en önnur tryggingafélög.
Samstarfið við Íslandsbanka dræver í þessu eða svona og þið náttúrulega eruð að spá kröftugum vexti áfram á næsta ári þannig að það eru áfram tækifæri þarna í því sem hafið verið að gera eða hvernig svona sjáið þið fyrir hvað svona já [pick-me-up?] sem drífur á þessum vexti?
Er þetta minnsta mál?
Haraldur
Nei nei, en það mikilvægt að hafa í huga í þessu að þessi árangur sem að koma fram núna hjá VÍS, þetta auðvitað afrakstur stefnubreytingar og mikillar vinnu sem að nær alveg aftur til ársins 2022 í raun og veru. Og við erum bara að sjá afrakstur af þessum stefnubreytingum, áherslum í sölu, það búið að vera innviðir og innviðir allir.
Þannig að það hefur í raun og veru verið dræverinn af þessum vexti í iðgjöldum og jafnframt áhersla á að vera best í þjónustu sem að miðpunkturinn af þessu öllu. En varðandi punktinn með samstarf við Íslandsbanka, já við höfum alveg komið inn á það áðan að það að ganga mjög vel og það klárlega eitthvað sem að styðja við þennan vöxt hérna, áframhaldandi vöxt í tryggingarekstrinum.
Þannig að já, við erum alveg frekar brattir á framhaldið.
Brynjar
Kannski líka bara bæta við í þessu samhengi að samstarfið hófst ekki formlega milli félaganna fyrr en í maí, undir lok 2. ársfjórðungs og árið hefur heldur betur verið sterkt hjá VÍS allt árið, frá upphafi, sem í rauninni framhald af árinu á undan.
Þannig að líka bara í samhengi við hversu mikið Íslandsbankasamstarfið getur haft áhrif á tekjuvöxtinn, þá hjálpar það auðvitað til en það ekki það sem að drífa áfram þennan tekjuvöxt hjá félaginu.
Haraldur
Fleiri spurningar?
Elfar
Spurning varðandi iðgjöldin og iðgjaldavöxtinn. Getið þið svona splittað upp sirka hvað mikið af tekjuvextinum tengdur verðskrárhækkunum annars vegar og fjöldaskírteina hins vegar?
Og sama með væntingar farandi inn í '26, hvað svona eruð þið að reikna með mikilli hækkun á verðskrá á bak við þennan vöxt sem þið eruð að reikna með yfir 7% farandi inn í árið?
Haraldur
Já, þetta svona nokkurn veginn í takt við verðlag núna. Ég ekki alveg með þetta á taktunum en auðvitað partur af þessu að verðleggja þá áhættu sem verið að vinna með í öllum eignaflokkum.
En svona heilt yfir þá má horfa á það þannig að þetta svona nokkurn veginn í takt við verðlag.
Brynjar
Já, og upplýsingar tekjuvöxt eru veittar alveg sundurliðað á greinaflokka í kynningunni og hægt að sjá það nánar þar.
Haraldur
Heyrðu nú ef að það eru ekki fleiri spurningar úr sal þá þökkum við kærlega fyrir komuna og endilega njótið veitinga og þökkum ykkur einnig í streyminu.
Already premium?