Haraldur
En hér sjáum við afkomubrú fyrsta ársfjórðungs á milli ára, þar sem afkomubati nemur 1 milljarði króna. Og eins og sjá má á myndinni þá heldur grunnrekstur samstæðunnar áfram að þróast með jákvæðum hætti og sem fyrr segir eykst afkoma hans 200 milljónir króna á milli ára.
Nú, afkoma af fjárfestingum var talsvert betri á fyrsta ársfjórðungi þessa árs, en það rétt að nefna að fyrsti ársfjórðungur á síðasta ári var mjög þungur á mörkuðum og afkoma fjárfestinga var eftir því. Nú, niðurstaða fjórðungsins neikvæð sem nemur 336 milljónum í samanburði við neikvæða afkomu upp á 1.350 milljónir á síðasta ári.
Nú, VÍS átti trausta byrjun á árinu og niðurstaðan í fyrsta ársfjórðungi sú besta í tryggingarekstri frá árinu 2018. Fyrsti ársfjórðungur jafnan þyngstur og hefur sögulega verið yfir 100% í samsettu hlutfalli, en var núna 98,3%, sem virkilega góð niðurstaða og það ánægjulegt að sjá á hversu góðan stað við erum komin með tryggingareksturinn.
Nú, tekjur af vátryggingasamningum jukust 6,9% á milli ára, en þar af jukust tekjur af líf- og sjúkdómatryggingum 11,2%. Nú, þessi iðgjaldaaukning á fjórðungnum, hún í takti við áætlun félagsins, sem að gerði ráð fyrir því að það myndi draga aðeins úr iðgjaldavexti eftir mikinn vaxtarskeið hjá félaginu á undanförnum árum.
En það jafnframt ánægjulegt að meðfram þessu heldur ánægja viðskiptavina áfram að aukast. Nú, í fjármálastarfseminni var fyrsti ársfjórðungur nokkuð rýr í þóknunartekjum eftir ansi sterkan fjórða ársfjórðung á síðasta ári.
En heildartekjur af fjármálastarfseminni drógust saman, en afkoman batnaði þó lítillega, þökk sé aðhaldi á kostnaðarhlið, sem byrjað að koma fram í rekstrinum. Nú, afkoma Fossa var jákvæð 3 milljónir króna fyrir skatt á fjórðungnum, en frávik frá áætlun skýrist einkum af lægri tekjum af fyrirtækjaráðgjöf ásamt því að lækkanir á mörkuðum á seinni hluta fjórðungsins höfðu neikvæð áhrif á fjármunatekjur bankans eftir ansi góða byrjun á árinu á þeim vettvangi.
En á móti kemur að þá hefur vaxtamunur bankans farið hratt vaxandi og hefur aldrei verið hærri á einum ársfjórðungi, sem að merki þess að bankastarfsemin heldur áfram að þróast í rétta átt. Nú, eignastýringartekjur halda áfram að vaxa og 12 mánaða takturinn í fjármálastarfseminni sömuleiðis.
Nú, við kynntum fjárhagsleg markmið fyrir árið í síðasta uppgjöri og munum halda áfram að birta stöðu þessara markmiða eftir því sem fram vindur á þetta ár. Það að sjálfsögðu stutt liðið á árið núna og þessir mælikvarðar eiga það nú margir sameiginlegt að geta verið nokkuð sveiflukenndir á milli fjórðunga.
En hafandi sagt það, að þá eru, eins og við sjáum það núna, markmið ársins heilt yfir á þokkalegum stað. Og afkoma trygginga heldur betri en áætlunin gerði ráð fyrir, en tekjur í fjármálastarfseminni að sama skapi undir áætlun, sem fyrr segir.
En þá afkoma af fjárfestingum undir áætlun í þessum fjórðungi, en við horfum samt sem áður til þess að ná settum markmiðum. En nú í gær tilkynntum við uppfærðar áherslur í stefnu félagsins og skipulagsbreytingar tengdum þeim.
En markmiðið með þessum breytingum að ná fram lækkun kostnaðar með hagræðingu og einföldun ásamt því að auka enn á skilvirkni í samstarfi á milli félaga innan samstæðunnar. Og þessar breyttu áherslur hafa einnig í för með sér breytingar á framkvæmdastjórn samstæðunnar, þar sem að Steingrímur Arnar Finnsson mun nú stíga úr stóli forstjóra Fossa og mun Brynjar Þór Hreinsson, sem að ætti ykkur öllum hér að vera vel kunnur, að stíga inn í það hlutverk í hans stað.
Nú, Steingrímur mun vera félaginu áfram til ráðgjafar og sérstaklega í þágu lykilviðskiptasambanda og þróun líka viðskipta við erlenda aðila ásamt annarri tekjusköpun. En þessum skipulagsbreytingum fylgir einnig einföldun á starfsemi móðurfélags, en gert ráð fyrir því að tilfærsla verkefna, kostnaðarhagræði og sú einföldun skili allt að 180 milljónum króna í árlegri lækkun kostnaðar á samstæðugrunni þegar hún að fullu komin fram.
En þar að ræða fækkun starfa og launakostnaðar tengdu því, húsnæðiskostnaður, almennur rekstrarkostnaður ásamt lækkun í aðkeyptri þjónustu sem að verður í auknum mæli leyst hér innanhúss. En að þessu sögðu þá gef ég orðið til Brynjars sem að mun fara yfir fjárhagslegt uppgjör.
Brynjar Þór Hreinsson
Já, góðan daginn og takk fyrir það, Haraldur. Ég ætla að byrja á að fara yfir þá helstu rekstrarniðurstöður fyrsta ársfjórðungs.
En á tímabilinu nam tapið 336 milljónum og arðsemi eigin fjár því neikvæð 5,7% á ársgrundvelli. Afkoma vátryggingasamninga var 138 milljónir, sem 189 milljónum hærra en á fyrra ári, og skilar besta fyrsta ársfjórðungi trygginga frá því árið 2018.
Hreinar vaxtatekjur eru 154 milljónir og vaxa 43%. Þóknunartekjur eru 533 milljónir og lækka 10%.
En Haraldur kom inn á það að samdráttur var í fjármálastarfseminni og það skýrist meðal annars af minni tekjum í fyrirtækjaráðgjöf þennan fjórðunginn, en það getur auðvitað sveiflast á milli fjórðunga. Hreinar fjárfestingartekjur eru neikvæðar 284 milljónir á ársfjórðungnum en batna 813 milljónir á milli ára.
En samanburðurinn hér við mjög krefjandi markaðsaðstæður á fyrsta ársfjórðungi á síðasta ári. Hreinar rekstrartekjur eru samanlagt 591 milljón og batna 967 milljónir á milli ára.
Rekstrarkostnaður nemur 874 milljónum og lækkar 8% á milli ára. Þess má geta að ráðgjafakostnaður vegna samrunaviðræðna við Íslandsbanka féll til á þessum fjórðungi og nam hann 25 milljónum.
Skattur neikvæður 2 milljónir og niðurstaðan því tap eftir skatta upp á 336 milljónir. Nú, efnahagsreikningur félagsins, hann stendur í ríflega 87 milljörðum í lok tímabilsins, og hefur vaxið 6% á milli ára.
Fjárfestingasafn, lánasafn og fjárstýringareignir eru eftir sem áður stærstu eignir samstæðunnar og eignahliðin vex 2 milljarða á fjórðungnum. Vátryggingaskuldin hækkar 2 milljarða á tímabilinu, sem skýrist að mestu vegna endurnýjun trygginga áramót, en iðgjaldaskuld félagsins jafnan hæst á þessum tímapunkti.
Peningamarkaðsinnlán Fossa lækka á fjórðungnum en á móti hækkuðu lánalínur og repo lán bankans. Peningamarkaðsinnlán hafa svo aukist aftur í byrjun annars ársfjórðungs.
Eigið fé samstæðunnar stendur í tæplega 23 milljörðum og lækkun á fjórðungnum skýrist af tapinu á tímabilinu, arðgreiðslu og endurkaupum sem hófust í mars. Nú lítum þá nánar á tryggingareksturinn á fyrsta fjórðungi.
Nú, fyrsti fjórðungur hefur alla jafna verið í tapi í afkomu vátryggingasamninga, eins og sjá má, en nú 138 milljónir í plús og samsett hlutfall 98,3% og í fyrsta skipti aftur undir 100% síðan 2018. Aðrir mælikvarðar í tryggingarekstrinum eru áfram í góðum takti, þó að tekjuvöxtur sé kominn nokkuð niður eins og Haraldur kom inn á, þá hann alveg í takti við áætlun og þær rekstrarhorfur sem hafa verið birtar.
Tekjuvöxturinn milli ára nemur 6,9% og rekstrarhorfur sögðu til 7% tekjuvöxt á árinu. Það gott að sjá að líf- og sjúkdómatryggingar vaxa rúmlega 11% á fjórðungnum.
Kostnaðarhlutfallið 19,1% og lækkaði 0,1 prósentustig á milli ára. Og tjónahlutfallið batnar einnig á milli ára ríflega 2%.
Tryggingareksturinn í góðu horfi í upphafi ársins og óhætt líka að segja að janúar- og febrúarmánuðir hafi verið sérlega góðir á meðan tjónin jukust nokkuð í mars. Afkoma vátrygginga nemur, eins og áður segir, 138 milljónum og hækkar 189 milljónir á milli ára.
Tekjur í fjármálastarfsemi, þær lækkuðu tæp 9% á milli ára og eru 714 á fjórðungnum, 714 milljónir. Lækkunin skýrist, eins og áður segir, af lægri tekjum í fyrirtækjaráðgjöf en áætlað var, en einnig af lágum fjármunatekjum af veltubók sem var rétt við núllið í þessum fjórðungi.
Vaxtamunur bankans hefur farið stigvaxandi og ríflega 150 milljónir í fjórðungnum, sem það hæsta hingað til. Eignir í stýringu hreyfast lítið á tímabilinu en þar nemur lækkunin 2 milljörðum sem kemur til vegna nettó útflæðis auk þess sem ávöxtun tiltölulega lág á tímabilinu.
Afkoma fjármálastarfseminnar fyrir skatta neikvæð 20 milljónir en batnar 14 milljónir á milli ára, þar sem lækkun kostnaðar vegur á móti lægri tekjum á tímabilinu. Afkoma Fossa þar af jákvæð 3 milljónir en tap ÍV nemur 23 milljónum, sem skýrist að mestu á fækkun starfsfólks vegna starfsloka þar sem kostnaður gjaldfærður allur á fyrsta fjórðungi.
Hefði ekki komið til þess þá hefði rekstur ÍV verið rétt í plús einnig. Haraldur hefur komið inn á þær skipulagsbreytingar sem að búið að kynna og verkefnið í fjármálastarfseminni að auka þátt samningsbundinna tekna og það kallar á aukinn kraft félaganna, Fossa og ÍV, að sækja fram á sínum styrkleikum saman.
Í fjárfestingasafni VÍS má sjá að fjárfestingatekjur fjórðungsins eru 366 milljónir og ávöxtun fjárfestingareigna 0,7%. Skuldabréf skiluðu mestu framlagi í fjárfestingatekjurnar eða 500 milljónum, en ávöxtun hlutabréfa var dræm á fjórðungnum, sérstaklega í skráðum hlutabréfum sem voru neikvæð 336 milljónir.
En óskráð hlutabréf hækkuðu 129 milljónir. Nú, fjármagnsliðirnir vega áfram þungt og eru samanlagt 530 milljónir sem leiðir til þess að hreinar fjárfestingatekjur VÍS eru neikvæðar 250 milljónir.
Hátt vaxtaumhverfi skilar sér beint í fjármagnsliði vátryggingaskuldar og nemur vöxtun 360 milljónum af þessum 430 milljónum sem eru í fjármagnsliðum vátryggingaskuldar. En 80 milljónir til viðbótar skýrast af hækkun verðbólguvæntinga.
Fjárfestingasafnið, það stendur í ríflega 50 eða tæplega 51 milljarði og helsta tilfærslan í safninu að aukið var við fyrirtækjaskuldabréf og dregið úr vægi ríkisskuldabréfa og skráðra hlutabréfa. Það hefur verið dregið úr áhættu í safninu, enda má sjá þarna í þróun samsetningar hægra megin niðri að vægi hlutabréfa í heild rétt tæplega 30%, en stefnan að vera með 35% í hlutabréfum.
Og frekara niðurbrot á stærstu eignir eignasafnsins má áfram sjá í viðauka glærum. Rekstrarkostnaður samstæðunnar stendur í stað milli ára og nemur 2,5 milljörðum.
Helsta breytingin lækkun launakostnaðar, ef við horfum á undirliði, þá lækkar launakostnaður sem fellur til vegna fækkun stöðugilda, sérstaklega hjá VÍS. Rekstrarkostnaður í fjármálastarfsemi hefur einnig dregist saman, ríflega 10% á milli ára, og rekstrarkostnaður tryggingastarfseminnar hækkað 6%.
Áhersla á kostnaðarhagræði að skila sér í því að tekist hefur að lækka kostnað í fjármálastarfsemi og VÍS hefur tekist að halda kostnaðarhækkunum hóflegum á sama tíma og félagið að vaxa umtalsvert á milli ára, í mikilli verðbólgu og launaskriði. Þess má einnig geta að VÍS hefur verið að auka þjónustuna með opnum fleiri útibúa og líka rétt að taka fram að það hefur orðið mikill viðsnúningur til hins betra í kostnaðarhlutfalli félagsins síðustu ár.
Að lokum í minni yfirferð má hér sjá mælikvarða á fjárhagslegan styrk. Og þess má geta að arðgreiðsla að 4.760 milljónir var samþykkt og ákveðin 17.
mars. Einnig var ákveðið í mars að hefja endurkaup allt að 4.750 milljónir frá tímabilinu mars fram í byrjun júní.
Nú, arðgreiðsla og endurkaup nema því samanlagt 1,5 milljarði og gjaldþol samstæðunnar tekur tillit til þess. Gjaldþol stendur í 1,27 í lok fjórðungsins á meðan gjaldþol tryggingarekstrar stendur áfram í stað á milli fjórðunga í 1,44.
Væntingar eru að gjaldþol samstæðu og tryggingarekstrar fari vaxandi í kjölfar fyrsta ársfjórðungs sem ávallt tjónaþyngstur. Þá minni yfirferð lokið og gef ég Haraldi aftur orðið.
Haraldur
Nú, takk fyrir þessa yfirferð, Brynjar. En áður en við förum í spurningar og opnum á þær úr sal, þá langar mig til að draga saman nokkur lykilskilaboð frá fyrsta ársfjórðungi.
En grunnrekstur samstæðunnar, hann þróaðist áfram í rétta átt á fjórðungnum og við vinnum auðvitað hörðum höndum að því að sú þróun haldi áfram. Og það frábært að sjá jákvæða afkomu af tryggingarekstrinum hjá VÍS á fyrsta ársfjórðungi og það í fyrsta sinn í nokkurn langan tíma sem að það gerist og að mínu mati skýr skilaboð á hvaða stað við erum komin með reksturinn þar.
Nú, sveiflur á hlutabréfamörkuðum halda áfram að stríða okkur inn í þetta ár en virka stýringin á safninu að gera mjög vel í krefjandi aðstæðum, og ég myndi segja að á fyrsta ársfjórðungi hafi gengið vel að halda ávöxtun góðri miðað við aðstæður. En eins og ég kom inn á áðan að þá kynntum við uppfærðar áherslur í stefnu félagsins, skipulagsbreytingar þeim tengdum, en markmiðið þar auðvitað að ná fram aukinni hagræðingu með lækkun kostnaðar og einföldun á starfseminni hjá okkur, sem að stefnan að skili sér í aukinni arðsemi fyrir okkar hluthafa.
En þá yfirferðinni lokið í dag, en við Brynjar ætlum að svara spurningum úr sal ef einhverjar eru. Annars erum við hérna margir stjórnendur samstæðunnar í salnum og öllum velkomið að vera aðeins lengur og þiggja veitingar að kynningu lokinni.
En einhverjar spurningar úr sal frá hópnum?
Helgi Bragason
Já, Helgi Bragason, Landsbankanum. Ég að velta fyrir mér, þið náttúrulega farið í samrunaviðræður við Íslandsbanka og svona hafið verið svona vókall með það að þið séuð opnir fyrir samtali sameiningar eða kaup eða eitthvað svona.
Nú farið þið í svona meira innri skipulagsbreytingar, bara svona velta fyrir mér hvernig metið þið kannski landslagið núna í svona ytri kaupum eða sameiningum eða eitthvað svona sem að þið eruð að skoða eða hvernig staðan á því í þeim málum?
Haraldur
Já, bara mjög góð spurning. Ég held að það sé best að lýsa þessu að í raun og veru það sem að við höfum verið að gera núna að uppfæra áherslur.
Það fer fram ákveðin stefnurýni hjá stjórn og stjórnendum og eftir nokkuð langt tímabil þar sem að við erum búin að vera í umbreytingarfasa, svona ef ég rifja aðeins upp að á undanförnum 2-3 árum að þá erum við náttúrulega búin að búa til nýja samstæðu. Það búið að sameina félög, það búið að kaupa félög, svo sameina þau inn í samstæðuna, tilfærsla á tryggingarekstri dótturfélaga, allt þetta rosalega mikil vinna innanbúðar að koma okkur á þann stað sem við viljum vera.
Og við erum svona að sigla inn í uppskerutímabil þar sem að við erum búin að ná ákveðinni stærðarhagkvæmni, þó að vinnan sé auðvitað áfram í vexti hvað það varðar. En þetta bara mjög góður tími líka til að staldra aðeins við og horfa á hvort að það sé eitthvað sem við getum gert betur í núverandi stöðu.
Og við höfum verið mjög fókuseraðir á vöxt, tekjuvöxt og tekjumarkmið og við erum svona að detta inn í svolítið tímabil þar sem að við viljum gera hærra undir höfði að ná meira út úr vettvangi sem við erum búin að búa til. En af því sögðu að náttúrulega mjög langt svar við spurningunni, að þá erum við eftir sem áður opin fyrir tækifærum í umhverfinu.
Og við erum eftir sem áður í mjög góðri stöðu að mínu mati til þess að taka þátt í samþjöppun á fjármálamarkaði. Og enn og aftur eins og við höfum sagt áður, og sú staða í raun og veru enn skýrari í dag, að það vand séð að það verði einhverjar hreyfingar í þessu landslagi án þess að við höfum einhver aðkoma að því.
Þannig að tækifærin eru enn þá til staðar. Er það forsenda fyrir því að við náum okkar markmiðum?
Það ekki staðan. En erum opin fyrir að grípa góð tækifæri sem eru til hagsbóta fyrir okkar hluthafa, ekki spurning.
Helgi Bragason
Já, mjög gott, takk. Kannski bara stutt follow-up hérna, þessar 180 milljónir þarna sem að þið eruð svona targeta í lækkun kostnaðar, bara svona tímalínan á að það verði komið í full effect?
Haraldur
Já, góð spurning. Ég hugsa að meirihlutinn af þessu tengt launakostnaði, það eitthvað sem mun koma mjög hratt fram.
Og svo kannski hinn hlutinn, ég myndi segja við myndum gefa okkur fram eftir ári að ná því, mögulega í síðasta lagi eitthvað aðeins inn í nýtt ár en ég hugsa að það ætti að nást allt á þessu ári.
[unclear] 180 [unclear]
Haraldur
Já.
Helgi Bragason
Mjög gott, takk fyrir mig.
Haraldur
Já. Einhverjar fleiri spurningar úr salnum?
Nú, svo ekki þá bara þakka ég kærlega fyrir komuna í dag og endilega njótið veitinga.
Already premium?