María
Verið velkomin á þessa afkomukynningu Símans. Við ætlum að hafa kynninguna með aðeins öðru sniði en svona á síðustu fundum.
Ég ætla að byrja og opna hérna og fara yfir svona það sem okkur finnst helst hafa staðið upp úr á árinu sem var að líða. Og síðan ætlar Hjörtur Þór, fjármálastjóri félagsins, að koma og fara yfir helstu fjárhagstölur bæði fyrir fjórða ársfjórðung 2025 og síðan fyrir árið 2025 í heild sinni.
Síðan kem ég þá aftur í lokin og fer svona aðeins yfir horfurnar fram undan og líka þessa metnaðarfullu framtíðarsýn sem að við höfum svona verið að kynna í raun allt síðasta ár, en náði kannski svo hápunkti núna á fjórða ársfjórðungi þegar við kynntum kaup á þremur félögum og héldum síðan hluthafafund núna í lok janúar þar sem við fengum samþykkta heimild til stjórnar til að gefa út nýtt hlutafé til að efna þau viðskipti. En ég held að fyrirsögnin hérna hún kjarni ágætlega hvernig við horfum á árið 2025 því það var svo sannarlega viðburðaríkt.
Og við erum ánægð og stolt af útkomunni. Það var auðvitað, og nú erum við auðvitað búin að tala þetta hérna á hverjum einasta afkomufundi, en það staðreynd að það var mikið umrót og miklar hræringar á markaðnum sem fylgdu færslu enska boltans frá Símanum yfir til Sýnar.
Og það sem við gerðum og í raun okkar nálgun var að snúa vörn í sókn og með þeim árangri sem við getum kallað varnarsigur. Því að við erum að sýna vöxt, við erum að sýna vöxt í rekstrarhagnaði, við erum að sýna vöxt í hagnaði á hlut.
Og mig langar svo til að nota tækifærið hérna strax í byrjun fundarins til að hrósa bara sérstaklega öllu starfsfólki Símans því að þessar aðstæður, þetta olli auðvitað meiri óvissu í rekstri félagsins heldur en hafði verið árabil. Og það lögðust allir á árarnar að finna lausnir, alltaf með hagsmuni viðskiptavinanna í fyrirrúmi.
Og það var eiginlega alveg ótrúlegt að koma hérna sérstaklega svona í sumar og haust þegar að þessir atburðir voru svona að ná hápunkti sínum, að finna liðsheildina og orkuna í hópnum. Og það eru þau sem eiga heiðurinn af þeim árangri sem við kynnum svo hér í dag.
En það fleira að gerast innan Símans og við höfum verið stöðugt í þessari viðskipta- og vöruþróun innan félagsins, að finna leiðir til að láta núverandi kjarnastarfsemi vaxa. Við kynntum meðal annars nýjan samning við Starlink endursölu á gervihnattalausnum.
Og þar erum við að sýna það að við erum með aðlögunarhæfni og þegar að tæknin breytist þá lítum við ekki á það sem ógnun heldur tækifæri. Og það frábært að vera að koma þessari flottu vöru inn í okkar vöruframboð.
Fjátæknin hefur verið í miklum vexti og sókn á síðustu misserum. Og aðalfókusinn síðasta ár var á fyrirtækjakortið okkar og ég kem aðeins betur inn á það síðast í kynningunni hvernig sá vöxtur hefur þróast.
En þetta skapar mikil tækifæri inn á fyrirtækjamarkaði fyrir fjártækni fram á veginn. Og síðan það yfirtakan á Billboard.
Nú Billboard búið að vera hluti af Símanum allt heilt rekstrarár, heilt fjárhagsár. Og það alveg ótvíræður árangur af þessari yfirtöku sem sést í því hvernig auglýsingamiðlun Símans hefur vaxið og dafnað.
Og þarna vorum við að taka í raun tvö ólík fyrirtæki, auglýsingasvið Símans og síðan Billboard, og samþættum þau sem að var í raun ekki alveg augljóst skref. Það hefði verið hægt að reka Billboard sér og var gert fyrst sinn því það var mjög góður og flottur rekstur.
En við tókum þessa ákvörðun og ég held að það hafi verið óhætt að segja að við tókum það besta út úr báðum þessum fyrirtækjum með þeim afleiðingum að bæði fyrirtækin fóru í aukna sókn og við sáum mikinn tekjuvöxt og ánægju viðskiptavina þar. En Síminn auðvitað þekktur bara fyrir traustan og agaðan rekstur og árið í fyrra var engin undantekning þar á.
Og auðvitað skiptir það gríðarlega miklu máli þegar að svona miklar breytingar verða eins og þegar enski boltinn fór frá okkur að missa aldrei sjónar á kostnaðinum. Og við auðvitað eins og aðrir erum ekki ónæm fyrir þessum verðbólgu-, launahækkunum, miklar hækkanir frá erlendum hugbúnaðarbirgjum.
En við höldum okkur trú okkar stefnu við það að finna ávallt leiðir til að auka skilvirkni í rekstrinum. Og það þannig sem við höfum náð að sýna traustan afkomuvöxt ár eftir ár.
En samhliða þessu sem við vorum að takast á við þessar miklu breytingar á markaðnum, vorum að hugsa viðskiptavini okkar, þróa vöruframboð okkar og hafa góða stýringu og yfirsýn yfir okkar kostnað, þá vorum við að móta nýja framtíðarsýn fyrir Símann. Við kynntum í upphafi síðasta árs nýja stefnu stafrænt samfélag eða stafrænt vistkerfi, fullt af virðisaukandi þjónustum bæði fyrir fólk og fyrirtæki.
Og byrjuðum markvisst að undirbúa félagið, skipulag, hvernig við vinnum, stjórnendahópinn og svo framvegis, til þess að undirbúa aukinn ytri vöxt í fleiri áttir. Og það verkefnið sem að við höfum verið að kynna núna á síðustu vikum í kjölfarið af því að við kynntum þessi kaup sem ég minntist á hér í upphafi á þremur fyrirtækjum.
Og ég mun koma aðeins betur inn á það hér í lok þessarar kynningar. En áður en við förum í framtíðina ætlum við að klára að gera upp síðasta ár og Hjörtur kemur núna og fer yfir fjárhagstölurnar.
Hjörtur Þór
Takk, María. Gaman að sjá ykkur öll hérna í dag.
Hjörtur heiti ég og ætla að rúlla aðeins í gegnum afkomu fjórða fjórðungs síðasta árs. Og hérna eru tölurnar.
Við erum eins og María sagði, bara mjög ánægð með þessa niðurstöðu. Rekstrarhagnaðurinn eykst á milli tímabila.
Heildartekjur hérna, rétt að vera með gleraugun sjálfur. Heildartekjur voru þarna 7,3 milljarðar og lækkuðu reyndar aðeins frá fyrra ári.
En það var tekjusamdráttur í kjarnavörum samhliða brotthvarfi enska boltans eins og María kom aðeins inn á áðan. En það samt mikilvægt að hafa í huga að það voru skýr merki viðsnúning á seinni helmingi fjórðungsins með fjölgun áskrifenda.
Þannig að það verður líka að hafa aðeins í huga samanburðinn þarna milli ársfjórðunga út af því að ársfjórðungurinn 2024 var mjög stór hjá Símanum og sérstaklega í Sjónvarpi Símans. Enski boltinn var enn þá þarna inni.
Og ég kem aðeins inn á það aftur á eftir að hann var sterkur líka í auglýsingamiðlun. Rekstrarkostnaðurinn eykst þarna 1,2% á milli tímabila þrátt fyrir að kostnaður á okkar helstu innviðabirgja þróist í takti við verðlag.
Afskriftir á sýningarréttum lækka á milli tímabila tengt enska boltanum. Og eins og María kom inn á þá áfram þessi sterka kostnaðarvitund og aðhald í rekstri sem svona í forgrunni hérna hjá okkur í Símanum.
Nú, eins og við höfum gefið út þá hérna lækkaði EBITDA lítillega þarna á milli tímabila 155 milljónir, en EBIT hækkaði og var þarna rétt 1 milljarður á tímabilinu. Og þannig að hagnaðurinn á tímabilinu var þarna rúmlega 750 milljónir versus 638 tímabilið á undan.
Síðan erum við hérna þá með þetta brotið aðeins niður á starfsþætti. Þarna sjáið þið að farsíminn og gagnaflutningur lækka lítillega eða 2% á milli tímabila.
Tekjur lækka þarna í sjónvarpinu rúmlega 7%. En aftur, eins og María kom inn á, þetta umrót á markaði hafði áhrif.
En aftur verður að hafa í huga að samanburðarfjórðungurinn frá '24 var mjög sterkur. Þar vorum við bara með metfjölda af áskrifendum í Símanum Premium.
En aftur þessum hérna áskrifendum tók að fjölga á ný á seinni helmingi fjórðungsins sem jákvætt. Og síðan drögum við þarna aðeins fram líka mjög sterkan árangur í auglýsingamiðlun.
Þrátt fyrir að tekjur lækkuðu 20 milljónir á milli fjórðunga þá verður að hafa í huga að á fjórða fjórðungi '24 vorum við enn þá þarna með enska boltann og líka voru Alþingiskosningar í nóvember sem mjög sterkur viðburður í auglýsingasölu. Hluta offsetta af þessari tekjulækkun þá vöxturinn okkar í öðrum tekjum, en sá liður jókst tæp 40% og að mestu drifinn áfram af fjártækninni okkar.
Hérna þá bara önnur birtingarmynd af þessum starfsþáttum og þarna aðeins dregin athygli ykkar einmitt að þessum fjórða ársfjórðungi í fyrra sem var virkilega sterkur. Þannig að aftur í samanburði á milli þessara tveggja fjórðunga þarf að hafa það í huga.
Nú hérna eru þá lykiltölur brotnar niður á ársfjórðunga. Og þarna sjáið þið að EBITDA félagsins stöðug á þessum tímabilum.
EBIT vaxandi eins og við höfum talað á síðustu uppgjörsfundum. Dreg athygli ykkar að frjálsu fjárflæði, bara handbært fé að frádregnum fjárfestingum, þá á fyrsta ársfjórðungi '24 þarna var stór greiðsla vegna enska boltans, vegna sýningarréttar, sem hafði mikil áhrif.
Og síðan hérna á fjórða ársfjórðungi okkar núna síðastliðnum þá voru miklar fjárfestingar. Fjárfestingar okkar í fyrra námu tæpum 3 milljörðum og rúmlega milljarður féll til þarna á fjórða ársfjórðungi.
Og síðan voru líka tímabundnar hækkanir á skammtímakröfum sem lituðu sjóðstreymið aðeins á fjórðungnum. Hagnaður per fjórðung bara góður, ánægð með það, og hefur verið stígandi í honum.
Þá það rekstrarreikningurinn fyrir árið '25 og við erum mjög bara ánægð með þessa niðurstöðu. Stöðugur og traustur rekstur þrátt fyrir þetta umrót sem að María talaði hérna áðan.
Heildartekjur ársins námu 28,8 milljörðum. Við höfðum gefið út bráðabirgðatölur í tengslum við hluthafafundinn sem við héldum nýverið.
Þá komum við inn á að tekjur yrðu í kringum 28,8 milljarðar. EBITDA 6,9 og EBIT án afskrifta óefnislegra eigna vegna kaupa á dótturfélögum 3,3 milljarðar.
Og það niðurstaðan. Þannig að tekjuaukning á milli ára var þarna 3,4 3,4%.
Tekjur af farsíma, gagnaflutningi og sjónvarpsþjónustu á pari á milli ára eða 22,3 milljarðar. Tekjuvöxtur annarra eininga, auglýsingamiðlun, vörusala og aðrar tekjur, nam 17% rúmlega.
Tekjur í auglýsingamiðlun jukust 505 milljónir á milli ára og mestur munar þar umhverfismiðlana okkar en Billboard var hluti af samstæðunni allt árið í fyrra en var 3/4 hluta árs árið á undan. Búnaðarsala dróst lítillega saman eða 5,7% meðan að tekjur af öðrum rekstri jukust rúmlega 500 milljónir á milli ára samhliða vaxandi tekjum í fjártækni.
Nú rekstrarkostnaður hækkaði 3,3% frá fyrra ári. Auk þess að gjaldfærðar voru 460 milljónir vegna stjórnvaldssektar og skaðabóta á fyrsta fjórðungi ársins.
Þannig að EBITDA aðlöguð fyrir þeirri sekt nemur 7,4 milljörðum á síðastliðnu ári samanborið við 7,1 milljarð árið á undan og aðlöguð EBITDA framlegð þá mjög sterk eða 26% tæp. Og þá EBIT eins og ég nefndi áðan, guidance EBIT-ið okkar 3,3 milljarðar sem innan þeirra spábils sem við höfðum talað.
Spábilin okkar voru 6,6 fyrir EBITDA 6,6 til 7 milljarðar og við endum þarna í tæpum 7. Og spábil fyrir EBIT var 3,2 til 3,6 og enduðum þarna í 3,3.
Nú aðlagaður rekstrarhagnaður, aðlagað EBIT eins og við erum með í töflunni hérna neðst, þá 3,6 milljarðar samanborið við 2,9 milljarða árið á undan eða 25% aukning. Nú hérna eru þá lykiltölur fyrir '25.
Og þarna sjáið þið stígandann þá einmitt í EBITDA hjá okkur og EBIT sérstaklega þar sem að EBIT framlegðin að aukast markvert. Nú koma aðeins inn á frjálst fjárflæði þarna áðan, það náttúrulega gott að horfa á það líka yfir árið einmitt út af því að það geta verið þarna tímabundinn mismunur þarna á milli hvenær fjárfestingar detta inn og fleira.
Og þarna erum við að sýna náttúrulega yfir árið mjög sterkt, tæpir 2,7 milljarðar í frjálsu fjárflæði. Nú hagnaður hefur verið að aukast aðeins hjá okkur og hagnaður per hlut einnig sem mjög jákvætt.
Nú þá það efnahagurinn og sjóðstreymið. Efnahagsreikningur félagsins sterkur og hóflega skuldsettur.
Hann stækkar lítillega á milli ára eða 8%. Og ástæðan fyrir því þá helst óefnislegar eignir hækka aðeins á milli ára.
Það HBO samningurinn sem gerður var á síðasta ári sem María vísaði til. Útlán Síminn Pay aukast líka á fyrsta ársfjórðungi 2025 keyptum við lánasafn þarna fjárhæð 1,4 milljarðar.
Einnig eins og við komum aðeins inn á áðan hækkun á öðrum skammtímakröfum sem bæði vegna góðs gengis á fyrirtækjakortakorta Síminn Pay og þá þessum tímabundnum hækkunum annarra liða. Vaxtaberandi skuldir hækka tæplega 2,3 milljarða á milli ára.
Gáfum út skuldabréf á síðasta ári fyrir 1.200 milljónir og jukum aðeins bankalán. Eiginfjárhlutfallið lækkar aðeins á milli ára samhliða þá stækkandi efnahagsreikning og endurkaupum á árinu.
Og eiginfjárhlutfallið áfram sterkt eða tæp 39%. Vek aðeins athygli líka þarna, við erum með næsta árs afborganir þarna rúmlega 3 milljarðar.
Þetta skuldabréf sem á gjalddaga hjá okkur í lok júní og erum við að vinna því að endurfjármagna það. Nú sjóðstreymið hjá félaginu var sterkt í fyrra líkt og síðustu ár og hefur verið sterkt.
Handbært fé frá rekstri lækkar lítillega en aftur sektin spilar þar inn í sem og tímabundnar hækkanir skammtímakrafna á fjórða fjórðungi sem og þá aukin velta og árangur fyrirtækjakorta Síminn Pay. Fjárfestingar lækkuðu aðeins á milli ára þá einkum tengt sýningarréttum.
Og lánasafnið var síðan keypt þarna á fyrsta ársfjórðungi '25 eins og ég nefndi áðan. Og þannig að fjárfestingahreyfingar námu þarna 4,2 milljörðum.
Nú fjármögnunarhreyfingar voru þá 700 milljónir neikvæðar á árinu. Arðgreiðslur og viðskipti með eigin bréf 2,6 milljarðar sem aukning 700 milljónir á milli ára.
Og nettóbreytingar á útlánum eru þarna jákvæðar rúmlega 2 milljarða. Þannig að handbært fé í árslok tæpur milljarður.
Og þarna sjáum við þetta einmitt framsett bara í svona fallegri brú. Þá var það fjárfestingarnar okkar.
Fjárfestingar ársins, við gáfum líka út spábil fyrir þær og það var 2,8 til 3,1 milljarður. Fjárfestingarnar lenda þarna í 2,9 milljörðum rúmlega eða svona akkúrat í miðjunni.
Þetta þá 500 milljón króna lækkun á milli ára. Eins og við komum inn á áðan þá lækkuðu fjárfestingar í sýningarréttum á milli ára og tæplega 700 milljónir.
Og fjárfestingar jukust síðan aðeins í tæknilegum innviðum 170 milljónir. Síminn jók fjárfestingar á árinu í fjarskiptanetum og viðskiptakerfum, 120 milljónir.
Og síðan voru aðeins auknar fjárfestingar tengt Billboard og Núna. Síminn Pay lækkaði aðeins fjárfestingar á milli ára en 2024 var stórt ár hjá þeim, fjárfestingaþungt, þar sem var verið að leggja grunninn að fyrirtækjakortinu sem gengið hefur vel.
Við setjum fram hérna spábil fyrir fjárfestingar á þessu ári, aukast aðeins, 3,4 til 3,7 milljarðar. Þar af nemur fjárfesting í 5G kjarna 500 milljónum.
Og síðan sjáum við fyrir okkur að fjárfestingar tengdu sjónvarpsefni aukist frá fyrra ári. Þá HBO samningurinn líka kominn inn að fullu en hann kemur inn þarna seinni hluta síðasta árs.
Nú þetta var síðasta glæran hjá mér. Bara hlakka til að eiga samtalið hérna við ykkur á eftir.
María ætlar að koma og fara aðeins yfir horfur á þessu ári og næstu misseri.
María
Já, samhliða þessu uppgjöri þá gefum við út nýja afkomuspá fyrir árið 2026. Og ef ég fer bara í gegnum helstu forsendur á bak við þessa spá sem við gefum núna út þá erum við að horfa fram á og gera ráð fyrir bara svona áframhaldandi stöðugum og hóflegum vexti í þessum kjarnavörum okkar í fjarskiptunum og sjónvarpi.
Við auðvitað sáum þetta brotfall síðasta haust þannig að grunnlínan okkar lægri heldur en í upphafi síðasta árs þegar við vorum til dæmis með metfjölda í áskrifenda í Sjónvarpi Símans Premium. En það alveg ljóst að eftir að við sáum að það komst svona aukið jafnvægi á hlutina í lok fjórðungsins og þegar við vorum búin að ná að innleiða og markaðssetja okkar þjónustu, HBO fylgir nú með Sjónvarpi Símans Premium, við innleiddum stóran katalóg af Heyu efni sem Bandarískt raunveruleikaefni að miklu leyti og höfum síðan haldið áfram að fjárfesta mikið í íslenskri framleiðslu, að þá sáum við trendið snúast við og við sjáum nú mjög góða sölu í lok árs í sjónvarpinu.
Og okkur sýnist síðan að þetta ár sé að fara af stað með svipuðum hætti. Í fjártækninni gerum við ráð bara fyrir áframhaldi á þessum kröftuga vexti sem að verið hefur.
Það eru margar spennandi nýjungar í farvatninu þar, áframhaldandi þróun á vörunum okkar bæði á fyrirtækja- og einstaklingsmarkaði. En í auglýsingamiðlun þar erum við bara að gera ráð fyrir svona góðum en skynsamlegum vexti.
Þar erum við líka alltaf að bæta við, stækka netið okkar og við bættum við 100 auglýsingaskjám á strætóskýli í fyrra þannig að við erum að skapa grundvöll til að auka tekjur til framtíðar með margvíslegum hætti. Kostnaðarhliðin, eins og ég kom inn á og Hjörtur minntist líka á, auðvitað erum við að taka verðtryggðar hækkanir á mjög stóra samninga af föstum kostnaði.
Og við höfum í auknum mæli fundið fyrir þessum kostnaðarþrýstingi frá erlendu birgjunum okkar tæknimegin. En við munum halda áfram að stýra kostnaði hér skynsamlega og setjum fram þetta bil að við gerum ráð fyrir að EBITDA Símans á næsta ári verði 6,8 til 7,2 milljarðar.
Og við vorum búin að undirbúa markaðinn fyrir það að brotthvarf enska boltans myndi þýða að EBITDA myndi lækka en EBIT myndi hækka. Og það það sem við sjáum því að við gerum ráð fyrir að EBIT verði á bilinu 3,2 til 3,6 milljarðar á næsta ári.
Og þarna verður aðeins að hafa í huga að síðasta ár var auðvitað mjög tvískipt. Við vorum með enska boltann fyrstu fimm mánuðina, síðan datt hann út.
Í fjórða ársfjórðungi tókum við síðan inn og fjárfestum í þessum stóru sjónvarpssamningum til að styðja við sóknina. Þannig að í raun þarf svolítið að horfa á fyrsta sem trailing 12 months EBIT frá fyrsta ársfjórðungi 2025 til að vera með samanburð því þar erum við með 12 mánuði þar sem enski boltinn inni og Billboard inni.
Og ef við berum þar saman þá erum við að gera ráð fyrir ágætis vexti í EBIT rekstrarhagnaði. Hjörtur var búinn að fara ágætlega yfir fjárfestingarnar og hvernig við sjáum þær.
Við erum auðvitað í stóru verkefni í okkar farsímakerfi að innleiða svokallaðan 5G standalone kjarna og það verkefni verður fjárfestingaþungt núna í ár og á næsta ári. Þannig að það svona helsta sem að við sjáum auka fjárfestingar til viðbótar svo við að halda sjónvarpsvörunni okkar sterkri.
Auk þess sem við erum í mikilli umbreytingu í okkar stafræna umhverfi einmitt til þess að styðja við stefnuna fram á veginn. Þetta eru breytingar sem gera okkur kleift að samþætta félög með einfaldari hætti, að vera fljótari að aðlaga og koma nýjum vörum á markað.
Þannig að þetta eru gríðarlega mikilvæg verkefni. En síðan það líka þannig að í okkar fjárfestatengslum hjá Símanum þá höfum við alltaf lagt mjög mikla áherslu á traust og trúverðugleika og gagnsæi.
Og við setjum auðvitað fram bil sem við treystum okkur til að standa við. Þið hafið ekki oft séð Símann breyta afkomuspá á miðju ári nema ef eitthvað sérstakt kemur til og hérna eins og stórar sektir.
En það þannig að við auðvitað setjum fram bil sem að við treystum okkur til að vera innan en erum að sjálfsögðu alltaf með markmið að gera enn betur. Þá erum við með nokkrar fréttir úr rekstrinum.
Og ef við tökum fjártæknina aðeins fyrir í byrjun að þá sést hérna hvernig að frá því að fyrirtækjakreditkortið okkar fór á markað hvernig fjöldi korta hefur aukist nánast í veldisvexti. Varan fór nú ekki almennilega á markað fyrr en þarna í lok árs 2024 þótt að örfá kort hafi verið gefin út á fyrri árshelmingi.
En virkilega góðar viðtökur. Á meðan að varan í vexti þá vissulega hefur hún aðeins áhrif á veltufjárbindingu félagsins eins og Hjörtur kom inn á áðan.
En þarna erum við komin með virðisaukandi vöru þar sem við erum að taka stærstu hérna fyrirtæki landsins og mörg sveitarfélög í viðskipti. Þannig að við erum svo sannarlega búin að finna lausn sem virkar.
Og núna á dögunum kynnti Reykjavíkurborg einnig að þau eru að innleiða rafrænar innkaupabeiðnir sem hluti af þessari lausn í öll reikningsviðskipti hjá Reykjavíkurborg. Og þetta skapar okkur gríðarlega mikil tækifæri að vera komin inn í svo stórt netsöluaðila eins og birgjar Reykjavíkurborgar telja.
Í Núna þar erum við auðvitað komin á aðeins þroskaðri stað. Núna lausnin búin að vera til í þó nokkurn tíma.
En það samt sem áður þannig að það stöðugur vöxtur bæði í skráðum og virkum notendum og í söluaðilum sem nýta þetta vistkerfi til að selja sína vöru og þjónustu. Það sem stóra verkefnið okkar núna hjá Núna að innleiða greiðslumöguleika inn í lausnirnar því við sjáum það að þar getur farið saman ávinningur okkar og ávinningur viðskiptavinanna að geta rukkað og greitt fyrir þjónustu beint í gegnum appið með lausnum sem að Síminn útvegar og sem skapar okkur tækifæri að fá tekjur af þeirri veltu sem fer í gegnum þetta vistkerfi.
Lánasafnið okkar, þið munið það í byrjun síðasta árs keyptum við lánasafn og stækkaði lánabókin okkar þarna umtalsvert en hefur verið síðan svona að dragast lítillega saman það sem af ári. Og þarna aðallega ástæðan sú að hluti af kaupunum á þessu lánasafni snerust að gera dreifingarsamning við færsluhirðinn sem seldi okkur safnið og komast þannig með viðtækara sölunet á lánunum okkar.
En það verkefni hefur einfaldlega tafist. Það var tæknilega flóknara og erfiðara í framkvæmd en áætlanir gerðu ráð fyrir.
Og fókusinn hjá teyminu sem að vinna í þessum lausnum hefur verið á fyrirtækjakortinu af því að þar erum við svolítið í keppni að ná svona landgræp á markaðnum. Þannig að það hefur komið niður á þessu.
En lánasafnið gott, vanskil eru lág og leið og þessari tæknilegu innleiðingu lýkur þá erum við komin í mun sterkari stöðu til þess að halda áfram að byggja ofan á safnið. Við erum líka stolt af að segja frá þessari vöru, Núna Strax, sem að samstarfsaðili á milli Núna, Símans og síðan færsluhirðafyrirtækja.
Og við höfum fundið það því að stærstur hluti af viðskiptavinum Núna eru svona smærri rekstraraðilar í þjónusturekstri að þeim finnst vera flókið og þungt ferli að koma sér upp þeim svona tæknilegu innviðum sem þau þurfa til þess að geta einbeitt sér að sínum rekstri. Það þarf að kaupa afgreiðslu kerfi, það þarf að vera með spjaldtölvur, posa, routera og öll fjarskiptin, bókunarkerfin.
Og það sem við erum að gera þarna að búa til vörulínu sem sameinar þetta og kemur bara einmitt í kassa. Þetta bara hilluvara sem að aðili sem langar til dæmis að opna snyrtistofu eða nuddstofu eða annað getur komið og sótt til Núna.
Og í kassanum allt sem hann þarf til að setja upp, auðvitað sumt POS og annað þjónusta en þetta nú samt í þessum kassa, til þess að setja upp allt sem að hann þarf til að geta haft samband við viðskiptavini sína, haldið utan bókanir, tekið á móti greiðslum. Þannig að við erum mjög ánægð að sýna þarna hvernig við erum að finna snertifletina í þjónustuframboði samstæðunnar og kannski svona smá teaser á það sem koma skal.
Svo erum við með hérna ársfjórðungslegu glæruna miðlana okkar sem eru alltaf að toppa sig. Og við sýndum nýju þáttaröðina Hildigunni í janúar og spilanirnar voru í raun framar væntingum og var áhorfsmet á fyrsta þáttinn á Premium.
Við höfum verið mjög aktíf að vinna í því að upplýsa okkar viðskiptavini það að núna fylgir HBO Max streymisveitan með Sjónvarpi Símans Premium. Og farið í ýmsar markaðsaðgerðir til að fá viðskiptavini til að virkja og til að nýta það.
Því að það gríðarlegt virði í þessu fyrir viðskiptavininn og við trúum því eindregið að þetta auki tryggð þeirra við vöruna til lengri tíma. Ég var búin að koma inn á þetta, við erum sífellt að stækka netið í Billboard og í strætóskýla netinu okkar.
Erum að ná þarna 90% eða getum boðið auglýsendum 90% dekkun á höfuðborgarsvæðinu á degi hverjum. Og önnur skemmtileg vöruþróun í auglýsingunum síðan risapásan okkar, það að segja í sjónvarpsviðmóti okkar að þegar smellt á pásu að þá kemur svona stór auglýsing yfir skjáinn.
Og þetta spilaði bara lykilhlutverki í þeirri varnarbaráttu sem við vorum í þegar við misstum enska boltann. Því að það var umtalsvert af auglýsingatekjum sem var beintengt við kostun og auglýsingar á enska boltanum.
En með því að koma með þessa nýju vöru þá jukum við lagerinn okkar mjög mikið. Auglýsendur voru mjög fljótir að sjá virði í þessari vöru því þessi auglýsing vekur mjög mikla athygli og þú getur eiginlega verið alveg fullviss að augu þess sem að horfa eru á henni.
Þannig að þetta var gríðarlega skemmtilegt og eins og ég segi einföld þróun en skilaði miklu virði. Nú í lokin ætlaði ég að renna yfir nokkrar glærur sem voru í þeirri kynningu sem við fórum með til hluthafa þegar við vorum að óska eftir samþykki fyrir kaupunum á OK og Öryggismiðstöðinni.
Og þá finnst mér alltaf gott að byrja á þessu: hvað Síminn í dag og hvers vegna Síminn svona ótrúlega traustur grunnur til að byggja ofan á? Við auðvitað búum að gríðarlega langri sögu.
Félagið fagnar 120 ára afmæli sínu í ár og eitt verðmætasta vörumerki landsins. Við erum einnig með rosalega stóran hóp af viðskiptavinum sem eru hér í endurteknum mánaðarlegum viðskiptum bæði á einstaklings- og fyrirtækjamarkaði.
Fyrir utan það erum við síðan með mjög sterkan efnahagsreikning, heilbrigðan rekstur og gott sjóðstreymi. Og mikinn mannauð, þekkingu, innviði og ferla.
Þannig að við erum í raun bara með hinn fullkomna foundation til að byggja ofan á og þróa í fleiri áttir. Og auðvitað hefur Síminn kannski meira verið í umræðunni síðustu ár fyrir sölu eigna, sala á Mílu vakti mikla athygli, þá voru seld önnur félög eins og Sensa og Talenta og fleiri í þessari síðustu umbreytingu félagsins þar sem var verið svona að hagræða og einfalda og fókusa á þessa svona CapEx léttu þjónustustarfsemi í félaginu og nýta þannig styrkleikana.
En það samt sem áður þannig að það hefur verið heilmikil uppbygging. Við þekkjum þessa sögu auglýsingamiðlun, ég hef talað það hér í dag og á fyrri afkomufundum, hvernig við tókum tvö fyrirtæki og útkoman var sú að 1 + 1 urðu 3.
Fjártæknin þar sem var stofnað nýsköpunarfyrirtæki innan Símans og vissulega þurfti þolinmæði og hefur tekið langan tíma fyrir fyrirtækið að prófa sig í alls konar áttir en útkoman samt sú að við erum með fjártæknavörur sem eru bara í fremstu röð þar sem við erum með vörur sem að stærstu og öflugustu fyrirtæki landsins kjósa. Við erum síðan með Sjónvarp Símans Premium sem stendur núna undir 15% tekna samstæðunnar þar sem við keyptum Skjáinn og sameinuðum við sjónvarpskerfi Símans og tókum rosalega góðar ákvarðanir í því hvernig varan var endurmörkuð, hvernig hún var þróuð, farið yfir í efnisveitumódel, dagskrárstefnan endurhugsuð.
Þannig að það gríðarleg þekking og reynsla sem við búum að hér innanhúss yfir í næsta kafla. Og talandi næsta kafla, nú veit ég að allir hér hafa séð þessar tilkynningar að fyrirhugað eru kaup á Öryggismiðstöðinni, OK og Greiðslumiðlun.
Og hér sýnum við þá hvernig ný samstæða Símans myndi líta út ef að þessum viðskiptum verður, hvernig við verðum með þessa burðarása, Símanum þetta gríðarlega sterka vörumerki á einstaklingsmarkaði, nýtur mikils trausts og á fyrirtækjamarkaði kjarnastarfsemin fjarskipti og miðlar. Hvernig við erum síðan með Öryggismiðstöðina þar sem allt snýst öryggi en fyrirtækið hefur þó verið í mjög áhugaverðri viðskiptaþróun á síðustu árum og farið inn í ýmsar spennandi áttir meðal annars inn í heilbrigðis- og velferðarlausnir sem við trúum að verði mjög vaxandi markaður fram á veginn.
OK þar við stígum aftur inn í upplýsingatækni eftir söluna á Sensa. En áherslan og fókusinn í þetta skipti verður með aðeins öðrum hætti.
Við sjáum fyrir okkur aukna samþættingu og einfaldara vöruframboð með áherslu á minni og meðalstór fyrirtæki og þjónustutekjur. Og það stefna OK síðustu ár þannig að hún fellur mjög vel að því sem að hentar Símanum vel.
Í Greiðslumiðlun þar erum við að kaupa glæsilega fjártæknisamstæðu í mjög traustum og góðum rekstri. Þarna erum við með kröfustýringu þar sem búið að fjárfesta mikið í tæknilausnum til að einfalda og auka skilvirkni allt frá því að krafa stofnuð og þar til hún greidd.
Þannig að við erum komin með mjög flotta ferla þar og tæknilega innviði. Svo erum við auðvitað með lánalausnir og greiðslulausnir svipað því sem Síminn Pay að veita þannig að þar mikil tækifæri til að sækja bæði á einstaklings- og fyrirtækjamarkað.
Og miðað við pro forma tölur 2025 þá myndu tekjur nýrrar samstæðu fara þarna úr 28,8 milljónum hjá Símanum yfir í 47,7 milljarða. Vöruframboðið, það breikkar verulega af þessum kaupum.
En það sem mér finnst svo áhugavert að draga fram á þessari glæru það að ef við skoðum bara þessi svið sem þessi fyrirtæki starfa á að þá eiga þau nokkra hluti sem þau eiga sameiginlegt. Þetta þjónusta sem byggir á trausti og öryggi að miklu leyti.
Og fyrirtækin í raun eru öll þess eðlis, þau hafa verið starfandi í lengri tíma og áunnið sér traust á sínu sviði. Og það sama hvort við lítum á fjarskipti sem við reiðum okkur mjög á í daglegum störfum og ekki síst ef að neyð ber að garði.
Við erum með fjártæknina þar sem verið að sýsla með fjármál fólks og fyrirtækja. Við erum með velferðar- og heilbrigðislausnirnar í Öryggismiðstöðinni, mjög viðkvæm þjónusta.
Ógleymt auðvitað öryggisþjónustunni sjálfri. Upplýsingatæknin þar sem netöryggi mikilvægasta málið í dag.
Kröfustýring og innheimtulausnir aftur viðkvæm þjónusta að veita. Öryggismiðstöðin vinnur mikið upp á flugvelli og í tengslum við samgöngur.
Þannig að það alveg ljóst að svona rauði þráðurinn þetta traust og öryggi. Fyrir utan það síðan þetta þjónustufyrirtæki sem byggja allt sitt á stafrænum lausnum og tækni.
Við trúum því að það sé mikill samlegð falin í þessum viðskiptum og setjum hér fram bil okkar samlegðarmarkmið sem 600 til 800 milljónir á ári þegar hún komin fram að fullu. Og þarna erum við að horfa á kostnaðarsamlegð, bara kostnað í sameiginlegri stoðþjónustu, innkaupum, lagerhaldi.
Það eru tækifæri gríðarlega víða. Og þarna verður að hafa í huga þó að talan kannski hljómi há að þarna verið að sameina fjögur fyrirtæki undir einum hatti.
Þannig að þetta kannski ef við deilum þessu niður á fyrirtæki aðeins minna og mjög viðráðanlegt að okkar mati. En það sem við setjum ekkert tölu hér á en við höfum mikla trú á að tækifærin viðskiptaþróunarmegin og tekjumegin séu enn þá stærri.
Því að við sjáum að allar þessar þjónustur eiga mjög vel saman og viðskiptavinirnir eiga vel saman og overlappa að einhverju leyti. Þannig að þarna eru gríðarleg tækifæri í aukinni krosssölu, vöruþróun eins og á borð við það sem við kynntum í Núna Strax, auk þess að félögin geta þjónustað hvort annað með mjög margvíslegum hætti.
Og hér drögum við þá saman hvernig ný samstæða myndi líta út miðað við tölur '25. Að tekjurnar eins og við komum inn á 47,7 milljarðar.
EBITDA með samlegðinni komin í 9,8 milljarða og EBIT eykst síðan hlutfallslega meira og væri 5,4 milljarðar. Efnahagsreikningurinn áfram sterkur, eiginfjárhlutfallið 34%.
CapEx hlutfallið lækkar sem hlutfall af tekjum því að við höfum markvisst verið að horfa á fyrirtæki sem eru með lægra CapEx hlutfall heldur en Síminn til þess að styðja enn frekar við sterkt sjóðstreymi. Og skuldsetningin sömuleiðis mjög hófvær.
Og við kynntum þetta á þriðja ársfjórðungi að við værum byrjuð að vinna því að undirbúa strúktúr félagsins fyrir vöxt með því að færa Símann og eignir Símans niður í nýtt dótturfélag og nýja móðurfélagið myndi síðan eiga þau félög sem yrðu keypt. Og þessi vinna bara í fullum gangi og erum svona að stefna að því að henni verði lokið mitt ár.
En okkur fannst upplagt fyrst við vorum komin það langt að tilkynna nafn og myndmerki nýja móðurfélagsins. Og þetta eru nú orðin gömul fréttir því þetta kom fram í tilkynningunni í gær en nafnið sem valið Ásar.
Og þarna erum við svolítið að horfa út á það að við erum að stofna fyrirtæki þar sem að við munum byggja upp ása sem teygja sig í ólíkar áttir en þó alltaf þessi sterki miðpunktur sem að tengir þá saman. Og það sést kannski meira í því hvernig við horfum á myndmerkið.
Innblásturinn, þarna erum við með áttavitann sem að vísa okkur veginn, við erum með tengingarnar bæði þar sem við erum allt skapa fyrir okkar viðskiptavini og líka þar sem við erum að tengja saman þessi mismunandi fyrirtæki í nýja samstæðu, og vegvísinn sem að skýrir frekar fyrir okkur áttirnar sem við erum að horfa í. Og hér útkoman, Ásar.
Við erum ákaflega stolt af þessu og hlökkum til að taka þetta í notkun og teljum að þetta sé gæfuspor. Já, þá höfum við lokið yfirferðinni.
Þið afsakið kynningin tók aðeins lengra en áætlað var en okkur langar nú samt að bjóða upp á spurningar hérna í lokin ef að einhverjar eru.
Operator
Sko ég með mæk hérna. Það kannski ágætt ef einhverjar spurningar eru að fólk bara rétti upp hönd og ég láti þau hafa mækinn og þið kynnið ykkur og berið hana fram.
Já, Styr þarna.
Styr
Góðan daginn, Styr heiti ég frá Akró. Spurningin mín snýr að afkomuspá ársins.
Þið eruð að tala brotfall enska boltans sé að valda því að EBITDA dregst saman en EBIT aukist. En ég var svona að velta fyrir mér ef maður horfir fram hjá stjórnvaldssekt ársins og þessum afskriftum óefnislegra eigna vegna fyrirtækjakaupa þá þetta samdráttur 338 milljónir eða 9% á milli ára miðað við miðju spábils eða 3 til 14% ef mér reiknast rétt til.
Og þið eruð að tala stöðugan eða hóflegan vöxt í kjarnavörum, kröftugan vöxt í fjártækni og góðar horfur í auglýsingamiðlun. Þannig að ég að spá svona hvað að valda þessari lækkun á milli ára?
Þú talaðir náttúrulega kostnaðarþrýsting áðan frá erlendum birgjum, en svona miðað við áætlaðan tekjuvöxt hvað annað þarna að koma til? Eru það afskriftir HBO eða hvað annað kemur þarna til?
María
Já, aftur ég skil hvernig þú varst að horfa á þetta og hvernig þú reiknar þetta í lækkun. En það sem ég var að reyna að koma inn á áðan var svolítið þetta: árið var svo ofboðslega tvískipt á síðasta ári.
Og það var í raun fyrsti ársfjórðungur '25 var síðasti fjórðungurinn sem enski boltinn var inni að fullu leyti kostnaðarmegin. Þannig að þetta var óvenjulegt ár.
En ef við horfum á næsta ár þá alveg ljóst að við fórum meðvitað í þennan HBO samning og hann stór. Hann ekki jafn stór og enski boltinn en hann klárlega að auka afskriftir töluvert á næsta ári.
Síðan þá erum við með já stóra verðtryggða samninga við okkar helstu lykilinnviðabirgja. Og kostnaðarþrýstingur að utan eins og þú telur upp.
En þetta eru stærstu liðirnir.
Operator
Fleiri? Var ekki Helgi eitthvað að rétta upp hönd?
Helgi
Hérna já takk, eiginlega stal spurningunni sem ég var með sko. Þannig að takk fyrir góða kynningu og til hamingju með nýtt nafn.
Svona kannski bara já varðandi sko bara með hérna af því þið nefnduð sko kröftugan vöxt í fjártækni og góðar horfur í auglýsingamiðlun. Má kannski segja að það sé að hægja á vextinum í þessum hérna tveimur þáttum eða hvernig svona sjáið þið landslagið þar?
María
Ég held að það sem gerðist í auglýsingamiðluninni var það að það var góður vöxtur í Billboard áður en við keyptum Billboard. En síðan kannski var byrjað að hægja á þeim vexti.
Sjónvarp Símans mallaði bara svona ja svona bara hóflegur vöxtur. En þegar við settum þessar tvær einingar saman þá leystist kraftur þarna sem að jók tekjurnar umtalsvert.
Þannig að það tók alveg svona svolítið stökk. Og ég held að við séum búin að ná þessum áhrifum svolítið út.
En það enginn vafi á því að sérstaklega umhverfismiðlamegin bara enn þá markaðurinn enn þá í mótun. Og við erum sífellt á hverjum degi að sækja nýja viðskiptavini og kynna vöruna fyrir nýjum viðskiptavinum.
Sjónvarpsmegin erum við meira í þroskuðum markaði og þá vorum við að finna svona sniðugar lausnir eins og með pásuauglýsinguna sem skila umtalsverðri tekjuhækkun á síðasta ári. En ég held jú að þar séum við kannski að sjá fram á hægari vöxt heldur en síðasta árið.
En í fjártækninni þá engin ástæða fyrir því að hægist neitt á vextinum. Það líka kannski alveg ágætt að minnast á það að fjártækni hjá okkur hún enn þá startup.
Við erum að færa hana yfir í scale-up. En þótt að við höfum séð góðan tekjuvöxt þá afkoman enn þá ekkert frábær sko.
Þannig að við erum núna að koma bara í hörkusókn að gera vöruna betri, að sækja fleiri viðskiptavini til þess að ná þessari stærðarhagkvæmni. Því þarna í þessu kreditkortabusiness það gríðarlega mikill fastur kostnaður þarna undir.
En þar ég myndi segja auglýsingar hægari vöxtur, fjártækni gerum ráð fyrir áframhaldi miklum vexti.
Hilmir
Já hæ og takk fyrir endilega bara flotta kynningu. Mig langar aðeins að spyrja bara hérna fjártækniarminum, útlánin.
Við sjáum þarna mikla aukningu þegar þið tókuð inn 1.400 milljóna hérna lánasafn, en svo sáum við svona smá lækkun á því eiginlega það sem leið af árið. Mig langar bara aðeins að spyrja hvernig staðan á þessu og eruð þið að sjá þessa þróun eitthvað breytast eða?
María
Þarna held ég að séu nokkrir þættir sem spila inn í. Það í fyrsta lagi þessi lán eru mikið veitt í tengslum við þegar fólk að kaupa stærri heimilistæki, bíla, endurnýja raftæki og annað.
Þannig að ég held í fyrsta lagi bara aðeins að hægja á þessari neyslu. Fólk að bíða bara út af efnahagsástandi, óvissu.
Fólk að bíða lengur með að endurnýja tölvuna sína eða ísskápinn sinn. Í öðru lagi þá það kannski þetta sem að ég kom aðeins inn á áðan, það að fókusinn, þetta lítið teymi í Símanum Pay, fókusinn hjá þeim hefur verið á fyrirtækjavörurnar.
Þar af leiðandi höfum við ekki aktíft mikið verið að selja eða ýta út þessum lánum eða reyna að auka dreifinetið á þeim. Og höfðum hugsað okkur að fara þessa leið að vera í samstarfi við færsluhirða og samningurinn þegar við kaupum lánasafnið snerist að miklu leyti það að komast með lánin á fleiri staði.
En það verkefni eins og ég segi því miður bara var tæknilega flókið og hefur ekki gengið jafn hratt og við hefðum viljað. Það mun líka kalla á að söluaðilar skipti út posum hjá sér, en við munum sjá einhver áhrif af því núna á þessu ári.
Og á sama tíma erum við síðan að leita að fleiri leiðum til að koma og dreifa þessum hérna lánum á hagkvæmum hætti. Því það mjög dýrt að vera að labba á milli söluaðila og skrifa á móti kassakerfinu þeirra.
Sérstaklega þegar eru margir möguleikar í boði því það eru auðvitað margir aðilar inn á þessum markaði.
Operator
Já, Hilmir?
Hilmir
Hæ, takk. Bara tvíþætt: í fyrsta lagi eruð þið með einhverja svona áætlun hvað Núna Strax geti skilað eða hvort það geti verið einhver aukinn vöxtur sem kemur úr það?
Og svo bara aðeins að teppa á bara hvað í samlegðinni sem þið sjáið í nýjustu samruna, á OK og ÖMÍ og KMÍ? Bara svona já.
María
Fyrirgefðu, hvað var seinni hlutinn?
Hilmir
Bara farið yfir samlegðina.
María
Já yfir samlegðina, já, ég með þetta í kollinum, já. Sko hérna varðandi Núna Strax þá erum við kannski ekki beint með eitthvað business case á bak við þetta út af því að við erum að taka vörur sem eru nú þegar til og þetta svona sala og markaðssetning.
Markmiðið samt sem áður að vera fyrsti valkostur hjá þessum SME þjónustufyrirtækjum sem eru þá aðalmarkhópur Núna. Erum með einfaldari þarfir fjarskiptamegin, en þarna sjáum við við komum með einhverja virðisaukandi þjónustu og þetta í raun snýst fyrst og fremst upplifun viðskiptavinar.
Þannig að við teljum að þetta verði jákvætt fyrir alla þá aðila sem að koma að því. Markmiðið að sjálfsögðu líka að fleiri söluaðilar taki upp greiðslulausnirnar okkar í gegnum þetta inn í Núna og það alveg eitt af stóru markmiðunum þar.
Já, samlegðin. Já, við höfum svo sem ekki gefið hana neitt ýtarlega niðurbrotið.
Það auðvitað eru bara að einhverju leyti viðkvæmar upplýsingar, en ég held að þið getið ímyndað ykkur hvað þetta snýst. Þetta snýst fjármál og hérna svona stoðþjónustu þar sem hægt að ná meiri styrk með því að vera með miðlæga.
Fyrirtækin eru öll með hérna einhvers konar vöktun og viðbragðsþjónustu. Þar eru tækifæri, mikil tækifæri í innkaupum og lagerhaldi, þjónustuveri, viðskiptastýringu, það gríðarlega víða.
Og síðan í þessum tæknilegu innviðum og samnýta öflug viðskiptakerfi á borð við svona CRM kerfi og ERP kerfi. Þannig að þetta í raun ekkert svona sem mætti koma neinum á óvart sem við erum að teikna upp þarna.
Markús
Markús frá Arion banka. Þetta varðandi auglýsingamiðlunina á ársfjórðungnum.
Á þriðja ársfjórðungi var vöxturinn í starfsþættinum tæplega 13%, á fjórða ársfjórðungi tæplega 3% samdráttur. Getið þið gefið okkur smá meiri lit á svona hvernig undirliggjandi vöxturinn væri á ársfjórðungnum ef að fjórði ársfjórðungur '24 hefði verið svona eðlilegt samanburðartímabil?
María
Já, ef það hefði ekki verið fyrir utan enska boltann og kosningar hann hefði verið á milli 5 og 10%. Það svona við horfum á þetta þannig að eins og við leiðréttum alltaf fyrir enska boltanum af því að það eru bara tekjur sem voru eyrnamerktar honum og þá erum við áfram að sjá mjög góðan vöxt.
Fleiri spurningar?
Operator
Já, Styr aftur.
Styr
Kannski bara smá framhald af spurningunni hans Hilmis með þú varst að koma inn á kostnaðarsamlegðina. Sjáið þið fyrir ykkur að birta einhverjar tölur varðandi tekjusamlegðina af yfirtökunum?
María
Það hefur ekki verið tekin nein ákvörðun að birta áætlun tekjusamlegð. Það bara flóknari mynd og mér finnst ólíklegt að við gerum það nema þegar við erum komin bara inn í.
Í fyrsta lagi eru auðvitað öll þessi viðskipti háð samþykki Samkeppniseftirlitsins þannig að okkur algjörlega óheimilt að framkvæma neitt eða hérna gera neitt sem getur talist vera framkvæmd samruna. Þannig að við erum mjög varkár með það.
En þegar við erum komin og fókusinn af því að kostnaðarsamlegðin einfaldari og við viljum ná þessum áhrifum hratt þannig að fókusinn verður fyrst á það, samþættingu, en samhliða byrja og við auðvitað erum með hugmyndir og hin fyrirtækin eru með hugmyndir hvar snertifletirnir liggja og hvar tækifærin liggja. Þannig að við munum ganga hratt til verks þegar að því kemur, en ég held að það verði kynnt á annan hátt heldur en við erum að gera það núna.
Kannski eitt varðandi kostnaðarsamlegðina líka, ef þið hugsið þessa samstæðu þetta samstæða sem að mun geta þjónustað fyrirtæki með allt sem þau þurfa til að vera í rekstri. Það UT rekstrarþjónustan og skýið og afritunarþjónusta, hýsing, fjarfundabúnaður, notendabúnaður, fjarskipti, öryggisþjónusta, kröfustýring og innheimtuþjónusta, þannig að það gríðarlega mikil samlegð á milli fyrirtækjanna líka bara í þessu að þjónusta hvert annað.
Því að öll fyrirtæki þurfa þess háttar þjónustu. Eitthvað að lokum?
Ef ekki þá bara þökkum við ykkur kærlega fyrir áheyrnina í dag.
Already premium?