Siminn hf.

Siminn hf.

IICE:SIMINN
12.30
ISK
0.00
(0.00%)
0.67EPS
17.68P/E
27.30BMarket Cap

Q1 FY2026 · Earnings Call TranscriptApril 29, 2026

María

2026. Við erum á svo nýjum stað hérna, vorum að opna þennan glæsilega fyrirlestra- og kennslusal hérna í höfuðstöðvum okkar við Ármúla.

Þannig látið ykkur ekki bregða sem eruð að fylgjast með í streyminu þótt að þetta líti aðeins öðruvísi út. Afkoman í fyrsta ársfjórðungi, hún var bara með ágætum.

Höfðum við viljað hafa hana betri? Já, en við erum bara í krefjandi aðstæðum.

Við erum enn þá að vinna úr þessu brotthvarfi sem við sáum hérna á haustmánuðum samhliða bara miklum breytingum á markaðnum. Og að sama skapi kostnaðargrunnurinn okkar þannig samsettur að við erum bara með stóra kostnaðarliði sem taka vísitöluhækkun 1.

janúar, og það bætist þá við bara svona almennan kostnaðarþrýsting og launahækkanir sem við höfum verið að sjá. En þetta var allt auðvitað viðbúið og þess vegna það þannig að afkoman í samræmi við okkar áætlanir og þá afkomuspá sem að við höfðum gefið út.

Tekjumegin þá vorum við að sjá tekjur vaxa hóflega í milli ára í þessum kjarnavörum okkar í fjarskiptunum og sjónvarpinu, en við erum mjög ánægð að sjá áframhaldandi vöxt í þessum nýju tekjustraumum okkar, auglýsingum og fjártækni. En auðvitað fjarskiptageirinn hefur verið þannig að tekjur hafa sjaldnast haldið í við verðbólgu og við höfum séð í raun afkomubata fjarskiptafyrirtækja alþjóðlega vera drifinn áfram af aukinni skilvirkni í rekstrinum og Síminn þar engin undantekning og höfum gert mjög vel í því á síðustu árum.

Og við höfum hvergi nærri hikað frá þeirri stefnu. Við erum að skoða ýmsar leiðir hvernig við getum nýtt gervigreind betur í okkar rekstri og eru mjög stór tækifæri þar til að auka skilvirkni og draga kostnað upp heilt yfir fyrirtækið.

En reksturinn, þrátt fyrir eins og ég segi að afkoman hún lækkar milli ára út af því að kostnaður vex meira en tekjur, þá sýnir afkoman samt hversu solid rekstur Símans í raun. Sjóðstreymið gott, efnahagsreikningurinn feiknasterkur, og við höfum auðvitað gefið það út að við ætlum að nýta þessa stöðu til þess að nýta innviði og allan þann fasta kostnað í félaginu betur, fjölga tekjustraumum, fara inn á markaði þar sem meiri vaxtarmöguleikar.

Og höfum auðvitað kynnt þessa vegferð undir merkjum móðurfélagsins Ása, tilkynntum kaup á þremur félögum á síðasta ársfjórðungi síðasta árs, og síðan núna í mars þá bættist við tilkynning þar sem við sögðum frá því að við höfðum náð samkomulagi við Sýn helstu skilmála vegna mögulegra kaupa á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar. En ég ætlaði að fara aðeins betur yfir stöðuna á þessu stóra umbreytingarverkefni hérna í lok kynningarinnar, en fyrst ætla ég að gefa boltann á Hjört sem ætlar að fara yfir helstu niðurstöður á fyrsta ársfjórðungi.

Hjörtur

Glæsilegt, takk María. Hérna ég ætla að labba aðeins yfir hérna niðurstöður fyrsta ársfjórðungs með ykkur og samanburð þá við sama ársfjórðung í fyrra.

En ég ætla að byrja aðeins hérna á nokkrum lykiltölum úr rekstri, tölur sem að við augljóslega horfum mikið til og margir hérna inni líka, þá EBITDA, EBIT og síðan þá metriki EBITDA - CapEx, sem sýnir þá fjármunamyndunina í félaginu. Hérna fyrir ofan strik erum við þá með tölur úr fjórðungnum sem var að líða og fyrir neðan strik erum við þá með 12 mánaða trailing tölur niður á ársfjórðunga.

Og eins og við sjáum þá hérna var EBITDA á fjórðungnum sem var að líða 1.429 milljónir, EBIT 528 og EBITDA tæpar 700 milljónir. Nú eins og við sjáum á myndunum fyrir neðan strik þá þetta mjög stöðugt hjá Símanum í gegnum tíðina og sterkt.

Og eins og við höfum sagt þá í tengslum við brotthvarf enska boltans að EBITDA myndi lækka lítillega en EBIT aukast og við sjáum það þarna í tölunum. Og síðan þá hægra megin á myndinni þá sögulega hérna þessa fjármunamyndun í félaginu, EBITDA - CapEx, sem sterkt.

Ef við vippum okkur yfir í rekstrarreikninginn og niðurstöðu þessa ársfjórðungs þá sjáum við þarna eins og María kom inn á, reksturinn í samræmi við okkar áætlanir, tekjuþróun í takt við væntingar. Tekjurnar eru aðeins upp á milli þessara tímabila, rúmlega 1%.

Tekjur af okkar kjarnavörum eru á pari við síðasta tímabil eða samanburðartímabilið. Nú auglýsingamiðlunin okkar áfram sterk og jukust tekjur þar á milli tímabila og var það drifið áfram af stækkandi neti þá umhverfismiðlanna okkar sem og vöruþróun hjá Símanum í auglýsingalausnum.

En eins og María kom inn á líka áðan þá jókst kostnaður á tímabilinu, 6,8%, og skiptist því þá í þessar þrjár meginástæður. Það þessi vísitölutenging á samningum okkar við innviðabirgja, launakostnaður eykst og síðan jókst efniskostnaður í sjónvarpi tengt endursölusamningum við Sýn.

Og afskriftir þessa tímabils samanborið við tímabilið á síðasta ári lækka tæp 13% og eins og við vitum það vegna breytrar samsetningar þá á sjónvarpsefni. Þannig að aðlöguð EBITDA fyrir tímabilið rúmlega 1.400 milljónir og EBIT 528 milljónir.

Ef við skoðum þá aðeins starfsþætti Símans, lítils háttar aukning þá í farsíma og gagnaflutningum á meðan að sjónvarpið 54 milljónum undir miðað við samanburðartímabil í fyrra. En þó verður að hafa í huga að það tímabil þar vorum við náttúrulega með enska boltann inni.

Og eins og María kom inn á líka í introinu að tekjur á sjónvarpi drógust aðeins saman tengt brotthvarfi síðastliðið haust eins og við komum inn á í ársuppgjöri í febrúar, en hafa aukist á nýju ári. Og eins og ég nefndi áðan þá var sterkur fjórðungur hjá auglýsingamiðlun Símans og jukust tekjur tæplega 8% þar sem að umhverfismiðlarnir okkar eru áfram í sókn og einnig auglýsingatekjur í sjónvarpi sem nálgast þá það level sem þær voru þegar við vorum með enska boltann, sem sterkt.

Nú aðrar tekjur standa í stað en samsetning þeirra breytist aðeins og eðlilega. Tekjur af talsíma dala saman áfram, en Síminn Pay og Núna eru áfram í sókn og vega það upp.

Nú efnahagur og sjóðstreymi þá, svo sem ekki miklar breytingar á efnahagsreikningnum frá ársuppgjöri okkar, þó þannig að efnahagsreikningurinn stækkar aðeins. Við réðumst í skuldabréfaútgáfu núna í mars síðastliðnum, gáfum út nýjan flokk, SIMI 29 1.

Útgáfa þessa flokks náttúrulega til höfuðs annars skuldabréfaflokks, SIMI 26 1, sem á að gjalddaga núna í júní, 3 milljarðar, sem var þá inni í okkar næsta árs afborgunum í ársreikningi. Bútuðum hann aðeins niður, hluti af eigendum í 26 1 skiptu bréfum yfir í 29 1, þannig að sá gjalddagi núna 1.660 milljónir í júní.

En þessi útgáfa gerir auðvitað það að verkum að handbært fé okkar í lok þessa ársfjórðungs óvenjuhátt, 4 milljarðar rúmlega. En auðvitað það tengt þá þessum gjalddaga líka í júní sem og þá ytri vexti sem að María nefndi áðan.

Nú eiginfjárhlutfallið lækkar lítillega, tengist einnig arðgreiðslu okkar í mars, 500 milljónir. En skuldsetningarhlutfallið áfram mjög hóflegt og eiginfjárhlutfallið sterkt í rúmlega 35%.

Sjóðstreymið sterkt áfram. Sjóðstreymi Símans og hefur verið sterkt, 1,3 milljarður núna í handbæru fé frá rekstri.

Fjárfestingar tímabilsins eru rúmlega 600 milljónir og ég kem aðeins inn á það á eftir, en auðvitað höfum við gefið út afkomuspá varðandi fjárfestingar ársins, 3,4 til 3,7 milljarðar. Og eins og við ræddum aðeins á ársuppgjörinu þá falla þessar fjárfestingar nú ekki línulega yfir þetta tímabil, það mismunandi milli ársfjórðunga.

Nú fjármögnunarhreyfingar eru jákvæðar þarna, tæpir 2,4 milljarðar, og tengist auðvitað skuldabréfaútboðinu sem ég fór yfir áðan og arðgreiðslu, og síðan kláraðist endurkaupaprógram hjá okkur í janúar. Þannig að þið sjáið þarna að brúin að handbært fé endar þarna í tæpum 4,1 milljarði þá í lok fjórðungsins.

Þá fjárfestingarnar okkar, eins og ég sagði áðan erum við með spábilið 3,4 til 3,7 milljarðar fyrir árið og erum bara á tracki þar. Þetta fellur eins og ég segi mismunandi milli tímabila og þarna sjáið þið hvernig skiptingin varðandi þá innviðafjárfestingar og síðan sýningarrétti á þessum ársfjórðungi sem var að líða.

Nú kannski svona í lokin hjá mér langar mig aðeins til að ræða fjármögnun og skuldsetningu, nýta tækifærið hérna í dag. Við höfum verið að nýta okkur í meira mæli markaðinn í fjármögnun og síðastliðna 12 mánuði höfum við gefið út skuldabréf og víxla fyrir tæpa 10 milljarða.

Og höfum fengið góða eftirspurn og góð kjör og erum ákaflega þakklát fyrir viðtökur markaðarins. Við erum þarna með meðalkjör á skuldabréfum REIBOR + 130 punktar og víxlar 25 punktar á sex mánaða REIBOR.

Og þetta auðvitað engin tilviljun, félagið gríðarlega sterkur skuldari. Við erum þarna með skuldsetningarhlutfallið á skjánum sem að við fylgjumst grannt með, það að segja hreinar vaxtaberandi skuldir yfir EBITDA, og stendur í 2,0 í dag.

Við höfum náttúrulega gefið út að með þessum ytri vexti sem María kom inn á, þessum þremur félögum, fer þetta hlutfall ekki yfir 3, við vorum að tala 2,8. Og vaxtaþekjan gríðarlega sterk og vaxtaþekjan við horfum á hana svona, það að segja EBITDA - CapEx yfir þá nettó vaxtagjöld og sú kennitala rétt í kringum 4 sem auðvitað gríðarlega sterkt.

Og eins og við höfum komið inn á áður í kynningunni, afkomuspáin okkar fyrir þetta ár óbreytt. Við gáfum út afkomuspá samhliða ársuppgjöri okkar, 6,8 til 7,2 milljarðar í EBITDA og EBIT 3,2 til 3,6 og fjárfestingarnar 3,4 til 3,7.

Og eins og María kom inn á þá rekstur félagsins stöðugur og í samræmi við okkar áætlanir. En þetta síðasta glæran hjá mér, María ætlar að koma hérna aftur og segja ykkur aðeins meira frá vegferðinni fram undan.

Gjörðu svo vel.

María

Já, það alltaf hollt og gott að horfa í baksýnisspegilinn en það mjög mikilvægt að horfa fram á veginn líka. Og við auðvitað kynntum þetta hérna í byrjun ársins, þetta nýja nafn og merki móðurfélagsins sem við erum að vinna núna að stofna, sem að verður þá eignarhaldsfélag þessara mismunandi fyrirtækja þegar að viðskiptin eru gengin í gegn.

Kannski aðeins til að byrja bara að rifja upp stöðuna á þessum viðskiptum sem við höfum tilkynnt. Í Greiðslumiðlun Íslands, það var fyrstu viðskiptin sem voru tilkynnt síðasta haust, þar málið einfaldlega í meðferð hjá Samkeppniseftirlitinu og miðað við hámarksfresti eftirlitsins til að fjalla málið má vænta niðurstöðu þar núna snemma í júní.

Þannig ef allt gengur að óskum þá getum við verið að fara í closing og taka við því félagi inn í samstæðuna núna fyrir mitt ár 2026. Hin verkefnin eru komin skemur á veg, við vorum að undirrita þarna rétt fyrir jól.

Öryggismiðstöðin, þar samrunatilkynning komin inn til eftirlitsins og frestur þar í fyrsta fasa í byrjun júní. Í OK aftur á móti þar höfum við verið í ákveðnu svona forviðræðnaferli á móti Samkeppniseftirlitinu sem snýst þá einkum hvað markaðsskilgreiningar og hvaða markaði málið snertir, en væntum þess að frestur þar byrji að tikka núna á allra næstu dögum.

Og auðvitað þetta nokkuð breitt bil þá sem að getur verið undir fer eftir því hversu langur málsmeðferðartíminn, en gæti verið í styrsta lagi núna inn á öðrum ársfjórðungi og í seinasta lagi í lok árs sem að meðferð Samkeppniseftirlitsins lýkur. Og svo eru það þá nýjasta tilkynningin okkar sem ég kom aðeins inn á hérna í byrjun þar sem að við erum í viðræðum við Sýn og erum sem stendur að gera áreiðanleikakönnun á vef- og útvarpsmiðlum sem eru í eigu Sýnar og þar undir töluverður fjöldi af miðlum.

Sjáið hérna dæmi vörumerki sem eru í þessu safni. Virkilega sterkir miðlar, vandaðir miðlar með mjög mikla útbreiðslu.

Í skilmálaskjalinu, þar gert ráð fyrir að heildarvirði viðskiptanna nemi 5.250 milljónum og að tekjur einingarinnar séu 3 milljarðar á ársgrundvelli. En hér bætum við kannski við nokkrum mikilvægum upplýsingum sem það að þarna erum við að kaupa eignir og þeim fylgir þá afskriftastofn sem að nemur jafnhárri fjárhæð og enterprise value.

Og þá þýðir það að við auðvitað getum þá afskrifað það skattalega yfir ákveðið tímabil sem að hefur jákvæð áhrif á það hvernig við erum að horfa á verðmat eignarinnar. Áreiðanleikakönnun í gangi og við gerum ráð fyrir að henni ljúki á næstu vikum og leið og við erum með nánari upplýsingar þá auðvitað munum við gefa þær út á markaðinn.

En kannski gefið það hérna út að kannski margfaldarar sem við erum að horfa á miðað við þær forsendur sem við höfum gefið okkur eru ekkert mjög frábrugðnir því sem við sáum til dæmis í Billboard viðskiptunum. Og við þekkjum auðvitað núna auglýsingarekstur töluvert vel.

Og af hverju erum við að fara í þessar viðræður? Það einfaldlega af því að þið sjáið í uppgjörinu núna að auglýsingatekjur eru að aukast 7,8% milli ára hjá okkur.

Höfum náð gríðarlega miklum árangri og það ekki tilviljun. Við höfum lagt áherslu á þennan starfsþátt, við höfum fjárfest töluvert mikið í að byggja upp tæknilausnir sem að styðja við auglýsingasölu.

Og auk þess sem að kannski það sem Billboard viðskiptin komu með til okkar það var líka bara svona ný nálgun og ný aðferðafræði í auglýsingasölu. Og við trúum því einlæglega að við getum yfirfært þetta á fleiri tegundir miðla og hafa fleiri vörur í boðaborðinu, það gerir okkur enn þá öflugri aðila á þessum markaði.

Og þetta kannski tækifæri sem við erum að horfa á. Á dögunum þá gaf Hagstofan út greiningu á íslenskum auglýsingamarkaði og samkvæmt henni þá voru útgjöld til auglýsinga á Íslandi þá námu þau þarna 27,5 milljarði árið 2024 og við uppreiknum það svona og reynum þá að áætla miðað við hagvöxt 2025 hafi þessi fjárhæð verið 30 milljarðar.

En það sem við auðvitað þekkjum að hefur verið að gerast á síðustu árum að hlutdeild erlendra miðla í innlendum auglýsingamarkaði hefur verið að vaxa jafnt og þétt. Og þar eru auðvitað margar ástæður að baki.

Auðvitað koma þessir miðlar nýir inn og að einhverju leyti stækkað kökuna, en þeir hafa líka bara verið að bjóða upp á mjög aðgengilegar lausnir, mjög góð gögn, mikil tækifæri í markmiðun auglýsinga og hafa þannig náð að sækja hlutdeild af þessum hefðbundnu miðlum. En og núna var staðan þannig árið 2024 að erlendir miðlar voru með meirihluta af því auglýsingafé sem var varið á Íslandi.

En eins og ég kom inn á þá höfum við verið að þróa lausnir sem að bjóða upp á sambærilega skýrslugjöf og sambærilega svona targeting fyrir auglýsendur og höfum fengið mjög góðar viðtökur. Þannig að við trúum því og auðvitað ég veit nú ekki, allavega ég get sagt fyrir mig að ég og hérna og ég held að margir tengi við það að eins og Google Ads og þessar samfélagsmiðlaauglýsingar, þetta eru almennt ekki taldar mjög áhrifamiklar auglýsingar.

Fólk jafnvel byrjað að hætta að sjá þær og taka eftir þeim á meðan að rannsóknir sýna ítrekað að til dæmis sjónvarpsauglýsingar eru enn þá áhrifaríkustu auglýsingamiðillinn. Og síðan ef við komum þá aðeins inn á hvernig við sjáum Ása fyrir okkur og byrjum bara á að horfa á einstaklingsmarkaðinn.

Þá það auðvitað þannig að við verðum komin með mjög fjölbreytt vöruframboð inn á einstaklingsmarkað í stafrænni þjónustu þar sem við verðum að snerta flest horn þessarar stafrænu daglegu þjónustuþarfa einstaklinga og heimila. Og þarna auðvitað skiptir Síminn lykilhlutverki.

Því Síminn auðvitað með mjög sterk langtímaviðskiptasambönd við mjög stóran hóp af heimilum, erum nú þegar í mánaðarlegu reikningsviðskiptasambandi með búnað inn á heimilum hjá fólki. Og tækifærin í þessu og þetta auðvitað yfirlýst stefna okkar að skapa svona stafrænt vistkerfi fyrir heimilið þar sem að við erum að selja virðisaukandi þjónustu sem styðja hver við aðra og við sjáum að með því að kaupa þessi fyrirtæki þá fáum við alls konar hráefni inn í þetta samfélag sem við erum að búa til.

Og Síma vörumerkið og það traust sem Síminn nýtur að ógleymdu þá ofboðslega sterku sölu- og þjónustudreifineti sem að Síminn, það mun spila lykilhlutverk á einstaklingsmarkaðnum. Fyrirtækjamegin nálgunin aðeins önnur.

Þar erum við að kaupa fyrirtæki sem eru mjög sterk og öflug á fyrirtækjamarkaðnum og þekkt fyrir sína þjónustu. Þannig að þarna erum við í raun að sækja fram undir breiðu úrvali vörumerkja, en hugmyndin samt sú að hvert og eitt fyrirtæki í þessum hópi geti einbeitt sér að nýta sína styrkleika og hin fyrirtækin njóti góðs af þeirri sérhæfingu og þekkingu sem þar inni.

En í grunninn erum við þá að byggja upp samstæðu þar sem að á að geta, hvað eigum við að segja, uppfyllt allar svona grunnþarfir fyrirtækja sem þau þurfa í þjónustu og stafrænum þjónustum til þess að geta staðið í rekstri. Það þurfa öll fyrirtæki örugg og áreiðanleg fjarskipti, upplýsingatækni, rekstur, öryggislausnir, allt frá bara eldvarnarkerfum í aðgangsstýringar.

Þau þurfa að geta tekið á móti greiðslum, haldið utan samskipti og bókanir, auglýst sig. Þannig að við erum svona að byggja upp ofboðslega sterka heild á fyrirtækjamarkaðnum, þó við vissulega sækjum þarna fram undir ólíkum vörumerkjum og gerum hverri og einni einingu kleift að vaxa og dafna og nýta sína styrkleika.

Og aðeins til upprifjunar af hverju við erum í þessari vegferð og erum að umbreyta þessu 120 ára fyrirtæki sem á sér mjög merkilega sögu og reksturinn hefur verið auðvitað bara frábær síðustu ár, en það eru góðar ástæður þarna á bak við. Og auðvitað endurspeglast þær bara að einhverju leyti í uppgjörinu sem þið sáuð hérna í dag.

Fjarskiptamarkaðurinn bara mjög þroskaður markaður og það takmarkaður vöxtur í svona okkar grunnstarfsemi. En á móti virðið inni í Símanum gríðarlega mikið, bara í þessum viðskiptasamböndum, vörumerkjunum, ofboðslega sterkum rekstrarlegum innviðum í kerfum og ferlum og það hægt að nýta þessa innviði ofsalega mikið betur.

Og þarna erum við að sækja inn á markaði sem eru þar sem vöxtur, meiri vaxtartækifæri, til dæmis inn í eins og hérna velferðar- og heilbrigðislausnum. Það bara augljóst að sá markaður á eftir að vaxa mikið á komandi árum.

Þannig að við erum að horfa til þess að komast í vöxt og nýta innviði fyrirtækisins betur. Við erum líka í Símanum, þar erum við í fjarskiptarekstri og sjónvarpsrekstri og báðir þessir starfsþættir eru fjárfestingarþungir.

Sjónvarpsefni dýrt og við erum að reka hérna fjarskiptakjarna og við vitum það auðvitað hvernig fjarskiptatæknin hefur fleygt fram og það koma ný kynslóð og nýjar hérna meiri gæði og meiri hraði og það þarf að fjárfesta og viðhalda þessu til þess að viðhalda samkeppnishæfni. Fyrirtækin sem við erum að kaupa þar hlutfallslega minni fjárfestingarþörf, meiri þjónustufyrirtæki.

Og þannig að í raun sjóðstreymisprófíll sameinaðs fyrirtækis breytist þá aðeins og það auðvitað grunnurinn að því að fyrirtækið geti áfram verið mjög sterkt arðgreiðslufélag, en að sama skapi með sjóðstreymi sem getur stutt við áframhaldandi vöxt og sókn. Og síðan það auðvitað svolítið áhugavert líka sem við erum að upplifa núna í þessari gervigreindarbyltingu.

Af því að við í fjarskiptageiranum við erum orðin vön því að það búið að disrupta okkar business módeli fjölmörgum sinnum á síðustu áratugum og við höfum bara þurft að aðlaga okkur að því og staðan hefur auðvitað verið sú að öllu í raun virðisaukning sem hefur orðið í heiminum á síðustu áratugum hefur drifist áfram af betri fjarskiptatækni, en aðeins mjög lítill hluti af þessari sneið hefur skilað sér til fjarskiptafyrirtækjanna. Á meðan að kannski þeir sem hafa verið að þróa hugbúnað og stafrænar lausnir hafa svolítið tekið það til sín.

En staðan svolítið að breytast í þessu. Við erum auðvitað að sjá að kostnaður við að þróa hugbúnað og aðgengi að fara mjög lækkandi.

Aðgengi að hugbúnaðarlausnum mun stóraukast á næstu árum. Þannig að ég held að það muni draga mjög mikið fram styrkleika í félögum eins og fjarskiptafyrirtæki í eðli sínu.

Þau eru ofboðslega góð í að taka vörur og lausnir og pakka þeim inn, markaðssetja þær, selja þær og þjónusta þær. Það eru styrkleikarnir og með þessi langtímaviðskiptasambönd.

Þannig ég held að í þessari byltingu felist gríðarlega mikil tækifæri fyrir fyrirtæki nákvæmlega eins og Símann og síðar Ása. Já, þá erum við komin í gegnum efnið en viljum bara opna fyrir spurningar.

Ég með eina tvær.

María

Já, gjörðu svo vel.

Helgi

Hæ, Helgi í Landsbankanum. Kannski byrja að spyrja aðeins hérna útlánin.

Sé að þau eru aðeins að lækka. Eitthvað svona sérstakt sem að skýrir það?

María

Já, útlánasafnið aðeins að dragast saman. Það rétt.

Þegar við skiptum lánasafninu okkar upp þá erum við með það sem við köllum Léttkort sem kreditkort þar sem að býður upp á að velta greiðslum áfram, svokallað veltukort eða svona revolving kort. Og síðan erum við þá með vörukaupalán, þessi hefðbundnu raðgreiðslulán eins og þú kaupir hlut og dreifir greiðslum yfir ákveðinn tíma.

Og það var fyrir nokkrum árum sem var ákveðið að svona draga úr sölu og markaðssetningu á þeirri lausn. Og það var einfaldlega mjög dýrt og samkeppnin mjög mikil í þessu og það var mjög dýrt að fara til hvers og eins söluaðila sem eru oft litlar netverslanir og annað og koma lausninni inn, það þurfti að skrifa á móti vefsíðunum þeirra og þjónusta þetta.

Þannig að það var ákveðið að fara í aðra leið og semja við færsluhirða að vera greiðsludreifingaleið inn á posunum þeirra. Og við kynntum þetta verkefni þegar við tilkynntum kaup á lánasafni Valitor sem að við keyptum á Q1 í fyrra.

Og hugmyndin var síðan að sjálfsögðu að þetta átti bara að fara live fljótlega í kjölfarið og að við ætluðum að ná miklu meiri útbreiðslu á léttkaupslánin. En eins og svo oft með svona tæknileg innleiðingarverkefni þar sem þú ert að vinna á móti þriðja aðila að þá urðu tafir, en við erum bara rétt byrjuð að sjá fyrstu posana fara live núna.

Þannig að við trúum því að það muni hafa áhrif til að ná þessu aftur upp. En vissulega bara samkeppnisumhverfið líka mjög breytt.

Það hefur aldrei verið auðveldara að taka skammtímafjármögnun í bankaappinu þínu. Við höfum séð aðila eins og Alco koma með eigin lausnir á markað.

Þannig að ég held að það auðvitað skýri hluta af þessu líka.

Helgi

Ókei. Kannski hérna fá aðeins að spyrja auglýsingamiðlunina.

Kannski tvennt svona sem að ég að velta fyrir mér. Annars vegar kannski bara minnkandi markaðsbudget hjá fyrirtækjum almennt sko, hvort þið finnið fyrir því.

Og síðan kannski efast hvort að það hafi jákvætt eða neikvætt fyrir ykkur hvort að þið fáið frekar auglýsingar sem eitthvað væru á dýrari stöðum eitthvað svo kannski líka bara samkeppnin í þessum þá kannski aðallega umhverfismiðlunum sko. Maður sér Hagar farnir að hérna gera þetta sjálfir og svona manni sýnist aðrar búðir vera mögulega að kópíera það að einhverju leyti líka sko og hérna jafnvel fleiri aðilar sko.

Þannig að bara svona hvernig upplifið svona þessa hluti kannski í auglýsingunum?

María

Já, kannski hérna byrjað að tala umhverfismiðlana, þá það alveg hérna rétt að fleiri hafa tekið eftir að þetta góður miðill og ég held að við eigum reyndar bara mikinn þátt í því að hafa svolítið búið þennan markað til og byggt upp vöruna og kynnt hana fyrir markaðsfólki og auglýsendum að hérna að þetta sé góður kostur. Þannig að það vissulega eðlilegt að fleiri hoppi á vagninn.

Eins og við höfum verið að staðsetja okkur að við erum með þetta ofboðslega þétta dreifinet. Þannig að við erum með þá aðgreiningu í gegnum það og það í gegnum þá samninga okkar rekstur á strætóskýlunum og síðan þá með því að vera með langtímasamninga mikið af þessum stóru skjám sem þið sjáið á svona lykilstaðsetningum.

Það og hefur verið auðvitað líka töluverður svona frumskógur í kringum regluverkið í kringum þennan markað. Þannig að við höfum líka séð marga setja upp skjái sem þeir hafa verið neyddir til að taka niður og annað.

En ég get sagt að við höfum takmarkaðar áhyggjur af því að það sé að fara að vera ofboð af umhverfismiðlum. Hitt rétt að maður heyrir það úr geiranum að það sé verið að draga saman í markaðsbudgeti.

Kannski það oft viðbrögð auðvitað þegar mikil verðbólga og kostnaðarþrýstingur. En eins og tölurnar okkar sýna þá höfum við ekki fundið fyrir því í okkar sölu.

En ég held að þetta sé líka eitthvað sem margra ára vegferð þar sem við höfum verið að kynna miðlana okkar og byggja upp traust og trú á þeim meðal auglýsenda. Þannig að þegar þeir fá þó úthlutað sitt budget í byrjun ársins að þá eru þeir bara búnir að eyrnamerkja ákveðna sneið inn á þessa miðla þar sem þeir vilja vera í Sjónvarpi Símans Premium og Billboard.

Þannig að ég held að það eins og ég segi gerist ekki að sjálfu sér, en tölurnar auðvitað sýna að það ekki samdráttur hjá okkur. Og í raun eins og Hjörtur kom inn á þá eru auglýsingatekjur til dæmis í sjónvarpi að nálgast það sem þær voru þegar við vorum með enska boltann innanborðs og það voru 200 milljónir á ári sem að voru bara eyrnamerktar enska boltanum.

Helgi

Jamm, takk.

María

Fleiri spurningar?

Helgi

Hæ, Helgi hjá IFS [unclear]. Ég aðeins að velta fyrir mér vörusölunni sem jókst verulega á þessum fjórðungi eftir að hafa dregist saman svona undanfarið, svona hvað veldur og hvernig þið sjáið það horfa svona út árið og svo líka þá aðrar tekjur sem hafa vaxið gríðarlega mikið svona undanfarið en voru þá flatar núna.

Eitthvað hik þá í Núna og Síminn Pay og því?

María

Einmitt. Starfsþættirnir vörusala og aðrar tekjur.

Í vörusölunni auðvitað hún kannski ekki mjög stór hluti af rekstrinum hjá okkur. Við höfum svolítið verið trú þeirri stefnu að selja bara vörur sem styðja við þjónusturnar okkar.

Farsímar, búnaður til að horfa á sjónvarp, það sem þarf SIM kort og tengdar vörur. Og þetta getur sveiflast mjög mikið bara eftir hvenær við fáum sendingu af nýjasta iPhone.

Til dæmis ef ég ekki að fara með rangt mál að þá bæði kom nýi iPhone núna eftir áramót sem venjulega kemur á Q4 til okkar og síðan eru auðvitað líka búið að vera töluverð vörusala í tengslum við lokun á 3G kerfinu þar sem að mikið af fólki sem að búið að vera með gamla síma sem styðja ekki VoLTE var að skipta út sínum búnaði. Þannig að ég myndi segja að þetta séu tveir megin dræverarnir.

En annars erum við í okkar áætlunum að gera ráð fyrir hóflegum vexti í vörusölu frá síðasta ári. Já, og síðan aðrar tekjur, þær voru flatar á milli ára eftir að við höfum séð þær vaxa í svolítinn tíma og þarna kom það svolítið sterkst inn að við sáum drop í talsímanum sem svona hægt og rólega að fasast út sem vara.

En á sama skapi voru tekjur af fjártækninni, bæði Síminn Pay og Núna, að vaxa og í raun þannig að þetta nettast þarna sirka út.

Helgi

Eins og þegar þið töluðuð verðbólguþrýsting og svo [unclear] á fyrsta fjórðungi, gerir hann það að verkum að þú svona finnst líklegra að afkomuspáin ykkar verði á neðri endanum eða ertu konfident að hún verði meira á...?

María

Eins og ég segi, það má kannski leiða því líkur að áætlunin okkar sé í miðjunni á bili afkomuspárinnar og við höfum gefið út að fyrsti fjórðungur á áætlun þannig að þetta væri einhver guidance.

Helgi

En svona kannski slútta þessu með kannski bara kaupunum þarna á fjölmiðlunum, þokkaleg afkoma af þessum rekstri sem þið eruð að kaupa þá eða hvernig svona...?

María

Við fengum auðvitað mjög takmarkaðar upplýsingar í byrjun sem bara skiljanlegt þegar að að ræða kaup af samkeppnisaðila og síðan þá óháð svokallað clean team sem að mun vinna alla skoðun á rekstrinum. En miðað við okkar forsendur þá þetta fín afkoma sem stendur mjög vel undir þessu kaupverði og allir margfaldarar þess eðlis að hafi jákvæð áhrif á Símann.

En vissulega erum við stutt komin í skoðun og við munum gefa út nánari upplýsingar þegar að þær liggja fyrir.

Eru fleiri spurningar í sal?

Sigurður

Hæ, Sigurður hér frá Akro. Kannski í framhaldi af þessari spurningu, einhver tímalína sem þið gefið út í tengslum við kaupin á Vísi og Bylgjunni?

María

Við höfum ekki gefið út tímalínu einfaldlega af því að verkefnið komið það stutt á veg að það ýmislegt sem að getur komið upp. En við erum að hefja áreiðanleikakönnun núna eftir þá að gagnasöfnun lokið og það verður nokkurra vikna ferli.

Þannig að eins og ég segi, vonandi þá getum við upplýst nánar einhvers konar view á tíma líka þegar að við erum komin í gegnum það.

Sigurður

Og kannski ein í viðbót bara varðandi kostnaðarhliðina. Mér fannst þið koma bara á tekjuhliðina vel og tækifæri í núverandi rekstri á tekjuhliðinni.

Ég var að spá hvaða tækifæri þið sjáið svona aðallega á kostnaðarhliðinni í þá núverandi rekstri áður en hin félögin koma inn?

María

Já. Tækifærin, auðvitað búið að hérna hagræða mikið í Símanum á síðustu árum með mjög góðum árangri og skilvirkni í rekstrinum verið aukin til muna.

Ég held að stærstu tækifærin verði í gervigreindinni og það bara eitt af stefnuverkefnum okkar í ár að innleiða hana með praktískum hætti í rekstur félagsins. Og þar eru bara stórir kostnaðarliðir eins og til dæmis þýðingar á sjónvarpsefni.

Þetta eru fjárhæðir yfir 100 milljónir á ári sem þær eru undir. Þannig að það mikið til þess unnið að finna þessi tækifæri.

Þjónusta og afgreiðsla auðvitað eru ferlar í fjarskiptum mjög vel skilgreindir og mjög staðlaðir, þannig að þetta sérstaklega á einstaklingsmarkaði, þannig að það eru gríðarlega mikil tækifæri að finna tækifærin þar sem við getum notað gervigreind. Það eru stór tækifæri.

Eitthvað meira? En ein spurning hérna úr netshólfinu.

Já, og það svo sem af svipuðu meiði varðandi launamál, launakostnað. Það aðeins vísitölukjarasamningsbundna hækkana og óbreytta stöðugilda milli ára.

Er það eitthvað annað sem skýrir frekari hækkun á þessum launalið?

María

Já, einmitt. Launakostnaðurinn milli ára í Q1 var ef maður reiknar það eins og fram kemur í reikningnum, hann að vaxa þarna 8,7% sirka.

En það sem skýrir kannski einmitt þessa hækkun umfram kjarasamningsbundna hækkunina af því að það alveg rétt, við erum með óbreytt stöðugildi. Annars vegar voru töluverðar skipulagsbreytingar, umfangsmiklar skipulagsbreytingar inn á fyrirtækjasviðinu á Q1, þannig að töluverður kostnaður við starfslok.

Og síðan þá hluti af árangurstengdum launum vegna auglýsingasölu síðasta árs sem var vanáætlað og lenti inn á þetta ár. Þannig að þessir tveir liðir skýra þarna helminginn af aukningunni milli ára.

Þannig að restin þá bara kjarasamningsbundnar hækkanir og þetta launaskrið sem við þekkjum. En þetta eins og ég segi, þetta tengt auglýsingunni, tengist þá kannski lokahnútnum í endanlegri samþættingu á Billboard, en eru auðvitað bara lítill hluti af launagreiðslum Billboard á síðasta ári en féll til núna á Q1 því miður.

Fleiri spurningar í sal? Nei, þá bara þökkum við ykkur kærlega fyrir að gefa ykkur tíma til að hlusta á okkur í dag.

Takk.